Tíminn - 26.01.1995, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 26. janúar 1995
Tíminn
spyr...
Tekst aö koma einhverju
í verk á Alþingi á þeim
stutta tíma sem eftir er
til kosninga?
Finnur Ingólfsson, formaöur þingflokks Framsóknar-
flokksins, um störfþings fram aö kosningum:
Langt síðan ríkis-
stjórnin hætti störfum
„Það er langt síðan þessi ríkis-
stjórn hætti aö starfa og afskap-
lega fá mál liggja fyrir sem hún
ætlar sér að ná í gegn um þingið,"
segir Finnurvfngólfsson, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins.
„Menntamálaráðherra hefur
sagt, að ríkisstjórnin þurfi aö fá
frumvarp um grunnskólann sam-
þykkt, en mér sýnist það mál svo
illa undirbúiö að Alþingi geti ekki
gengiö frá því. Þar eru margir end-
ar lausir í því sem snýr að flutn-
ingi frá ríkinu til sveitarfélaganna.
Þar má nefna einstaka þætti er
lúta að framkvæmdinni, t.d. varð-
andi fræðsluskrifstofurnar, rétt-
indamál kennara og þannig
mætti lengi telja. Önnur mál veit
maður ekki um, sem áhugi er fyr-
ir af hálfu stjórnarflokkanna að
fáist afgreidd. Ég býst við að störf
þingsins muni aö einhverju leyti
einkennast af því ástandi, sem er
að verða á vinnumarkaðinum.
Mörg verkalýðsfélög eru aö undir-
búa aðgerðir til aö þrýsta á um að
gengið verði frá samningum.
Kennarar eru í atkvæðagreiðslu
um verkallsboðun. Verði hún
samþykkt kemur hún til fram-
kvæmda um miðjan febrúar. Rík-
isstjórin gerir hins vegar lítið til
að undirbúa samninga en situr
meö hendur í skauti og segir þetta
ekki sitt mál. Staðreyndin er hins
vegar sú að ríkisvaldið er einn
stærsti aðilinn á launamarkaöi og
ber því mikla ábyrgð og á að hafa
frumkvæði í að leita heildarlausn-
ar á kjarasamningum."
Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kvennalista:
/ •
//Ottast aö lítið
veröi gert á þingi"
„Eg óttast að það veröi ekki mikið
gert þessar vikur sem þingið starf-
ar fram að kosningum," segir
Anna Ólafsdóttir Björnsson. „Það
er mjög slæmt vegna þess að núna
eins og oft áður liggja mörg mikil-
væg mál fyrir þinginu. Ekki síöur
þingmannamál heldur en stjóm-
armál. Mér sýnist að samkomu-
lagið meðal stjórnarflokanna sé
slíkt að þeir geti ekki sameinast í
mörgum málum.
Það ríkir mikil pólitísk deigla í
þjóðfélaginu í dag og ég geri ráð
fyrir því að þaö fari meiri tími í að
ræða málin hedur en að fram-
kvæma þau." Anna segist búast
viö að fyrirsjáanleg átök veröi á
vinnumarkaöi og yfirvofandi
verkföll taki talsvert af tíma
þingsins fram á vorið. „Það reynd-
ar tel ég af hinu góða," segir hún.
„Launastefna ríkisins er fáránleg
og ástæða til þess að endurskoða
hana í heild sinni.
Ég geri ráð fyrir þvi, aö vegna
þess að skammt er í kosningar
reyni ríkisstjórnin aö taka afstöðu
í kjaramálum. Hvoru megin það
lendir get ég ekki sagt til um. Þaö
gæti alveg eins orðiö til þess að
torvelda samninga."
Ragnar Arnalds, formaöur þingflokks
Alþýöubandalagsins:
„Fjölmörg mál stjórn-
arandstæöinga bíöa"
„Eg veit ekki nákvæmlega hvaða
mál stjómarliöar ætla sér að fá af-
greidd og þar af leiðandi er mjög
erfitt að átta sig á því hve miklu
verður komiö í gegn fram að
kosningum.
Auðvitað eru fjölmörg mál
órædd. Ég nefni sem dæmi
skýrslu um framkvæmd búvöru-
samnings sem ég óskaði eftir og
landbúnaðarráðherra verður
reiöubúinn að svara á næstu dög-
um. Það verður væntanlega heil-
mikil umræða. Síöan verður
væntanléga talsverð umræða um
mannréttindaákvæði stjórnar-
skrárinnar og hugsanlegt er að
kjördæmamálið komi inn í þingið
í einhverri mynd. Fjöldinn allur
af málum stjórnarandstæðinga
sem ýtt var til hliðar í jólaösinni
bíður umræöu og ég reikna með
að reynt verði að skapa svigrúm
til að taka þau á dagskrá þó þau
verði náttúrlega ekki öll af-
greidd."
