Tíminn - 28.05.1994, Side 2

Tíminn - 28.05.1994, Side 2
2 Stiwlim Laugardagur 28. maí 1994 Friöartónieikar í samvinnu listafólks, íslandsdeildar Amnesty og Barnaheilla: „Stríð og friður" í Kristskirkju Maöurinn, réttindi hans og hvemig þessi réttindi eru vanvirt eru viðfangsefni listamannanna á friðartónleikunum „Stríö og friö- ur" sem haldnir veröa í Krists- kirkju klukkan fimm síðdegis, laugardaginn 28. maí, stofndegi Amnesty Intemational. Þrjú tón- verk verða flutt, „ískvartett" eftir Leif Þórarinsson. „Þaö var vor í Króatíu" eftir John Speight viö texta Sæmundar Noröfjörös og Jónasar Þorbjamarsonar verður fmmflutt. Fyrsti opinberi flutn- ingurinn veröur á sólókantötunni „Bænir" eftir Atla Heimi Sveins- son, við texta Sörens Kirkegaards í þýðingu Siguröar A. Magnússon- ar. Tónlistarfóliö sem fram kemur er: Sverrir Guöjónsson kontraten- ór og Auöur Hafsteinsdóttir fiölu- leikari, Ármann Helgason klarin- ettuleikari, Bryndís Halla Gylfa- dóttir sellóleikari, Einar Kristján Einarsson gítarleikari og Martial Nardeau flautuleikari. Milli tón- verka flytur Guörún S. Gísladóttir leikkona ljóðaþýöingar Siguröar A. Magnússonar úr væntanlegu ljóöasafni „Úr ríki samviskunn- ar". Tónleikamir eru haldnir í sam- vinnu listafólksins, íslandsdeildar Amnesty og Bamaheilla, en Mus- ica Nova er sérstakur styrktaraöili. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Mótettukórinn á Listahátíð Vortónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju verba í þetta sinn haldnir sunnudaginn 29. maí undir merki Listahátíöar í Reykjavík 1994. Á efnis- skránni era mótettur án und- irleiks eftir innlenda og er- lenda tónhöfunda. Á tónleikunum ber hátt frum- flutning tónverksins Óður til kærleikans eftir Pál Pampichler Pálsson. Þetta er nýtt verk fyrir kór með einsöngvurum sem Páll samdi með Mótettukórinn í huga. Kórinn flytur einnig eina af hinum miklu mótettum Bachs, Singet dem Herm ein Neues Lied, og þjóölagaútsetn- ingar Jóns Nordals, Atla Heimis Sveinssonar og Jóns Hlöðvers Áskelssonar viö Hallgrímssálma Péturssonar. Einnig skal nefna erlenda höfunda af efnis- skránni, Bruckner, Messiaen, Poulenc og Schiitz. Mótettukór Hallgrímskirkju heldur í lýðveldishátíöarferö til Mið-Evrópu um miöjan júní- mánuö. Þá verður efnisskrá Listahátíöartónleikanna meö í för, auk fleiri stórvirkja kirkju- tónskálda. Miöa á tónleikana á morgun má kaupa viö vægu veröi í miöasölu Listahátíöar og í Hallgrímskirkju, þar sem tón- leikarnir hefjast klukkan 17. ■ Leikskólar Reykjavíkurborgar Lausar eru til umsóknar stöður leikskólakennara í eftir- talda leikskóla: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488 Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230 Heiðarborg v/Selásbraut, s. 77350 Þá vantar leikskólakennara og matreiðslufólk í neðan- greinda nýja leikskóla: Funaborg v/Funafold, s. 879160 Lindarborg v/Lindargötu, s. 15390 Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Sex þúsund króna eingreiöslan: Þúsundir launa fólks fá ekkert Frá fyrri rútudegi. Kynning ferða á rútudegi Rútudagur sérleyfishafa er hald- inn í Umferðamiðstöðjnni í Reykjavík í fimmta sinn í dag. í tilefni dagsins veröur viðamikil sýning í og við Umferöarmið- stööina þar sem sérleyfishafar kynna þjónustu sína og rútur. Sýndar verða margvíslegar teg- undir og stærðir af rútum, trukkum og hálendisbílum. Einnig veröa önnur farartæki í eigu sérleyfishafa til sýnis. Þar má t.d. nefna eldhúsbíla, hljómsveitarbíla, fjallajeppa, farangurs- og reiöhjólakerrur, snjóbíla, vélsleöa og fjallareiö- hjól. Meöal þess sem sjá má á rútusýningunni eru nokkrar glæsilegustu og dýrustu rútur landsins og einnig nokkrir gull- fallegir gamlir rútubílar sem eru til sýnis í tengslum vib sögu- sýningu innandyra í Umferðar- miöstööinni. Þar veröur einnig feröakynning á vegum sérleyfis- hafa þar sem sérstaklega verður kynnt hlutdeild þeirra í upp- byggingu feröaþjónustu í Þórs- mörk, á Arnarstapa og Snæfells- jökli, á Vatnajökli frá Jöklaseli, í Kerlingafjöllum og Kverkfjöll- um. Einnig veröa kynntar út- sýnis- og bátsferðir