Tíminn - 28.05.1994, Blaðsíða 11
Laugardagur 28. maí 1994
9Smktm
ii
Sumartónleikar og Norður-
landaferð Fílharmóníu
Undanfarin ár hefur starf-
semi Söngsveitarinnar
Fílharmóníu í Reykjavík
farið jafnt og þétt vaxandi, und-
ir stjóm Úlriks Ólasonar organ-
ista, og handleiðslu Elísabetar
Erlingsdóttur, ópemsöngkonu
og söngkennara. Auk hefð-
bundinna verkefna, þ.e. flutn-
ings stórra tónverka með
hljómsveit, hefur söngsveitin
haldið aðventutónleika í Krists-
kirkju í Landakoti sex ár í röð,
við vaxandi vinsældir. Geisla-
plata með slíku efni, „Á hæstri
hátíð", sem gefin var út fyrir
tveimur ámm, hefur hlotið
góða dóma, enda mjög til
hennar vandað, og báðar sjón-
varpsstöðvarnar hafa tekið upp
og sýnt jóladagskrá með söng-
sveitinni.
Þá sungu félagar úr Fílharmón-
íu vib vígslu Jósefskirkjunnar aö
Jófríðarstöðum í Hafnarfirði 7.
júlí í fyrra, og einnig við fyrstu
sjónvarpsmessuna í Ríkissjón-
varpinu í sömu kirkju síðar á ár-
inu, en söngsveitin hafði áður
tekið þátt í kaþólskri messu við
páfakomu vorið 1989. Loks má
geta þátttöku söngsveitarinnar í
fmmflutningi ópemnnar
„Baldr" eftirjón Leifs árið 1991,
undir stjórn Pauls Zukofsky, og
upptöku verksins á geislaplötu,
sem mörkuðu tímamót hér-
lendis.
Að loknum abaltónleikum
Söngsveitarinnar Fílharmóníu í
fyrra, „Árstíðunum" eftir J.
Haydn, var sú nýbreytni upp
tekin að æfa allmörg íslensk
sönglög, sem flutt vom ásamt
öðm efni á vortónleikum í Víði-
staðakirkju í Hafnarfiröi. Haldið
hefur verið áfram á sömu braut
í vetur, jafnframt æfingum á að-
alverkefni þessa starfsárs,
„Requiem" Mozarts, sem flutt
var þrisvar í Kristskirkju fyrir yf-
irfullu húsi, og á aukatóníeikum
í Langholtskirkju á annan í
páskum.
íslensk sönglög, gömul og ný,
verða eingöngu á efnisskrá Fíl-
harmóníu, þegar kórinn fer í
fyrstu söngferb sína til útlanda í
júní n.k., í lok 35. starfsársins.
Ferðin, sem er einnig farin í til-
efni 50 ára afmælis íslenska lýb-
veldisins, er m.a. styrkt með
Ingibjörg Stefánsdóttir:
Voriðí
Reykjavík
Idag velja Reykvíkingar þá
framtíð, sem þeir vilja búa
sér og bömum sínum
næstu fjögur árin. í fyrsta sinn
í áratugi gefst reykvískum kjós-
endum nú kostur á að velja um
tvo sterka framboðslista. En
um hvað stendur vahð?
Annars vegar er sögulegur listi
félagshyggjufólks, Reykjav-
íkur-listinn. í fyrsta sinn hafa
miðju- og vinstriflokkar sam-
einast til þess að bjóða Reyk-
víkingum raunvemlegan val-
kost gegn frjálshyggjunni.
Hins vegar er Sjálfstæbisflokk-
urinn, sem stjórnað hefur
borginni síbustu tólf árin.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lengi verið sterkari í Reykjavík
en á landsvísu og hefur nánast
„átt" borgina.
Fjáraustur
sjálfstæöismanna
Sjálfstæðismönnum brá illa
við, þegar sýnt var að andstæð-
ingar þeirra myndu sameinast
um lista. Þeir líta á borgina
sem sína eign og kjósendur
sem markabsvöm, sem hægt er
að kaupa með ódýmm áróbri.
Fyrst reyndu þeir ab uppnefna
Reykjavíkurlistann og kalla
hann Reiða listann, Rauða list-
ann og þar fram eftir götun-
um.
