Tíminn - 17.01.1995, Qupperneq 7
Þri&judagur 17. janúar 1995
$£tN$9fl(
7
Páll Pétursson um niöurstöbuna í GATT-málinu á Alþingi:
Var besta lend-
ingin í stöðunni
Páll Pétursson er fulltrúi
Framsóknarflokksins í utan-
ríkismálanefnd og var einn af
höfundum tillögunnar um
samþykkt GATT-samningsins
þar sem það gerðist í fyrsta
sinn í stjórnarsamstarfi krata
og sjálfstæðismanna að
myndað var bandalag með
stjórnarandstöðunni um
þingmál.
Alþýbuflokknum og utan-
ríkisráðherra var ekki
hleypt nálægt lokavinnslu
málsins í utanríkismálanefnd. I
staðinn tóku sjálfstæðismenn,
framsóknarmenn og alþýðu-
bandalagsmenn höndum saman
og afgreiddu tillöguna í samein-
ingu út úr nefndinni. Blabamað-
ur Tímans heimsótti Pál og konu
hans, Sigrúnu Magnúsdóttur
borgarfulltrúa, á Höllustaði í A.-
Húnavatnssýslu á dögunum.
„Ég held að sú lending, sem
þarna fannst, hafi veriö sú besta
hugsanlega í stöðunni," segir
Páll. „Við erum aðilar að GATT-
samningnum og þab hefði veriö
nánast ómögulegt fyrir íslend-
inga að standa utan hans. Land-
búnaðarmálin voru hins vegar
tekin inn í GATT-umræðurnar á
seinni stigum og það gerir allt
málið örðugra og flóknara fyrir
okkur.
Með samþykkt GATP höfum
við undirgengist að flytja inn of-
urlítið magn af landbúnaðaraf-
urðum á mjög lágu verbi, og þab
er eftir að ganga frá því hvernig
þeim innflutningi verbur hátt-
að. Við verðum að opna fyrir
frekari innflutning, en vib höf-
um hins vegar tök á að verja inn-
lenda framleiðslu með tollum, ef
við viljum. Niðurstaða Alþingis
var sú að þab skyldi gert."
Hvað þýbir GATT
fyrir íslenskan
landbúnað?
„Þab er mikilvægt fyrir okkur
íslendinga að eiga greiö sam-
skipti við abrar þjóðir. Hins veg-
ar er ekki síður mikilvægt að
standa vörð um sjálfstæði okkar
og fullveldi. Einungis þannig
getum vib rekið hér áfram
mannlegt þjóðfélag og lifaö við
sæmileg kjör, að við höfum vald
á okkar málum sjálfir. Með sam-
þykkt GATT erum vib ekki að af-
sala okkur fullveldi, og innan
ramma þess samnings getum við
stjórnað okkar málum sjálfir.
Þessi viðskiptastofnun er allt
annars eblis en t.d. Evrópusam-
bandið. Fyrir Evrópusambands-
aðild verðum við að fórna yfir-
ráðum yfir auðlindum okkar og
sjálfsákvörðunarrétti í veiga-
miklum atriðum. GATT-samn-
ingurinn er í sjálfu sér mjög að-
gengilegur og góður kostur fyrir
Islendinga."
— Hvað felur þessi samþykkt Al-
þingis í raun og vem í sér fyrir
landbimaðinn?
„Meginatriðum hennar má
skipta í þrennt. í fyrsta lagi, að
þangað til ab íslenskum lögum
hefur verib breytt verður farið
eftir sama skipulagi og gilt hefur
um innflutning landbúnaðaraf-
urba. í öðru lagi verður farið eft-
ir GATT-tilboði íslendinga við
lagasetninguna. Þar meb eru
taldar tollabreytingar, sem gefa
okkur svigrúm til að vernda ís-
lenska framleiðslu í samkeppni
við innflutning. í þriðja lagi er
það grundvallaratriði í sam-
þykktinni, að landbúnaðarráb-
herra verbi tryggt forræbi um
allar efnislegar ákvarðanir sem
varöa landbúnað og innflutning
landbúnabarvara í stjórnkerfinu.
Þetta er það sem Alþýðuflokk-
urinn hehrr barist gegn. Þeir
fengu inn í búvörulögin setning-
ar um ab setja eftirlitsnefnd með
landbúnaðarráöherra hvað varð-
aði innflutningsmálin, þ.e.a.s.
samstarfsnefnd frá ráðuneytum.
