Tíminn - 28.05.1994, Page 15
Laugardagur 28. maí 1994
ffiÍBIÍtltSI
15
Heimsfræg frímerkja-
söfn á íslandi
Landssýning íslenskra frí-
merkjasafnara, ÍSFRIM, árib
1994 hófst í gær, föstudag, og
stendur til sunnudags, 29.
maí. Hún er haldin í Iþrótta-
húsi Hagaskóla. Sýningin er
aö venju á vegum Landssam-
bands íslenskra frímerkja-
safnara, en framkvæmdaaðil-
ar þessa árs eru Klúbbur
Skandinavíusafnara og ís-
lenskir mótífsafnarar.
Auk þess að kynna það mark-
verðasta, sem á döfinni er í frí-
merkjasöfnun hérlendis, hefur
sýningamefnd kappkostað að
reyna aö fá til landsins erlend
mótífsöfn fullorðinna safnara.
Má þar fyrst telja safnið „Fíll-
inn", sem er í eigu Mary Ann
Owens frá Bandaríkjunum, en
þaö er nafntogaðasta mótífsafn
í heiminum um þessar mundir
og hefur hlotið heiðursverð-
laun á fleiri sýningum en tölu
verður á komið. Einnig mun
Mary Ann Owens sýna söfnin
„Hlífafræði", sem fjallar um
regnhlífar, „Dóná svo blá", og
„Bandarísku farartækjafrímerk-
in". Auk þessara safna koma til
landsins safn sem heitir „Ját-
varður VIII — Allt fyrir ástina"
sem rekur ástir Játvarðar Eng-
landskonungs og frú Simpson,
og síðast en ekki síst „Víking-
arnir" sem er í eigu dr. Dan
Laursen og hlaut gullverðlaun á
Kólumbusarsýningunni í Chi-
cago árið 1992, og hefur verið
sérstaklega endumnniö fyrir
ÍSFRÍM.
Mary Ann Owens kemur til
landsins í tilefni sýningarinnar,
og er sú heimsókn mikill fengur
fyrir íslenska frímerkjasafiiara,
því hún hefur verið í fremstu
röð frímerkjasafnara í heimin-
um um árabil. Mary Ann Ow-
ens mun halda fyrirlestur á veg-
FRÍMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
um íslenskra mótífsafnara
þriðjudaginn 24. maí n.k. um
að sýna frímerki. Fyrirlesturinn,
sem verður á ensku, verður
þýddur fyrir þá sem þess óska.
Fundurinn hefst kl. 20.30 að
Síðumúla 17 og allir eru vel-
komnir.
Einnig verður á ÍSFRÍM lögð
áhersla á hinn svokallaöa „Nú-
tímaflokk" þar sem safnarar
eiga þess kost að blanda
óskyldu efni inn í söfn sín til að
skýra þema safnsins betur. Má
nefna safn með fólki, þar sem
teikningum Halldórs Pétursson-
ar er blandað saman við frí-
merkin, og „Öðruvísi söfnun"
þar sem frímerki er fylgt frá
prentsmiöju til notanda.
Þá verður list Þrastar Magnús-
sonar kynnt nokkuð rækilega á
ÍSFRÍM, en Þröstur hefur til
margra ára teiknað flest íslensk
frímerki, og hefur hann og list
hans unniö til margra verð-
launa og viðurkenninga á er-
lendum vettvangi. Á síðasta ári
fékk frímerki, sem Þröstur hafði
teiknað, fyrstu verðlaun „Can-
adiana Study Unit" fyrir frí-
merki tengt Kanada, og íslensk
frímerki, sem Þröstur hafði
teiknað, voru kosin fallegustu
frímerki í heimi af lesendum
franska tímaritsins „Timbrolo-
isirs".
Póst- og símamálastofnunin
mun hafa opiö sérstakt pósthús
á opnunartíma sýningarinnar,
og sérstimplar verða eftir þema-
dögum ÍSFRÍM:
27. maí er dagur íþrótta — Sér-
stimpill er merki HM í hand-
knattleik á íslandi 1995.
28. maí er dagur íslands — Sér-
stimpill er íslenski fálkinn,
skjaldarmerki landsins 1904.
29. maí er dagur samgangna —
Sérstimpill í tilefni 80 ára af-
mælis Eimskipafélags íslands
hf. er Gullfoss hinn fyrsti.
Alla dagana veröur einnig sér-
stimpill með merki sýningar-
innar, sem er teikning af styttu
Einars Jónssonar af Ingólfi Am-
arsyni.
