Tíminn - 28.05.1994, Blaðsíða 7
Laugardagur 28. maí 1994
7
Börn oð leik.
Leikskólinn er nú 1. skólastigiö í kerfinu og fóstrurnar orönar
leikskólakennarar:
Leikurinn áfram helsta
kennsluabferð leikskóla
„Áhrifin varbandi bömin eru
öll óbein. Málaflokkurinn
veröur vistaöur í sérstakri
leikskólanefnd, í staö þess aö
vera inni í félagsmálaráöum
eins og nú er algengast, og þá
gefst meiri og betri tími til
umræöna um málefni leik-
skólans. Þaö komi síöan böm-
unum til góöa, eftir því sem
sveitarfélagiö fjallar meira
um þeirra starf og leggur
meiri áherslu og metnaö í
starf leikskólans," svaraöi
Guörún Alda Haröardóttir,
formaöur Félags íslenskra
leikskólakennara. En Tíminn
spuröi hana hverju nýsam-
þykkt lög um leikskóla
mundu koma til meö aö
breyta fyrir sjálf leikskóla-
bömin.
„Annaö, sem kæmi þeim til
góöa, er aö sveitarfélögin eru
hvött til að ráða leikskólafull-
trúa til þess aö halda utan um
málaflokkinn, sem ætti aö bæta
starfið innan hvers leikskóla
fyrir sig," sagði Guðrún Alda.
Leikskólalögunum, sem sam-
þykkt voru á Alþingi 7. maí s.l.,
var fagnaö á nýafstöðnum aöal-
fundi Fóstrufélags íslands, þar
sem nafni þess var breytt í Félag
íslenskra leikskólakennara.
Samkvæmt þeim sé leikskólinn
fyrsta skólastigið í skólakerfinu.
í lögunum sé einnig tekin
ákveðin stefna með því að sér-
stakar leikskólanefndir skuli
eiga að fara með málefni leik-
skóla í umboði sveitarstjóma.
Ennfremur geri lögin ráð fyrir
aö sveitarfélög ráði til sín sér-
staka leikskólafulltrúa, sem sjái
um málefni leikskóla.
— En kemur starfið innan leik-
skólanna til að breytast, t.d. nám-
skrá þeirra?
„Uppeldisáætlun er og hefur
veriö námskrá leikskóla og það
breytist ekki. Og leikurinn verð-
ur. áfram helsta kennsluaðferð
leikskólakennara, þannig að
það kemur ekki til með að
breytast. En leikskólinn kemur
til með aö styrkjast við þessar
breytingar," segir Guðrún Alda.
Ahyggjum yfir að enn vanti
fjölda fóstra til starfa um land
allt var lýst á fundinum. Sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar
tvöfaldaðist á 10 árum fjöldi
stöðugilda í fóstrustörfum í
landinu — úr rúmlega 900
störfum 1982 í rúmlega 1.800
fóstrustörf 1992. Á sama tíma
fjölgaði stöðugildum fóstra að-
eins úr 370 í 600. Þannig að
hlutfall fóstra af starfsfólki í
fósturstörfum lækkaöi úr tæp-
lega 41% niður í rúm 33% á
þessum tíu árum.
Ástæöu þessarar þróunar sagði
Guðrún Alda þá, að eftir að
kappið hófst um uppbyggingu
leikskóla, til þess að verða við
þeim óskum nútíma þjóðfélags
að bömum bjóðist leikskóli, þá
hafi menntunarmöguleikar
fóstra setið á hakanum. Fóstru-
skortur sé ekki vegna þess að fá-
ir sæki í það nám, heldur sé
ástæðan sú aö Fósturskólanum
hafi ekki verið sinnt og hann sé
því löngu spmnginn. Hann hafi
útskrifað á milli 60 og 70 fóstr-
ur á ári, á sama tíma og fóstm-
störfum hefur jafnaðarlega
fjölgað um á að giska 90 á ári.
