Tíminn - 28.05.1994, Side 6
6
fjwfani
Laugardagur 28. maí 1994
Sagt er aö / Banda-
ríkjunum sé orð/ð
þjóöarsport oð
saka fólk um kyn-
feröislega áreitni
s
Ifjölmiðlum sést komist svo
að orði að Bandaríkin séu
hrjáð af „vinstri-mccarthy-
isma". Aðalhvatafólkiö á bak
við þá öldu séu femínistar,
gjaman með rætur í 68-tíman-
um. Yfirlýst markmiö þeirra er
að útrýma kynferðislegri
áreitni, en af ýmsu viröist mega
ráöa að sú viðleitni hafi að
nokkm leyti gengið út í nánast
afkáralegar öfgar. í þessu hafa
femínistum áskotnast ólíklegir
bandamenn: heit- og strangtrú-
að kristið fólk með sjónvarps-
prédikara í broddi fylkingar.
Þessir aöilar em að sögn eins
blaðsins sammála um að konan
sé veik fyrir, karlmaöurinn dýr
og kynlíf synd.
Bylgja þessi, sem sumir líkja
við nomaveiðar, á upphaf sitt í
baráttu gegn kynferöislegu of-
beldi. Þesskonar ofbeldi er ein af
viöurstyggilegustu plágunum
sem hrjá Bandaríkin, en margra
mál er að með meintri baráttu
gegn kynferðislegri áreitni, sem
nú er sem mest í tísku þar, sé
gengið á snið við mesta hryll-
inginn í þessum efnum, nauðg-
anirnar.
„Líf hans er
eyðilagt"
í fjölmiðlum ýmsum hefur því
undanfarið verið haldiö fram,
að í Bandaríkjunum sé það orð-
in einskonar þjóðarskemmtun
að kæra fólk fyrir kynferðislega
áreitni eða vekja athygli á
meintu misferli þess í þeim efn-
um. Að vera sakaöur um „sexual
harassment" er eitt af því sem
Bandaríkjamenn nútímans ótt-
ast mest, sérstaklega í skólum,
en þab á líka vib um margskon-
ar stofnanir og vinnustaði. Mál-
in, sem af slíkum ásökunum
hafa risið, em oröin illteljanleg.
í þýsku blaði stendur ab þetta
hafi í mörgum fyrirtækjum og
skólum leitt af sér ástand, sem
öfgalaust megi kalla stalínskt.
Það lýsi sér þannig ab sérstak-
lega karlmenn lifi í stöðugum
ótta við að umgangast konur,
vegna þess að sumstaðar virðist
næstum því hvað sem er í
hversdagslegustu framkomu
vera tekið gilt sem kynferðisleg
áreitni, ef kært er.
Kennarar í háskólum og
menntaskólum veröa illa úti í
þessu æði. Prófessor einn hafði
mynd af eiginkonu sinni í bað-
fötum á skrifboröi sínu. Það
varð til þess að einn nemenda
hans, stúlka, kærði hann fyrir
kynferöislega áreitni. Prófessor í
bókmenntum við New Hamps-
hire-háskóla, Silva að nafni,
líkti aðferð viö samningu skáld-
verks við kynmök. „Þú og við-
fangsefniö verða eitt," sagði
hann. Nokkrum kvennemenda
hans fannst hann að sögn hafa
niöurlægt þær meb þessari sam-
líkingu og kærðu þær hann fyr-
ir stofnun í háskólanum, sem
hefur með höndum „vamir
gegn kynferðislegri áreitni og
naubgunum". Stofnunin fór
með málið fyrir rétt. Niðurstað-
an varð að prófessor Silva var
rekinn og dæmdur til að greiða
sekt og fara í kynferbisterapíu á
sinn kostnað. „Líf hans," segir
einn starfsbræðra hans, „er
eyðilagt." Silva var þekktur
maöur í sinni grein og hefur
þetta mál hans því vakib nokkra
athygli.
Ásakanir um „sexual harassment" eru eitt afþvísem nútíma Bandaríkjamenn eru sagöir óttast mest.
„Má ég leggja hönd
mína á öxl þér?"
