Tíminn - 28.01.1995, Side 19
Laugardagur 28. janúar 1995
19
Jónína Þórunn Jónsdóttir
fyrrum húsfreyja, Vorsabœ, A.-Landeyjum
Jónína Þórunn Jónsdóttir var fœdd í
Vorsabœ í Austur-Landeyjum þann
18. september 1911. Hún lést 10.
janúar 1995. Hún var dóttir Jóns
Erlendssonar frá Skíðbakka, Austur-
Landeyjum, og konu hans Þónmnar
Sigurðardóttur frá Snotru í sömu
sveit.
Þau eignuðust funmtán böm og
var hún áttunda í röðinni.
Þann 28. janúar 1939 giftist Jón-
ína, Guðmundi Júlíusi Jónssyni frá
Borgareyrum, Veshir-Eyjafjöllum.
Hann lést þann 16. janúar 1989.
Þau bjuggu allan sinn búskap í
Vorsabœ.
Þau eignuðust átta börn og eru sjö
þeirra á lífi.
Útfór hennar fer fram frá Voð-
múlastaðakapellu í Austur-Land-
eyjum í dag klukkan 14.
Elsku amma okkar er dáin.
Elsku amma, við þökkum þér
allt sem þú hefur gefið okkur.
Við munum eftir þegar þú pass-
aðir okkur, þegar viö vorum litlir.
Þá söngst þú alltaf falleg lög, við
munum aldrei gleyma því.
Nú ert þú komin til Guðs og við
vitum 'að þú fylgist með okkur og
þér líður aftur vel, hjá afa og Bóbó
frænda.
Við eigum svo margar minn-
ingar um þig, sem munu aldrei
hverfa. Meö tímanum hverfur
sársaukinn, en minningarnar um
þig munu vara ab eilífu í huga
okkar.
Viö munum alltaf sakna þín.
Stýr minni hönd að gjöra gott,
að gleði' ég öðrum veiti,
svo breytni mín þess beri vott,
að bam þittgott ég heiti.
Stýr mínum hag til heilla mér
og hjálpar öðmm mönnum,
en helst og fremst til heiðurs þér,
í heiðarleika sönnum. (V. Briem)
Bless, amma.
t MINNING
Jón Óskar og
Guðmundur Hafþór
Elsku mamma, við þökkum þér
alla þá umhyggju og hlýju sem þú
veittir okkur, þolinmæði, um-
burbarlyndi, kærleika og ást.
Nú, þegar við kveðjum þig í
hinsta sinn, langar okkur öll að
kveðja þig með ljóðinu sem þú
ortir um fermingu til móður
þinnar, sem þú misstir þegar þú
varst tíu ára gömul.
Ég minnist þín, ó mamma mín,
hve mild og hlý var höndin þín.
Þú vafðir mér að votri kinn,
og vemidir litla kroppinn minn.
Þú söngst í hug og hjarta mér
heilög Ijóð ftá sjálfti þér.
Þú vildirgleðja oggrœða sár,
gœfu veita og þerra tár.
Ég vil, mamma, þakka þér
það sem gafstu snauðri mér.
Vertu, elsku mamma mín,
mér við hlið er cevin dvín.
(lónína Jónsdóttir)
Hvíl þú í friöi, Guð blessi
minningu þína.
Bömin
Aösendar greinar, afmælis-
og minningargreinar
sem birtast eiga í blaðinu þufa að hafa borist ritstjórn blaðsins,
Brautaholti 1, tveimur dögum fyrir birtingardag, á disklingum
vistab í hinum ýmsu ritvinnsluforritum sem <£Sr!g^„2rMrMr
texti, eða vélritaðar. IWEftSW
J SÍMI (91)631600
DAGBÓK
Lauqardagur
X
lugaraagi
±S
januar
28. dagur ársins - 337 dagar eftir.
4. vika
Sólris kl. 10.21
sólarlag kl. 17.07
Dagurinn styttist um
6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Aðal sveitarkeppni bridsdeildar
byrjar kl. 13 á morgun, sunnu-
dag, í Risinu. Félagsvist kl. 14.
Dansað í Goðheimum lcl. 20 um
kvöldið.
Margrét Thoroddsen er til
viðtals um trygginga- og skatta-
mál n.k. þriöjudag. Panta þarf
viðtal í s. 5528812.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Heimsókn eldri borgara í
Garöabæ ab Fannborg 8 (Gjá-
bakka) í dag, laugardag, kl. 14.
Fjölbreytt dagskrá og kaffihlað-
borð. Húsið öllum opið.
Gjábakki, Fannborg 8
Námskeiö í skrautskrift verður
á vegum Gjábakka, ef næg þátt-
taka fæst. Upplýsingar í síma
43400.
Hana-nú Kópavogi
Kleinukvöld verður í Gjá-
bakka mánudaginn 30. janúar
kl. 20. Inga Björg Stefánsdóttir
syngur við undirleik Brynhildar
Asgeirsdóttur. Arngrímur og
Ingibjörg leika fyrir dansi. Kaffi
og kleinur á boðstólum. Að-
gangseyrir: 200 kr.
ÁRNAÐ HEILLA
80 ára afmæli
I.istamaðurinn Jón E. Guðmundsson varð áttræður fyrr í þessum
nránuði. Þá sendi vinur hans honum vísu:
Aldrei leit ég öðling Jón
öðruvísi en glaðan;
einn afþeim sem auðgar Frón,
ætíð sannur listaþjón
og tmflast ei við tœknina og hraðann.
