Tíminn - 28.01.1995, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Laugardagur 28. janúar 1995 20. tölublað 1995
Handknattleikur:
Þjálfari
Selfyssinga
hættir
Samkvæmt heimildum Tímans
hefur þjálfari Selfyssinga, Jez-
timír Stankovic, látiö af störfum
sem þjálfari 1. deildarliösins.
Guölaugur Sveinsson, formaöur
handknattleiksdeildar Selfoss,
vildi ekki staöfesta þetta endan-
lega í samtali viö Tímann, en
viöurkenndi aö þaö væru viö-
ræöur í gangi. Hann sagöi aö
þaö væri ekki árangur liösins
sem ylli því aö þetta væri í skoö-
un, heldur aö Stankovic væri
ofhlaöinn störfum sem lands-
liösþjálfari Júgóslavneska lands-
liösins, en svo hefur liö Serbíu
veriö kallaö. Þegar Tíminn fór í
prentun í gær var ekki oröiö
ljóst hver yröi eftirmaöur
Stankovic. ■
Eggert Haukdal er brattur:
„Er ánægður
meb árangur
minn í akstri"
„Ég er mjög ánægöur meö
þennan árangur og þykir þetta
sýna hvaö ég get," sagöi Eggert
Haukdal alþingismaöur í sam-
tali viö Tímann í gær. Eins og
landsmenn fengu aö sjá í sjón-
varpsfréttum í fyrrakvöld var
Eggert meö sýnikennslu í öku-
leikni á bílastæöi Alþingis í
fyrradag. Gárungarnir eru farnir
aö kalla þessar akstursæfingar
Eggerts „Ókuleikni '95", og sé
þaö svo merkilegur viöburöur
aö sjónvarpaö sé frá honum
samdægurs. Áhorfendur uröu
heldur ekki fyrir vonbrigöum
meö árangurinn, því Eggerti
tókst að bakka niöur og beygla
hliö aö bílastæöum þingmanna
án þess aö taka eftir því. Tveir
lögregluþjónar komu þó fljótt á
vettvang en Eggert slapp meö
áminningu.
Öllum stuðningsmönnum
Eggerts og væntanlegum kand-
ídötum á lista hans er boðið til
samkomu á Bergþórshvoli nú
um helgina. Þar veröur jafn-
framt lagt á ráöin um væntan-
legt sérframboð. ■
dag mun þab vera „ inni ab vera úti.
Tímamynd CS
Viö Ægissíöuna í Reykjavík eru göngustígar og gönguleiöir sem borgarbúar notfœra sér í œ ríkara mœli. Þar er oft fagurt útsýni eins og
sjá má á myndinni hér aö ofan, en í blaöinu í dag fjöllum viö um útivist og vetrarsport á blaösíöum 9 til 14.
Kristján Cunnarsson verkalýbsleiötogi innan Flóabandalagsins: Tímakaupiö naegir fyrir
sígarettupakka:
Menn eru kannski aö
bíða eftir byltingu
Verkafólk á Suöurnesjum get-
ur haft allt niöur í 251 krónu á
tímann í frystihúsum, fisk-
vinnslu og verkamannavinnu
sagöi Kristján Gunnarsson,
formaöur Verkalýös- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, í
samtali Tímann í gær. Þaö
þýöir aö klukkutíma tekur aö
vinna fyrir sígarettupakka, —
og þaö þaö tekur allan daginn
aö vinna fyrir mánaöargjaldi
Ríkisútvarps og sjónvarps.
„Þiggi fólk ekki þessi laun er
því vísaö á dyr, sagt aö nóg sé
af fólki til aö taka vib störfum
þess. Ég veit ekki eftir hverju
er bebib, menn eru kannski ab
bíba eftir byltingu í þessu
landi," sagbi Kristján. „Fólk
sættir sig ekki lengur vib þetta
ástand."
