Tíminn - 06.01.1995, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.01.1995, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 6. janúar 1995 Tíminn spyr... Telurbu raunhæft ab búib verbi ab semja fyrir 17. febrúar n.k.? Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslu- stöbvarinnar: „Já, ég tel það. Ég held aö þaö sé vilji hjá báöum aöilum til aö klára samninga og mjög mikilvægt fyrir þjóöfélagiö aö menn gangi frá þessu sem allra fyrst. Enda vita báö- ir nokkurn veginn hvert svigrúmiö er. Ég ber langtum meira traust til verkalýöshreyfingarinnar heldur en svo aö menn séu með einhverj- ar óraunhæfar hugmyndir um kauphækkanir. Ég tel aö menn skilji alvöru málsins, enda um líf og dauða að tefla. Ef menn ná skynsömum samningum byggja menn mjög vel til framtíðar. Með óraunhæfum samningum er verið aö rústa það sem búiö er aö gera." Gubmundur Þ. Jónsson, formabur Ibju: „Ég tel það ekki útilokað ef menn ganga í málið af viti og taka á þeim verkefnum sem þarf aö leysa. Ég hef heldur ekki ástæöu til að ætla annað en aö t.d. atvinnurekendur séu tilbúnir til að fara í verkið og klára það. En svo veit maður ekkert hvernig gengur að ná þessum end- um saman, né heldur hvað ríkis- stjórnin er tilbúinn til að teygja sig langt til aö liðka fyrir því samning- ar geti tekist. Það er hinsvegar ljóst að það ber mikið í milli aðila. Það hefur gerst ábur og alltaf endað með samningum. En samningar detta ekki yfir okkur einn góðan veðurdag heldur þurfum við ab hafa fyrir |>ví ef menn eiga að ná saman." Magnús L. Sveinsson, formabur VR: „Ég er út af fyrir sig ekkert of bjart- sýnn á ab þab takist, því mibur. En ef það er hinsvegar alvöru vilji til þess að setjast nibur ab samninga- borðinu, en ekki aöeins orðin tóm, þá er tími til þess. Við hjá VR leggj- um áherslu á og teljum brýnt að samningum verði hraðað." Stefán Guömundsson, alþingismaöur á Sauöárkróki, segist leika prófkjörsbaráttuna á nótum heiöarlegra íþróttamanna. Stefán í gaer: Þingsætib færi ég ekki í heimilisbókhaldib mitt.. „Það var mikill þrýstingur á mig og fjöldi manns úr öllu kjördæminu sem kom að máli viö mig og óskabi eftir ab ég sæktist eftir fyrsta sætinu og leiöa þar með listann í kjör- dæminu. Þab er ekkert laun- ungarmál ab sjálfur hef ég vilja til þess ab leiba listann í komandi kosningum. Ég tel listann ab mörgu leyti sterkari ef vib höfum hlutverkaskipti vib Páll. Ég er búinn ab vera langan tíma í öbru sætinu og ekki dregib viö mig í vinnu," sagbi Stefán Gubmundsson al- þingismabur sem setib hefur á þingi frá 1979, en keppinaut- ur hans Páll Pétursson frá 1974. Vib náðum fyrst í Stefán í bílasíma þar sem hann var aö koma akandi yfir í Skagafjörð um Vatnsskarð í miklu hvass- vibri, og stundu síðar heima hjá honum á Króknum. Hann hefur undanfarna daga heimsótt fólk í kjördæminu og farið víða. Stef- án segir að sér sé vel tekið hvar- vetna og hann finni ánægjuleg- an stuðning. En þab er hvasst víðar en í Vatnsskarði, til aö mynda í pól- itíkinni á Norðurlandi vestra þar sem þeir félagar Stefán og Páll á Höllustöðum munu kljást um sæti fyrirliðans meðal fram- sóknarmanna í kjördæminu. ingar. Þaö er eðli og tilgangur prófkjöra. Ekki hef ég neinar at- hugasemdir við það ab fólk hef- ur gefiö yfirlýsingar um að það sækist eftir öðru sæti á listan- um, sem ég hef setið í. Ég á ekki það sæti og ég hef aldrei litið á þingsæti á þessum lista sem fast- eign sem ég hef umráðarétt yfir. Þingsætið færi ég ekki í heimil- isbókhaldið mitt," sagði Stefán. Barátta háð í anda íþróttanna Stefán Guömundsson sagði aö milli Páls Péturssonar á Höllustöðum og hans heföi aldrei verið neinn pólitískur ágreiningur. Þeir hefðu verib samstíga í Evrópumálum og mörgum málum öðrum. Milli þeirra væri enginn persónulegur ágreiningur af neinu tagi. „Hins vegar tel ég aö eins og staðan er í dag sé skynsamlegra ab þetta fari á þennan hátt, að ég fái styrk til aö fara í fyrsta sætið. Þaö skiptir verulegu máli hver skipar