Einna lengst er í þessum efnum
gengið í menntaskólanum í
Antioch, vestan til í Ohio. í
þeim skóla telja menn sig vera
framverði nýs menntunarkerfis
og skapara nýs mannkyns. Lítiö
er um að einkunnir séu þar gefn-
ar. Áhrifamesti aðili í skólanum
er „nauöganaskrifstofan", svo
kölluð í daglegu tali. Forstöðu-
maður þar er Karen Hall, sem
látib hefur talsvert að sér kveða í
kvenréttindamálum. Undir for-
ustu hennar hefur skólinn
markab stefnu í kynferðismál-
um, þar sem meginatriðið er að
piltur, sem fer á fjörur við
stúlku, spyrji hana skýrt og
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
greinilega um samþykki hennar
hverju smáatriði viövíkjandi. Til
dæmis: „Má ég leggja hönd
mína á öxl þér?" Það má piltur-
inn ekki gera nema stúlkan hafi
svarað greinilega: „Já, þú mátt
leggja hönd þína á öxl mér." Sé
stúlkan undir áhrifum áfengis er
hún gefur slíkt leyfi, er það ógilt,
og leggi pilturinn samt sem áður
hönd sína á öxl hennar, má
hann búast viö að verða kærður
fyrir naubgunartilraun eða jafn-
vel nauðgun.
Um 70% nemenda í Antioch-
skóla em stúlkur og af skólapilt-
unum em tiltölulega margir
hommar. Á vegg í skrifstofu
sinni hefur Karen Hall spjald,
þar sem taldar em upp „hundr-
að aðferðir sem konur geta beitt
til að binda enda á feðraveldið".
Ein þeirra aðferða er: „Elskaðu
konu."
Á dansleik þar í skólanum á
laugardagskvöldi þóttust ein-
hverjir sjá pilt að nafni Randy
Riess kyssa stúlku sem hann var
að dansa við. Önnur vitni em
ekki viss um að þetta hafi gerst,
en halda því á hinn bóginn fram
að Randy hafi þrýst dömunni
„of fast" ab sér. Fyrir þaö lá við
að hann yrði rekinn úr skólan-
um, sem hefði orðið einkar al-
varlegt mál fyrir hann, þar eð
hann var kominn að lokaprófi.
En hann bjargaöi sér með því að
játa sig sekan um allt sem á
hann var boriö og gera sjálfs-
gagnrýni. En honum er bannab
að fara á dansleiki í skólanum og
allt samneyti við kvenfólk. Til
vonar og vara fer hann næstum
aldrei út fyrir dyr herbergis síns.
Þess utan var hann skyldaður til
ab gangast undir terapíu fyrir
kynferðisafbrotamenn.
Gullnáma fyrir
lögfræöinga
Einn af kennurunum við skól-
ann, Robert Fogarty, varð svo
hneykslaður á aðfömnum við
Randy Riess ab hann líkti þeim
viö sýndarréttarhöldin í Moskvu
á fjórða áratugnum.
„Harassment-bransinn" er orð-
inn bandarískum lögfræðingum
sannkölluö gullnáma („við er-
um með þesskonar mál í smá-
lestatali," er haft eftir einum
þeirra) og sumir þeirra sem kæra
hagnast líka vel á því. Dómari
sem kyssti stúlku, hraðritara
sinn, í óleyfi hennar, var dæmd-
ur til að borga henni sem svarar
um tíu og hálfri milljón ísl. kr. í
miskabætur. Við þetta vaknar
kannski fyrst og fremst sú spum-
ing hversu háar bætur þær kon-
ur fái, sem nauðgað er og líf
þeirra eyöilagt, og hversu hörð-
um refsingum þeir sem glæpina
fremja gegn þeim sæti. Flestar
kæmmar um kynferðislega
áreitni em frá konum, en karlar
bera einnig alloft fram slíkar
kæmr. Starfsmanni borgar-
stjómar Minneapolis var vikið
úr starfi og kærði hann það sem
kynferðislegt misrétti og kyn-
ferðisáreitni, þar eð hann taldi
aö kona í borgarstjóm hefði ráð-
ið því að honum var sagt upp. Á
málaferlum út af því græddu
Iögfræöingar 150.000 dollara.
Nokkuð algengt mun orðið ab
fólk beri fram ásakanir um kyn-
ferðislega áreitni og misrétti af
kynferöisástæðum með aukinn
frama fyrir augum, í hefndar-
skyni eða beinlínis til að græða á
því. ■
Spyrja skýrt og greinilega og bíba greinilega oröaös svars.