Tíminn - 03.12.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 03.12.1994, Blaðsíða 9
"Laugardagur 3. desember 1994 9 Aðventan minnir okkur á að jól- in eru skammt undan, og fólk byrjar að skreyta híbýli sín með kertaljósum, sem komið hefur verið fyrir í hinum ýmsu mynd- um. Tilbúnar ljósaskreytingar fást í blómabúðum, en gaman er að láta reyna á hugmyndaflug og smekkvísi hvers og eins þegar við búum til okkar eigin aðventuljós. Kertaljósin og stjörnur himinsins verða alltaf hin fegursta birta. Nú fara konur aö skipuleggja heimilishaldið. Gera þarf inn- kaup og taka fram kökuuppskrift- irnar að jólasmákökunum okkar og sjá hvort eitthvað nýstárlegt hefur séð dagsins Ijós. Viö kom- um hér með uppskriftir að hefð- bundnum piparkökum, sem flest- um finnst ómissandi um jólin, og svo bara nokkrar nýjar og góð- ar sem gaman er aö sjá hvort fá náð fyrir bragðlaukum heimilis- fólksins. Hér kemur smá innkaupalisti sem gott er að hafa til hliösjónar, ef okkur dettur í hug að baka eina eða tvær smákökutegundir eitthvert kvöldiö: Hveiti, kókosmjöl, kartöflu- mjöl, smjör/smjörlíki, strásykur, lyftiduft, flórsykur, púðursykur (ljós, dökkur), síróp, natron, hjartarsalt, egg, vanillusykur, kanill, negull, engifer, salt, pipar, möndlur, hnetur, rúsínur, kú- rennur, súkkat, döðlur, kokkteil- ber rauð og græn, súkkulaði, perlusykur, kornflögur. £á/liluiaði- (‘'ásína.tappaf' 200 gr smjör 2 dlsykur 2egg 1 1/2 dl rúsínur (saxaðar smátt) 75 gr subusúkkulabi (saxab smátt) 2 msk. appelsínumarmelabi 6 dl hveiti 1 tsk. lyftiduft Smjör og sykur hrært létt og ljóst. Eggjunum hrært saman vib. Súkkulaðinu, rúsínunum og ap- pelsínumarmelaðinu bætt út í. Hveitinu og lyftiduftinu hrært saman við síðast. Deigið sett í litla tappa með tveim teskeiðum á bökunarpapp- írsklædda plötu. Bakaðir við 175° í ca. 12 mín. 200 gr mjúkt smjör 200 gr sykur 1 egg 250 gr hveiti 2 tsk. lyftiduft 2 bollar kókosmjöl 1 bolli saxaðar rúsínur Smjör og sykur hrært vel sam- an, egginu bætt út í og hrært áfram smástund. Hveiti, lyftiduft og kókosmjöl hrært út í. Rúsín- unum blandað saman við deigið. Hnoðaðar litlar kúlur, settar á bökunarpappírsklædda plötu. Bakað við 190° í miðjum ofni í 10-15 mín. þar til kökurnar eru ljósbrúnar. 150 gr smjör 400 gr sykur 2 dl síróp 2 dl vatn 1 msk. kanill 1 msk. negull 1/2 msk. engifer 1 msk. natron Ca. 800-850 gr hveiti Smjörið, sykurinn, sírópið og kryddið er hrært vel saman. Hveiti og natroni hrært út í. Deigið á að vera mjúkt, látið bíða til næsta dags. Flatt út og stungn- ar út kökur — hjörtu eða karlar og kerlingar, ef mót eru til. Sett á smurða plötu og bakað neðarlega í ofni við 225° í ca. 5 mín. Látið kólna. Kökurnar eru skreyttar með kransakökuglassúr. Upp- skrift: 1 eggjahvíta (óþeytt), 1 tsk. edik, 5-6 msk. flórsykur. Hrært vel saman í ca. 10 mín. og sprautað á kökurnar. 125 gr smjör 125 gr sykur 1/2 msk. síróp Örlítib af kardemommum 1 tsk. kanill 1 lítib egg 200 gr hveiti 1 sléttfull tsk. natron 1/4 tsk. pipar Smjörib, sykurinn, sírópiö og kryddið hrært mjúkt saman áður en eggið, hveitið og natronið er blandað saman við. Hnoðað, búnar til litlar kúlur á stærð við heslihnetu, settar á smurba plötu. Þrýst aðeins ofan á kök- urnar, bakaðar við 225° í 5-6 mín. neðarlega í ofninum. Fljótlegt, gott og auðvelt er að bræða súkkulaði yfir vatnsbaði, dýfa svo jarðarberjum, vínberj- um, ananasbitum, mandarínu- bátum og hnetum ofan í súkku- laðiblönduna. Látið kólna á bök- unarpappír. Cornflakesbitar: 3 msk. Nes- quik kakó, 75 gr smjör, 1 dl syk- ur, 1/2 msk. vanillusykur, 3 dl