efsta sæti listans. Þab var kjördæmisþing flokks- ins sem ákvað að fram færi próf- kjör og við erum í pólitík og verðum aö skilja þab, og Páll Stefán Gubmundsson, alþingis- mabur frá Saubárkróki. Oskar eftir ab fá kjör í 1. sæti lista Framsókn- arflokksins í Norburlandi vestra. Tímamynd Pjetur ekki síður en ég. Við þurfum einfaldlega að ganga þennan veg. Ég er vanur því í íþróttum að fara í leikinn leikinn af drengskap og það mun ég gera í þessu prófkjöri líka," sagði Stef- án Guðmundsson. Hann sagðist ekki verða var við neinn æsing í kringum prófkjörið heima í hér- aði. Þetta væri mest í fjölmiðl- um fyrir sunnan, og á þá kynni hann ekki, enda aldrei verið mikið gefinn fyrir að flíka sinni persónu. Samsæriskenningar vinsælar En Stefáni hefur verib brugðið um ódrengskap eða allt að því. Tvær auglýsingar sem birtust í sjónvarpsdagskránni á Blöndu- ósi og í DV hafa verið mjög í umræðunni. Stefán sagðist ekki hafa kom- ib nálægt þessu máli, menn yröu að spyrja útgefendur blað- anna, sem eflaust hefðu fengið einhverja þúsundkalla fyrir birt- inguna og vissu nöfn „söku- dólganna". „Þessu hef ég auðvitað ekki komið nálægt og finnst umræb- an meiri en góðu hófi gegnir. Menn vilja sumir velta því þannig upp ab ég hafi komiö nálægt eða viti hver auglýsing- arnar hafi gert, en svo er nú ekki. Samsæriskenningar eru vinsælar, en eiga ekki við hér, þetta er nú pólitík og þar getur nú allt gerst," sagði Stefán að lokum. Þuríöur Bernódusdóttir varaþingmaöur segir þaö furöulegt aö ekki megi birta skrá um þá sem veiöa umfram kvóta. Ríkislögmaöur: Enginn réttborinn eigandi þingsætis „Varðandi prófkjörið sem framundan er, þá finnst mér að menn verði að fara að átta sig á því að enginn er réttborinn eig- andi einhvers sætis á lista. Menn em jafnvel að tala um að verið sé að sækja að „þeirra sæti". Ég kann ekki við svoleiðis ummæli. Ef svo væri, þá eru þeir beinlínis að segja að það þurfi ekki að fara í prófkjör. Prófkjör- in eru reyndar til þess haldin ab gefa fólki kost á að gera breyt- Almenningi kemur ekki við hverjir veiba umfram kvóta „Þab kemur manni aubvitab á óvart ab fá ekki þessar upplýs- ingar og er í rauninni alveg furbulegt. Hinsvegartelursjáv- arútvegsrábuneytib þab mjög jákvætt ab þessar upplýsingar séu gefnar, því þær gætu haft mikil varnabaráhrif. Ég er því mjög undrandi á ríkislög- manni og er í rauninni ekki búinn ab átta mig á hans rök- um," segir Þuríbur Bernódus- dóttir, varaþingmabur Fram- sóknarflokksins í Suburlands- kjördæmi. Þuríður óskaði nýverið eftir því á þingi að fá upplýsingar um hvað skip hefðu veitt umfram kvóta og hverjar sektir þeirra hefbu verið frá árinu 1991. Samskonar fyrirspurn kom fram á þingi 1985 en þá synjaði ráðu- neytið birtingu umræddra upp- lýsinga. í svari sjávarútvegsráð- herra kom m.a. fram að ráðu- neytinu væri óheimilt að gefa viðkomandi upplýsingar þrátt fyrir vilja þar um. Astæðan er álit ríkislögmanns sem telur að laga- heimild skorti til að birta um- beðnar upplýsingar. Embætti ríkislögmanns telur það^ aðal- reglu aö ekki séu birtar upplýs- ingar um hagi einstaklinga nema fyrir því sé ótvíræb laga- heimild, eða ebli málsins leiði til þess. Að mati ríkislögmanns verður ekki séb að beinir al- mannahagsmunir krefjist þess ab vikið verði frá þessari reglu þegar í hlut eiga þeir sem veiða meira en þeim er heimilt úr sam- eiginlegri aublind þjóðarinnar. Þuríður segir ab þótt hún hafi ekki farið alveg ofan í saumana á áliti ríkislögmanns þá sé engu að síður erfitt að átta sig á því af hverju ekki megi upplýsa al- menning um þau auðgunarbrot sem eiga sér stað þegar veitt er umfram úthlutaðan kvóta. Sér- staklega þegar haft er í huga að samkvæmt lögum er fiskurinn í sjónum sameign þjóðarinnar. Hún segir málinu sé ekki lokið af sinni hálfu, fái hún tækifæri til þess að fara aftur inn á þing. Þá sé vibbúib að hún beri fram abra fyrirspurn í framhaldi af þeirri fyrri. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.