Tíminn - 26.01.1995, Page 7
Fimmtudagur 26. janúar 1995
7
Tímamynd CS
Hálfdán í Búö sést hér í Reykjavíkurhöfn í vikunni. Nú skiptir skipiö um nafn, númer og fána og siglir til Nýja-Sjálands í kjölfar úreldingar.
Nýleg fiskiskip, sem keypt voru til landsins meö góöum styrkjum og lánum, eru nú seld úr landi meö tilstyrk Úrelding-
arsjóös, önnur lenda í Sorpu eöa áramótabrennum— 72% minnkun flotans:
Flotinn minnkar um sem
s varar 15 stórum skuttogurum
Fiskiskip, sem keypt voru til
landsins fyrir stuttu me&
hverskonar fyrirgrei&slum
og stuöningi, eru sum hver
aö hverfa af sjónarsviöinu
meö úreldingu. Fiskiskipa-
floti landsmanna er aö
skreppa saman, líklega um
12% til aö byrja meö. Flotinn
er allt of stór og útgeröar-
menn eru fremur hvattir en
lattir til aö losa sig viö báta
sína. Gulrótin er styrkur úr
svokölluöum Úreldingar-
sjóöi, réttu nafni Þróunar-
sjóöi sjávarútvegsins, sem
varö til á síöasta ári sam-
kvæmt lögum, en útgeröar-
menn sjálfir hafa greitt í
undir ööru nafni. Sá sjóöur
var oröinn um 550 milljónir,
en til viöbótar koma í sjóö-
inn 4 milljaröar aö láni úr
ríkissjóöi, sem endurgreiöa
skal fyrir aldamót.
90 skip þegar
horfin af sjónum
Á síðasta ári hurfu af sjónar-
sviöinu 90 fiskiskip af ýmsum
stæröum, auk þess sem Þróun-
arsjóöur sjávarútvegsins lofaöi
aö liöka til við að úrelda 214
skip til viðbótar. Það er hrein-
lega ekkert verkefni að hafa
fyrir allt of stóran flota, sem
nú er um 120 þúsund rúmlest-
ir að stærö. Jafnvel nýlegir og
góöir bátar kunna að veröa úr-
eltir og seldir úr landi — ef
kaupandi finnst. Aörir bátar og
skip hafa endað á áramóta-
brennum, plastbátar fariö í
Sorpu eöa þeir urðaöir. Nokkur
nýleg og góö skip hafa þegar
veriö seld úr landi eöa eru á
söluskrá og hafa fengið loforö
um fé til úreldingar.
Utgerbarmabur:
Hugleibir ab úrelda
nýjan línubát
„Þaö er aldrei aö vita hvað
gerist ef þaö fæst gott verð.
Maður verður að velta ýmsu
fyrir sér, þótt vel hafi gengið
með þessa báta," sagði útgerö-
armaður á Snæfellsnesi, sem á
tvo góöa línubáta, 2-3 ára
gamla. Hann hugleiðir að úr-
elda annan. Utgerð þessa
manns hefur þótt mjög til fyr-
irmyndar.
„Manni heyrist ekki svo gott
hljóö framundan að hægt sé
að halda þessum flota úti. Það
er auövitað ekki hægt að halda
skipunum á sjó með hálfum
afköstum," sagöi útgerðarmað-
urinn í samtali við Tímann.
Besta útgerbin
ab úrelda?
Leið útgerðarmannsins ligg-
ur því til s'vokallaðs Úrelding-
arsjóðs fiskiskipa, ööru nafni
Þróunarsjóðs sjávarútvegsins,
til að fá annan bátinn, rúm-
lega 2 ára gamlan, úreltan, fá
svo styrk, væntanlega 93 millj-
ónir, úr sjóðnum og selja bát-
inn síðan úr landi. Við kaupin
fékk útgerðarmaöurinn aftur á
móti ríflegan styrk til kaup-
anna, eins og títt er um slík
kaup.
„Það, sem menn eru að gera
núna, er að fá keypt leyfi til að
veiða eitt kíló af þorski og fyrir
það er verið að borga allt upp í
80 krónur á kílóið, bara leyfið.
Þegar togararnir eru að veiða
þennan fisk og selja langt und-
ir því verði, þá sér maður tap-
ið. Það er miklu betra að selja
kvóta og auðvitað meira upp
úr því að hafa. Það er kannski
besta útgerðin að leggja skip-
unurn," sagöi útgerðarmaður-
inn.
Fækkunin: ígildi 15
stórra skuttogara
Fiskiskipum í íslenska flotan-
um fækkar þessi árin, enda
unnið að því. Samkvæmt upp-
lýsingum Hinriks Greipssonar,
framkvæmdastjóra Þróunar-
sjóðs sjávarútvegsins, gæti
fiskiskipum á íslandi fækkað
svo um munar á næstunni. Á
síðasta ári voru gefin loforð af
hálfu sjóðsins um styrk vegna
úreldingar á 304 fiskiskipum af
ýmsu tagi. Þessi skip voru
15.070 tonn að stærð saman-
lagt, ígildi 15 stórra skuttogara
eða þar um bil.
