Tíminn - 04.10.1994, Síða 6

Tíminn - 04.10.1994, Síða 6
WSmiWA Þríbjudagur 4. óktóber 1994' Þab vakti athygli í sumar, þeg- ar tilkynnt var ab nýi borgar- stjórnarmeirihlutinn í Reykja- vík væri ab setja á laggirnar sérstaka Húsfribunarnefnd Reykjavíkur, en henni er m.a. ætlab ab marka framtíbar- stefnu í húsverndarmálum í borginni. Húsfribunarnefnd Reykjavíkur verbur skipub fimm tilnefndum fulltrúum. Tveir koma frá Skipu- lagsnefnd, en Umhverfisráb, Menningarmálanefnd og Bygg- inganefnd skipa hver um sig einn fulltrúa, og hefur Tíminn heimildir fyrir því ab samkomu- lag sé um ab tveir fulltrúanna í nefndinni verbi frá minnihlut- anum. í Rábhúsinu fengust þær upp- lýsingar ab einungis tveir full- trúar hefbu þegar verib skipabir í Húsfribunarnefnd Reykjavíkur, þær Bryndís Kristjánsdóttir frá Umhverfismálarábi og Gubrún Jónsdóttir frá Menningarmála- nefnd. Gubrún Jónsdóttir, arkitekt og varaborgarfulltrúi, er nú formab- ur Menningarmálanefndar Reykjavíkur. Hún á auk þess sæti í Skipulagsnefnd Reykjavíkur þar sem hún sat reyndar líka síbasta kjörtímabil, en hún veitti Borg- arskipulagi forstöbu árin 1979- 84. Gubrún var einn upphafs- manna Torfusamtakanna, sem stofnub voru upp úr 1970 og hófu gömul hús til vegs og virb- ingar og unnu á því svibi braut- rybjendastarf í höfubborginni. í ljósi þess ab fáir bera meira skynbragb á gildi þeirrar byggb- ar, sem komin er til ára sinna, fór Tíminn þess á leit vib Gub- rúnu ab hún greindi í stuttu máli frá hugmyndum sínum um störf Húsverndunarnefndar Reykjavíkur og þeirrar stefnu sem æskilegt sé ab marka á þessu svibi. Þá er nú fyrst ab telja, segir Gubrún, ab þær umræbur sem þegar hafa farib fram um verk- efni nefndarinnar benda ab mínu mati til þess ab hún eigi eftir ab vinna þarft og mjög mik- ilvægt starf. Þegar ég lít aftur til þess tíma, þegar ég fór fyrst ab hafa afskipti af húsverndarmál- um hér í Reykjavík og raunar víbar um land í framhaldi af því, þá þori ég aö fullyröa ab á þessu sviöi hefur orbiö bylting hugar- farsins. Þeir eru fáir núorbib sem eru á móti verndun gamalla húsa og þess verbur vart ár frá ári ab almenningur er farinn aö meta þessi menningarverömæti og vill ab þeirra sé gætt. Séb yfir Noröurmýrina, en þar segir Gubrún Jónsdóttir ab séu mörg hús ístíl„íslensks fúnksjónalisma", sem þörf vœri ab vernda. Ekki bara timburhús Mér finnst dálítiö bera á þeim misskilningi aö húsavemd sé einskorbuö vib timburhús sem byggö vom snemma á öldinni. Þeim hefur reyndar veriö sinnt sérstaklega, þar sem framan af var þab brýnasta verkefniö ab bjarga þeim frá eyöileggingu. Aö mínu mati hefur þab starf aö mörgu leyti gengiö vel, en nú held ég aö tímabært sé aö líta á þessi mál í víbu samhengi. Hér í Reykjavík er talsvert af gömlum steinsteyptum húsum sem naubsynlegt er aö hafa auga meb, ef ekki á illa ab fara. Sum þessara húsa hafa verib flokkub undir íslenskan fúnksjónalisma. Þab em hús í þeim stíl, sem í gmndvallaratribum er kenndur viö „Bauhaus" en þó hafa þau séríslensk einkenni. Dæmi um þetta em Verkamannabústaöirn- ir vib Hringbraut, Félagsgarbs- húsin viö Hávallagötu, svo og mikill hluti húsa í Norburmýr- Ekki húsaleigubætur í Eyjum Frá Þorsteini Cunnarssyni í Vestmannaeyjum: Vestmannaeyjabær mun ekki greiba húsaleigubætur sam- kvæmt tillögu ríkisvaldsins, þar sem bærinn á aö greiba 40% á móti félagsmálaráöuneytinu. Þetta samþykkti Sjálfstæöisflokk- urinn, sem er í meirihluta í bæj- arstjórn. í bókun bæjarrábs kemur fram aö þab samrýmist ekki hug- myndum um aukiö sjálfsforræöi sveitarfélaga ab hefja nýtt sam- starfsverkefni sveitarfélaga og ríkis, meb 40% kostnaöarþátt- töku sveitarfélaga, og ab kostn- abur vegna umsýslu flókins kerf- is lendi á sveitarfélaginu. Ein- faldast og skilvirkast væri ab rík- iö sæi alfariö um greiöslu húsaleigubóta í gegnum skatta- kerfiö eöa Jöfnunarsjóö sveitar- félaga. Fulltrúi minnihlutans lagbi til ab áöur en endanleg afgreibsla bæjarstjórnar á málinu færi fram, yröi leitab eftir áliti stéttar- félaga. Tillagan var