Tíminn - 29.10.1994, Side 7
Laugardagur 29. október 1994
Þjóðleikhúsiö: SNÆ-
DROTTNINCIN eftir
Evgení Schwartz.
Ævintýri í tveimur
þáttum, byggt á
sögu H.C. Andersens.
Þýöing: Arni Berg-
mann og Bjarni Cuö-
mundsson. Tónlist:
Árni Haröarson. Bún-
ingar: Þórunn Elísa-
bet Sveinsdóttir.
Leikmynd: Cuöný B.
Richards. Leikstjóri:
Andrés Sigurvinsson.
Frumsýnt á Stóra
sviöinu 26. október.
Snædrottningin eftir Ander-
sen er mörgum minnisstætt
ævintýri. Leikgerð Evgenís
Schwartz á því er nokkuð gömul,
frá fyrri hluta aldarinnar, því að
hún var fyrsta barnasýning Þjóð-
leikhússins 1951, og hefur orðið
sumum sem sáu hana þá á barns-
aldri ógleymanleg. Ekki þori ég
að spá á sama hátt fyrir þessari
sýningu Snædrottningarinnar,
enda breyttir tímar í framleiðslu
efnis handa börnum. Skrautsýn-
ingar handa krökkum hafa ekki
sama gildi á sjónvarps- og mynd-
bandaöld. Einn ágætur gagnrýn-
andi lét svo um mælt fyrir löngu
að barnaleiksýningar væru alltaf
að þykjast vera bíó. Þetta er
kannski hótfyndni, en hefur í sér
fólginn- þann sannleiksvott að
löngum hefur í barnasýningum
meira verið lagt upp úr litskrúð-
ugum ytra búnaði, hraða,
spennu og látum, heldur en
innilegum og nærgengum leik.
Snædrottningin telst tvímæla-
laust til skrautsýninga. Sýningin
er vissulega litskrúðug og sumt í
henni vel gert, en samt skorti á
að hún loddi fyllilega saman fyr-
ir sjónum manns.
A fundi um daginn var rætt um
leikgerðir. Það orð hefur þanist
út að merkingu til baga í seinni
tíð. Ég hef skiliö það svo að það
merki sér í lagi að færa sögu í
leikrit. Það er einmitt þetta sem
Schwartz gerði við Snædrottn-
inguna. En í leikskrá stendur að
Andrés sé leikstjóri og Elísabet
Snorradóttir hafi annast „leik-
gerð". Hvað merkir það, leikgerð
á leikgerð? Líklega þýöir það bara
að þau hafi lagað leikgerð
Schwartz eitthvað til. Hér þyrfti
að finna nýtt orö.
En nú að leiknum. Efnið er sótt
til Andersens, en þannig að há-
tíðleiki þess og trúarleg og sið-
ferðileg alvara er hér á bak og
burt. Snædrottningin fjallar um
það þegar fulltrúi frá vondri
drottningu í klakahöll kemur til
Kára og Geröu þar sem þau búa í
sæld og ró hjá ömmu. Hann vill
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir íhlutverki rœningjastelpunnar og Hilmir Snœr Guönason sögumabur.
í höllu drottningar
kaupa rósir af ömmu og býður
fúlgu fjár. En maður selur ekki
yndi sitt og amma neitar. Þá
kemur hin ískalda snædrottning.
Hún fær Kára til að kyssa sig og
þá verður hjarta hans kalt í sömu
svipan, hún nemur hann á brott.
Gerða heldur nú af stað til að
leita hans. Hún hittir margs kon-
ar persónur, fólk og dýr, á leið-
inni eins og gerist í góðu ævin-
týri. Og endalokin em líka eins
og þar til heyrir.
Tengiliður sögu og leiks er sögu-
maðurinn, sem Hilmir Snær
Guðnason leikur. Það er hann
sem segir börnum söguna —
ígildi ævintýraskáldsins þótt
hann sé ekkert líkur því. Hilmir
Snær kemur annars vel fyrir í
hlutverkinu, en kannski væri
betra að hafa þarna eldri leikara
og reyndari, því sögumaður þarf
að hafa fullan myndugleika.
Mest mæðir á börnunum tveim-
ur, Gerðu (Álfrúnu Helgu Örn-
ólfsdóttur) og Kára (Gunnlaugi
Egilssyni). Þau em bæði þekkileg,
ekki vantar það, en samt finnst
mér að leikstjóri hafi ekki náð út
úr þeim því sem þurfti. Einkum
skorti á að raddbeiting og fram-
sögn Álfrúnar væri nógu góð.
Það kann líka að hafa spillt fyrir
að leikið væri of innarlega á svið-
inu, það var ekki meir en svo að
LEIKLIST
GUNNAR STEFÁNSSON
ég heyrði alltaf vel hvað hún
sagði aftur á tólfta bekk.