ÍSFRÍM verður opin í dag, laug-
ardag, frá kl. 10-21, og sunnu-
daginn 29. maí frá kl. 10-18.
DACBÓK
iir
maí
148. daqur ársins - 217 daqar eftir.
21. vika
Sólris kl. 3.34
sólarlag kl. 23.21
Dagurínn lengist
um 6 mínútur
Félag eldri borcjara í
Reykjavík og nagrenni
Bridskeppni, tvímenningur, kl.
13 í Risinu og félagsvist kl. 14
sunnudag.
Dansað í Goöheimum kl. 20.
Mánudag: Opið hús í Risinu kl.
13-17. Frjáls spilamennska.
Lauqardælakirkja í Flóa
Guðspjónusta kl. 14 sunnudag.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
Opinber fyrirlestur í
Odda
í dag, laugardaginn 28. maí, kl.
14 heldur Ólafur Páll Jónsson
fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki.
Fyrirlesturinn nefnist Fmm-
speki Aristótelesar. í honum
mun Ólafur Páll fjalla um nokk-
ur lykilhugtök í frumspeki Aris-
tótelesar, einkum þó hugtökin
efni og fmmvemnd. Einnig
mun hann setja kenningu Aris-
tótelesar í samband viö hug-
myndir forvera hans, þ.á m.
fmmmyndakenningu Platóns
og einhyggju Parmenídesar.
Ólafur Páll Jónsson lauk B.A.-
prófi í heimspeki frá Háskóla ís-
lands í október 1993 og fjallaði
lokaritgerð hans um frumspeki
Aristótelesar. Ólafur er bóka-
vörður og vinnur að útgáfumál-
um.
Fyrirlesturinn verður í stofu
101 í Odda. Fyrirlesturinn er
öllum opinn og er aðgangur
ókeypis. Aö fyrirlestrinum lokn-
um gefst kostur á fyrirspurnum
og umræöum.
Að loknum fyrirlestri og um-
ræðum verður haldinn á sama
staö Aðalfundur Félags áhuga-
manna um heimspeki. Aöal-
fundurinn er opinn öllu félags-
fólki. Á dagskrá em venjuleg að-
alfundarstörf í samræmi við lög
félagsins.
Fyrirlestur í Odda:
Hvemig verður mannheimur
til?
Mánudaginn 30. maí næst-
komandi flytur Páll Skúlason
prófessor fyrirlestur á vegum
Siðfræðistofnunar, sem ber
heitið Hvemig verður mann-
heimur til?
í lestrinum mun Páll halda því
fram ab það sé ákveöinn háttur
á að nema náttúmna sem heild
sem liggi skilningi okkar á vem-
leikanum til grundvallar og ab
sá skilningur skipti síðan sköp-
um vib mótun mannheims.
Páll mun lýsa þeim kynnum af
náttúmnni sem hann telur hér
skipta mestu og taka dæmi af
eigin reynslu af Óskju í því sam-
bandi. Þá mun hann ræða ýms-
ar efasemdir um slíka reynslu og
náttúmlýsingu sem á henni er
byggö. Einnig mun hann leitast
við að skýra hvemig hugurinn
vinnur úr reynslu sinni af nátt-
úmnni og skapar það sem við
köllum menningu.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 101 í Odda og hefst kl.
20.15.
Leikhópurinn„Erlendur"
sýnir.
Dæqurvísa jakobínu
Leiknópurinn „Erlendur" flytur
leikþátt byggðan á skáldsögu
Jakobínu Sigurbardóttur, „Dæg-
urvísu", í leikstjórn Helgu E.
Jónsdóttur, í Listaklúbbi Leik-
húskjallarans, mánudaginn 30.
maí kl. 20.30.
Þetta er stytt leikgerð unnin
uppúr leikgerð Bríetar Héðins-
dóttur, sem hún vann, ásamt
höfundinum, fyrir Ríkisútvarp-
ið og flutt var árið 1974. Sagan
fjallar um hús í Reykjavík og
íbúa þess. Fylgst er með daglegu
amstri þeirra einn dag í maí-
mánuði. Tónlist við leikþáttinn
er fmmsamin af Þórði Magnús-
syni og er það Þórhildur Björns-
dóttir sem leikur á píanóib.
