Tíminn - 06.01.1995, Qupperneq 9
Föstudagur 6. janúar 1995
ð&witin
9
UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Rússar hœtta loftárásum á Crosní en haröir bardagar á jöröu niöri:
Vestrænir leiötogar
aövara Jeltsin
Moskvu — reuter
Boris Jeltsin Rússlandsforseti
hefur fyrirskipað hersveitum
sínum aö haetta loftárásum á
höfuðborg Téténíu, Grosní. For-
setinn hefur sætt mikilli gagn-
rýni bæöi heima fyrir og á Vest-
urlöndum fyrir aðgeröir sínar.
Þessi ákvöröun er leiðtogum
vestrænna ríkja fagnaöarefni en
Frakkar og fleiri Evrópuþjóöir
hafa minnt Rússa á aö átökin í
Téténíu stangist á viö fjölþjóða-
samkomulag ríkja á öryggisráö-
stefnunni í Búdapest. Jeltsin
hefur veriö harölega gagnrýnd-
ur og sagði varnarmálaráöherra
Þýskalands, Volker Ruehe, aö
fjárhagsaðstoð Rússa væri í húfi
ef ekki yröi lát á blóðbaðinu.
Enn er hart barist á jöröu
niöri og standa helstu átökin
um járnbrautarstöö í Grosní.
Taliö er aö Rússar sækji heldur
fram sem stendur.
Jeltsin hefur ekki tekist ætl-
unarverk sitt, aö hertaka borg-
ina á skömmum tíma og koll-
varpa Ieiötoga byltingaraflanna
í Téténíu, Dudayev. Dugleysi
rússneska hersins frá því aö
átökin hófust um Grosní fyrir
þremur vikum hefur komiö á
óvart og velta sérfræöingar fyrir
sér skýringum þess.
Vestrænn hernaöarsérfræð-
ingur segir aö herinn hljóti aö
glíma viö stórkostlegt aga-
vandamál og áhugaleysi ríki
milli hermanna. Fulltrúi Jelts-
ins, Vyacheslav Kostikjov, vísar
þessu á bug og segir svona tal
ábyrgöarlaust en vatn á myllu
samsærisafla í landinu. Hann
segir aö rússneski herinn sé einn
sá sterkasti í heiminum og ef
vilji hefði verið fyrir aö taka
Grosní meö leiftursókn hefði
þaö verið auövelt mál en kostn-
aðarsamt. ■
Smygl fyrir 37
milljarba
Beijing - reuter
Fyrstu ellefu mánuöi ársins
1994 leystu kínversk yfirvöld
upp 21.700 smyglklíkur og
komu höndum yfir smyglvarn-
ing sem metinn er á tæplega 37
milljaröa ísl. króna. Frá þessu
hefur Xhinhúa, hin opinbera
fréttastofa Kina, skýrt.
Eiturlyfjaverslun hefur mjög
færst í aukana í Kína aö undan-
förnu. Þannig hafa t.d. 4 tonn af
heróíni veriö gerö upptæk í
landinu á þessu ári, en þar var
alls um aö ræöa um 20 þúsund
mál.
Wang Leyi heitir yfirmaöur
tollþjónustunnar í Kína. Hann
segir aö enda þótt verulegur ár-
angur hafi náöst í baráttu gegn
smygli á árinu, sé þó langur veg-
ur frá því aö árangurinn sé viö-
unandi, enda sé smygl einhver
alvarlegasti dragbíturinn í kín-
versku efnahagslífi um þessar
mundir. Smygl og eiturlyfja-
neysla þekktust varla eftir að
kommúnistar komust til valda í
landinu 1949, en hefur aukist
mjög síöan stjórnin í Beijing
hóf þá efnahagslegu viðreisn
sem nú stendur yfir. ■
Tímamót hjá
repúblikönum
I gær tóku repúblikanar viö
langþráöri stjórn í báöum deild-
um Bandaríkjaþings, í fyrsta
sinn í 40 ár. Leiðtogar flokksins
lögöu fram 100 daga áætlun
sem þeir segja að muni valda
umfangsmiklum breytingum til
batnaðar í bandarísku þjóöfé-
lagi.
Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, segist viss um að hon-
um takist aö vinna repúblikana
á sitt band í ýmsum málaflokk-
um og hyggst halda sömu
stjórnarstefnu áfram. Repúblik-
anar vilja fyrst og fremst lækka
skatta og minnka ítök ríkis-
valdsins. ■
Ódrepandi ást
Newcastle — reuter
Bresk kona, var nýlega ákærð fyr-
ir morðtilraun eftir aö hún ók eig-
inmann sinn niður eftir rifrildi.
Hún hefur nú verib leyst úr haldi
án frekari eftirmála og ástæðan er
ódrepandi ást fórnarlambsins,
mannsins hennar. Hann segist
einfaldlega ekki geta lifað án
hennar.
Fred Brennan, er heppinn aö
hafa sloppið lifandi eftir árás
konu sinnar en hann er margfót-
brotinn og höfubkúpubrotinn
eftir atvikiö. Breskur dómstóll í
Newcastle komst aö þeirri niöur-
stööu að Nittaya Brennan, eigin-
kona Freds, yrði frjáls ferða sinna
á skilorði eftir aö eiginmaöurinn
haföi þrýst á yfirvöld. „Hún er
mjög fylgin sér í ákveönum mál-
um en viö vorum og munum
veröa hamingjusöm saman," seg-
ir Fred hinn ástfangni, sem virðist
haldinn ódrepandi ást.
Prinsessa í
snjóskafli
Eugene prinsessa,
frœnka Karls Bretaprins og Díönu,
lætur sér fátt um finnast í sviss-
neska alpabœnum Klosters þrátt
fyrir oð frœndfólk hennar sé enn
einu sinni í sviösljósinu. Nú síbast
eftir ab Ijósmynd birtist í gœr á for-
síbu Daily Mirror, af Karli og barn-
fóstrunni Tiggy Legge-Bourke í kel-
fc eríi. Vangaveltur eru nú uppi um
5 hvort Karl sé ástfanginn á ný.
Bifreiöar 21. aldarirwar útbúnar símsendi og sjónvarpi og geta
keyrt sjálfar:
Byltingarkenndar nýj-
ungar í bílaiðnaði
Detroit — reuter
Bifreiðaframleiðendur eru nú
aö kynna þær nýjungar sem
veröa _í bílaiðnaði á 21. öldinni
sem ó6um nálgast. Á meðal nýj-
unga sem bílnotendur geta
vænst eru bílar sem keyra án
ökumanns, bílar útbúnir sjón-
varps- og faxtækjum, bein-
tengdir viö veöurstofu o.s.frv.
Nú stendur yfir sýningin
„North American Auto Show" í
Detroit og gefur þar ýmislegt
nýstárlegt aö líta. Aöstoöarfor-
stjóri Chrysler verksmiöjunnar,
Thomas Gale, segir þó að nýjar
hugmyndir á sýningum beri æt-
íö að taka me8 fyrirvara, mörg
atriði séu einfaldlega sett fram
til aö sýna hvaö sé mögulegt í
bílaiönaðinum en markaöurinn
sjái um framhaldiö.
Buick XP2000 hefur vakið
einna mesta athygli á sýning-
unni. Þar er meðal annars hægt
aö gefa munnlegar skipanir um
hitastig og styrk tónlistar og auk
þess er í honum sjálfstýring sem
gerir bílstjóranum kleift að
horfa á bíómynd eöa spjalla án
truflunar við sessunaut á meðan
á ferðinni stendur. „Galdurinn
er aö koma meö nýjungar sem
bæöi höfða til áhuga kaupenda
og pyngjunnar," segir Thomas
Gale. ■
Halldóra Björnsdóttir leikkona:
...ég fylgist
eð Tímanum..
rnmmm
hin hliðin á málunum
Sími 63 16 00