Tíminn - 22.10.1994, Page 4

Tíminn - 22.10.1994, Page 4
4 Laugardagur 22. október 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 11 ' V ...... ............ Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: ]ón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 105 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmi&ja Frjálsrar fjölmiblunar hf. Mánabaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 125 kr. m/vsk. Sambúö stjórnmála- og listamanna Eitt af því, sem skapar sjálfsmynd þjóöanna, er öflug menningarstarfsemi. Ekkert mun fremur viöhalda raunverulegu sjálfstæöi þjóöanna og til- verurétti en öflugt og skapandi starf á menningar- sviöinu. Þaö má leiöa aö því gild rök aö stórsókn í menningarmálum hafi ekki síður veriö drjúg í ís- lenskri sjálfstæðisbaráttu heldur en efnahagslegar framfarir, þótt vissulega hafi þetta haldist í hendur og verður að fara saman í framtíðinni. Skapandi menningarstarfsemi og listsköpun þarfnast stuðnings, og það þykir eðlileg aö ríkis- valdiö leggi sitt af mörkum. Svo hefur verið hér á landi. Það er áríðandi aö opinber stuðningur nýt- ist sem best og samband sé á milli þeirra, sem vinna að listum og menningarmálum, og stjórn- málamanna. Þau samskipti þarf aö efla. Á Norðurlöndunum hafa þessi samskipti veriö sett í ákveöinn farveg meö stofnun svokallaöra menningarráöa, sem skipuö eru stjórnmálamönn- um og listamönnum. Hlutverk þeirra er að sam- ræma stuðning ríkisvaldsins við hinar ýmsu list- greinar. Valgeröur Sverrisdóttir hefur hreyft hugmyndum af þessu tagi hér, í tengslum viö að í dag gengst Framsóknarflokkurinn fyrir málþingi um menn- ingarmál til undirbúnings stefnumótunar fyrir flokksþing í lok nóvember. Það er nauðsynlegt aö leiöa saman listamenn og stjómmálamenn til um- ræðu af þessu tagi. Sameiginlegan vettvang þess- ara aðila hefur vantaö. Ekki er hægt aö segja annað meö sanngirni en að mikill áhugi sé á listsköpun í landinu í öllum greinum. Það skiptir því miklu máli aö búa svo um hnútana aö hún fái notið sín. Því miður hefur bor- ið nokkuð á því undanfariö að ríkisvaldið hefur gripið inn í framvindu listsköpunar með aðgerð- um, sem eru ekki sprottnar af samráði við lista- menn, heldur af öðrum orsökum. Sem dæmi um þetta má nefna að söluskattur var á sínum tíma af- numinn af bókum og fólst í því ákveðin stefnu- mörkun um stuðning við listsköpun á þessu sviði. Virðisaukaskattur var síðan lagður á einn góðan veðurdag, og skekur hann nú bókaútgáfuna í land- inu og þrengir að á þessu sviði. Sama má segja um Listskreytingarsjóð. Við framlagningu fjárlaga nú í haust kemur það í ljós að framlög til hans eru skor- in burt og því borið við að endurskoöun laga um sjóðinn standi yfir. Þetta kemur flatt upp á mynd- listarmenn í landinu, og er í rauninni áfall fyrir þessa listgrein og þrengir kosti myndlistarmanna. Samráðsvettvangur listamanna og stjórnmála- manna mundi áreiðanlega koma í veg fyrir slys af því tagi, að opinberar aðgerðir varðandi listir og menningarmál komi algjörlega í bakið á þeim sem í þessum greinum starfa. Það örlar því miður stundum á þeim sjónarmið- um að listsköpun sé eitthvert einskis nýtt sport til þess að eyða fjármunum. Svo er ekki. Blómlegt starf á þessum sviðum er nauðsyn og það má margt af því læra, ekki síst öguð vinnubrögö, frumlega hugsun og eljusemi, sem er aðalsmerki góðra listamanna. Oddur Ólafsson skrifar: Sefasjúkt hlutleysi Þau eru að verða nokkuð tíð sefasýkisköstin, er dynja yfir þjóöina, sem eiga upptök sín í Ríkisútvarpinu. Atburðarásin er alltaf keimlík. Einhver segir óvarlegt orð og menn eru rekn- ir og skipaðir í stöður á víxl. Nokkrir skrifstofu- og tækni- menn mæta á fundi hjá for- manni starfsmannaféagsins og álykta um mikilvægi útvarps- ins. Þeir, sem hafa aðgang að hljóðnemum, blása málin út og eru afskaplega uppteknir af mikilvægi sínu og hlutverki stofnunarinnar. Fyrr en varir eru fram- kvæmdastjóri og útvarpsstjóri komnir í spilið og sjálfumgleð- in ríður ekki við einteyming út í ljósvakann. Þá er komið að út- varpsráði að verða hissa og út- skýra að það sé valdalaust og gagnslaust og geti ekkert í mál- unum gert. Alþingi lætur ekki sitt eftir liggja og einlægt er það Svavar sem kveður sér hljóðs utan dagskrár og nötrar af vandlæt- ingu, þegar hann lýsir aðför al- heimsauðvaldsins aö hinu frjálsa orði Ríkisútvarpsins og kórrétt þenkjandi starfsmönn- um þess. Svo er rifist eins og þingmönnum einum er lagið. Dýrvitlausir pistlahöfundar og prýðilega hlutdrægir frétta- menn kunna skýringar á húll- umhæinu og gera allt hvab þeir mega til ab magna hysteríuna á meöan nokkur von er til að einhver líftóra