Tíminn - 27.08.1994, Blaðsíða 8
8
Wiwúwu
Laugardagur 27. ágúst 1994
Þetta var dýrölegur dagur fyr-
ir útsýnisflug. Sólin heílti
geislum sínum yfir Sumter
skóginn, í Suöur- Karólínufylki,
skammt frá borginni Edgefield.
Lögreglumaöurinn Don Bullock
flaug Cessna vél sinni rétt yfir
trjátoppana í leit aö maríjúana-
plöntum en mikil brögö eru aö
ræktun þeirra á þessum slóöum.
Skyndilega kom hann auga á hóp
fólks sem haföi safnast saman.
Bullock lenti vélinni á grasbala og
athugaöi málið. Þetta varö síöar
óhugglegasta málib á margra ári
ferli hans sem rannsóknarlög-
reglumanns í Edgefield.
Þetta geröist 19. júní 1991. Skóg-
areftirlitsmaður haföi keyrt fram
á kyrrstæðan sendiferöabíl. Hann
skyggndist inn í bílinn og sá þar
tvö lík sér til hryllings. Hann var
nýbúinn ab hafa samband viö
fógetann þegar Bullock kom á
vettvang.
Bullock sá strax að líkin voru af
konu og ungum strák. Reynt
haföi veriö að kveikja í bílnum og
voru líkin sótug og innréttingar
bílsins nokkuö brunnar. Svo virt-
ist sem um tvöfalt morð væri aö
ræöa.
Sérstakir rannsóknarmenn úr
íkveikjudeild lögreglunnar voru
kallaðir á staðinn ásamt fleiri
starfsmönnum morödeildar.
Bæöi konan og drengurinn voru
skólaus og klæði þeirra teygð og
rifin. Fyrsta tilgáta lögreglunnar
var aö þau heföu veriö myrt utan
bifreiðarinnar og komiö fyrir í
bílnum áöur en moröinginn
kveikti í, sennilega til ab eyða
vegsummerkjum. Honum hafði
þó orðið á, þar sem eldurinn
hafði aðeins logað nokkra hríð en
dáiö síðan af sjálfu sér.
Sönnuð íkveikja
Þab kom ekki á óvart þegar
íkveikjudeildin komst að því að
bensíni hafði verið skvett yfir lík-
in. Mistök morðingjans voru
öbru fremur þau ab hann hafði
ekki opnaö gluggana á bifreiöinni
svo eldurinn fengi súrefni til aö
breiðast út.
Konan hét Linda Williams,
myndarleg 39 ára kona sem haföi
búib skammt frá vettvangi glæps-
ins. Ekkert benti til aö kynferðis-
afbrot heföi verið framiö og í
pyngju hennar fundust þrjú
hundrub dalir auk krítarkorta
sem sönnuðu að morðiö haföi
ekki veriö framið í hagnaöar-
skyni. Þaö var erfitt aö ímynda sér
hvers kyns maður þaö væri sem
myrti 12 ára gamlan dreng, en í
veski Lindu fundust gögn sem
sýndu að drengurinn í bílnum
var sonur hennar.
Starfsmenn lögreglunnar luku
störfum skömmu síöar og líkin
voru send til krufningar. A meö-
an kom í ljós ab bíllinn var skráð-
ur á eiginmann Lindu, Luke A.
Williams. Hann bjó í átta kíló-
metra fjarlægð frá moröstaönum
og fyrsta verk Bullocks, sem var
beðinn um að taka málið ab sér,
var ab sækja hann heim. Luke
reyndist ekki heima en nágrannar
fræddu lögregluna um ýmis at-
riði. Williams hjónin bjuggu í
glæsilegu einbýlishúsi meö falleg-
um vel ræktuöum garði. Linda
var aö sögn nágranna og sam-
starfsmanna hennar stórkostleg
kona sem enginn gat annaö en
hrósaö fyrir létt skap og dugnaö.
Hún hafði veriö farsæl í starfi
sínu sem kennari og Shaun, hinn
12 ára gamli sonur hennar, var
hvers manns hugljúfi aö sögn
grannanna. Þau mæögin voru
mjög samrýmd en Linda hafði
ættleidd Shaun er hann var að-
eins 1 árs.
Grunsamlegur
eiginmaður
• Klukkan var rétt gengin í sex
þegar Williams kom heim til sín
Rannsóknarlögreglumenn athuga vegsummerki í sendiferbabílnum sem morbinginn kveikti í ab loknu ódæbisverkinu.
