Tíminn - 27.08.1994, Síða 12
12
Laugardagur 27. ágúst 1994
Picassosafniö
í Barcelona
Fólk gæti talið þig menningar-
snauban ef þú hefur fariö til
Barcelona án þess að skoða Pic-
assosafnið en aðeins eitt annað
safn meb verkum hans er til í
heiminum, í París. Á safninu
kynnist maður ekki aöeins
glæsilegum málverkum og þró-
un í stílbragði listamannsins
Þegar ákveðið er að fara í frí
til útlanda getur stundum
verið erfitt að finna stað
sem flestir geta sætt sig við.
Sumir vilja komast í sumar og
sól, aðrir vilja fara mestmegnis
í þeim tilgangi að versla og
þriðji hópurinn vill kannski
leggja áherslu á skoðunarferöir.
Þaö getur því verib erfitt að
gera öllum til hæfis. En nú
býðst ísienskum ferðamönnum
nokkuð nýlegur valkostur þar
sem allt ofantalið stendur til
boða á einum og sama staðn-
um og reyndar miklu meira til.
Sá valkostur er spænska stór-
borgin Barcelona og óhætt að
fullyrða að þar ráði fjölbreytnin
ríkjum.
Nautaatið
og flamenco
Hver þjóð á sína þjóðaríþrótt
og hana verða ferðamenn ab
kynna sér svo fremi hún
standi til boða. Nautaatið er
þjóðaríþrótt þeirra Spánverja
og í Barcelona býðst mönnum
að sjá baráttuna milli nauta-
banans og nautsins sem alltaf
endar á einn veg; nautið fellur
við mikil fagnaðarlæti áhorf-
enda. Þetta er mjög sérstök at-
höfn sem ekki allir geta verið
fullsáttir við því dýrið er teymt
í gegnum eldis- og vítiskvalir
áður en það hlýtur banabitann
þegar nautabaninn stingur
löngu og mjóu sverbi í gegn-
um hrygginn og beint í hjarta-
stað dýrsins og leiknum er lok-
ið. Þetta er sýning sem fær lít-
ið íslenskt „sveitamanns-
hjarta" til að taka mikinn
kipp.
Flamenco-dansinn er annað
dæmi um þjóðaríþrótt Spán-
verja. Hann geta ferðamenn
sem koma til Barcelona ab sjálf-
sögðu séð og fyrir utan þann
frábæra dans sem maður verður
vitni að býðst tónlist og söngur
sem gerir kvöldstund á fla-
menco-dansýningu ógleyman-
lega. Vert er ab taka fram aö
ekki voru það aöeins konurnar
sem slógu í gegn meb sínum
frábæra dansi, á þeirri sýningu
sem undirritaður fór á í „Pue-
blo Espanol", heldur voru það
líka karlarnir sem dönsuðu af
fimi og voru oftsinnis klappaðir
upp á nýjan leik, en konurnar
voru þeim þó óneitanlega
fremri.
Flamencodansinn svíkur engan.
Tímamynd KC
Barcelona - íþrótta-
borg hin mesta
Sumarólympíuleikarnir árið
1992 voru haldnir í Barcelona
eins og mönnum er eflaust í
fersku minni. Sérstakt ólympíu-
þorp var byggt fyrir leikana og
það gefst ferðamönnum kostur
að kynna sér. Þar fyrir utan eru
hinir glæsilegu leikvangar sem
byggðir voru sérstaklega fyrir
þessa ólympíuleika og stendur
óneitanlega sjálfur ólympíu-
leikvangurinn þar upp úr enda
ógleymanlegt mannvirki sakir
stærðar og glæsileika. Undir
leikvanginum er ólympíugallerí
en þar er hægt kynna sér sögu
leikana sem haldnir voru í
borginni fyrir tveimur árum frá
upphafi til enda. Þá stendur
þeim sem koma á safnib til
boða að sjá svipmyndir frá hin-
um ýmsu íþróttaviðburðum á
leikunum, þar á meðal frá
handboltakeppninni en í svip-
mynd frá þeirri keppni bregbur
íslenska landslibinu oft fyrir.
