Tíminn - 28.05.1994, Page 10
10
Laugardagur 28. maf 1994
Hagyr&ingaþáttur
Kosningavísur
Flestu tjaldað er í ár,
eyðist haldið líka.
Býðurgjald við pappírspár
peningsvaldaklíka.
Skrift á vegginn sýnir sú
að senn er úti valdið.
Lofar bót og betrun nú
borgarstjómarhaldið.
(Kjósandi)
Komið til að fara
Að atvinnuleysi sé göfugt og gott
og gœfulegt sýnist víst öngvum.
En þjóðin er ömgg; nú bœgir því brott
Bubbi — með trúbadorsöngvum.
Svo kvað Búi, sem heyrði að óvart kom vísupart-
ur í mæltu máli í útvarpi og úr varð fyrripartur:
Gott er að hafa mikinn mat
og marga helgidaga.
Botn:
Að hentugt sé það held íplat,
efholdin á að laga.
eða:
Á þó margur ekkert fat
og ekki bein að naga.
Reynir Ragnarsson hefur sitthvað við vaxtamálin
að athuga, eins og vel kemur fram í eftirfarandi
vísu:
Um vaxtalækkunar skrum
Sé það best á sjálfum mér,
þó sumir svífi á skýi,
að lœkkun vaxta á lánum er
leiksýning og lygi.
Pétur Stefánsson er pólitískur í besta lagi og er
ómyrkur í máli um landsstjórnina:
Enn má landinn líða hart,
lagður í Davíðs hlekki.
Framundan er feikna svart
— Framsókn stjómar ekki.
fón og Davíð þjaka þjóð,
það em daprar stundir.
Vona minna geislaglóð
gengin senn er undir.
Fólksins óskir almennar
em að stjómin víki.
Enda ráða öllu þar
úlfar í sauðarlíki.
Davíð hefur þrek og þor,
því skal ekki neita.
En gmnar lítt að vetri í vor
vonlaust er að breyta.
Landið okkar aftur rís
upp í góðum bata,
aðeins þegar enginn kýs /
íhaldsflokk og krata.
og hananú!
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4.
105 Reykjavík. P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA!
Hvernig
á ég a& vera?
HEIÐAR JÓNSSON SNYRTIR
svarar spurningum lesenda
Trimmab á háum hælum
Ein, sem lætur sig útlit og
klæöaburð varða, spyr hvort
viðeigandi sé að ganga í há-
hæluðum skóm í jogginggalla.
Hún vill einnig fá að vita hvort
það sé yfirleitt hægt að ganga í
skræpóttum flíkum, sem ætl-
aðar eru til að trimma í hvar
sem er og hvenær sem er.
Svar: Ég hef fengið þó nokkuð
mikla gagnrýni fyrir ádeilur
mínar á jogginggalla. Upphaf-
lega eru þetta æfingagallar fyr-'
ir þá sem stunda íþróttir og
flíkur til að vera í í fjallgöng-
um. Þeir geta líka nýst nokkuð
vel þegar miðstöðin eða hita-
veitan klikkar.
Að öðru leyti vil ég sem sér-
fræðingur meina að hvorki
menn né konur ættu að ganga
í svona flíkum við aðrar að-
stæður en hér er lýst. Þetta eru
víðar flíkur meö skrefbótum
og fólk, sem telja verður vel
vaxið, verður oft luralegt í
jogginggalla.
Mér finnst fráleitt að konur
gangi í jogginggalla á háum
hælum eða séu í æfingabún-
ingum á þeim stöðum þar sem
háir hælar eiga við.
Ég hef áður bent á að þessir
búningar eiga hvergi vel við,
nema við íþróttaiðkun af ein-
hverju tagi. Til eru trimmgall-
ar sem eru ágætlega klæðilegir
og fara fólki vel, því það hefur
orðið framþróun á þessu sviði
einsog öðrum. En það er sama
hve jogginggalli er smart,
hann á ekki vib hvar sem er og
honum hæfir ekki annað en
íþróttaskór. Ég hef fengið ávít-
ur fyrir að halda þessu fram,
en þetta er mín skoðun. Fólk
hefur leyfi til að klæða sig
einsog því sýnist og finnst fal-
legt, en ég hef líka leyfi til að
láta mér finnast fólk í svona
múnderingu og á ópassandi
skóm púkalegt og láta þá skoð-
un í ljós.
FAXNUMERIÐ
%
ER 16270
'sff
"v’.l
ii
Skattframtal lögaðila:
Skilafrestur rennur út
þann 31. maí
Síðasti skiladagur skattframtals lögaðila er 31. maí.
Skattframtalinu á að skila til skattstjóra
í viðkomandi umdæmi.
aa -mssM. wmm
gsmmm m&m mmm smm
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
■vftö