Tíminn - 03.12.1994, Side 12

Tíminn - 03.12.1994, Side 12
12 í 'U Laugardagur 3. desember 1994 i Ural í torfærum Þeir eru engin smásmíbi Ural trukkarnir sem rússneski her- inn skildi eftir í Austur-Þýska- landi þegar hann flutti endal- ega herliö sitt frá landinu í sumar. Vagnarnir vega á tí- unda tonn og eru knúnir áfram af V-8 200 hestafla dísel- vélum. Trukkurinn sem sést á mynd- unum hér er í eigu Ægis, björg- unarsveitar SVFI í Garðinum. Hann var keyptur á 750 þúsund í Austur-Þýskalandi. Eimskip hjálpuðu til við að koma honum 5- IVIóri fer n kostum og frœndfólk hans er ekki nö skafa utan af því frekar en fyrri daginn. Bókaútgáfan Eldey lo S • Slmi: BS 30 BO %J Fe F=ox: 2 7514 í Bankabókinni fen lesandinn á bak við tjöldin í peningastofnunum landsins í fylgd með Nóra, sögu- manninum úr „Kolkrabbanum", og faer m.a. að gsegjast inn þar sem útvalin stórmenni á þreföldum róðherralaunum sitja í góðu yfirlaeti við að ákveða vexti, verðþeetur og þjónustugjöld handa þér að þorga. Vissir þú að útlénatöp síðustu þriggja éra jafngilda verðmaeti allrar byggðar í Breiðholti? Vissir þú að Seðlabankekóngurinn var sömuleiðis stjórnarformaður þess fyrirtsekis sem sló metið i taprekstri á íslandi 1 993 og skuldar meira en allur íslenski sjávarútvegurinn samanlagt? Sigfús Magnússort, fyrsti bílstjóri hjá Ægi lítur hér yfir farínn (ó)veg. til landsins og tóku 150 þúsund krónur fyrir flutninginn. Að sögn Arnars Jakobssonar, for- manns Ægis, er kostnaður við Uralinn ennþá undir einni millj- ón króna, sem verður að teljast vel sloppið. Þess má til gamans geta að hægt er að fá þá með bensínvélinni á 100 þúsund krónur í Þýskalandi. Þessir hertrukkar, sem heita eftir samnefndum fjallgarði í Rússlandi, eru gríðarlega sterkir en mesta þyndin liggur í hásing- um og undirvagni. Tvöföld hásing að aftan gerir sitt til þess að hjálpa trukknum áfram við erfiðar aðstéeður, en sá galli er á gjöf Njarðar að ekki er hægt að læsa drifunum. Ægismenn hafa undanfarið verið að kanna hvort hægt sé að bæta úr því, en með splittuðu drifi á öllum hjólum stæbi fátt fyrir Uralnum svo Nýr VW Polo fyrir framan Heklu í gœr. Tímamynd: Pjetur. Nýr og ódýr VW Polo frumsýndur Hekla hf. frumsýnir nýjan og gerbreyttan VW Polo um helg- ina. Búist er vib líflegri sölu á þessum bíl vegna þess hversu verbið er hagstætt. Nýi Poloinn er endurhannaður frá grunni og eftir stuttan reynsluakstur Tímamanna er ekki hægt að fella annan dóm en aö þar hafi tekist mjög vel til. Inn- anrýmib er stóraukið, sér í lagi rými afturí, en þar voru hnökrar á í eldri bílnum. Rými er einnig gott fyrir farþega og ökumann frammí og í heildina tekið er bíll- inn ekki minni að innan en margir aðirir sem eru stærri að utan. Hjólhafið hefur verið aukið um 71 mm, sem skilar sér í betri plássnýtingu og skemmtilegri aksturseiginleikum. Hreyfingum bílsins svipar um margt til VW Golf II, enda virðist allt „kram", þar með talinn fjaðrabúnaöur og stýrisbúnaður, fengið ab láni þaðan. Fjöðrunin samanstendur af hástæbum MC Person gormat- urnum að framan og hástæðum gormum með snerilás að aftan. Stýrið er tannstangarstýri en ólíkt Golfinum er bíllinn alls ekki þungur í stýri. Þeir bílar sem hingaö koma verða til aö byrja með einungis boönir með 1000 rúmsentímetra 45 ha. bensínvél. Þessi vél á ættir sínar að rekja til tæknideildar Audi í Ingolstadt, en formóðir hennar var fyrst reynd í smábíl frá Audi fyrir mörgum árum. Polo er rúmlega 930 kg og það segir sig sjálft að þrátt fyrir lækk- uð drifhlutföll má mótorinn ekki minni vera. í stuttum akstri með einn far- þega kom bíllinn þó furbuvel út og a.m.k. innanbæjar virtist kraftleysið ekki há honum veru- lega. Þessi bíll verður vonandi tekinn betur fyrir hjá Tímanum á næstunni, en eftir áramót verður Polo fáanlegur með 1300 og 1600 rúmsentímetra vél. Þess má geta að bíllinn með stærstu vélinni hlaut gullna stýrið í flokki smá- bíla hjá Bild í Þýskalandi fyrir stuttu. Verbib er verulega hag- stætt eða tæplega 900 þúsund krónur fyrir þriggja dyra bílinn og þess vegna ekki ólíklegt að Polo veröi vinsæll sem bæjarsn- attari og virðisaukabíll. Það þykir að minnsta kosti ekki mikiö að borga innan við 1000 krónur fyr- ir kílóið af nýjum bíl í dag. ■ Landbúnaður skapar allt að 15.000 manns á íslandi atvinnu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.