Tíminn - 29.10.1994, Blaðsíða 13
Laugardagur 29. október 1994
13
Umsjón:
Birgir
Gubmundsson
JVIeð sínu nefi
Lag eftir Atla Heimi Sveinsson, upphaflega gert við Kvæðið um
fuglana eftir Davíð Stefánsson, verður í aðalhlutverki í þættin-
um í dag. Nú er þetta lag sungið í sjónvarpi og útvarpi sem mál-
ræktarlag viö ljóð eftir Þórarin Eldjárn. Og þó svo að Mjólkur-
samsalan noti þetta í sínum ímyndarauglýsingum, látum við
það fljóta meö til gamans og gefum MS þar með kost á ókeypis
auglýsingu hjá vinum þáttarins! Kvæði Davíðs um fuglana fylg-
ir hér með líka, enda eflaust margir, sem ekki kunna við að
syngja lagið við annað ljóð.
Góða söngskemmtun!
MÁLRÆKTARLAGIÐ
Am E
Á íslensku má alltaf finna svar
Am F C
og orða stórt og smátt sem er og var,
Dm E7 Am
og hún á orð sem geyma gleði' og sorg,
H7 E7 Am
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.
Á vörum okkar verður tungan þjál,
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú,
það gerir enginn — nema ég og þú.
KVÆÐIÐ UM FUGLANA
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar Guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og fjaðraskúf.
Úr fumtré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Am
i>eir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
og hlustið, englar Guðs í Paradís.
H7
X 2 1 3 0 4
E7
( >
( > < >
( >
0 2 3 1 4 0
Vesturland
Tilnefningar vegna
skoðanakönnunar
Ákveðið hefur verið að fram fari skoðanakönnun innan Kjördæmissambands fram-
sóknarfélaganna (Vesturlandskjördæmi um val á frambjóðendum f efstu sæti fram-
boðslista Framsóknarflokksins I kjördæminu við n.k. alþingiskosningar. Skoðana-
könnunin fer fram á aukakjördæmisþingi, sem haldið verður I Hótel Borgarnesi laug-
ardaginn 19. nóvember 1994.
Hér með er auglýst eftir frambjóðendum 1 skoðanakönnunina.
Hvert framsóknarfélag I kjördæminu hefur rétt til að tilnefna allt að fimm manns til
þátttöku f skoðanakönnuninni.
Kjörnefnd er heimilt að bæta við frambjóðendum.
Framboðum vegna skoðanakönnunarinnar skal skila til fulltrúa I kjömefnd eigi sfðar
en 5. nóvember n.k.
Eftirtaldir aðilar eiga sæti I kjömefndinni:
Gfsli V. Halldórsson, Þórunnargötu 6, 310 Borgarnes.
Guðmundur Páll Jónsson, Krókatúni 18,300 Akranes.
Hrafnkell Alexandersson, Höfðagötu 15,340 Stykkishólmur.
Jón Gfslason, Lundi, 311 Borgarnes.
Rúnar Jónsson, Valþúfu, 371 Búðardalur.
Kjömefnd KJÖrdæmissambands framsóknar-
félaganna í Vesturfandskjördæmi
FAXNÚMERIÐ
ER 16270
FortK&a&a
tt(/finertm
175 gr smjör
175 gr sykur
3egg
1 eggjarauba
2 tsk. lyftiduft
225 gr hveiti
150 gr rúsínur
100 gr hakkaöar hnetur
1 msk. hveiti
1 eggjahvíta
Smjör og sykur hrært létt og
ljóst. Egg og eggjarauða hrærð
saman viö, eitt í senn og hrært
vel á milli. Hveiti og lyftidufti
blandaö saman og hrært út í.
Rúsínunum og hnetunum
blandab saman við 1 msk. af
hveiti og hrært út í deigið.
Deigið sett í smurt og raspi
stráð form (ca. 1 1). Eggjahvít-
unni smurt yfir. Bakað við
170° í ca. 1 ldst. og 15 mín.
