Tíminn - 17.01.1995, Síða 2
2
MT .. T .. ..
wmmu
Þri&judagur 17. janúar 1995
Súðavík viö Álftafjörb
Össur Skarphéöinsson
umhverfisrábherra:
Hús rýmd
innar í
Súbavík
abfaranótt
mánudags
„Þab féll snjóflóö í svoköll-
uðu Trabargili, sem er innar í
firöinum, þann 18. desember
sl. Reyndar var skoðunarmað-
ur snjóflóðadeildarinnar á
staðnum í sambandi við Veð-
urstofuna alveg til klukkan 6
í morgun.
Þar voru rýmd hús í gær
(aðfaranótt mánudags) eftir því
sem ég best veit, innar í þorp-
inu," sagði Össur Skarphéðins-
son umhverfisráðherra ab af-
loknum skyndifundi ríkis-
stjórnar í gærmorgun.
Umhverfisráðherra sagði að
allt yrðí gert til aö hjálpa fólki
til að byggja upp í Súðavík. Öss-
ur sagði að snjóflóðið, sem féll í
gærmorgun, hefði fallið á
yngsta og nýjasta íbúðarsvæöið
í þorpinu, en þar er m.a. leik-
skólinn í Súðavík. Hann segir
að áður hafi snjóflóð fallið að
minnsta kosti báðum megin
viö þab svæði sem þaö féll á í
gærmorgun.
„Þessi hús sleikja alveg mörk-
in á hættusvæðinu," sagði um-
hverfisráðherra, sem kom með
á ríkisstjórnarfundinn upplýs-
ingar um snjóflóð sem fallið
hafa þar vestra á öldinni, auk
mynda og korta af Súðavík, rík-
isstjórninni til glöggvunar. ■
Kauptúnið Súöavík í Súbavík-
urhreppi við vestanverban
Álftafjörð, í um 20 km fjar-
lægð frá ísafirði, byggðist á
landi gamals góðbýlis og út-
vegsjarbar, Súðavíkur, og að
nokkru leyti í landi Trabar. í
Súðavík hefur verið starfrækt
öflug togaraútgerö um margra
ára skeib, þaðan er Bessi ÍS,
eign Frosta-Álftfirbings hf. Þar
er og öflug sjósókn minni
báta.
227 manns bjuggu í Súðavík-
urhreppi þann 1. desember síð-
astliðinn, langflestir í kauptún-
inu, en örfáir á bæjum innar vib
Álftafjörð. Mikil fólksfækkun
hefur átt sér stab á síbasta ára-
tug í Súöavíkurhreppi. Mann-
fjöldi í hreppnum 1. desember
1982 var þannig 440 íbúar og
árið 1988 voru þeir 258.
Fyrir ofan Súðavíkurkauptún
er Súðavíkurhlíð og endar hún
rétt ofan við þorpið. Sauratind-
ur gnæfir yfir byggbinni. í fjall-
inu er Traðargil, en þaban mun
snjóflóðið hafa runnið. Úr því
gili kom flóðib þann 19. desem-
ber síðastliðinn, en það féll
nokkuö fyrir innan byggðina.
Þá bjargabist aldrabur maður,
Karl Georg Gubmundsson á
Saurum. Austan vib þorpið er
Heiðnafjall og rís tindurinn
Kofri upp af því í rúmlega 600
metra hæð. ■
Á þessari loftmynd má sjá Súbavíkurkaupstab. Útlínur flóbsins, eins og talib er ab þœr séu, hafa verib
dregnar inn á myndina og eins og sjá má hefur flóbtungan náb langt inn í byggbina.
Ríkisstjórnin:
Allt gert
sem hægt er
„Það verbur ekkert til sparab
til að bregðast vib þessu og
okkur sýnist að skipulag al-
mannavarna gangi upp mið-
að viö allar aðstæður. Nú er
bara að vona ab þeim fjölgi
sem finnast á lífi," sagði Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra
ab afloknum ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun.
Ríkisstjórnin var köllub til
skyndifundar í gær vegna snjó-
flóðsins sem féll fyrr um morg-
uninn í Súbavík. Forsætisráð-
herra sagði að stjórnarandstað-
an hefbi haft samband við sig
þá um morguninn og rri.a. Hall-
dór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, vegna
náttúruhamfaranna þar vestra.
