Tíminn - 03.03.1995, Page 5
Föstudagur 3. mars 1995
5
Gubmundur Birkir Þorkelsson:
Launamunur og staba kennara
í íslensku samfélagi viröist vera
samstaöa um aö launamunur
eigi aö ríkja á milli starfsgreina.
Þannig eigi aö launa erfiöis-
vinnu, sem hefur mikla þýö-
ingu fyrir þjóöarbúiö, betur en
önnur störf. Sjómennska er
dæmi um slíkt viðhorf. Sú var
tíö að hún var illa launub og út-
geröarfyrirtæki voru í stökustu
vandræöum meö aö manna
skipin og margar sögur eru til
um að menn hafi verið gripnir
ofurölvi og viti sínu fjær á öld-
urhúsum aö nóttu til og vaknað
úti á rúmsjó sem fullgildir skip-
verjar á togara.
1 Með breyttum samningum og
hlutaskiptum er sjómannsstarf-
iö orðið svo vel launað, aö sleg-
ist er um hvert pláss sem losnar,
og skipstjórar geta alltaf tryggt
sér úrvalsmannskap, sem hefur
keðjuverkandi áhrif til góðs fyr-
ir útgerðina. Á sama hátt birtist
launamunurinn meöal áhafnar-
innar. Skipstjórinn hefur tvöfalt
á við hásetann og þar á milli
koma stýrimenn, vélstjórar og
kokkur.
Langskólanám er
launaaukandi
Langskólagengiö fólk hefur til
þessa getaö átt von á að fá hærri
laun fyrir vinnu sína en þeir
sem fara út á vinnumarkað eftir
grunnskólapróf. Þaö er sá hvati
sem rekur það til aö mennta sig
til ákveöinna sérhæfbra starfa
og taka til þess lán, sem oft
nema 4-5 milljónum eftir 4-6
ára nám. Niðurstöbur kjara-
rannsókna sýria að margar
starfsstéttir meö langskólanám
að baki hafi miklu hærra kaup
en ómenntað verkafólk, jafnvel
þó opinberir starfsmenn séu.
Má þar nefna til sögunnar
lækna af öllum gerðum. Ríkis-
stjórnir síðustu áratuga eru þó
búnar að eyöileggja launataxta-
kerfið, því nú fá þeir hærra
launuðu laun fyrir næstum
hvert handtak, auk heföbund-
inna taxtalauna, sem eru aðeins
í kringum 80 þúsund á mánuði.
Þessvegna talar Sighvatur núna
um að læknar skammti sér sín
laun sjálfir í baráttu sinni fyrir
tilvísanakerfinu
Stjórnun er vel
launuð
Vinnumarkaðurinn metur
stjórnun vel til launa. Dæmið
um skipstjórann sýnir það og
hægt er að finna mörg dæmi um
margfalt hærri laun stjórnenda í
fyrirtækjum heldur en óbreyttra
starfsmanna (bankar, Eimskip,
Flugleiðir o.s.frv.). Öll verk-
stjórn þar sem fólk ber mikla á-
byrgð er líka miklu betur launuð
en almenn störf.
Landsstjórn er til
fárra fiska metin
Laun alþingismanna og ráb-
herra hafa alla tíð verið fremur
lág. Á síðustu öld og langt fram
,,... langskólagengnir
kennarar, sem allir gegna
ábyrgðarmiklum stjómun-
arstörfum oggeta haft
gríðarlega jákvœð áhrifá
möguleika einstaklinga og
þjóðarinnar allrar, eiga að
vera mjög ofarlega í
launastiganum."
á þessa var þingtíminn svo stutt-
ur að litiö var á starfið líkt og
nefndastörf nútímans, einhver
málamyndagreiðsla kom fyrir til
að mæta útlögðum kostnaði.
Þegar sá tími kom, fyrir
nokkrum áratugum, að líta
mátti á starf alþingismanns sem
fullt starf og greiöa ætti laun í
VETTVANGUR
samræmi við það, var talið hæfi-
legt að miða við laun mennta-
skólakennara, enda voru þau
ágæt á þeim tíma í samanburði
við aðrar stéttir.
Nú er þó svo komiö að
menntaskólakennarar eru ab-
eins hálfdrættingar á við alþing-
ismenn og eru þeir þó ekki sælir
af launum sínum, ef tilgangur-
inn er að laða að því starfi viturt
og ráðagott fólk til að setja þjóð-
inni góð lög. Sama má segja um
ráðherra.
