Tíminn - 15.07.1994, Qupperneq 16

Tíminn - 15.07.1994, Qupperneq 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland til Vestfjar&a og Subvesturmib til Vestfjarðami&a: Norbvestan og sí&an vestan gola e&a kaldi og skýjað me& köflum. • Strandir og Nor&urland vestra, Nor&urland eystra, Nor&vest- urmib og Nor&austurmið: Nor&vestan og sí&ar vestan gola e&a kaldi og skýjaö með köflum. • Austurland ab Glettingi, Austfir&ir, Austurmib og Austfjar&a- mi&: Léttir til me& nor&vestan og sí&an vestan golu. • Su&austurland og Subausturmib: Léttir til meb nor&vestan golu e&a kalda. Nor&vestan en sí&an vestan gola og ví&ast léttskýjab. Tvítug ungmenni telja sig álíka slœm til heilsunnar og ellilífeyrisþegar: Sjómenn í þeim hópi sem sjaldn- ast fær sér í glas Könnun á lífsháttum 18—75 ára íslendinga leiddi m.a. í ljós ab ungmenni á 18—25 ára aldrinum telja heilsufar sitt svipaö og fólkiö sem er 60—75 ára. Báöir þessir hópar mátu líkamlega heilsu sína frekar slæma, eða í besta falli sæmi- lega. Af þeim aldurshópi sem var þarna á milli voru um 30% sömu skoðunar. Ef aðeins um 3 af hverjum 5 íslending- um kringum tvítugt telja sig frekar heilsugóöa má álykta aö líklega sé ekki vanþörf á átakinu: „Heilsuefling — hefst hjá þér" sem heilbrigöisrábu- neyti og Iandlæknisembætti hafa nú sameinast um aö fá landsmenn til aö taka þátt í. „Þetta er líklega 4. tilraunin sem gerö hefur verið í hér á landi til almennrar heilsueflingar. Fyrstu tilraunina geröi náttúru- lækningafólk, sem þótti skrýtið og predikaði hófsamt líferni," sagði sagði Ólafur Ólafsson landlæknir. Þótt síðan hafi náðst gífurlegur árangur á mörgum sviðum — ævilíkur t.d. vaxið mjög mikið — var Ólafur samt heldur óhress með ýmsar niöurstööur könnunarinnar, ekki hvaö síst heldur slaka út- komu unga fólksins. Unga fólkib tekur minnst tillit til hollustu matarins sem það neytir, drekkur og reykir oftar en flestir aðrir, er kærulausast allra með notkun bílbelta (þótt það lendi 5-falt oftar í umferðar- slysum) og lætur smokkinn lönd og leið þótt þab efni til skyndikynna. Athygliverðar niðurstöður könnunarinnar hafa m.a. gert „almannaróminn" beran að lyg- um. Því samkvæmt þeim eru sjómenn í þeim hópi sem sjaldnast drekka áfengi. Það reyndust þvert á móti sérfræð- ingar, atvinnurekendur og iðn- aöarmenn sem oftast drekka áfengi. En sjómenn, verkafólk, afgreibslufólk og bændur fá sér sjaldnast í glas. Enda kom í ljós, þegar litið var á árafjölda á skólabekk, að háskólaborgarar eru hlutfallslega tvöfalt fleiri í hópi þeirra sem drekka oft í mánuði en þeir sem hafa grunn- skólann einan að baki. Munstrið snerist alveg við þeg- ar kom ab reykingunum. Reyk- ingar minnka með aukinni menntun, en eru tvöfalt meiri mebal verkafólks, afgreibslu- fólks, sjómanna og bænda en annarra stétta. Konurnar virðast gæta betur að því en karlarnir að reyna að fyr- irbyggja heilsuleysi og slys. Þær virðast huga meira að hollustu matarins sem þær elda og boröa. Þær láta oftar mæla hjá sér blóbþrýsting og fylgjast meb heilsufari sínu. Þær eru miklu samviskusamari við að nota bíl- belti. Og þær eru minna stress- aðar en karlarnir. Karlarnir sneru hins vegar á konurnar þegar kom að hreyf- ingu og áreynslu. Um 62% karla „Abur var þab fatœktin sem skipti folki í stéttir. Nú eru þab lifsvenjurnar sem skipta fólki íhópa og hafa þannig tekib vib af fátœktinni," sagbi Ól- afur Ólafsson landlœknir sem er hér í þrekmœiingu hjá Cubmundi Helga- syni. Tímamynd CS sögðust 3svar í viku eöa oftar hreyfa sig þannig að þeir mæð- ist, svitni eða hjartsláttur aukist, en einungis 45% kvennanna. Um þriðjungur kvenna en fimmtungur karla sagðist aðeins tvisvar í mánubi eða sjaldnar reyna svo mikið á sig. ■ Pálmi Karisson og Finnur, sonur hans, hampa hvalkjöti sem er vinsœll „ minjagripur" hjá erlendu ferbamönnunum. Sérstœbir „minjagripir" vinsœlir í Kolaportinu: Útlendingar taka hvalkjöt meö heim Brot úr halastjörnu springa á Júpíter. Þorsteinn Sœmundsson stjarn frœöingur: Eins og milljón meðal stórar