Fórnaði
og syni
eiginkonu
Luke Williams.
þar sem yfirvaldið beið hans.
Bullock vatt sér strax að hinum
stóra og þrekvaxna manni og
sagði honum að sonur hans og
eiginkona heföu fundist myrt í
skóginum. „Hvernig vitiöi ab lík-
in séu af syni mínum og eigin-
konu," spuröi Luke snöggur upp
á lagib. Um þab bil hálf mínúta
leib ábur en Bullock svarabi. „Þau
fundust í bíl sem þú ert skrábur
fyrir, vasabók konunnar þinnar
fannst þar, veskið hennar og skil-
ríki þeirra beggja." Aftur kom
löng þögn en þá sagbi Luke loks:
„Ég verö aö fara og athuga hjá
mér póstinn." Hann var færöur til
frekari yfirheyrslu á stööinni.
Að sögn Lukes hafbi hann vakn-
aö um 7-leytið um morguninn
vib aö Linda og Shaun voru aö
klæba sig og hugðust verja degin-
um í búðarráp. Hann haföi rétt
losaö svefninn en sofnaði síöan
aftur. Þab hefði verið í síðasta
skiptiö sem hann sá þau.
Luke kvað engin sérstök vand-
ræöi hafa verib í hjónabandinu.
Hann hafbi reyndar sjálfur misst
atvinnuna fyrir einu ári og og
kvaöst eyöa mestum tíma heima
fyrir. Luke gaf greinargóbar upp-
lýsingar um hvernig hann heföi
varið deginum, sagöist hafa séö
öskukarlana um morguninn og
veifaö í þá, síöan haföi hann rek-
ib nokkur smávægileg erindi og
boröaö á matsölustaö í hádeginu.
Þá gat hann þess ennfremur að
hann hefði verið aö svipast um
eftir nýju húsi en hann og Linda
höfbu áætlað ab flytja í nýtt og
stærra húsnæöi innan skamms
síma, Shauns vegna. Lögreglu-
manninum Bullock fannst í
hæsta máta furöulegt að atvinnu-
laus maburinn væri aö láta sig
- fyrir skjótfenginn gróöa
SAKAMÁL
dreyma um nýtt og stærra hús-
næði. Eitthvað var ööruvísi en
það átti ab vera.
Líftryggingin
Luke var með áverka á hægri
hendi sem hann gat ekki gefiö
fullnægjandi skýringu á. „Ég hlýt
ab hafa rekið mig einhvers staðar
í," var þaö eina sem hann sagði.
Loks kom upp úr kafinu aö Linda
Williams haföi nýlega líftryggt sig
fyrir 40 milljónir íslenskra króna
og strákurinn var líftryggöur fyrir
3 milljónir. Skerfur Lukes var því
43 milljónir viö fráfall mæögin-
anna, auk þess sem hann erfbi all-
ar eignir, glæsilega fasteign og tvo
bíla. Bullock lögregluforingi taldi
það engum vafa undirorpið að
Luke væri sekur en spurningin
snerist abeins um hvernig hægt
væri aö sakfella hann.
Krufningin leiddi í ljós að Linda
haföi látist af völdum margra
þungra höfuöhögga en Shaun
hafði verið kyrktur til dauða með
handafli. Læknirinn sem kruföi
líkin gat þess sérstaklega í skýrslu
sinni að honum virtist sem höf-
uöáverkar Lindu væru af völdum
fagmanns, manns sem vissi ná-
kvæmlega um viðkvæma staði
mannslíkamans. Hann taldi ekki
ólíklegt aö morðinginn væri vel
aö sér í bardagaabferöum, s.s. kar-
ate. Luke hafði einmitt ástundað
bardagalist á menntaskólaárun-
um.
Vafasamur ferill
Þegar saga Luke Williams var
skobuö kom í ljós ab hann hafði
kvænst Lindu eftir að hafa kynnst
henni í Háskólanum í Miami.
Hann var tölvunarfræðingur að
mennt en seinni árin hafði hallab
undir fæti. Luke haföi misst at-
vinnuna vegna óreglu og það sem
bjargaði fjárhagnum var ab hann
erfði umtalsverða fjárhæð eftir
föbur sinn. Þeir peningar voru nú
aö mestu leyti uppurnir, enda
eyddi Luke langt um efni fram.