Stingið prjóni í kökuna, til aö
athuga hvort hún er bökuð. Ef
ekkert deig lobir við prjóninn,
er kakan bökuð, annars þarf
hún ab vera lengur í ofninum.
Ca. 1 kg kartöflur soðnar og
skornar í ferhyrninga
300 gr rauðbeður úr dós
3 dl majones
1 dl rjómi
Skraut:
Dill eða púrrusneiðar
Kartöflubitunum og rauð-
beðuferningunum blandað
saman. Majonesib hrært meb
rjómanum og hellt yfir. Salat-
ið er gott eitt sér með ristuðu
brauði, kjöti eða fiski.
Sottanaínmð
250 gr hveiti
2 tsk. lyftiduft
150 gr sykur
3 stappaðir bananar
75 gr brætt smjör
2egg
100 gr rúsínur
1 tsk. kanill
Örlítið salt
Þurrefnunum blandað saman.
Þá er sykri, smjöri, banönum,
rúsínum og eggjum hrært
saman við þar til deigið er orð-
ið að jafnri hræru. Deigið sett í
aflangt jólakökuform, vel
smurt. Bakað við 175° í ca. 50-
60 mín. Prufið með prjóni
hvort brauðið er bakab. Ef ekk-
ert deig loðir við prjóninn, er
brauðið bakað, annars þarf
það að vera lengur í ofninum.
1 1/2 I vatn
500 gr lambakjöt
(hryggbitar)
1 1/2 tsk. salt
1/2 dl hrísgrjón
250 gr gulrófur
3 gulrætur
2-3 kartöflur
150 gr hvítkál
Kjötið er hreinsað og sett út í
sjóðandi vatnið, og saltað.
Soðið í 30 mín. Hrísgrjónin og
grænmetiö, sem er skorið í
smábita, látið út í. Soðið áfram
í 20-30 mín.
Feitt íraaö i
^o-öUmatinn
4 formbrauðssneiðar
4 stórar ostsneibar
4 skinkusneiöar
2 tómatar
2 1/2 dl mjólk
1 msk. smjör
1 msk. hveiti
Salt og pipar
Smjörið brætt í potti, hveit-
inu bætt út í og mjólkinni
hrært saman við. Látið sjóöa í
ca. 5 mín. Bragðað til með
salti og pipar. Sósa sett á
brauösneiðarnar, svo skinku-
sneið. Þar næst sósa, svo tóm-
atsneiðar og efst ostsneiöam-
ar. Sett í heitan ofn viö 200° og
hitaö saman þar til osturinn er
brábnaöur.
Fallegt að hafa salatblaö und-
ir á fatinu.
Saéat^in 4
1 Icebergsalathöfub,
skorib í strimla
4 sellerístilkar,
skomir í þunnar sneibar
4 tómatar,
skornir í þunna báta
Ca. 200 gr ananas,
skorinn í litla bita
1 dós sýrbur rjómi,
hrærbur út meb ananassafa
Grænmetið sett í skál og sós-
an sett í skál við hliðina á
borðið. Hver og einn getur þá
ráðið hve mikiö af sósu hann
vill nota út á salatið.
Til umhugsunar
1. Leggðu áherslu á þab sem gefur lífinu tilgang.
2. Berðu þig ekki saman vib aðra.
3. Viöurkenndu vankanta þína og mistök. En gleöstu yfir því
sem þú ert.
4. Vertu jákvæb/ur. Bægðu burtu neikvæöum hugsunum.
5. Talabu út um hlutina. Viðurkenndu þín vandamál og hlust-
aðu á vandamál annarra, hvernig þeim líður.
6. Gleymdu ekki ab vib þurfum góban mat, hreyfingu og nægan
svefn.
7. Njóttu þess sem þú hefur. Bægbu burtu öfund.
8. Gefðu bara loforb, sem þú getur haldib.
9. Þaö ert þú, sem hefur gert hitt og þetta ab vana og óvana. Þab
er þitt að breyta því.
10. Nú í dag getur þú látið drauminn rætast.