Þá reyndu þeir að banna nafn
listans og fengu sínu fram-
gengt í kjörstjóm. Þegar það
dugði ekki til ab breyta niður-
stööum skoðanakannananna,
gripu valdhafar í Valhöll til ör-
þrifaráða. Nú hafa þeir ausið
tugmilljónum í auglýsingaher-
ferð, sem einkennist af per-
sónulegum árásum á andstæð-
ingana.
framlagi Norræna menningar-
sjóbsins og opinberra aðila hér-
lendis. Sungið verður eingöngu
í stómm kirkjum: Frognerkirkj-
unni í Ósló miðvikudaginn 8.
júní kl. 19.30, Betlehemskirkj-
unni í Gautaborg fimmtudag-
inn 9. júní kl. 19.30, Sankt
Pauls-kirkjunni í Kaupmanna-
höfn laugardaginn 11. júní kl.
11.30, og loks í Dómkirkjunni í
Lundi sunnudaginn 12. júní kl.
17.00. Einsöngvari með kóm-
um verður Elísabet Erlingsdótt-
ir. Douglas Brotchie, sem ab-
stoðað hefur á æfingum í vetur,
annast leik á píanó og orgel.
Stjórnandi er eins og áður Úlrik
Ólason.
Áður en haldið verður utan,
mun Fílharmónía halda tvenna
Söngsveitin Fílharmónía.
tónleika hérlendis, sumartón-
leika með sömu efnisskrá, þ.e.
íslenskum þjóðlögum og söng-
lögum eftir fjórtán íslensk tón-
skáld, eldri sem yngri. Em fyrri
tónleikarnir í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði í dag, kosningadag-
inn 28. maí, kl. 17.00, en hinir
síðari verða í Selfosskirkju mið-
vikudaginn 1. júní, kl. 20.30.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill á báða tónleikana. Von-
ast söngsveitin eftir að sjá þai
sem flesta velunnara sína og
stubningsabila, jafnframt þvi
sem þakkaöur er fjárhagslegui
stuöningur vegna Norðurlanda-
ferðarinnar. ■
Leikmenn hljóta að spyrja
hvaðan allt þaö fé kemur, sem
sjálfstæðismenn eyða í sjón-
varps- og blaöaauglýsingar.
Það er ekkert leyndarmál að
ýmis stórfyrirtæki í borginni
styðja flokkinn dyggilega. Þau
ætlast til launa.
Einkavinavæðing hefur ein-
kennt Sjálfstæöisflokkinn í
borgarstjóm og eflaust munu
gamlar leyniskýrslur ráðgjafa
fyrmm borgarstjóra koma aft-
ur í leitimar, nái Sjálfstæðis-
flokkurinn meirihluta í borg-
inni. Hagsmunir einkavinanna
em andstæðir hagsmunum
Reykvíkinga. Það er lítið að
marka þá sauðargæm „mjúku"
málanna sem flokkurinn hefur
íklæðsf nú rétt fyrir kosningar.
Tækifæri til framtíÖar
Að Reykjavíkurlistanum
stendur fólk, sem hefur unnið
vel saman í borgarstjóm síð-
ustu tólf ár. Frambjóðendur
Reykja-víkurlistans hafa barist
ámm saman fyrir einsetnum
skóla, fleiri leikskólum og mál-
efnum fólksins í borginni.
Þessum tillögum hefur verið
vísað frá af Sjálfstæbisflokkn-
um, þótt hann taki þær nú og
geri ab sínum.
Reykvíkingar em skynsamari
en svo, að hægt sé að kaupa þá
meb fjáraustri og auglýsihgum.
Nú gefst okkur öllum tækifæri
til að breyta framrás sögunnar
og skapa okkur og bömum
okkar lífvænlega borg. Hvert
atkvæði skiptir máli og þitt at-
kvæöi getur skipt sköpum. Þú
munt aldrei gleyma hvab þú
kaust vorið 1994.
Höfundur er blabamabur.
I kjörklefainuni
ert u frfáls
Þannig lítur
kjörseöillinn
út þegar búið
er að kjósa
Rey kj a víku r I i s t a n n