Tíminn - 22.10.1994, Blaðsíða 15

Tíminn - 22.10.1994, Blaðsíða 15
15 Laugardagur 22. október 1994 Dœmdur til aö greiöa fyrrverandi eiginkonu sinni tœpar 24 milljónir: Byggði mál sitt á fölsuðum samningi Héraösdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann til aö greiöa fyrrverandi eiginkonu sinni tæpar 24 milljónir króna auk dráttarvaxta frá 15. ágúst 1991. Deilan snerist um eignarhlut konunnar í jörö- inni Flekkuvík á Vatnsleysu- strönd sem var seld Vatns- leysustrandarhreppi í júlí 1991 fyrir rúmar 58 milljónir. Hjónin fyrrverandi fengu leyf- isbréf til lögskilnaðar áriö 1990. Ariö 1978, meðan þau voru enn í hjónabandi, keypti eiginmaö- Samtökin Barnaheill ítreka fyrri ályktanir sínar um aö flýtt verði setningu laga um eftirlit meö kvikmyndum, myndböndum og tölvuleikjum. Samtökin telja nauösynlegt að styrkja starfsemi Kvikmyndaeft- urinn jöröina Flekkuvík. I eignaskiptasamningi hjónanna kemur fram að Flekkuvík skuli vera í óskiptri sameign hjón- anna til helminga en eiginmaö- urinn var einn þinglýstur eig- andi hennar. Hann seldi Vatns- leysustrandarhreppi Flekkuvík eftir skilnaö þeirra hjóna áriö 1991. Kaupverðið var kr. 58.131.250. Eiginkonan fyrrverandi stefndi eiginmanninum þar sem hún taldi sig eiga heimtingu á helm- ingi kaupverðsins auk dráttar- irlitsins til muna. Þau telja að herða þurfi reglur um mynd- bandaleigur og að eigendur og starfsfólk þeirra þurfi að sýna meiri ábyrgð í afgreiðslu til barna og unglinga vaxta. Krafa hennar hijóðaði alls upp á kr. 41.883.886. Eigin- maöurinn byggði mál sitt á því að með makaskiptasamningi sem hann gerbi við eiginkon- una árið 1984 hafi hann einn eignast jörðina en hún fengið í staðinn húsið nr. 10A við Nönnugötu. Konan neitaði því að hafa gert slíkan samning og eftir rannsókn RLR þótti sannaö að nafnritun hennar á samn- ingnum væri fölsuð. í dómsniðurstöbu kemur fram að viss gögn bendi til að eigin- maðurinn hafi eignast eignar- hluta konunnar í Flekkuvík árið 1984 en þar sem ekki sé til formlegt afsal frá henni hafi ekki tekist aö sanna það. Því var fallist á kröfu konunnar um helming söiuverðsins ab frá- dregnum 10,5 milljónum sem voru söluandvirði mannvirkja sem eiginmaðurinn hafði reist á jörðinni. Hann var því dæmdur til ab greiða henni kr. 23.815.625 meb dráttarvöxtum frá 15. ágúst 1991 til greiðslu- dags. ■ Herða þarf reglur um myndbandaleigur Akureyri: Gróska í menningarlífi Úr BarPari Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tím- ans á Akureyri. Mikil gróska er fyrirhuguð í menningarlífi á Akureyri á komandi vetri. Kemur það fram í nýútkomnum kynningarbæk- lingi, sem þrjár helstu lista- stofnanir í bænum standa sam- eiginlega að útgáfu á. Eru það Leikfélag Akureyrar, Listasafnið á Akureyri og Symfóníuhljóm- sveit Norðurlands. Leikfélag Ak- ureyrar mun sýna sex verk í vet- ur, þar af er sýningum á einu þeirra framhaldiö frá síðasta leikári. Fyrsta sýning vetrarins stendur nú yfir í Listasafninu og eru tvær stórar sýningar fyrir- hugaðar í framhaldi af henni auk áframhaldandi sýningar- halds