Að GATT-ályktuninni sam-
þykktri í Alþingi bárum við þrír
þingmenn Framsóknarflokksins
— auk mín Guðni Ágústsson og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson —
fram frumvarp til breytinga á
búvörulögunum, þar sem lagt er
til að þessi yfirfrakki verði tek-
inn af landbúnaðarráðherra.
Þetta frumvarp hefur ekki verið
tekið fyrir ennþá, en ég vonast
eftir ab það verði samþykkt,
enda er þab í anda þess sam-
komulags sem náðist um
GATT."
Þarf róttækar
aögeröir í
landbúnaði
„Landbúnaðinum stafar engin
veruleg hætta af GATT á meðan í
stól landbúnaðarráðherra situr
mabur sem hefur bein í nefinu
og er velviljaður landbúnaði,"
segir Páll. „Ef ráðherra er á hinn
bóginn fjandsamlegur landbún-
aði, hefur hann vald til þess að
opna fyrir verulegan innflutn-
ing.
Menn verba ab viðurkenna að
ekki verður komist hjá því að
grípa til töluvert róttækra að-
gerba, ef ekki á illa ab fara. Sauð-
fjárrækt stendur mjög höllum
fæti og eina leiöin til þess að
bjarga henni er að hefja í veru-
legum mæli útflutning á dilka-
kjöti. Innanlandsmarkaðurinn
er of lítill til þess að sauðfjár-
ræktin hafi af honum nægar
tekjur. Ég hef barist fyrir því og
mun berjast áfram fyrir því að
hib opinbera greiði fyrir slíkum
útflutningi."
— Breytir GATT-satnkomulagið
einhverju varðandi útflutning á ís-
lenskum landbúnaðarafurðum?
„Það getur opnað okkur
möguleika til útflutnings. Við
eigum ákveðin sóknarfæri í út-
flutningi á landbúnabarafurðum
vegna þessa samstarfs. í þessu
sambandi ber ab líta á þá mögu-
leika, sem eru fyrir hendi í út-
flutningi á lífrænt ræktuðum af-
urðum, en þar eigum við veru--
lega möguleika úmfram aðrar
þjóbir vegna sérstöðu landsins
og ómengaðrar náttúru þess. Ég
hef áður lýst þeirri skoöun
minni, að ódýrasta leiðin til
stubnings landbúnaðinum sé
stuðningur við útflutninginn. í
samræmi við það flutti ég m.a.
breytingartillögu ásamt Jóni
Helgasyni við afgreiðslu fjárlaga
þessa árs, þar sem gert er ráð fyr-
ir ab hluta af jöfnunargjöldum,
sem lögð verba á samkvæmt
ákvæbum GATT, verði varib til
stuönings á sölu á landbúnaðar-
afurðum erlendis."
Nýtt banda-
lag í utanríkis-
málanefnd
— Það vakti nokkra athygli að
sjálfstœðismenn í utanríkismála-
nefnd með formanninn, Björn
Bjamason, í fararbroddi, gerðu
bandalag við stjómarandstöðuna
og héldu utanríkisráðherra og Al-
þýðufiokknum utan við GATT-
málið.
„Það, sem gerðist í þinginu
milli jóla og nýárs, var það að
málið var tekið úr höndum ut-
anríkisráðherra og utanríkis-
ráðuneytisins. Á þessu kjörtíma-
bili hefur utanríkisráðherra bar-
ist fyrir því að opna hér allt upp
á gátt fyrir innflutningi búvara,
og sú stefna hans hefur haft yfir-
höndina innan ríkisstjórnarinn-
ar. Hann hefur getað kúgað sam-
starfsflokkinn til að fallast á
málamiðlanir sem hann gat sætt
sig við. En það, sem gerðist
núna, var að Sjálfstæðisflokkur-
inn hristi af sér slenið og tók
höndum saman við okkur fram-
sóknarmenn og alþýðubanda-
lagsmenn í utanríkismálanefnd
um að ganga frá málinu með
ákveðnum hætti, sem Alþýðu-
flokkurinn gat illa sætt sig við.
Alþýðuflokkurinn stób frammi
Tryggingastofnun — bœtur til Islendinga búsettra erlend-
is sendar beint í erlenda banka:
Aldraöir sem flytja í
sólina fá nú ellilíf-
eyrinn sendan út
Islendingar, sem búsettir eru í
útlöndum, geta framvegis
fengib bætur, sem Trygginga-
stofnun greiðir þeim, sendar
beint inn á reikninga sína í er-
Iendum innlánsstofnunum.