Veggjakrotib sem reyndist mikilvægasta vísbendingin í málinu og kom
hinum grunaba íhóp daubadœmdra manna.
Lögreglan hafði nokkrum sinn-
um samband viö Luke á næstu
dögum og bað hann m.a. aö fara í
lygamæli en hann neitabi því og
eftir þaö sagðist hann ekki segja
neitt án viðveru lögfræðings. Éf
sanna átti hin miskunnarlausu
morö á eiginkonu og syni Lukes,
urbu haldbærar sannanir aö
koma til.
Foreldrar Lindu sögðu lögregl-
unni að Linda hefbi talað ein-
kennilega síðustu dagana áöur en
hún var myrt og m.a. beðið þau
um aö taka Shaun aö sér ef eitt-
hvaö kæmi fyrir hana. Faðir
Lindu sagöi að Luke væri „illur
mabur" og baö Bullock ab beita
sér af alefli fyrir því að sekt Lukes
yrbi sönnuö.
Vitnin
21. júní dró til tíðinda þegar
verkamaður nokkur haföi sam-
band við Bullock og sagöist hafa
séð undarlegt veggjakrot á litlu
steinhýsi skammt frá kirkjugarði
bæjarins. Bullock athugaöi veg-
summerki en varð steini lostinn
er hann sá hvað skrifað hafði ver-
iö a vegginn. Þar voru atriði eins
og „... hélt að hann væri vinur
hennar", „... myrti barnið sitt",
„... stór og mikill maður" o.s.frv.
Þarna komu ennfremur fram
nokkur atriði sem aldrei hafði
verið skýrt frá í fjölmiðlum. Ein-
hver vissi meira en honum var
ætlað.
11. júlí gáfu tveir drengir um 15
ára aldur sig fram viö lögregluna
og sögðust hafa orðið vitni aö
morðinu á Lindu. Þeir höföu ver-
ið að rölta um í skóginum er tveir
bílar keyrðu framhjá þeim án þess
að þeir sæjust. Ökumaður annars
þeirra steig út og réðst á konu í
hinum bílnum og dró hana æp-
andi út. Drengirnir urðu hræddir
og tóku á flótta inn í skóginn og
þorðu ekki að segja neinum frá
því sem þeir höfðu séð en fengu
útrás með því að lýsa atburðun-
um með veggjakroti. Loks
ákváðu þeir þó að segja lögregl-
unni sannleikann. Bullock
sýndi þeim hvorum fyrir sig um
10 myndir af þrekvöxnum
mönnum og þar af var ein
mynd af Luke Williams. „Þetta
er maburinn," var svarið hjá
báðum án nokkurs hiks.
Luke Williams hafði undirbúið
glæp sinn af kostgæfni og það
var í reynd algjört lán að þessi
þýöingarmiklu vitni ræki á fjör-
ur lögreglunnar. Luke hafði
veitt konu sinni og barni eftir-
för morguninn örlagaríka, og
gefið konu sinni merki um að
stöbva. Eftirleikurinn er ljós.
Linda hafði veriö í skilnaðar-
hugleiðingum og þess vegna
voru síðustu forvöb fyrir Luke
að njóta tryggingarfjárins áður
en hún færi frá honum. Hann
hafði verið svo forsjáll að skipta
um dekkjaumgang á bílnum
sínum eftir að hann sneri aftur
úr skóginum, til ab ekki væri
hægt ab rekja möguleg hjólför
til bifreiðar hans. Hann hafði ab
morðinu loknu gert í því að láta
íbúa bæjarins taka eftir sér. Mis-
tökin voru samt sem áður
tvenn: íkveikjan hafði mis-
heppnast og vitnin að morðinu
á Lindu áttu eftir að vega þungt
í réttarsal.
Dómurinn
Réttahöldin yfir Luke Williams
hófust 15. nóvember 1993 í
hinu sögufræga dómshúsi í Ed-
geford. Sækjandi fór fram á
daubarefsingu og réttarhöldin
tóku ekki nema nokkra daga.
Niðurstaða kviðdóms var skýr.
Luke Williams var fundinn sek-
ur um tvöfalt morð af yfirlög-
uðu ráði í ágóðaskyni og dæmd-
ur til dauða. Hann bíbur nú þess
að dómnum verði fullnægt en
dauðarefsingar í Bandaríkjun-
um tefjast jafnan í nokkur ár í
kerfinu áður en dómnum er
fullnægt. Ekkert er þó talið geta
bjargað Luke Williams. ■