felld af meiri- hluta Sjálfstæbisflokks og bókabi meirihlutinn ab um ófyrirséöa útgjaldaaukningu væri aö ræöa fyrir bæjarsjóö og í félagsmála- kerfi bæjarins væri gert ráö fyrir húsaleiguniburgreiöslu vib út- reikning á framfærslukvaröa. ■ inni. Þetta eru hús sem flest eru byggö fyrir seinna stríb. Búiö er aö breyta mörgum af þessum húsum og sumum þeirra er búib aö spilla þannig ab þaö er erfitt ab sjá aö þau eigi sér viöreisnar von úr því sem komiö er. Þaö, sem okkur vantar hér í Reykjavík, er ákveöin stefna af hálfu borgaryfirvalda, þannig ab húseigendur geti fengiö ab vita hvab þeir eru meö í höndunum og hafi aögang aö ráögjöf varö- andi viöhald, endurbætur og breytingar á gömlum húsum, og þá ekki síst þessum íslensku fúnkis-húsum. Þab þarf ab setja viömiöunarreglur um viöbygg- ingar, allt eftir eöli húsanna, þannig aö þaö sé nokkurn veg- inn tryggt aö húsin séu ekki af- skræmd frá listrænu sjónarmiöi þótt eigendur þeirra vilji breyta þeim og laga þau betur aö þörf- um sínum. í langflestum tilvik- um held ég ab hægt sé aö koma til móts vib óskir húseigenda án þess ab listræn gildi séu fyrir borb borin. Þaö er alveg ljóst ab án þess aö borgin setji sér skýrar reglur aö þessu leyti er ekki hægt Gubrún Jónsdóttir, arkitekt og for- mabur Menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar. aö vinna markvisst og af ein- hverju viti ab þessu máli. Borgin er ab mörgu leyti mjög tætings- leg frá sjónarmiöi byggingarlist- ar. Þrátt fyrir þab eru í borginni margar heillegar húsraöir og húsaþyrpingar, sem má ekki spilla. í þessu sambandi er þaö umhugsunarefni aö húsin, sem í daglegu tali kallast Bernhöfts- torfa, eru mér vitanlega eina húsaröbin í Reykjavík sem hefur verib fribub sem slík. Þannig mynda gömlu húsin vib Tjarnar- götu, sem flest eru timburhús, samfellda húsaröö sem sjálfsagt væri ab friöa. Sú röb hefur aldrei veriö fribuö sem heild, heldur hafa einstök hús veriö fribub þar og reyndar er þab nú svo ab í allri Reykjavík eru ekki friöuö nema 60 hús. Þaö er í sjálfu sér ekki keppikefli ab friöa sem flest hús, því aö friöun hefur yfirleitt í för meö sér skuldbindingar af hálfu hins opinbera og stjórnmálamenn eru misjafnlega fúsir aö beita sér fyrir þeim, eins og skiljanlegt er. Samskipti sveitarfé- lags og húseigenda Hins vegar á ég bágt meö aö sjá hvernig sveitarfélög eiga ab beita sér í húsfriöunarmálum án þess aö gera ráb fyrir því ab koma til móts vib eigendur húsa sem áhugi er á ab halda í. Nýlegt dæmi um þau vandamál, sem koma upp í þessu sambandi, er Brenna, einn af fáum steinbæj- um sem enn er eftir hér í Reykja- vík. Mér er ekki kunnugt um hvort þab mál hefur veriö til lykta leitt, en af blaöaskrifum um máliö mátti ráöa ab þab strand- abi á því aö enginn var fús til aö bera kostnaö af því aö gera viö húsiö og tryggja ab þaö fengi aö standa í friöi á sínum stab. Þegar svona mál koma upp, er auövitaö ótækt ab Reykjavíkur- borg geti ekki skorist í leikinn og leyst vandann. Hugsanleg lausn gæti e.t.v. veriö fólgin í því aö borgin keypti svona hús á raun- hæfu verbi, gerbi þaö síöan upp eftir kúnstarinnar reglum og seldi þaö loks á almennum mark- aöi, meö sérstökum kvöbum, svo tryggt væri aö eftirleiöis yröi far- ib meb þab þannig aö þab héldi gildi sínu eftir viögeröina. Þab eru mál af þessu tagi sem ég tel aö Húsafriöunarnefnd Reykjavíkur þurfi meöal annars ab finna lausnir á. Engin hætta er á því aö nefndin hafi ekki næg verkefni. Á undanförnum árum hafa verib gerbar ýmsar úttektir og kannanir á gömlum húsum í Reykjavík, og í Listasafni Reykja- víkur er sérstök byggingarlistar- deild, auk þess sem Arbæjarsafn hefur unniö merkilegt starf aö þessum málum. Gagnasöfnun varöandi gömul hús er ab mín- um dómi komin töluvert á veg hér, en stefnumörkun, úrvinnsla og sjálfar framkvæmdirnar eru mikiö verkefni, sem tilhlökkun- arefni er ab takast á viö. ■ Húsfriöunarnefnd enn ekki komin á koppinn. Cuörún Jónsdóttir: Hugarfarsbylting í húsavernd

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.