frá Neskaup- staö og Stykkishólmi ásamt fjölda annarra skoðunar- og sér- feröa um land allt. Ýmislegt veröur gert fyrir bömin á rútudeginum, þau fá góögæti og gosdrykki, blöðrur, penna og límmiða. Aörir gestir geta tekið þátt í feröagetraun sérleyfishafa þar sem fjölmargir veglegir vinningar veröa boðn- ir. ■ „Mönnum finnst þetta heldur skítt, þótt þetta séu auövitab ekki neinir stórpeningar. En þaö er dálítiö skrýtiö aö vera einhverskonar utangaröshópur í þessu og eiga enga sök á því sjálfur," segir Heigi Laxdal, for- mabur Vélstjórafélags íslands. Þúsundir sjómanna á farskipum og fiskiskipum fá ekki sex þúsund króna eingreiöslu um næstu mán- aðamót, auk fjölmargra annarra hópa launamanna sem em með lausa samninga. Yfirmenn á far- skipum fá t.d. ekkert vegna þess aö þeir hafa sagt upp gildandi kjarasamningi vegna vanefnda ríkisvaldsins sem lagði ekki fram frumvarp til laga um alþjóblega íslenska skipaskráningu fyrir 1. maí sl. Sömuleiðis fá sjómenn á Tvær forsýningar veröa á Listahá- tíð í Reykjavík á leikritinu „Sann- ar sögur af sálarlífi systra" sem fyr- irhugaö er að fmmsýna á Smíöa- verkstæöi Þjóöleikhússins í haust. Leikritið er eftir Guöberg Bergsson og Viðar Eggertsson og er efni þess byggt á svokölluðum Tangasög- um Guðbergs. Sögumar lýsa vem- leikanum í íslenskum sjávarþorp- um sem urðu til í skjóli stríös og hermangs um miöja öldina. í leik- ritinu er sagt frá dagstund á Tanga, þar sem boðiö er til jarðar- farar og erfidrykkju. Áhorfendur fiskiskipaflotanum ekkert vegna þess að samningar þeirra veröa lausir frá og meö 15. júní nk. En sem kunnugt er vom samningar þeirra framlengdir frá sl. áramót- um til miös júnímánaðar meö setningu bráðabirgöalaga í janú- ar. Þau lög vom síöan samþykkt nokkm seinna á Alþingi. Sömuleiðs fá rafiönaöarmenn innan Landssambands íslenskra rafverktaka ekkert sem og flug- virkjar, matreiðslumenn og flug- freyjur. Af aðildarfélögum BSRB fá t.d. sjúkraliðar og ljósmæður ekkert og innan BHMR em þaö Félag íslenskra hjúkmnarfræö- inga, Röntgentæknafélag íslands og Stéttarfélag sálfræðinga á ís- landi. kynnast bjargráöi fólksins á Tanga, ómm þess, draumum og bágindum. Leikritið er meinfynd- in, raunsönn og ekki síst lygileg lýsing á íslenskri fjölskyldu. Tangasögur Guöbergs vöktu á sín- um tíma mikið umtal og oft heift- arleg viðbrögö enda hafði þá lítiö verib fjallað um veruleika íslensks samfélags og síst á þann hátt sem þar er gert. Höfundur leikgerðar er Viðar Eggertsson sem jafnframt er leikstjóri. Forsýningarnar veröa 2. og 4. júní og hefjast klukkan 20.00. ■ Leikkonurnar Ingrid lónsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir í hlutverk- um sínum í„Sönnum sögum". Leikrit forsýnt áListahátíð Konur og stúlkur í þjoöbuningi á Þingvöllum myndaöar á þingpalli: Hátíðargestum 1944 safnað á mynd 1994 Þjóbhátíbamefnd væntir þess ab þeir sem vibstaddir vora lýbveldistökuna á Þingvöll- um 1944 og sömuleibis allar stúlkur og konur sem skarta þjóbbúningi á 50 ára afmæl- ishátíb lýbveldisins 1994 noti tækifæri sem þar verbur í bobi og sitji fyrir á sögulegum ljósmyndum á sögulegri þjób- hátíb 1994. Þegar þingfundi á Lögbergi lýkur um hádegisbil 17. júní nk. gefst öllum, sem viöstaddir voru lýðveldistökuna á Þing- völlum 1944, kostur á að koma saman á þingpallinum þar sem fyrirhugað er að taka af þeim hópmynd. Á sama stað mun einnig fara fram hópmynda- taka af stúlkum og konum sem skarta þjóöbúningi á 50 ára af- mælishátíð lýðveldisins á Þing- völlum 1994. Hálfrar aldar afmælis lýöveld- isins veröur minnst á Þingvöll- um 17. júní meö fjölbreytileg- um hátíöarhöldum frá morgni til kvölds, undur kjörorðinu „Þjóö á Þingvöllum". Hátíðarhöldin hefjast aö morgni með klukknahringingu um land allt og íslenski fáninn og hátíðarfáninn veröa dregnir aö húni. Þá verður haldin hug- vekja í Almannagjá, opnuð fjölsýning og þingfundur settur aö Lögbergi. Eftir hádegi veröur flutt vönduö hátíðardagskrá og litrík skemmtidagskrá. Fjölsýn- ing og ótal viðburðir verða á öllu hátíöarsvæöinu. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.