Félagar Jafnabarmannafélags íslands óánœgbir meb gang mála hjá
lóhönnu Sipurbardóttur — tala um frambobsmál í klúbri:
Brestir í samstarfinu
Þjóbvaki, nýr stjórnmálaflokk-
ur, verður formlega stofnabur
um helgina. Innan flokksins
bryddar strax á erjum meöal fé-
lagsmanna, ábur en flokkurinn
er stofnabur. Frumkvöblarnir
ab stofun flokksins, Jafnabar-
mannafélag íslands, rúmlega
hundraö kratar, eru óánægbir
meb hinn nýja leiötoga sinn,
Jóhönnu Siguröardóttur.
„Menn voru mjög óhressir með
framgang mála, en þaö þýðir ekk-
ert aö viö séum að yfirgefa Þjóð-
vaka. Viö í Jafnaðarmannafélag-
inu vorum mjög óhress meö
framboðsmálin, þaö heföi átt aö
standa ööru vísi að þeim," sagöi
Þorlákur Helgason, einn frum-
kvöðlanna að stofnun Þjóðvaka í
samtali við Tímann í gær. Hann
sagðist áfram vinna að málefnum
hins nýja flokks án þess aö ætla
sér í framboð. Sama sinnis taldi
hann flestalla félaga sína úr Jafn-
aöarmannafélaginu, en meðal
þeirra er Sigurður Pétursson, sem
orðaður hefur verið við fyrsta sæti
á lista Þjóbvaka á Vestfjörbum.
Heimildir Tímans greina frá því
aö Jóhanna ráöi mestöllu í starfi
Þjóðvaka, og Ólína Þorvarðar-
dóttur afgangingum. Félögum
þykir Jóhanna vilja sitja ein að
ákvöröunum, en sækja minna í
samstarf viö flokkssystkinin. ■
Það stefnir í heiftarleg átök á
vinnumarkaði ab mati Krist-
jáns Gunnarssonar en félag
hans er eitt verkalýðsfélaganna
innan svokallaös Flóabanda-
lags. Innan félags hans eru
17% atvinnulausir, sem er þre-
falt landsmeðaltal. Félagið var
aö greiöa út bæturnar í fyrra-
dag og sagöi Kristján óhugnan-
legt að sjá svo margar vinnu-
fúsar hendur án atvinnu.
Kristján segir aö hægt sé að
semja strax í dag, en þá yrði aö
semja um nákvæmlega ekki
neitt. Atvinnuveitendur séu
gjörsamlega úrræðalausir og
kjarklausir og þykist sjá allt
svart.
„Við höfum fengið vægast
sagt slæm viöbrögð í Garða-
strætinu við kröfum okkar.
Okkur er sagt að krafan um 50
þúsund króna lágmarkslaun
muni stefna til mikillar verð-
bólgu og óstöðugleika. Við
höfum enga efnislega umræöu
fengið um þessar kröfur né þær
kröfur sem við leggjum fram
vegna breytinga á aöalkjara-
samningi, orðalagi og öðru
slíku. Þetta eru engar alvöru
viðræður," sagði Kristján
Gunnarson í samtalinu við
Tímann í gær.
Vinnuveitendur benda á
lönd innan OECD, Efnahags-
og framfarastofnunarinnar,
þar sem veriö er aö semja um
2-4% launahækkanir.
Kristján segir að það sé í
sjálfu sér hið besta mál ef nú
eigi aö miða íslenskan verka-
lýð við verkafólk þessara
landa.
„Þá mundum viö fá allt upp í
1.200 til 1.300 krónur á tím-
ann eins og fólk fær í Dan-
mörku. í Svíþjóð eru menn
með 890 krónur á tímann og í
Finnlandi um 800 krónur fyrir
verkamannavinnu. Norðmenn
greiöa frá 800 og upp í 1.300
krónur á tímann," sagði Krist-
ján að hann væri tilbúinn að
ræöa við vinnuveitendur á
OECD- nótum.
„Við erum tilbúnir aö hjálpa
vinnuveitendum og styrkja þá
í því að hindra að launahækk-
anir fari upp allan launastig-
ann. Kannski er jafnvel hægt
aö fá ríkisvaldiö til aö hjálpa
okkur viö það. Þaö kann aö
vera möguleiki," sagöi Krist-
ján. ■