Tíminn - 06.01.1995, Page 13
Föstudagur 6. janúar 1995
fKwiot
13
Oléttur og
ófyndinn
Junior ★
Handrit: Kevin Wade og Chris Conrad.
Leikstjóri: Ivan Reitman.
Abalhlutverk: Arnold Schwarzenegger,
Danny De Vito, Emma Thompson og
Frank Langella.
Háskólabíó og Sagabíó.
Öllum leyfb.
Það er einföld hugmynd sem
liggur aö baki Juniors og hún er
síðan útfærð á mismunandi
hátt út alla myndina. í stuttu
máli er sami brandarinn sagður
aftur og aftur.
Söguþráðurinn er á þá leið að
Arnold Schwarzenegger er gerð-
ur óléttur af Danny De Vito
meö nýstárlegri glasafrjóvgun.
Þegar því er lokið taka hefð-
bundin „kvennaveikindi" að
herja á vöövabúntið meö til-
heyrandi uppköstum og vanlíð-
an. Ástir takast síðan með
Emmu Thompson og þeim ó-
létta, sem leiðir til verulegra
vandræða. Að lokum er það svo
vondi kallinn, sem Frank Lang-
ella leikur, en hann vill eignast
hlutdeild í þessari miklu vís-
indalegu framþróun.
Það er ástæöulaust að fara
nánar út í söguþráðinn, því
hann er í raun ekki mikið flókn-
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
ari en þetta. Óléttubrandarinn
verður mjög fljótlega þreyttur,
þannig að það er sárafátt sem
hlægir áhorfandann stóran
hluta myndarinnar. Það verður
að teljast verulegt lýti, því Juni-
or á að vera gamanmynd.
Það versta við myndina er þó
án efa að Arnold
Schwarzenegger er alveg stjarn-
fræðilega lélegur gamanleikari
og ætti í framtíðinni að halda
sig við hasarmyndirnar. Danny
De Vito er einnig slappur og
Emma Thompson hefur alltof
mikla hæfileika til að eyða tím-
anum í svona leiðindi. Það er
helst að Frank Langella sé ágæt-
ur í litlu og nauðaómerkilegu
hlutverki.
Ivan Reitman, sem á að baki
ágætis gamanmyndir á borð við
Ghostbusters, er hér alveg úti að
aka, en nær sér vonandi aftur á
strik. ■
M f«AMSÓKNARFlOKKURINN
I. FUF-AN
Almennur félagsfundur í Félagi ungra framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni
(FUF-AN) verbur haldinn á flokksskrifstofunni ab Hafnarstræti 90 næstkomandi
föstudagskvöld 6. janúar kl. 21.00.
Gestir fundarins ver&a: Gu&mundur Bjarnason, varaforma&ur Framsóknarflokksins.
Framkvæmdastjórn SUF.
Almennur fagna&ur ab fundi loknum.
Allir velkomnir. Stjórnin
II. Stofnfundur FUF-Þing-
eyjarsýslum
ver&ur haldinn í Gar&ari vi& Garbarsbraut á Húsavík, laugardaginn 7. janúar
næstkomandi kl. 14.00.
Á fundinn mæta m.á. Gu&mundur Bjarnason, varaformabur Framsóknarflokksins,
og Framkvæmdastjórn SUF.
Fjölmennum. Undirbúningsnefnd
III. FUF-Dalvík og nágrenni
verbur haldinn sunnudaginn 8. janúar næstkomandi kl. 14.00 í Sæluhúsinu á
Dalvík.
Á fundinn mæta m.a. Gu&mundur Bjarnason, varaforma&ur Framsóknarflokksins,
og Framkvæmdastjórn SUF.
Fjölmennum. Undirbúningsnefnd
Starfsmenntastyrkir fé-
lagsmálará&uneytisins
Félagsmálaráðuneyti& auglýsir hér me& eftir umsóknum
um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög
nr. 19/1992.
Styrkir eru veittir til a&ila, sem standa fyrir starfsmenntun
í atvinnulífinu. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna
viðfangsefna á árinu 1995.
Umsóknir berist Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og skal
þeim skilað þangað eigi síðar en 15. febrúar 1995.
Félagsmálará&uneytið,
2. janúar 1995.
FAXNÚMERIÐ
ER 16270
Einn á
báti
Richard Gere er einn á báti í
orðsins fyllstu merkingu á
myndinni. Eftir skilnaðinn
við Cindy Crawford hefur
hann víða leitaö fanga og all-
oft tjaldað til einnar nætur, en
að sögn vina hans er hann þó
niðurdreginn og einmana,
eins og myndin gefur sterk-
lega til kynna. ■
Luisa neitar ab hlusta á vangaveltur eiginmannsins um skilnab og
vonar ab hann snúi aftur heim.
í SPEGLI
TÍMANS
Stórleikarinn Roger Moore:
Skipti konunni
út fyrir bestu
vinkonu hennar
Konan sem stolib hefur hjarta
Rogers Moore: Christina Tholstr-
up.
ir á að foreldrar sínir hafi áð-
ur skilið að skiptum tíma-
bundið, en ávallt tekið sam-
an aftur og það verði sama
sagan nú.
Roger sjálfur hefur ekkert
haft um málið að segja, en
nýtur e.t.v. þeirrar athygli
sem líf hans hefur fengið á
ný eftir margra ára kyrrstööu.
Dagar hans sem Ieikara eru
nánast taldir, en hann var
fyrrum í hópi vinsælustu og
kynþokkafyllstu leikara
heimsins. ■
James Bond-stjarnan Roger
Moore hefur sagt skilið við
eiginkonu sína til 26 ára í
skiptum fyrir bestu vinkonu
hennar. Þykir lítill sjarmi yfir
framkomu hins virðulega
leikara, sem öðrum betur er
talinn hafa túlkað ofurnjósn-
arann vinsæla, James Bond.
Hin ítalska Luisa Moore,
sem hefur staðið manni sín-
um við hlið í 26 ár, situr ör-
vingluð eftir með sárt ennið,
en hótar að gera það sem í
hennar valdi stendur til að
koma í veg fyrir aö Roger fái
skilnað. „Okkar hjónabandi
er ekki lokið. Hann þarf bara
að fá smá tíma til að gamna
sér, síðan mun hann snúa
aftur til mín," segir Luisa og
viröist reiðubúin að fyrirgefa
manninum sínum allt.
Luisa er 56 ára gömul, en
Moore 67 ára. Þykir mörgum
sem hann sé oröinn alltof
gamall til að standa í svona
stússi, en ástin spyr jú ekki
um kennitölur, eins og mað-
urinn sagði.
Hin heppna heitir Christ-
ina Tholstrup og er ekkja
dansks milljónamærings og
fyrrum besta vinkona Luisu.
Þarf ekki að fara orðum um
þeirra vinskap nú. Christina
er 56 ára gömul og eru ástar-
kynni þeirra talin hafa hafist
í maí síðastliðnum. Nú er Ro-
ger nánast fluttur að heiman,
en Luisa ber höföinu við
steininn og neitar að viður-
kenna staðreyndir, aö sögn
kunnugra.
Sonur Luisu og Rogers, Ge-
offrey, 28 ára, er þó á sömu
skoðun og móðir hans og
segir að hann trúi því ekki að
pabbi hans ætli að eyðileggja
líf sitt og móður sinnar fyrir
„gráa fiðringinn" eins og
hann kallar það. Hann bend-
Roger og Luisa auk sonarins
Christians fyrir IS árum, þegar
allt lék ílyndi.