Utför systkinanna þriggja sem létust í snjóflóbinu í Súbavík þann 16. janúar síbastlibin fór fram í Dómkirkj-
unni í Reykjavík ígcer. Á mebfylgjandi mynd má sjá hvar verib er ab bera kistur systkinanna út úr kirkjunni.
Ttmamynd CS
Tillögur SH um atvinnumál á Noröurlandi:
Samhæfö söfn-
un ígulkera
Frá Þór&i Ingimarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Akureyri.
Uppi eru hugmyndir um sam-
hæföa söfnun ígulkera af Norð-
urlandi til Svalbarbseyrar eða
Akureyrar þar sem forvinnsla
þeirra fari fram en fullvinnsla
verði síöan hjá íslenskum ígul-
kerum í Njarbvík. Þetta kemur
mebal annars fram í kynningar-
skýrslu Sölumiðstöbvar hrab-
frystihúsanna til bæjarstjórnar
Akureyrar í tengslum vib tilbob
sölumibstöbvarinnar um at-
vinnuuppbyggingu á Akureyri.
Einkum er rætt um ab safna
ígulkerum af Húnaflóa- og
Skagafjaröarsvæöinu auk Eyja-
fjarbar í þessu efni og einnig ab
efla ígulkerarannsóknir vib
ströndina í Skjálfanda og Öxar-
firöi þar sem minna er vitaö um
vöxt og viögang þeirra en úti
fyrir vestanverbu Norburlandi.
Ef þessar hugmyndir veröa aö
veruleika vakna spurningar um
hvort þeir aöilar sem stunda
vinnslu ígulkera á þessu lands-
svæbi verbi aö draga saman eba
jafnvel hætta starfsemi. Gunnar
Blöndal á Akureyri er einn
þeirra sem stundar vinnslu ígul-
kera og hefur nýveriö flutt fyrir-
tæki sitt, ígulkeriö hf., frá Sval-
baröseyri til Akureyrar meb
stubningi frá Akureyrarbæ.
Gunnar kvabst í samtali vib
Tímann kannast viö þessar hug-
myndir um söfnun ígulkera af
Noröurlandi. Þær væru þó ekki
upprunnar frá Sölumibstöb
hraöfrystihúsanna þótt þær
komi fram í skýrslu þess og
sölumiöstööin hafi stundaö út-
flutningsstarfsemi fyrir íslensk
ígulker í Njarbvík. Þab væru for-
ráöamenn íslenskra ígulkera
sem stæbu ab þessari hugmynd
til ab ná sem mestu af fram-
leiöslunni til sín. Þeir beittu
þeim rökum aö þeir heföu betri
tök á þessari framleibslu en abr-
ir og heföu því betri aðstæöur til
að ná hagstæðum vibskiptum.
Gunnar kvaðst telja aö þeir aðil-
ar út um land sem stunduöu
vinnslu ígulkera væru eins vel í
stakk búnir til ab framleiða
góöa vöru og kvaðst í því sam-
bandi vera með fulltrúa jap-
ansks kaupanda hjá sér þessa
dagana ab fylgjast með fram-
leiðslunni. Gunnar sagði ab
haft hafi verið samband vib sig
af forvígismönnum Islenskra
ígulkera í Njarðvík þar sem sér
hafi verið tilkynnt um þau
áform að safna öllum ígulkerum
sem veiðast við Norðurland á
einn stab. Hann kvabst hinsveg-
ar halda ótrauöur áfram fram-
leiöslunni og selja til vibskipta-
vina sinna í Japan. Hjá sér væri
enga uppgjöf aö finna og hann
skyldi ekki þá atvinnupólitík ab
tala um ab ígulkerasöfnunin
muni skapa allt ab 20 störf á Ak-
ureyri eba Svalbarðseyri eins og
rætt væri um ef 25 til 30 störf
myndu tapast á móti. Nú vinna
um 25 manns hjá ígulkerinu hf.
á Akureyri og kvab Gunnar
Blöndal litlu þurfa ab bæta við
til þess að geta skapað allt ab 30
störf. Ekki náðist í fram-
kvæmdastjóra íslenskra ígule-
kera í Njarbvík í gær. ■
Yfirborð varanna
talið endast betur
ALPAN hf. á Eyrarbakka hefn-
fest kaup á alsjálfvirkri
•il -a.—
F£/?þ/1Ð FKK!
EFTJR MOTKUN?
.BOGGI,