Einnig getur hver og einn sest
niður við tölvu í galleríinu og
fengið útprentuð öll þau úrslit
sem til lykta voru leidd á þess-
um ólympíuleikum. Þeir sem
vilja svo skella sér í sund í
sjálfri ólympíusundlauginni
stendur þab til boða.
Barcelona er líka þekkt fyrir ab
í borginni er eitt allra sterkasta
knattspyrnulið heims sem kennt
er við borgina. Camp-Nou,
heimavöllur libsins, er ekki síðri
en sjálfur ólympíuleikvangurinn
enda tekur hann um 127 þús-
und áhorfendur sem rúmar nær
allt Stór-Reykjavíkursvæðib. Á
Camp-Nou er einnig merkilegt
safn þar sem m.a. öllum titlum
félagsins er rabab upp í langa
glerskápa svo telur marga metra.
Sérstök búð er einnig við leik-
vanginn sem sérhæfir sig í öllu
því sem tengist Barcelona-libinu
og ekki er óalgeng sjón ab sjá í
miðbænum fólk í treyju libsins,
yfirleitt merkta Romario, en þá
gat mabur verið nokkuð viss um
þar gekk ekki innfæddur heldur
ferðamaður!
Byggingarstíll í Barcelona er mjög sérstakur sem sést best á La Sagrada
Familia kirkiunni.
■■ H&M Rowells
PONTUNAR-
m
RCWELLS
300 SIÐNA PONTUNARUSTI SENDUR HEIM
Náöu þér í nýja haust- og vetrarlistann frá H&M Rowells.
300 blaðsíður af góðum og fallegum fatnaði á dömur,
herra og börn á mjög hagstæðu verði.
Hringdu í síma
91-884422
eða fylltu út þessa auglýsingu og sendu okkur í pósti og
þú færð listann sendan um hæl gegn 350 kr. greiðslu.
NAFN
HEIMILISFANG
POSTNR./STAÐUR
• ■ FYRIR ALLA f
► FJOLSKYLDUNNII
H&M Rowells ► Kringlunni 7
103 Reykjavík^Fax 91-884428
Picasso-safnib er kostur sem ferbamönnum býbst upp á, og kynnist mabur nýrri hlib á listamanninum því Picasso
málabi líka á keramikvörur. Tímamynd kc
heldur fær maður líka innsýn í
líf þessa merka listamanns sem
þurfti langt fram undir þrítugt
að sætta sig við fátæktina og
þab sést best á þeim efnivið,
t.d. pappírnum, sem hann not-
aði í málverkin á sínum yngri
árum en hann var í meira lagi
fátæklegur.
Menningarvitar geta skoðað
mörg önnur söfn hinna ýms-
ustu listaverka og sérstaka bygg-
ingarlist verða ferðamenn
óneitanlega varir við þegar þeir
koma til Barcelona. Byggingar-
stíllinn er vægast sagt ótrúlegur,
en ótrúlegri er sú staðreynd að
margar hinnar merkustu bygg-
ingar í Barcelona eru byggðar
um mibja 19. öld og oft velti
maður því fyrir sér hvernig í
ósköupunum það var hægt ab
byggja þvílík mannvirki sem ná
himinhátt upp. Dæmi um þetta
er La Sagrada Familia-kirkjan.
í borginni er sérstakur ferba-
mannastrætó sem fer með feröa-
menn á helstu stabi í borginni
og aettu þeir sem til Barcelona
fara að nýta sér þann möguleika.
Iðandi mannlíf
Las Ramblas kallast abalgatan í
miðborginni og þar er sann-
Feröamönnum býbst nú valkostur í Evrópu þar sem flest allt sem
hugurinn girnist stendur til boöa á einum stab:
Barcelona
- fjölbreytileg borg