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra sagði ab almanna-
varnanefndirnar fyrir vestan og
Almannavarnaráð ríkisins
hefðu konlib saman til fundar
strax og fréttist af atburðinum í
Súðavík og allar björgunarað-
geröir væru undir öruggri stjórn
þeirra.
„Þab hefur þegar allt verið
gert sem hægt er til að koma til
aðstoöar, og allir í viðbragðs-
stöðu ef meira þarf að gera. Þab
verður allt gert sem í mannlegu
valdi stendur. En veðrið hefur
verið mjög erfitt," sagði dóms-
málaráðherra.
Hann sagbi að ekkert varbskip
hefði verið úti fyrir Vestfjörðum
þegar snjóflóöið féll. Hinsvegar
væri varðskip tilbúið að fara
strax ef nauðsyn krefur frá
Reykjavík. Rábherrann sagði að
björgunarsveitir einbeittu sér að
því aö bjarga mannslífum og
því erfitt að segja til um það
hversu mikið eignatjón hefði
orðið í snjóflóðinu. Þorsteinn
sagði að almannavarnir víðar á
Vestfjörðum væru í viðbragðs-
stöbu og sumstaöar hefbu hús
verið rýmd vegna hættu á snjó-
flóðum.
Davíb Oddsson og Eyjólfur Sveinsson, abstobarmabur hans, virba fyrir sér
loftmynd af Súbavík ásamt blabamanni Tímans ígcer. Tímamynd cs
Ragnar Þorbergsson frá Súbavík á fjögur uppkomin börn búsett þar vestra, sem öll sluppu frá
snjóflóöinu:
Sonur hans og bróðir ný-
fluttir úr húsum sem fóru
„Eg er einn af þeim lukkunnar
pampfílum ab ég á allt mitt á
heilu og höldnu," segir Ragnar
Þorbergsson, sem bjó í Súbavík í
áratugi áður en hann flutti suð-
ur. Hann á fjögur uppkomin
börn, sem öll eru búsett í Súba-
vík, og eina systur sem þar býr.
Ragnar segir að einn sona sinna
hefði flutt fyrir jólin úr húsi í
Túngötunni, sem varð fyrir snjó-
flóbinu, og á Nesveginn. Sömu-
leiðis heföi hús bróður síns vib
sömu götu orðib fyrir snjóflóð-
inu. Þab hefur hinsvegar stabið
autt frá því hann flutti úr því ekki
alls fyrir löngu.
„Ég man ekki og elstu menn
muna ekki svona nokkuð eba að
einhverjar sagnir séu til um þetta.
Það kom einu sinni smá skvetta
þarna niður, úr hlíðinni beint fyr-
ir ofan þorpið, og tók fjárhús sem
hafði verið byggt uppi á höfðan-
um þarna fyrir ofan og allt niður
undir fyrsta húsið, Túngötu 1, þar
sem það stoppaði. Þetta þóttu
stórtíðindi og mikil," segir Ragn-
ar.
Hann segir að þetta hafi gerst í
upphafi síðasta áratugar og í
framhaldi af því var tekin sú
ákvörðun ab leyfa ekki íbúðar-
byggð hærra upp eftir hlíðinni.
Ragnar segir að hann og fleiri
Súðvíkingar hefðu þá orbib hissa.
„Viö urðum bara undrandi að
menn skyldu leyfa sér að stoppa
byggð í Súðavík fyrir snjóflóða-
hættu. En við sjáum núna hvað
menn geta veriö glámskyggnir á
svona hluti," segir Ragnar. Aftur á
móti hafa áður komið snjóflóð úr
Traðargili, síðast í desember sl.
Hann segist ekki hafa skýringar
á því af hverju snjóflóöib féll á
þessum stab í gærmorgun. Ragnar
telur þó ekki ólíklegt að orsak-
anna sé að leita í því þegar saman
fer stórviðri úr norbvestri og mik-
il ofankoma á undirlag, sem hefur
verið að frjósa og þiðna til skiptis
og myndað þannig hálfgerðan
sleða fýrir snjófargið. ■