bærist með henni. Vonum síðar er allur vindur úr sprellinu, stóru orðin og tilefni þeirra gleymast og ekki líður á löngu þar til sjálfhverfir starfs- kraftar ríkisrekna skemmtana- iðnaðarins fara að reka hornin hver í annan á ný og efnilegt hysteríiskast gagntekur libið og sagan endurtekur sig. Dularfullt fyrirbæri Tilefni upphlaupanna er ávallt hið sama. Einhverjir em ásak- abir um brot á starfsreglum þess háæruverðuga Ríkisút- varps, hlutleysisbrot er alvar- legasta sökin og liggur útlegð- ardómur við ef sannast. Er del- inkventum ýmist sparkað út í gleymskuna, upp í skrifstofu útvarpsstjóra, í framkvæmda- stjórastól sjónvarps, út úr skrif- stofu útvarpsstjóra eba í kjafta- þætti Stöbvar 2. Taka má undir orb Sókratesar, þegar hann velti fyrir sér hvort hlutskiptið væri skárra ab bergja á eiturbikarnum eða ganga út í sviösljós fjölmiðla- nábarinnar. Hlutleysi Ríkisútvarpsins er eitt af dularfyllstu fyrirbærum nútímans. Þab er teygt og tog- ab í allar áttir, heimtað hlut- leysi hér og hlutdrægni þar, og eru reglurnar búnar til eins og hverjum sýnist, þegar svo ber við að horfa. Hlutleysið á eingöngu við um flokkspólitísk málefni. Þess gætir hvergi annars staðar og engar kröfur eru gerðar til ab starfsmenn útvarps eða aðrir reki ekki áróður fyrir nánast hverju sem er, nema aðeins gegn tilteknum pólitískum flokkum eða standspersónum innan þeirra. Svo má náttúr- lega ekki segja neitt nema gott eitt um konur og kynþætti, nema germanskar þjóðir og engilsaxneskar. En þau bann- svæði eru ekki einskorðuð við Ríkisútvarpið. Þab sem má Hlutdrægni og áróbur íþrótta- fréttamanna er regla en ekki undantekning, sem engum ágreiningi veldur. Um menn- ingarmál af öllu tagi má tala af hjartans lyst og hefja sýru- hausa og eiturætur til skýjanna og gera þær að fyrirmyndum barna þeirra sem borga áskrift- argjöldin. Brot á hlutleysisátrúnaði Rík- isútvarpsins byrjar og endar í flokkspólitískri umfjöllun. Um þau er bannaö að fjalla, nema ab sjálfsögðu mega stjórnmála- menn ausa hver annan auri og þá eru brigsl um alvarlegustu glæpi, eins og til að mynda landráð, sjálfsögð og eðlileg. Skiptir þá ekki máli hvort ein- hverjir eru til andsvara eða ekki. Skinhelgin og öfugsnúningur- inn á því sem kallaö er reglur um hlutleysi Ríkisútvarpsins er í skásta tilfelli meinlaus, en brýtur yfirleitt í bága vib rit- frelsi og rétt manna til aö láta skoðanir sínar í ljósi. Krafa um skobanakúgun Og stutt er í skobanakúgunina hjá þeim sem meb völdin fara. Agli Jónssyni, þingmanni Sjálf- stæbisflokksins, var mikið niðri fyrir þegar hann sté í pontu s.l. fimmtudag og mótmælti lítilli könnun, sem fréttamaður sjón- varps gerði á útsöluverði mat- væla í Bandaríkjunum og á ís- landi. í ræðustóli á háttvirtu Alþingi lýsti hann yfir þeirri skoðun sinni að sjónvarpið hefði brot- ib útvarpslög, vegna þess að það samrýmdist ekki hlutleysi stofnunarinnar að bera saman verb á matvælum hér og ann- ars staðar og skýra frá niður- stöðunum. Landbúnaðarráð- herra var sama sinnis, en er nógu greindur til að umgarig- ast efnið eins og köttur sem fer kringum heitan graut. Þetta er aðeins dæmi um brenglaðan þankagang misvit- urra manna, sem hagræða hug- tökunum hlutleysi og hlut- drægni eftir því hvaða hags- muni þeir halda sig vera að verja eða sækja. Réttur annarra til að hafa skobun og láta hana í ljósi kemur þeim ekki við og staðreyndir eru ekki til í þeirra heilabúi. Þær eru aðeins útúr- snúningar, sem þeir búa til sjálfir. Ef yfirmenn Ríkisútvarpsins bregba ekki vana sínum, munu þeir reka Kristínu Þorsteins- dóttur frá stofnuninni fyrir að gera svona könnun, vegna pól- itískra hagsmuna formanns landbúnaðarnefndar Alþingis. Oflæti Reglur Ríkisútvarpsins um hlutleysi lýsa mikillæti þeirra manna, sem þær setja og starfa samkvæmt þeim. Látib er eins og þessi skemmtideild ríkis- rekstursins sé ein fær um ab móta og útbreiða skoðanir. Ofmat útvarpsins á sjálfu sér og vanmat á öbrum fjölmiðl- um á sér engin takmörk. Sjálfshól starfsfólksins, æðra sem lægra, er ekki einasta smekklaust, heldur einnig fá- víslegt. Skrumið og skjallið, sem það temur sér í kynningu á hvert öðru, og hástemmt oflof yfirmanna um ofurmannlega færni þess virkar einatt eins og háð. Þegar svo eitthvað kemur upp á, eins og hin hræðilegu hlut- leysisbrot, og farið er að taka til hendinni að stjórna fyrirtæk- inu og þessu ofljobslega hæfi- leikaríka fólki, fer allt í bál og brand og skruöningarnir berg- mála um gjörvallt þjóbfélagib og fórnarlömb hlutleysisins verða landsfræg í nokkra daga. Áður en langt um líbur, tekur næsta móðursýkiskast vib. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.