Annars em margir leikararnir
góðir. Nefni ég þar fyrstan full-
trúann, Jóhann Sigurðarson, af
honum stafaði sönn ógn. Aftur á
móti var miður vel skipað í hlut-
verk snædrottningarinnar sjálfr-
ar. Edda Arnljótsdóttir var ekki
nógu grimmileg í því hlutverki.
Þetta er drottning og norn í
senn, sem býr yfir seið og valdi.
Það skilaði sér lítt hjá Eddu, þótt
vissulega hafi hún útlit og lima-
burð til að leika drottningu.
Bryndís Pétursdóttir var ósköp
góð amma, og Hjálmar Hjálm-
arsson og Halldóra Björnsdóttir
léku krákur af miklu fjöri, aldrei
kyrr eitt andartak. Prinsessan og
prinsinn, Elva Ósk Óskarsdóttir
og Hilmar Jónsson, vom heldur
sviplítil, en Gunnar Eyjólfsson
kómískur kóngur, þótt ekki sé
þessi kóngur mikill bógur. Held-
ur lifnaði yfir í ræningjabyggð-
um, þar sem Anna Kristín Arn-
grímsdóttir var skömlegur ræn-
ingjaforingi (hefði Anna Kristín
eða leikkona af hennar gerð ekki
UMSOKNIR
Húsnæbisnefnd Reykjavíkur óskar eftir umsóknum um kaup á 320 nýjum
og eldri félagslegum eignaríbú&um, sem koma til afhendingar fram á
haustib 1996. Ennfremur er óskab eftir umsóknum um 60 nýjar félagsleg-
ar kaupleiguíbúbir, sem afhentar verba á sama tíma. Um rábstöfun, verb
og greibsluskilmála þessara íbúba gilda lög nr. 97/1993.
Umsóknareybublöb verba afhent á skrifstofu Húsnæbisnefndar Reykjavík-
ur, Suburlandsbraut 30, og verba þar einnig veittar allar almennar upplýs-
ingar. Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga kl. 9-16.
Umsóknum skal skila eigi síbar en 19. nóvember 1994.
Húsnæbisnefnd Reykjavíkur.
átt að leika snædrottninguna?).
Ræningjastelpan freka, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, var ágæt
og eftirlæti krakkanna að því er
virðist, lék af smitandi fjöri.
Aðrir leikendur skiluðu sínu eft-
ir hætti, en varö ekki mikið úr
hlutverkunum: Helgi Skúlason
sem Hreinninn, Magnús Ragn-
arsson, Randver Þorláksson og
Flosi Ólafsson sem ræningjar.
Sviðsmynd var góð í ræningja-
byggðum og höll snædrottning-
ar, en lakari í stofu ömmu, glugg-
inn var ekki nógu mikill segull,
sem þarf að vera, því ævintýrið
kemur inn um hann. Mikil prýði
er aö tónlistinni, hún undirstrik-
aði vel ævintýrastemmninguna
og búningar voru yfirleitt góðir,
einkum á fulltrúanum, drottn-
ingunni og krákunum. Síðan er
stiginn dans, og má segja að
sviðið sé allt á sífelldri hreyfingu.
Það eru þannig ýmsir góðir
hlutir í sýningunni, en hún er
ekki eins heilsteypt og vönduð í
öllum atriðum og til dæmis
Skilaboðaskjóðan var 1 fyrra í
Ieikstjórn Kolbrúnar Halldórs-
dóttur. Þar tókst líka betur að
virkja áhorfendur en hér. Barna-
sýningar má ekki vanda mibur
en aðrar sýningar. 'Þjóðleikhúsið
hefur vissulega lagt mikib í Snæ-
drottninguna að ytra búnaði. Eg
tel að leggja hefði átt meiri rækt
vib persónusköpun og gæða sýn-
inguna meiri dramatískum
krafti, þótt það yrði á kostnað
ærslanna. Allt um þetta geta
yngri og eldri áhorfendur haft
ánægju af sýningunni, í litum,
tónum og hreyfingum, þeirri
veröld ævintýrisins sem hér er
sett fyrir sjónir. ■
HH m m p% Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Leikskólakennarar
Sta&a a&stoðarleikskólastjóra í Lindarborg v/Lindar- götu er laus til umsóknar. Upplýsinqar gefur leikskólastjóri, Raqnheiður Halldórs- dóttir, í síma 15390.
Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
HH m M m p% 'V Leikskólar Reykjavíkurborgar
Til foreldra barna á leikskólaaldri í Reykjavík
Munib a& skila útsendum umsóknarey&ublöb- um um heilsdagsleikskóla fyrir 31. október.
Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277