Tíminn - 22.10.1994, Blaðsíða 7

Tíminn - 22.10.1994, Blaðsíða 7
Laugardagur 22. október 1994 7 Alþjóöleg fjárfesting veldur miklum hagvexti og efnahagsframförum í Kína: Byltingarkenndur markaðs- sosíalismi í alþýðulýðveldinu íslenska sendinefndin ásamt gestgjöfum. Frá vinstri eru Gubmundur Björnsson og Gubrún Ása Kristinsdóttir. Þá Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur Hermannsson, Eddda Gubmundsdóttir, Gubrún Katrín Þor- bergsdóttir, Ragnheibur Ebeneserdóttir og Stefán Fribfinnsson. Hjónin Steingrímur Hermannsson og Edda Gubmundsdóttir í hofi Ming- keisaraœttarinnar í Beijing. Steingrímur Hermannsson seölabankastjóri er nýlega kominn heim úr opinberri heimsókn til Kína. Hann fór þangab sem forsætisrábherra árib 1986 og hann segir breyt- ingarnar, sem orðiö hafa í Kína á þessum átta árum, nánast byltingarkenndar. „Ég fór í opinbera heimsókn til Kína eftir leiötogafundinn árið 1986. Þá voru Kínverjar aö opna sínar dyr, eins og Deng Xiaop- ing sagði. Þetta var mjög fróðleg ferð. Við ferðuðumst vítt og breitt um landið. Ég átti þá mjög eftirminnilegan fund með Deng Xiaoping. Á þessum sama tíma fóru allir forsaetisráðherrar Norðurlandanna í opinbera heimsókn til Kína. Ég hygg að ég hafi veriö síðastur og ég var sá eini sem fékk að hitta Deng Xiaoping. Ég varð var við nokkra undrun meðal sendi- herra hinna Norðurlandanna, en Kínverjarnir gáfu til kynna að þeir vildu gjarnan sýna þeim smæstu ekki minni virðingu en þeim stærstu." Framtíðarsýn Dengs Xiaoping Meðal þess, sem Steingrímur og Deng ræddu árið 1986, var ríki- dómur íslands og Kína. í þessu safntali endurspeglaðist hið kínverska lítillæti, sem hefur orðið mörgum Vesturlandabú- anum umhugsunarefni. „Ég sagði eitthvað á þá leið að það væri mikill munur á stærð þjóöanna, þeir væru sú fjöl- mennasta en við með þeim minnstu," segir Steingrímur. „Þetta er eiginlega rangt," sagði gamli maðurinn. „Þið eruð með þeim ríkustu, en við með þeim fátækustu. Eftir 100 ár verðum við búnir aö ná ykkur." Eftir ferbina núna sé ég að hann hafbi rétt fyrir sér þarna, eins og í mörgu öðru. Ég held að þab líði jafnvel skemmri tími en ein öld þar til Kínverjar hafa náb vestrænum ríkjum að auði. Reyndar spáir Alþjóba gjaldeyr- isvarasjóðurinn því nú, að Kín- verjar verði orðnir stærsta efna- hagsheild heimsins eftir 25 ár. Mér sýnist margt benda til þess að sú spá geti gengið eftir, ef þeir missa ekki tökin á efna- hagslegri og pólitískri þróun." — En hvemig atvikaðist það að þér var boðið að koma aftur, ásamt fleintm, tiú á dögunum? „Kínverjar hafa lagt mikla áherslu á að endurnýja vinskap við Vesturlönd eftir drápin á „Torgi hins himneska friðar". Ég hafnaði heimboðunum framanaf. Það fyrsta fékk ég fyr- ir þremur ámm og hef fengið boð á hverju ári síðan. Skömmu eftir að ég kom í Seölabankann var mér boðið, sem fyrrverandi forsætisráð- herra og seðlabankastjóra, að heimsækja Kína, sjá breyting- arnar og hvernig þeir stjórnuðu sínum peningamálum. Ég ákvað að þiggja bobib. Þeir buðu mér jafnframt að benda á ferðafélaga. Niðurstaðan varð fjögurra manna blandaöur hóp- ur, ásamt eiginkonum, stjórn- málamanna og manna úr at- hafnalífinu. Þeir voru, fyrir utan mig, Ólafur Ragnar Grímsson formabur Alþýðubandalagsins, Stefán Friðfinnsson fram- kvæmdastjóri íslenskra aðal- verktaka, og Guðmundur Björnsson verkfræðingur, fram- kvæmdastjóri verkfræðistof- unnar Hnit hf. Hann hefur starfað töluvert erlendis, m.a. á Kamtsjatka. Til stóð að Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, færi einn- ig, en hann varð því miður ab hætta við á síðustu stundu." Gríðarlegar framkvæmdir „Ferðin var fyrir margra hluta sakir fróðleg," segir Steingrím- ur, en eftirtektarverðastar voru þær gríðarlegu breytingar, sem orðið hafa frá því að hann var þar árið 1986. Fyrir átta árum töluðu Kínverjar mikið um hin- ar opnu dyr. Þeir lýstu því að bændur hefðu sinn skikann hver og gætu selt vörur sínar á frjálsum markabi. Þeir vitnuðu til þess að árið 1979 hefðu þeir heimilað smærri einkaaðilum verslunarrekstur. Á þessum tíma var hins vegar ekki mikið um stórframkvæmdir. „Mér var sagt á þeim tíma að í Beijing væri eitt gott alþjóðlegt hótel," segir Steingrímur. „Nú eru þau nánast á hverju horni — Hilton, Sheraton, Kempinski og öll þessi alþjóðlegu merki. Þegar ég kom þarna fyrir átta árum, var tiltölulega mjór og bugðóttur vegur frá flugvellin- um inn í borgina. Nú er þar stór hraöbraut, byggö og rekin af er- lendu stórfyrirtæki. Inni í borg- inni blasa við nýjar hraöbrautir á fleiri hæðum og risabyggingar á hverju horni. Hótel, verslanir og íbúbarbyggingar, margar í eigu útlendinga. Þó eru framkvæmdirnar gífur- legastar á Sjanghai-svæðinu og upp með Yangtsefljótinu. Vib fórum frá Beijing til Nantsjing og þaðan til tiltölulega lítillar borgar, sem heitir Suqhou, og þaðan til Sjanghai. Miðstjórn Kommúnistaflokks- ins hefur opnað þetta svæði fyr- ir erlendum fjárfestingum. í Sjanghai eru fjögur slík þróun- arsvæbi. Það stærsta heitir Pu- denge og er 520 ferkílómetrar að flatarmáli. Því er aftur skipt í fjögur svæbi: fjármála- og vib- skiptasvæði, útflutningsiðnaö- arsvæbi, hátækniiðnaöarsvæði og fríibnaðarsvæði, þar sem út- flutningur er allur tollfrjáls." Neónljósahafib eins og á Times Square Það, sem vakti einna mesta at- hygli okkar, var hvað Kínverjar viröast standa skipulega að því að byggja upp grundvöllinn. Hraðbrautarframkvæmdir eru gífurlegar. Inn á þetta svæbi eru t.d. byggðar tvær risabrýr yfir stórfljót. Gatnamót á hrað- braut, sem liggur í gegnum það, eru á fleiri hæðum. Sumt af þessu eru Kínverjar að byggja sjálfir, annab er í höndum er- lendra verktaka. Á þessu eina svæði eru erlendir aðilar búnir aö skrá sig fyrir fjárfestingu upp á um 14 milljarða dollara. Á síð- asta ári var samið vib 3650 fyrir- tæki um nýjar framkvæmdir á þessu svæði. í fjármálamiðstöð- inni verða þrír 90 hæða skýja- kljúfar. Tveir af þeim eru í bygg- ingu. Erlend fjárfestingarfyrir- tæki leigja landið og byggja stórhýsin til þess ab leigja þau aftur út. Þarna sér maður flest þekkt- ustu merki heims í hátækniiðn- aði, þekkt merki á sviði bíla- framleiðslu sem reisa þarna verksmiðjur. í Suqhou eru Finn- ar ab reisa stærstu pappírsverk- smiðju í Asíu. Svona mætti lengi áfram telja." Ekki einungis athafnalíf hefur tekið breytingum. Á mannlífib er einnig komib vestrænna yfir- bragð. „Við sáum ekki mikið af næturlífinu í Beijing, en þó aðeins. Það hefur einnig tekið stökkbreytingum," segir Steingrímur. „Okkur var sagt ab öll neónljósadýrðin í Sjanghai sé ekki nema 2-3 ára gömul, en hún er orðin jafn mikil og á Times Square á Man- hattan." Haldið fast utan um hagvöxtinn Hagvöxtur hefur verið 6-10% í Kína á undanförnum árum, en í stórborgunum er hann 12-14%. Þessu fylgir 23-24% verðbólga. Stjórnvöld segjast ákveðin í því að ná henni niður í 10%, sem þeir telja eðlilegt við þessi skil- yrði. „Fari verðbólgan úr böndum, þá óttast ég það sem þarna er að gerast," segir Steingrímur. „Kín- verjar bera