Laun kennara verða
ab hækka
Margir telja að launamunur
eigi ekki að ríkja, allir eigi að
hafa jöfn laun án tillits til erfið-
is, menntunar, ábyrgðar eða
nokkurra annarra þátta. Þessar
skoðanir eru þó í reynd í minni-
hluta hér á landi, eins og dæmin
sanna. Launamunur er mikill
hér á landi, þó ekki sé hann á
við það sem mest gerist í lönd-
um sem gjarnan er miðað við
þegar það hentar atvinnurek-
endum og ríkisvaldi, svo sem
eins og nýleg dæmi um viðmið-
un við kauphcekkanir í sam-
keppnislöndum sýna. Þá gleymist
launaupphæðin, enda vont við-
mið fyrir þá. Ef hægt er að ætlast
til einhverrar sanngirni af þeim
sem eiga að fara meb völdin, rík-
isstjórn sem hefur á að skipa
hæfustu einstaklingum Alþing-
is, en þar eiga aö sitja vitmstu og
ráðabestu fulltrúar þjóðarinnar,
þá gefur þab augaleið að Iang-
skólagengnir kennarar, sem allir
gegna ábyrgöarmiklum stjórn-
unarstörfum og geta haft gríðar-
lega jákvæb áhrif á möguleika
einstaklinga og þjóðarinnar allr-
ar, eiga að vera mjög ofarlega í
launastiganum. Það dugir til
dæmis alls ekki að nemendur
þeirra fái töluvert hærri laun,
jafnvel á námstíma, að ég tali
nú ekki um þegar námi er lokið í
framhaldsskóla, en sú er raunin
í dag. Ómerkilegar upphrópanir
um lítið og léttvægt vinnufram-
lag, langt sumarfrí og gæslu- í
stað menntunarhlutverks og
fjandsamleg afstaða verkalýðs-
hreyfingar og atvinnurekenda
(þar ná fjandvinirnir vel sam-
an!) mega ekki glepja lands-
stjórninni sýn í atkvæbaveiðum
dagsins í dag. Vandi morgun-
dagsins verður þá því stærri,
sem lengur er neitað að horfast í
augu við hann.
Höfundur er skólameistari vib Fram-
haldsskólann á Húsavík.
Hátíðleg þögn á þingi
Þegar þetta er skrifab, er libin
rúm vika frá upphafi kennara-
verkfalls og sér ekki enn fyrir
endann á því. Athygli vakti, ab í
eldhúsdagsumræðum á Alþingi í
síðustu viku sá enginn ræðu-
manna ástæðu til aö minnast
einu aukateknu orbi á þetta
bagalega ástand. Hátt > fimmþús-
und kennarar taka þátt í verWall-'
inu og sextíuþúsund nemendur
eru frá námi af þeim sökum. En
þetta nægir ekki til ab Austur-
vallarbændur vakni af sínum
væra Þyrnirósarsvefni. Hvað
veldur svo þungum dróma?
Vafalaust er ekki til nein ein-
hlít skýring á því, fremur en svo
mörgu öðru. Þó hygg ég, að í
þessu sambandi sé ástæða til að
staldra við eitt atriði öbrum
fremur.
Okkur íslendingum hættir til
að telja það eitt til verðmæta,
sem hægt er að meta til fjár, hér
og nú. Slíkur hugsunarháttur er
svo sem ekkert einsdæmi. Þvgrt á
móti er hann fylgifiskur allra
frumstæbra þjóba. Mörgum okk-
ar er að vísu ljóst að mikilvægi
menntunar fer vaxandi, sérstak-
lega ef við viljum koma í veg fyr-
ir að lífskjör okkar versni enn
frekar en orðiö er. í þeim efnum
höfum við nú þegar dregist svo
langt aftur úr nágrannaþjóðum
okkar, að mörgum stendur
stuggur af.
En menntun er tímafrek og
krefst mikils skipulags og sam-
hæfingar ólíkra þjóðlífsþátta. Og
þar stendur hníhirinn í kúnni.
Öll langtímaskipulagning hef-
ur alltaf verið okkur íslendingum
um megn. í stað þess ab skipu-
leggja sjávarútveginn, sáldruð-
um við togurum á hvert
krummaskuð, uns nú er svo
komið ab varla fæst bein úr sjó.
Ekki var hægt að samhæfa land-
búnaðinn breyttum markaði.
Þess í stað vom bændur gerðir að
opinberum starfsmönnum. Iðn-
aðinum var ekki gert kleift ab
keppa viö innflutning. Og þann-
ig mætti lengi telja.
Samt höldum vib áfram strögl-
inu, eins og ekkert hafi í skorist.
Það er því ofmat að segja, ab vib
lifum fyrir líðandi stund. í raun
SPJALL
PjETUR
HAFSTEIN
LÁRUSSON
lifum við fyrir liðna stund!
Við högum okkur Jíkast því
sem enn sé nægur fiskur í sjón-
um og vandalaust sé aö hagnast
á viðskiptum við þjóöir, sem fyr-
ir alla muni verði að tapa á við-
skiptum vib okkur. Og við telj-
um jafnvel að viðskiptaþjóðir
okkar séu alveg til í ab tapa á
samskiptum við okkur, vegna
þess að hér sé svo heilnæmt
loftslag. Ég er ekki að grínast.
Þetta með ferska loftið og þrá út-
lendinga til aö tapa peningum
sínum til okkar út á margnefnt
loft, er nokkub sem ég hef oft
heyrt á tali fólks og meira ab
segja lesið í blöðum. Ég kalla
þetta markaðssetningu á vak-
úmi. .