á útmánuöum og kom- andi sumri. Þá mun Symfóníu- hljómsveit Norðurlands efna til fimm tónleika í vetur og lýk- ur þeirri dagskrá meb stórtón- leikum þar sem óperusöngvar- arnir Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir munu syngja verk úr óperubókmennt- unum. Tvær sýningar eru nú í gangi á vegum Leikfélags Akureyrar. Gamanleikurinn Karamellu- kvörnin, sem er leikverk ætlað allri fjölskyldunni, er sýnt í Samkomuhúsinu og sýningar hafa verið teknar upp á hinum ógleymanlega tveggja manna kabarett BarPar frá fyrra leikári en þær fara fram í Þorpinu vib Höfðahlíö. Sakamálaleikritið Óvænt heimsókn verður frum- sýnt á þribja í jólum og þann 21. janúar verbur frumsýnt verkið Svartar Fjaðrir, sem er leikgerð Erlings Sigurðarsonar unnin úr verkum Davíbs Stef- ánssonar frá Fagraskógi og er þessi sýning tileinkuð aldaraf- mæli skáldsins sem orbið hefði 100 ára þann dag. í lok mars frumsýnir Leikfélagið verkið Þar sem djöflaeyjan rís eftir Einar Kárason í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og leikárinu lýkur með sýningum á verki sem nefnist Guðjón og er unnið úr textabrotum og myndum eftir ýmsa fræga sem ófræga höf- unda um manninn andspænis almættinu. Leikgerð verksins er unnin af Viðari Eggertssyni, leikhússtjóra á Akureyri. Um næstu mánaðamót lýkur sýningum á verkum Sigurðar Arna Sigurðssonar í Listasafn- inu á Akureyri en 12. nóvember verbur opnuð sýning á verkum Errós. Með því gefst í fyrsta sinn á Akureyri tækifæri til þess að sjá verk þessa umtalaða lista- manns en sýningin mun spanna stóran hluta af ferli hans. Sýning á verkum annars umtalaðs myndlistarmanns verður opnub í Listasafninu þann 4. febrúar en þar er á ferð- inni Alfreð Flóki, er var með sér- stæðari listamönnum þjóöar- innar á þessari öld. Auk verka Flóka verður á sama tíma sýn- ing á verkum Joris Redemaker í Listasafninu. Redemaker er Hol- lendingur, búsettur á Akureyri þar sem hann stundar kennslu og vinnur að myndlist. Symfóníuhljómsveit Norður- lands, sem var stofnuð á síðasta ári og er arftaki Kammerhljóm- sveitar Norburlands, mun efna til fimm tónleika í vetur. Þann 23. október verða haldir sym- fóníettutónleikar undir stjóm Guðmundar Óla Gunnarssonar en Anna Sigríður Helgadóttir verður einsöngvari. Strengja- sveitartónleikar verba haldnir 27. nóvember undir stjórn Guð- nýjar Gubmundsdóttur, kons- ertmeistara Symfóníuhljóm- sveitar íslands. Hljómsveitin mun fagna hækkandi sól með symfóniskum tónleikum þann 8. janúar undir stjórn Guö- mundar Óla Gunnarssonar og þann 19. febrúar verður efnt til Myrkra músíkdaga í tilefni af 50 ára afmæli tónskáldafélags ís- lands. Á tónleikunum verba flutt verk íslenskra höfunda undir stjórn Gubmundar Óla Gunnarssonar. Sem fyrr segir lýkur starfsvetri Symfóníu- hljómsveitar Norðurlands með stórtónleikum þar sem stór- söngvararnir Kristján Jóhanns- son og Sigrún Hjálmtýsdóttir flytja verk úr óperubólúnennt- unum. Þessi dagskrárliður kem- ur í stað vínartónleika sem hljómsveitin hefur áður stabib að. Stjórnandi þeirra tónleika verbur Guðmundur Óli