„Okkur er því kappsmál að
þessi menntastofnun sé efld —
að það verði farið að sinna
henni eins og annarri mennta-
stofnun. Við viljum að Fósmr-
skólinn verði sameinaður
Kennaraháskólanum og teljum
að í því væri mikill akkur. Við
sameininguna yrði til uppeldis-
háskóli, sem styrkja mundi
uppeldis- og menntastefnu í
landinu. Auk þess sem stéttim-
ar (kennarar og leikskólakenn-
arar) hefðu þá sameiginlegan
gmnn, þá væri hreinn fjárhags-
legur akkur að þessu líka. Þann-
ig nýttist t.d. sameiginlegt
bókasafn, sameiginleg rann-
sóknardeild og fleira," sagði
Guðrún Alda Harðardóttir leik-
skólakennari. ■
Hefurðu hmleitt
Fiskeldisnám
Fjölbrautaskóli Suðurlands býður upp á fiskeldisnám við fiskeldisbraut
skólans sem staðsett er á Kirkjubæjarklaustri.
Inntökuskilyrði eru annað hvort tveggja ára nám í fjölbrautaskóla (eða
sambærilegt nám) eða að viðkomandi sé orðinn 25 ára og hafi unnið við
fiskeldi, sjávarútveg eöa matvælaiðnað í tvö ár en þá er krafist
færri eininga skólanáms.
Að loknu námi fá nemendur starfsheitið fisk.eldisfræðingur' með
réttindi til starfa við fiskeldisstöðvar en auk þess er námið leið til
stúdentsprófs eins og aðrar brautir fjöibrautaskóla.
Við skólann er heimavist, gott bókasafn og fiskelidsstöð. þar sem hluti verklegu
kennslunnar fer fram, og hann er á ýmsan annan hátt aðlaðandi staður fyrir lítinn
f hóp í verklegu og bóklegu námi.
/r Kirkjubæjarklaustur er rómað fyrir veðursæld og náttúrufégurð og þar er öll almenn
þjónusta, svo sem heilsugæsla, verslanir, bankar, póstur og sími,
leikskóli, grunnskóli, tóniistarskóli o.s.frv.
Umsóknarfrestur um skólavist næsta ár er til 5. júní '94.
Nánari upplýsingar gefur Hanna Hjartardóttir
í síma 98-74633 eða 98-74635, fax 98-74833.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Innritun nemenda í
framhaldsskóla í
Reykjavík
fer fram í Miðbæjarskólanum við Frikirkjuveg dagana
1. og 2. júní n.k. frá kl. 9.00-18.00. Umsóknum fylgi
Ijósrit af prófskírteini.
Námsráðgjafar verða til viðtals í Miðbæjarskólanum
innritunardagana.
Menntamálaráðuneytið.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Skólameistari
Menntaskólans á
Egilsstöðum
Laus er til umsóknar staða skólameistara Menntaskól-
ans á Egilsstöðum. Staðan veitist frá 1. ágúst 1994.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 23. júní n.k.
Menntamálaráðuneytið.
ÚTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboð-
um í viðgerðir á gangstéttum.
Verkið nefnist:
Gangstéttaviðgerðir II, 1994.
Helstu magntölur eru:
Steyptar stéttir u.þ.b. 3.000 m2
Hellulagðar stéttir u.þ.b. 1.000 m2
Síðasti skiladagur er 1. október 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 31. maí, gegn kr.
5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 8. júní
1994, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
Félagsmálaráðuneytið
auglýsir lausar til umsóknar eftirgreindar
stöður á sviði barna- og unglingamála á
vegum ráðuneytisins:
Stöðu yfirmanns skrifstofu ráðuneytisins í bama- og ung-
lingamálum. Skrifstofan annast yfirstjóm, fjármál og
heildarskipulagningu barnavemdarmála á grundvelli laga
um vernd barna og ungmenna. Umsækjendur skulu hafa
háskólamenntun auk reynslu eða þekkingar á sviði
barnaverndar, stjórnunar og rekstrar.
Stöðu yfirmanns við Móttöku- og meðferðarstöð fyrir
unglinga (áður Unglingaheimili ríkisins). Stofnunin sinnir
bráða- og neyðarvistun auk skammtima- og eftirmeðferð-
ar fýrir unglinga. Umsækjendur skulu hafa háskóla-
menntun auk reynslu eða þekkingar á sviði meðferðar
barna og unglinga.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
berist félagsmálaráðuneytinu fýrir 30. júní nk.
Félagsmálaráðuneytið, 26. maí 1994.