virðingu fyrir nafn- bótum og titillinn fyrrverandi forsætisráðherra opnaöi okkur aðgang að fólki sem við hefðum ef til vill ekki annars fengið að hitta. Þar á meðal var Zhu Rongji, einn af fjórum aðstobar- forsætisráðherrum landsins. Hann er reyndar einnig banka- stjóri seðlabankans og talinn vera einn valdamesti maðurinn í efnahagsmálum í Kína. Ég spurði hann út í verðbólguna. Hann svaraði bara sem svo: „Viö munum ná henni niður í 10%." Engum efasemdum var lýst. Aðspurður hvernig, nefndi hann fyrst og fremst tvennt: verbstöðvun á helstu nauðsynj- ar almennings og stranga kvóta á útlán bankanna, en banka- kerfið er allt í höndum ríkis- valdsins. Við áttum fund með einum af bankastjórum Bank of China. Það vakti athygli að vaxtamun- ur er þarna mjög lítill. Innláns- vextir eru um 10% og útláns- vextir einungis 10.8%. Ég spurði hvernig þetta gæti staðist og fékk þab svar að í fyrsta lagi væri sparnaður mjög mikill í Kína, þrátt fyrir lág vinnulaun. Kínverjar eru mjög nægjusamir og í öðru lagi njóta þeir bak- stuðnings seðlabanka og ríkis- valds." Gúlögin eru enn viö lýöi „Pólitískt er mikilvægt fyrir Kínverja að missa ekki verð- bólgu og verðlag úr böndunum. Þeir lýsa því meö mjög ákveðn- um orðum að þeir þoli engan pólitískan óróa, því þá muni fara í Kína eins og í Rússlandi. Ég er sammála því ab þeir þola ekki pólitískan óróa, þó að mað- ur viðurkenni að sjálfsögöu ekki mannréttindabrotin. Fyrrver- andi forsætisrábherra Bretlands, Sir Edward Heath, lét þau orð falla á ráðstefnu, sem ég sat síö- astliðið vor, að enginn vest- rænn leibtogi eða vestrænt land væri fært um að segja Kínverj- um til um það hvernig þeir eigi að þróa efnahagskerfi 1,2 millj- arba manna lands frá miðstýrðu þjóðfélagi til sósíalísks markabs- búskapar, eins og þeir nefna það. Þeir verða einfaldlega aö halda mjög vel utan um þessa þjóðfélagsþróun til þess að hún fari ekki úr böndunum." — Er þeim nauðsynlegt að halda uppi aga til þess að þetta fari ekki úrböndunum? „Ennþá munu til svonefndar endurhæfingarbúðir eða gúlög," segir Steingrímur. „Menn drógu ekki fjöbur yfir það, aö óróaseggir eru sendir þangað til endúrhæfingar. Þetta er þaö yfirborð sem að mönn- um snýr. Kommúnistaflokkur- inn leggur á ný vaxandi áherslu á flokksaga. Þó ekki sé gengið jafn langt og Maó gerði, er leit- ast við að styrkja flokksfélögin í dreifbýlinu og þorpunum. Á meðan við vorum þarna var haldinn mjög mikilvægur fund- ur í miðstjórn Kommúnista- flokksins. Þar vinna forustu- menn að því að styrkja sig í sessi fyrir fráfall Dengs Xiaoping. Fullyrt er að pólitísk óánægja sé ekki ríkjandi, af því að rnenn sjái að Kína sé á réttri leið og tekjur fólks fari vaxandi. Ef til vill er óvarlegt að trúa því alveg. Kínversk stjórnvöld fara ekki leynt með að tekib er hart á öll- um óróa og allri spillingu, eins og þeir kalla það. Til dæmis liggur dauðarefsing við fjár- drætti og fjármálaspillingu. Fullyrt er ab yfirvöld hafi tekið af lífi fleiri hundruð manna og jafnvel þúsund fyrir slíkar sakir. Hvab sem öðru líöur, sýnist mér ljóst að Kína mun á næstu árum hafa gífurleg áhrif á alla efnahagsþróun í heiminum. Ekki þykir mér ólíklegt að Aust- ur-Asía verði efnahagsveldi næstu aldar. Því er afar mikil- vægt að við íslendingar höslum okkur völl í Kína. Þab þarf ab gera að vel athuguðu máli, und- irbúa af vandvirkni og standa verbur að öllu slíku af samvisku og heiðarleika," sagði Stein- grímur Hermannsson að lok- um. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.