í leikhópnum em fimm ungir
leikarar, sem nýlega hafa lokib
leiklistarnámi í Bandaríkjunum
og Bretlandi. Þeir em: Gísli Óla-
son Kæmested, Ragnhildur Rú-
riksdóttir, Rannveig Þorkels-
dóttir, Sigrún Gylfadóttir og
Skúli Ragnar Skúlason.
Sigrún Eldjárn sýnir í
Slunkaríki á Isafíröi
í dag, laugardaginn 28. maí, kl.
16 verður opnuð málverkasýn-
ing í Slunkaríki, Aðalstræti 22 á
ísafirði. Það er Sigrún Eldjárn
myndlistarmaður sem sýnir ol-
íumálverk unnin á ámnum
1992-94. Þetta er tólfta einka-
sýning Sigrúnar. Hún hélt síðast
stóra sýningu í Listasafni ASÍ
1993 og aðra minni í Lundún-
um sama ár. Myndefnið er litir
og form kringum fólk í lands-
lagi og vináttusamband milli
fólks og ávaxta. Hin klassíska
peysufatakona hefur og allvíða
tranað sér fram á myndflötinn.
Sigrún vinnur auk málverksins
grafíkmyndir, vatnslita- og ol-
íupastelmyndir og mun sýnis-
horn af slíku sjást í Slunkaríki.
Sýningin í Slunkaríki stendur
til 12. júní. Hún er opin kl. 16-
18 frá fimmtudegi til sunnu-
dags að báðum dögum með-
töldum.
Pennavinur í Wales
26 ára kennaranemi í Norður-
Wales í Bretlandi óskar eftir ab
heyra frá einhverjum stallbrób-
ur sínum eða -systur, sem
myndi langa til að bæta sig í
ensku og um leið kenna honum
eitthvað í íslensku, ellegar þá
bara skrifast á.
Paul Owen
2 Tan-Yr-Allt
Cefn-Y-Bedd
Wrexham
Clwyd
North Wales
UK
LL 12 9SW
TÍMARIT
,VÁLS OG MENNINCAR 2-94
Sjón og
Derrida
Annað hefti Tímarits Máls og
menningar (2/1994) er komið
út. Uppistaðan í tímaritinu er
að þessu sinni þríþætt: 1) Þrjár
greinar sem tengjast ljósmynd-
um og eðli þeirra á einn eöa
annan hátt. 2) Þrjú ávörp sem
flutt vom þegar stílverðlaun
Þórbergs Þórðarsonar vom af-
hent Þorsteini Gylfasyni þann
30. mars s.l. 3) Nýtt og afar ítar-
legt viötal við franska heim-
spekinginn Jacques Derrida.
Derrida er einn af þekktustu
hugsuðum samtímans, en
hann kom hingað til lands síð-
astliðið haust í boði Háskóla ís-
lands og hélt m.a. fyrirlestur
fyrir troðfullu Háskólabíói.
Derrida kemur víða við í viötal-
inu og veltir fyrir sér ýmsu sem
er daglega til umræðu nú um
stundir, s.s. fréttum, fréttamati
fjölmiðla, þjóðemi og kyn-
þáttahatri. Páll Skúlason, pró-
fessor í heimspeki vib H.Í.,
skrifar aðfaraorð að viðtalinu
við Derrida.
Af öbm efni í vorhefti TMM
má nefna ljóð efdr palestínskar
og lettneskar skáldkonur, ljóð
eftir T.S. Eliot og einn af síöustu
textum Samuels Beckett, en
þeir Beckett og Eliot eiga það
sameiginlegt að hafa hlotiö
bókmenntaverðlaun Nóbels.
Loks má nefna grein eftir Gyrði
Elíasson rithöfund um velska
skáldjöfurinn John Cowper
Powys.
TMM frumbirtir ab vanda
töluvert af íslenskum skáld-
skap, s.s. tvö ljóð eftir Sjón til
minningar um Dag Sigurðar-
son, ljóð eftir Kristján Árnason,
Árna Ibsen, Jón Stefánsson,
Láms Má Björnsson, Hallgrím
Helgason og sögu eftir ungan
höfund, Þórarin Torfason. Auk
þess em vandaðir ritdómar á
sínum stað.
Verk á forsíöu TMM er eftir
Halldór Ásgeirsson myndlistar-
mann.
Ritstjóri Tímarits Máls og
menningar er Friðrik Rafnsson.
Það er 120 bls., unnið í Prent-
smiðjunni Odda h.f. TMM
kemur út fjómm sinnum á ári
og kostar ársáskrift 3300 kr.
S "" s
0 efti* íolta
Itamu* ía*nJ