Tryggingastofnun hefur samið
við Landsbankann um þessar
millifærslur nú frá ársbyrjun.
Að sögn Tryggingastofnunar
er þetta fyrsti samningurinn
sem stofnunin hefur gert um
millifærslur bótagreiðslna til út-
landa, en meö honum er upp-
fyllt ákvæði í EES-samningnum
um greiðslur tryggingabóta inn-
an Evrópska efnahagssvæðisins.
Allan kostnað vegna þessarar
þjónustu verða bótaþegar að
greiða. Þar er um að ræða
skeytakostnað vegna sím-
greiðslu og þóknun af seldum
gjaldeyri. Þeir, sem óska
eftir millifærslu trygginga-
bóta beint á erlenda reikninga,
verða að sækja um hana til
Tryggingastofnunar eða um-
boða hennar. ■
„ Viðskiptastofnunin GATT er alit annars eðlis en Evrópubandalagið," seg-
ir Páll m.a. Hér sést hann með Sigrúnu Magnúsdóttur, konu sinni, á
HÖllustÖðum. TímamyndÁG
fyrir því, hvort hann ætti að
stöðva málið eða kyngja þessari
auðmýkingu, og Jón Baldvin tók
þá stefnu að kyngja og láta þetta
yfir sig ganga, enda yrðum við
stofnaðilar að GATT."
jón Baldvin
verbur ekki lengi
formaöur enn
— Hvemig metur þú stöðu Jóns
Baldvins eftir þessa niðurlcegingu,
sem Ólafur Ragnar orðaði sem „de
facto" afsetningu hans sem utan-
ríkisráðherra?
„Jón Baldvin er ab mörgu leyti
mjög snjall stjórnmálaforingi.
Ég met hann mikils sem slíkan,
en hins vegar eru sumar skoðan-
ir hans mér mjög andstæbar.
Bæði afstaða hans til Evrópu-
sambandsins og til landbúnab-
armála, og reyndar í mörgum at-
riðum fleirum. Vökin hans hefur
þrengst ansi mikið upp á síðkast-
iö. Hann er búinn að missa Jó-
hönnu frá sér og hann er senni-
lega búinn ab missa frá sér veru-
legan hluta af flokknum. Ég á
ekki von á því að hann verði for-
ingi Alþýðuflokksins mjög lengi
úr þessu. Ég geri ráð fyrir því að
Sighvatur Björgvinsson taki við
Alþýðuflokknum áður en langt
um líður!"
— Jafnvel fyrir kosningar?
„Ég efast um þaö. Jón reynir
að halda forystunni fram yfir
kosningar, en eftir þab þætti mér
ekki ólíklegt að hann léti for-
mennskuna lausa."
Innbyröis áflog
— Það hefur mörgum þótt lítið
bera á stjómarandstöðunni á þingi
í vetur, sér í lagi í Ijósi þess að
framundan em kosningar.
„Þetta hefur verið mjög sér-
stætt þing ab því leyti til að það
hafa verið miklar deilur milli
stjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin
hefur ekki komið málum sínum
frá sér og bæöi undir niðri og á
yfirborðinu hefur ríkt sífelldur
ágreiningur. Stjórnarandstaðan
hefur ekki breytt sér jafn mikið í
vetur og mabur hefði e.t.v. talið
ástæðu til, vegna þess að hinir
hafa verið uppteknir við að
fljúgast á hvor við annan."
Athugasemd
Viðtal þetta við Pál Pétursson
hefur beðið birtingar um nokk-
urt skeið, vegna prófkjörsbaráttu
Páls í kjördæmi sínu í Norður-
landi vestra, en óeðlilegt þótti að
birta það á meðan baráttan stób
sem hæst. Var frestun á birtingu
viðtalsins ákveðin í góbu sam-
komulagi við Pál, sem raunar
tók málið upp að fyrrabragði.
Viðtalið hefur engu að síður
haldib fréttagildi sínu, þó niður-
staðan í Gattmálinu hafi legið
fyrir um skeið.
-Fréttastj.
Forstjóri Tryggingastofnunar, Karl Steinar Guðnason, og bankastjóri
Landsbankans, Sverrir Hermannsson, undirrituðu samninginn um milli-
fœrslur bótagreiðslna til útlanda.