Auðunn Bragi Sveinsson
Rabtónleikar Tonlistar-
skóla Hafnarfjarbar
í vetur gengst Tónlistarskóli
Hafnarfjaröar fyrir fernum tón-
leikum þar sem kennarar skól-
ans koma fram. Tónleikarnir
eru á sunnudögum í Hafnar-
borg og Víðistaðakirkju og
standa yfir í um það bil hálf-
tíma. Þessir tónleikar eru styrkt-
artónleikar fyrir efnilega nem-
endur skólans.
Á fyrstu tónleikunum, sem
verða núna á morgun kl. 17 í
Hafnarborg, leikur Sigurður
Marteinsson píanóleikari. Á
efnisskránni er Ensk svíta nr. 2 í
a-moll eftir J.S. Bach, sem Sig-
uröur lék á Háskólatónleikum í
Norræna húsinu 7. mars í fyrra.
Aðgangur er ókeypis.
Frá Listaklúbbi Leikhús-
kjallarans
Mánudagskvöldib 30. janúar
mun Listaklúbbur Leikhúskjall-
arans frumflytja þrjá einleiki
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur. '
Saga dóttur minnar, Bóndinn
og Slaghörpuleikarinn eru sann-
ar frásagnir þriggja íslenskra
samtímakvenna. Höfundurinn
hafði viötal við þessar konur og
eru einleikirnir byggðir á þeim.
Flytjendur eru leikkonurnar
Gubrún María Bjarnadóttir,
Guöbjörg Thoroddsen og Ingrid
Jónsdóttir. Leikstjóri er Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir.
Dagskráin hefst um kl. 20.30.
Hib íslenska náttúrufrœbifélag:
Fræ&slufundur í janúar
Mánudaginn 30. janúar kl.
20.30 verður fyrsti fræbslufund-
ur HIN á þessu ári. Fundurinn
_verður að venju haldinn í stofu
101 í Odda, Hugvísindahúsi Há-
skólans. Á fundinum flytur
Ólafur K. Nielsen, fuglafræðing-
ur á Náttúrufræðistofnun Is-
lands, erindi sem hann nefnir:
„Um fálka og rjúpur", en Ólafur
hefur stundað rannsóknir á
þessum fuglategundum síðan
1981.
Fréttir í vikulok
Eygló Stefánsdóttir starfsmabur Tímans var ein þeirra fjölmörgu sem
lögbu hönd á plóginn í söfnuninni. Tímamynd cs
Glæsileg söfnun til styrktar
Súövíkingum
Viðtökur landsmanna við landssöfnunni „Samhugur í verki"
sem hmndið var af staö til styrktar Súðvíkingum eftir snjóflóð-
in miklu, voru mjög góður. Alls söfnuöust á þriðja hundraö
milljóna sem er mun meira en bjartsýnustu menn gerðu ráb
fyrir.
Benedikt sendiherra
Benedikt Ásgeirsson hefur verið skipaður sendiherra íslands í
Lundúnum. Þar með er ljóst að Jakob Magnússon er úr sög-
unni en hann var lengi vel orðaður við stöðuna.
Risnukostnaöur minnkar undir
stjórn R-listans
Risnukostnaöur Reykjavíkurborgar minnkaöi um 35% á síðari
helmingi ársins 1994 miðað við fyrri helming ársins og blóma-
kaup drógust saman um meira en helming. Þetta er í samræmi
við stefnu R-listans að draga úr útgjöldum vegna yfirbygging-
ar.
Vaxtahækkun á döfinni?
Steingrímur Hermannsson seðlabankastjóri útilokar ekki
vaxtahækkun á næstunni en talsvert útstreymi hefur verið á
gjaldeyri ab undanförnu.
Rannveig sigraöi Guömund
Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráöherra sigraði Guð-
rnund Árna Stefánsson í baráttunni um 1. sæti á lista Alþýðu-
flokksins fyrir næstu alþingiskosningar. Rannveig hlaut 5535
atkvæbi í fyrsta sætið en Guðmundur Árni 3701. Talaö hefur
verið um að þverpólitísk smölun hafi verib skipulögð í kjör-
dæminu.
*
Islendingum fjölgar erlendis
íslenskum ríkisborgurum búsettum erlendis fjölgaði um 7,3%
eða 10 sinnum meira en innanlands. Alls búa nú 18.900 ís-
lendingar erlendis og fjölgaði þeim um 1290 í fyrra.
SH til Akureyrar?
Sölumiöstöð hraðfrystihúsanna hyggst flytja hluta af starfsemi
sinni til Akureyrar ef fyrirtækið fær að halda áfram að selja
framleiðslu Útgerðarfélags Akureyrar á erlendum mörkuðum.
Með því myndu 80 störf skapast á Akureyri.
Húsgögn seld úr Sorpu
Reykjavíkurdeild Rauða krossins mun á næstunni selja ýmsa
muni, aðallega húsgögn, sem borgarar á höfuðborgarsvæðinu
hafa fleygt og komið á gámastöðvar í Sorpu.
Stjórn Dagsbrúnar veitt heimild til
verkfallsboöunar
Á fjölmennum félagsfundi sem haldinn var hjá Verkamanna-
félaginu Dagsbrún á fimmtudaginn var samþykkt ab gefa
stjórn Dagsbrúnar fullt umbob til verkfallsbobunar. Tillagan
var samþykkt einróma.