vetnissprengjur Fiskbúbin okkar hóf nýlega aö selja hvalkjöt í Kolaport- inu. Viötökurnar hafa veriö góbar, bæöi hjá íslendingum og útlendingum. Nokkur brögö hafa veriö aö því aö útlendingar hafi beöiö um ab hvalkjötinu yrbi pakkaö í loftæmdar umbúöir til þess ab þeir geti haft þab meö sér heim. Að sögn Pálma Karlssonar hjá Fiskbúðinni okkar eru útlend- ingarnir forvitnir um hval- kjötiö og um síðustu helgi keyptu þeir t.d. bæði hnýsu-, höfrunga- og hrefnukjöt til þess að hafa með sér heim. ís- lendingar eru einnig sólgnir í hvalkjötið. Fiskbúðin okkar býöur flesta daga upp á ein- hverjar tegundir hvalkjöts, enda er eftirspurnin stöðug. Pálmi segist sannfærður um að hér innanlands væri hægt ab selja jafn mikið af hrefnukjöti og nemur kvóta Norðmanna á þessu ári, en hann er 180 dýr. Hrefnurnar eru misjafnlega stórar, en gera má ráð fyrir að meðaldýr sé 1000-1200 kíló. Hrefnuveiðar eru sem kunn- ugt er bannaöar. Ab sögn Pálma er það kjöt sem hann fær til sölu víða ab af landinu, en það er af skepnum sem slæðast í net fiskimanna. Verð- ib á hrefnukjötinu er 690 kr./kg. í Kolaportinu. ■ Eins og fram hefur komiö lenda brot úr halastjörnunni Shoemaker-Levy á Júpíter, nú í kringum 20. júlí. Um verbur ab ræba gífurlega sprengingu þeg- ar brotin úr halastjörnunni lenda á pláhnetunni og bíba stjörnufræbingar og abrir vís- indamenn víba um heim spenntir eftir ab sjá hvab í raun og vem gerist og hvort þab verbur jarbarbúum sýnilegt. „Þetta er einstakur atburöur sem ekki er líklegt aö viö fáum tæki- færi til aö sjá aftur. Þab veröur öllum helstu sjónaukum í heim- inum beint að þessu. Það er rétt aðeins hugsanlegt ef þetta veröur mjög skær blossi ab hann geti lýst upp tungl Júpíters. í að minnsta kosti einu tlviki verbur eitt tungl Júpíters í skugga Júpít- ers og þab er hugsanlegt að þaö lýsist það mikið upp að þaö sjáist frá jörðu. Þetta er nú það sem menn em að gera sér vonir um. Annar möguleiki er sá að þegar þetta gengur inn í gufuhvol Júp- íters, sem er um 1000 kílómetra þykkt, þá rísi upp eldsúla mikil þannig að þab verði strókur hundmð eða jafnvel þúsund kílómetra út í geiminn og það er möguleiki að hann sjáist frá jörðu. Svo snýst Júpíter svo hratt að það líða ekki nema tuttugu mínútur eða í mesta lagi klukku- tími þangað til þetta er komib inn fyrir röndina þannig að þetta sjáist. Þannig að ef það verður einhver röskun í lofthjúpnum þá er von til þess ab þab sjáist frá jörðu," segir Þorsteinn Sæ- mundsson stjarnfræbingur. Þorsteinn segir að það verði erf- itt að sjá atburðinn vel héban frá íslandi en þab verður fylgst meb þessu úr öllum helstu sjónauk- um heims og meðal annars úr sjónaukum gervitungla og geim- flauga og frá því sjónarhorni er hugsanlegur möguleiki ab ná mynd af hvellnum. „Það verður fylgst með þessu úr Hubble sjónaukanum sem er í 600 km hæð frá jörðu og er mjög öflugur og ætti að geta greint ef einhverjar breytingar verða á Júpíter. En þaö sem menn binda hvab mestar vonir við em geim- flaugar. Voyager geimflaugin er komin langt út í geiminn og gæti horft til baka til Júpíters, en hún er jafnvel komin svo langt í burtu ab vafasamt er að það sjáist mikið frá henni. Það hafa ekki verið teknar myndir meö henni mjög lengi og ólíklegt að þaö veröi hægt. En flaugin Galileo er á leið til Júpíters og kemur til Júpíters á næsta ári og hún er þannig staðsett ab hún ætti að geta séb þetta beint. Það er von- ast til þess ab einhverjar myndir náist frá henni af þessum miklu hvellum." Þorsteinn bendir á að það viti enginn hvort nokkuð muni sjást en segir að menn út um allan heim geri sér miklar vonir um ab eitthvað muni koma fram. „Ef þetta em sæmilega stór brot úr halastjörnu þá er þetta gífur- leg orka sem þarna leysist úr læb- ingi. Þetta gæti verið á við millj- ón meðalstórar vetnissprengjur og við höfum ekki kynnst slíkri orku, a.m.k. ekki hér á jörðu," sagði Þorsteinn Sæmundsson að lokum. ■ BEINN SIMI AFGREIÐSLU TÍMANS ER 631 • 631

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.