cornflakes, 2 msk. rjómi. Smjör og sykur hrært hvítt. Vanillusykri bætt út í ásamt kak- óinu. Hrærið gróft muldu corn- flakes og rjómanum saman við og setjið í lítil form. Stráið kókos- mjöli yfir. Sjóbið saman lög af 1 dl sykri og 2 dl vatni þar til sykurinn er uppleystur í vatninu. Skeriö 1 sí- trónu og 1 appelsínu í sneiöar. Hellið sykurvatnsleginum yfir þær. Bætib 1 flösku af rauðvíni og 1 flösku af hvítvíni (áfengu eða óáfengu) út í. Bætib ísmolum út í og berib fram kalt. Aðrir ávextir gætu einnig átt vel við. ■ Fréttir í vikulok Þjóðvakinn stofnaður — nýtt stjórnmála- afl Jóhönnu Sigurðardóttur Sl. sunnudag kynnti Jóhanna nýtt afl í stjórnmálum, Þjóðvaka, á fjölmennum fundi. Stuðningsmenn hennar koma úr öllum flokkum. Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun fengi Jóhanna allt að 15 þingsæti ef nú væri kosið til þings og er það aðeins Fram- sóknarflokkurinn sem heldur sínum hlut miðað við hina flokk- ana. Allt fast í deilu sjúkraliða og ríkisins Ekkert bendir til að verkfall sjúkraiiða leysist á næstunni. Samn- inganefnd ríkisins hefur ítrekað hafnað tilboðum sjúkraliða sem hafa krafist 5.500 kr. hækkunar sem nái upp allan launastigann. Frá flokksþinginu. Flokksþing framsóknarmanna: Halldór hlaut góða kosningu Halldór Ásgrímsson hlaut mjög góða kosningu í formannsstól Framsóknarflokksins á flokksþinginu um síbustu helgi. Halldór fékk 97% greiddra atkvæða. Aðrir í stjórn Framsóknarflokksins eru Guðmundur Bjarnason varaformabur, Drífa Sigfúsdóttir vararitari, Unnur Stefánsdóttir gjaldkeri og Ingibjörg Pálmadótt- ir ritari. Metsala á íslenskri tónlist Svo viröist sem metsala verði á íslenskri tónlist í ár. Seld hafa verið um 152.000 eintök á árinu og er reiknað meb aö heildar- sala verði yfir 280 þús eintök. Utanríkisráðherra í „landbúnaðarlottói" Utanríksráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, leggur til að hlut- kesti ráði við úthlutun 3% lágmarks innflutningskvóta land- búnaðarafurða á grundvelli GATT. Einkavæðing ríkisfyrirtækja umdeild Skýrsla Ríkisendurskoðunar gagnrýnir sölu ríkisfyrirtækja á liðnum árum. Tekjur eru minni en áætlað hafði verið og mark- mið með sölunni eru sögð óljós. Umdeilt holræsagjald Reykjavíkurlistinn hyggst innheimta sérstakt holræsagjald á næsta ári. Fasteignagjöld myndu hækka um 10-30 þús. vib álagningu gjaldsins. Norðmenn hafna aðild að ESB Norömenn höfnuðu abild að ESB í þjóbaratkvæðagreiðslu í vik- unni. Urslitin komu ýmsum á óvart og hefur Gro Harlem Brundtland beðið nokkurn hnekki af vegna úrslitanna en hún hafbi iagt mikla áherslu á að Norðmenn samþykktu aðild. Við- brögð flestra íslenskra forrábamanna eru að niðurstaðan verði íslendingum frekar til góðs en hitt. Loðnan bregst Lítil sem engin veiði hefur verið á loðnumiðunum í vetur. Út- gerðarmenn eru afar svekktir yfir ástandinu enda ríkti bjartsýni um veiðarnar. Þjóðarbókhlaðan vígð Þjóðarbókhlaðan var vígb í f^Tradag ab vibstöddu fjölmenni. Kostnaður við byggingu hússins var 2,5 milljarðar og bygging- artími 16 ár. Gjörbylting verbur á sviði bókavarðveislu með til- komu safnsins auk þess sem almenningur á nú greibari aðgang að sjálfsnámi. Reykjavíkurborg: Niðurskurður hjá gamla fólkinu Fyrir borgarráði liggur nú afgreiðsla Félagsmálaráös Reykjavíkur um ab segja upp samningum vib um það bil þrjátíu manns sem hafa annast hár- og fótsnyrtingu í þjónustumiöstöðvum aldr- aðra. Það er að frumkvæbi Samkeppnisstofnunar sem þessi nið- urgreidda þjónusta fyrir aldraða borgarbúa verður lögb niður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.