Vátryggingarverð þessara
skipa er 9,6 milljarðar króna,
og styrkurinn fyrir að losa
landið við fiskiskipin, 45% af
vátryggingunni, gæti numið
alls 4,3 milljörðum króna. Þak
er á styrknum á hvert skip í 93
milljónum króna í ár, en var
90 milljónir á síðasta ári.
Útborgaðir úreldingarstyrkir
í fyrra og fram á þennan dag
eru 97 talsins, 3.264 rúmlestir.
Fyrir úreldinguna greiddi sjóð-
urinn 1 milljarð króna og 29
milljónum betur.
Glæsisklp hverfa
úr landi
Nýlega sigldi Haukafell SF-
Þeir sem
fengu
borgun
Ein útgerð fékk greiddan há-
marksstyrk fyrir úreldingu skips
á síðasta ári, 90 milljónir, en
önnur slík greiðsla kom til út-
borgunar fyrir nokkrum dög-
um. Nokkrar fengu tugi millj-
óna, en minnsti styrkurinn var
61 þúsund krónur fyrir fertugan
smábát, Dóru SU 180. Á
töflunni til hliðar eru nokkrar
hæstu greiðslurnar á síðasta ári
og fram til þessa dags.
Önnur skip fengu mun
minna, enda fjölmörg þeirra
undir 10 tonnum, og önnur
111 frá Hornafirði til Noregs,
en þangað var skipiö selt, 161
tonna stálbátur smíðaður 1990
í Portúgal. Útgerðin fékk 90
milljónir króna úr Þróunar-
sjóði sjávarútvegsins til úreld-
ingarinnar.
Annað fiskiskip, Hálfdán í
Búð, er komið til Reykjavíkur
og heldur senn af stab í sína
löngu siglingu til nýrra eig-
enda, eins og Tíminn greindi
frá í gær. Skipið er skuttogari,
smíbað 1989 í Svíþjóð. Fyrir
skipib fær Hrabfrystihúsib
Norðurtangi hf. á ísafirði 90
milljónir fyrir úreldinguna,
auk þess fjár sem fæst frá ný-
sjálenska fyrirtækinu. Söluverb
fékkst ekki uppgefiö, hvorki
hjá fyrri eiganda né hinum
nýja. Forráðamenn Norður-
tanga segjast ánægöir með söl-
una. Markaðurinn fyrir fiski-
skip sé mjög erfiður þessa
stundina, en fyrirtækið á Nýja-
Sjálandi vantaði einmitt skut-
togara af þessari stærð og fékk
velmeðfarið skip frá íslandi.
Rúm- Smíba- Styrk-
Nafn lcstir ár ur
Lísa María ÓF 426 1988 90,0
Haukafeli SF 162 1990 90,0
Hálfdán í Búð ÍS 252 1989 90,0
Ásgeir Frímanns ÓF 280 1986 89,7
Snæfari GK 222 1984 77,9
Ögmundur RE 187 1960 77,5
Sæfari AK 222 1986 79,2
Lómur HF 101 1988 75.0
Fjölnir GK 117 1982 54,5
Freyja GK 122 1972 41,5
Sæljón SU 142 1974 37,0
Mummi NK 69 1986 35,4
Frár VE 124 1969 30,3
Jón Klemehz ÁR 80 1984 30,2
Fá ekki annab skip
í stabinn
Styrkur til ab minnka fiski-
skipastólinn er greiddur fyrir
þær rúmlestir, sem verða af-
skráðar með tilkomu styrksins.
Þarmeð skuldbindur útgerðar-
maburinn sig til ab flytja ekki
inn annað skip í stað hins úr-
elta. Hann heldur hins vegar
kvóta sínum, sem hann annab
hvort nýtir sjálfur eða selur.
Sjóöurinn er hugsaður þann-
ig að útgeröarmenn borgi sjálf-
ir inn í sjóbinn.
Með stofnun Þróunarsjóðs
runnu inn í hann Hagræðing-
arsjóður sjávarútvegsins, sem
útgerbarmenn voru búnir að
borga í frá 1990. Sá sjóður varð "
til í samruna tveggja sjóða Ald-
urslagasjóbs og Úreldingar-
sjóðs. Útstreymib núna er
meira en nokkurn tíma var inn
í þá áður. Reikna má með slíku
útstreymi á þessu ári, þá fer að
reyna á styrkloforö Þróunar-
sjóbs af miklu afli. ■
ævaforn. Elsta skipið, sem fékk
úreldingarstyrk, var Sjöfn VE,
það skip var smíðað 1935 og var
því ab komast á sjötugsaldur-
inn. Eigandi þess, íslandsbanki,
fékk 9,8 milljónir fyrir skipið.
Fengu loforb um
hámarksgreibslu
Loforð um hámarksstyrk til
úreldingar á síðasta ári fengu
eigendur 9 skipa, þriggja þeirra
er getið hér á undan, hin bíða
væntanlegra kaupenda og fá
styrk greiddan við söluna.
Þessi skip eru: Rauðinúpur
ÞH, Kambaröst SU, Hafnarey
SU, Tjaldanes II ÍS, Skúmur ÍS,
og Faxafell GK. Flest eru þessi
skip nýleg, en Rauðinúpur og
Kambaröst um og yfir 20 ára
gömul. Nokkur skip hafa fengið
loforð um styrki sem eru rétt við
hámarkið, og fjöldamörg tugi
milljóna. ■