Tíminn - 17.01.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.01.1995, Blaðsíða 3
Þri&judagur 17. janúar 1995 3 Snjóflóöiö í Súöavík: Stór hluti byggðar snjó- flóði að bráð Snjófló&ib í Súðavík féll á stóran hluta byggðar í kaup- túninu, en það er um 200 metra breitt og féll kl. 06.25 í gærmorgun. Flóöið féll úr Súðavíkurhlíð norðan Traðar- gils, en þar féll snjóflóð í des- ember síðastliðnum. Strax var brugðið á það ráð að safna saman öllu fólki í Súðavík, rúmlega tvö hundruð manns, í hraðfrystihús Frosta, þar sem einnig var sett upp miðstöð aðgerða í kauptúninu. Alls urðu 13 íbúðarhús við Túngötu og Höfðabrekku undir flóðinu, auk þess sem 2-3 til viö- bótar löskuðust eitthvaö. Þá lenti stór hluti pósthússins, sem stendur ofan við Aðalgötu gegnt hraðfrystistöð Frosta hf., undir flóðinu. Talið er að 9-10 hús hafi hreinlega jafnast við jörðu og fóru húsin við Tún- götu verst út úr flóðinu. Leit var hafin strax og lýstu togari og bátar upp svæðið eftir mætti á meðan dimmt var. Veð- ur var mjög slæmt strax í gær- morgun, stíf norðvestanátt og blindbylur. Veður var snarvit- laust í allan gærdag. Vegna veð- urhamsins voru aðstæður allar til leitar mjög erfiðar, auk þess sem snjór var mikill ofan á rúst- um húsanna sem leitaö var í. Það var mikið álag á leitar- mönnum, sérstaklega þeim sem komu í gærmorgun frá ísafirði, því þeir höfðu ieitað alla nótt- ina að manni á ísafirði sem kom í leitirnar í nótt. Á þessari mynd má sjá hluta þeirra húsa, sem urbu undir snjófióbinu á Súbavík í gær. Húsaröbin efst á myndinni eru húsin sem stóbu vib Túngötu og urbu hvab verst úti í flóbinu. Hœgra megin má sjá húsakynni Frosta hf. þar sem sett var upp mibstöb björgunarabgerba og þangab sem íbúum byggbar- lagsins var safnab saman í kjölfar flóbsins. Tímamynd Pjetur Samkvæmt því, sem næst verður komist, lentu 26 manns í flóðinu, en svo virðist sem átta þeirra hafi komist af sjálfsdáð- um út úr því. Þegar var hafin leit að hinum átján og þegar Tíminn fór í prentun var ellefu enn leitað og fimm voru látnir. Síðast þegar fréttist, var fjöldi slasaðra kominn í sjö. Meðal þeirra, sem lentu í snjóflóðinu, var fjögurra manna fjölskylda sem bjó við Túngötu. Húsmóð- irin kom í leitirnar í gærmorg- un, og eiginmaður hennar fannst þegar líða tók á daginn í gær og var hann alvarlega slas- aður. Börnin tvö, stúlkur, voru hins vegar seint í gær enn á meðal þeirra sem saknað er. Strax um tíuleytið í gærmorg- un var Fagranesið komið til Súðavíkur með hóp fimmtíu manna, björgunarlið, þrjá lækna, hjúkrunarfólk, lögreglu- mann sem er lærður sjúkra- flutningamaður, og tvo leitar- hunda. Um kl. 15 í gær lagði Týr af stað, undir stjórn Hösk- uidar Skarphéðinssonar, með um 140 manns um borð, þar á meðal sextíu manna sveit björg- unarsveitarmanna, tíu menn frá Þessi mynd er tekin skömmu fyrir brottför varbskipsins Týs til Súbavíkur, en meb skipinu fór fjölmennt lib björg- unarsveitarmanna og hjálparfólks. Þeirra beib erfitt ferbalag og var búist vib því ab ferbin tœki allt ab 20 stund- um. Tímamynd CS slökkviliöinu í Reykjavík, tíu frá slysadeild Borgarspítalans og tíu frá Rauða krossinum, tveir prestar, hjúkrunarfólk og geð- læknir, auk ýmiss búnaðar til björgunarstarfa. Þrír snjóbílar voru settir um borð, auk snjór- uðningstækja. Gert er ráð fyrir að siglingin taki um tuttugu klukkustundir og áætlaður komutími til Súðavíkur var um kl. 11.00 í dag. Þá kom skuttogarinn Stefnir til Súðavíkur seinni part dags í gær, með sjálfboðaliða frá Isa- firði til björgunarstarfa, en menn frá Bolungarvík komust ekki, þar sem ekki var hægt að leggja að í Bolungarvík og kol- ófært var landleiðina. Klukkan 15.20 í gær kom Fagranesið til ísafjarðar frá Súðavík, með 90 íbúa frá Súða- vík og þar á meðal voru þeir sem slösuðust í snjóflóðinu, en alls voru fimm einstaklingar fluttir á sjúkrabörum. Ástand þeirra, sem slasaðir voru, var sam- kvæmt heimildum Tímans mjög misjafnt, en þeir sem þurftu aðhlynningu voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á ísa- firði. Eftir aö Fagranesið hafði verið rýmt hélt báturinn aftur til Súðavíkur, með 40 sjálfboöa- liða til björgunarstarfa innan- borðs auk búnaðar og vista. Stefnt var að því að flytja alla þá íbúa, sem vildu yfirgefa Súða- vík, til ísafjarðar. Það var viðar en á vettvangi á Súðavík, sem mikið starf var unnið. Almannavarnaráð kom strax saman í gærmorgun í stjórnstöð í kjallara lögreglu- stöðvarinnar við Hverfisgötu, auk þess sem almannavarna- nefndir á flestum stöðum á Vestfjörðum voru við störf. Ríkisstjórn íslands kom sam- an til fundar í gærmorgun til að vera til taks, ef taka þyrfti einhverjar meiriháttar ákvarð- anir vegna harmleiksins í Súða- vík. Rauði krossinn tók að sér að gefa upplýsingar til ættingja um íbúa á Súðavík, hvar þeir séu niðurkomnir og ástand þeirra. Bæði í Dómkirkjunni í Reykja- vík og í Landakirkju í Vest- mannaeyjum voru haldnar bænastundir kl. 18.00 í gær, þar sem beðið var fyrir fórnarlömb- um snjóflóðsins og aðstandend- um þeirra. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.