Gunn- arsson, aðalstjórnandi hljóm- sveitarinnar. Með útgáfu kynningarbæk- lingsins hafa helstu listastofn- anir í bænum, sem allar eru at- vinnustofnanir, tekið höndum saman um kynningu á starfsemi sinni á komandi vetri en auk þeirra starfa ýmsir fleiri aðilar að uppsetningu listvibburða á Akureyri og í nágrenni. Má þar nefna áhugaleikhópa, sýningar- sali og tóniistarfólk. ■ Fréttir í vikulok jóhanna Siguröardóttir. Gríbarlegt fylgi Jóhönnu Skv. skoðanakönnun Morgunpóstsins fengi Jóhanna 16,5% fylgi ef kosið yrði til Alþingis nú. Hún segir að gott gengi henn- ar í skoðanakönnun sé áskorun frá fólkinu um að ráðist verði í stofnun nýrrar jafnaðarmannahreyfingar. Stofnun hennar er í undirbúningi að Sögn Jóhönnu og segir hún að línur þess efn- is skýrist á næstunni. Ágæt rjúpnaveiöi Góð rjúpnaveiði hefur verið víða um land og eru skyttur al- mennt sammála um að meira sé af rjúpu en verið hefur undan- farin ár. Gróf misþyrming Tveir menn misþyrmdu sofandi manni í samkvæmi um síð- ustu helgi með því að vefja rafmagnsvír um fingur hans og stungu í samband. Maðurinn fékk hjartsláttaróreglu í kjölfarið og svöbusár á hendi. Hommar og lesbíur vilja giftast Lesbíur og hommar hafa krafist þess að fá að löggilda parasam- bönd sín með kirkjulegri vígslu og njóta þar með sömu rétt- inda og gagnkynhneigt fólk. í ályktun sem Norðurlandaráb homma og lesbía hélt í Svíþjób var kirkjan hvött til að hætta beitingu misréttis gagnvart samkynhneigðum. Þorbjörn Hlyn- ur Árnason biskupsritari segir að samkynhneigðir hafi aldrei leitað eftir kirkjulegri vígslu hérlendis og því hafi aldrei reynt á þessa kröfu. Börn drepa barn í Noregi Heimsathygli hefur vakið að 3 sex ára dengir myrtu 5 ára leik- systur sína í Þrándheimi í Noregi. Upp úr því hafa spunnist miklar umræður víða um heim um áhrif ofbeldismynda á börn og unglinga. Stjórnendur RÚV gagnrýndir Alþingismenn eru ósammála framkvæmdastjóra Ríkisútvarps- ins og dagskrárstjóra dægurmáladeildar um að segja upp pólit- ískum pistlahöfundum á útvarpinu. Þetta kom fram við utan- dagkrárumræður á Alþingi sem fram fóru I vikunni í kjölfar „Illugamálsins". Vantraust á mánudaginn Umræbur um vantraust á ríkisstjórnina verða á mánudags- kvöld nk. og verður þeim sjónvarpað beint. Samkvæmt heim- ildum Tímans er líklegast að borin verði fram frávísunartillaga í vantraustsumræðunni. Mikill fjáraustur úr sjóbum borgar- búa fyrir kosningarnar Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir, sakar fyrrverandi meirihluta Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur um gífurleg fjárútlát fyrir kosningarnar í vor. Hún segir jafnframt aö yfirlit yfir fjárstreymi hafi ekki verið viðhaft og nánast til- viljun hver fékk hvað. Fiskiþing Fiskiþing var haldið í vikunni. Enginn fulltrúi frá LÍÚ sat þing- ið. Sjávarútvegsráðherra sagði á þinginu að hann teldi að kvótakerfib væri ekki orsök þess ab fiski væri hent í sjóinn. Hann boðaði hert eftirlit með þessu vandamáli með aðstoð lögreglu ef svo bæri undir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.