Sannleikurinn er auðvitað sá,
að ef tryggja á mannsæmandi
lífsafkomu á íslandi, verðum við
að draga úr efnahagslegu mikil-
vægi frumstæbra atvinnugreina
eins og fiskveiða og landbúnaðar
og innflutningi á varningi, sem
viö getum sjálf framleitt. Þar
með er ekki sagt, aö við eigum að
kæfa þessa atvinnuvegi.
Við þurfum einfaldlega að
stokka spilin upp á nýtt, því vib
sitjum ekki lengur ein úti í ball-
arhafi og leggjum kabal. Nauðug
viljug emm við orbin ab þátttak-
endum í því alþjóblega bridds-
móti sem kallast heimsviðskipti.
Ef við ætlum okkur ekki að
hafna í neðsta sæti á mótinu, þá
verðum við m.a. að auka veg
menntunar, raunar ekki síður
verklegrar en bóklegrar, þótt best
sé vitanlega að þab fari saman.
Alltjent höfum við ekki efni á
hátíðlegri þögn á þingi, þar sem
lamað menntakerfi telst handan
þess sem um þurfi að ræða.
FOSTUDAGS-
PISTILL
ÚR DAVÍÐ í
GOLÍAT
Fyrir um fimmtán árum bauð borg-
arfulltrúinn Davíb Oddsson sig fram
til varaformanns á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins og keppti um sætið
við enga smákarla: Dr. Gunnar heit-
inn Thoroddsen, ríkjandi varafor-
mann, og Matthías Bjarnason al-
þingismann. Dr. Gunnar hélt velli og
Matthías varð annar, en Davíð þriöji.
Þá brá Davíð Oddsson á glens og
sagði fleyg orð úr pontu: „Það sigrar
enginn Davíð tvo Golíata sama dag-
inn!"
Síðan hefur mikiö vatn til sjávar
runnið og Davíð Oddsson hitt marg-
an naglann á höfuðib. Varð leiötogi
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur og seinna borgarstjóri.
Sló á létta strengi. Varaformaöur
Sjallans og seinna formabur. Hrókur
alls fagnaðar. Loks skilaði atburðarás-
in karlinum inn á Alþingi og upp í
stól forsætisrábherra. Þar saup hann
marga fjöruna og gamanið tók ab
kárna. Síðan hafa skipst á skin og
skúrir á ferli ráöherrans.
í dag er að rofa til. Síðustu misseri
hafa oröið umskipti á Davíb Odds-
syni og elstu menn muna ekki önnur
eins stakkaskipti. Gelgjuskeið er á
enda runnið. Ráðherrann hefur
gengib í pólitískar mútur og er nú
orðinn annar maður. Klæðir sig eftir
litrófi heimsborganna og kembir
jafnvel hærurnar. Formaður Sjallans
er orbinn stálpabur og langt um ald-
ur fram. Að undanförnu hefur hon-
um gengið allt íhaginn:
Á ögurstundu birtist Davíð Odds-
son í Karphúsinu og kjarasamningar
á vinnumarkaði voru í höfn. Um
óttubil kallabi rábherrann til sín
kennara og samdægurs varð grunn-
skólafrumvarp að lögum. Á krossgöt-
um Norburlanda gekk rábherrann
fram fyrir skjöldu og norrænu sam-
starfi var borgib. í næstu viku tekur
Davíð Oddsson vafalaust til sinna
rába og kennsla hefst aftur í skólum.
Forsætisrábherrann er því manna lík-
legastur til ab lyfta einu Grettistaki í
hverri viku fram ab kosningum og
jafnvel vinna önnur smærri krafta-
verk á milli mála.
Engum blöbum er um þab ab
fletta að Davíb Oddsson er ab ná aft-
ur vopnum sínum og heimta aftur
fornaldar frægb. Strákapör á borb
vib Rábhús og Perlur heyra nú sög-
unni til og framvegis verða sam-
ferbamenn vafalaust spurbir álits í
hvert skipti sem rábherrann stefnir
tjörnum landsins í voða. Og ekki er
ennþá öllu til skila haldið:
Ugluspeglar í þingflokki Sjallans
eru að renna sitt skeið á enda í þing-
sölum: Matthías Bjarnason heldur
kvótalaus vestur á firði og Pálmi
jónsson snautar hundlaus heim ab
Akri. Eyjólfur Konráb sest í helgan
stein í Brekkugerði og Ingi Björn er
aftur kominn á takkaskóna úti á Vals-
velli. Eggert Haukdal er lagstur í vík-
ing austan Rangár og vonandi verb-
ur Árni johnsen veðurtepptur í Eyj-
um fram á sumar.
Andstæðingar íhaldsins skyldu því
ganga hægt um gleðinnar dyr í vor.
Engin máttarvöld eru öflugri en
stálpabur formabur í Sjálfstæbis-
flokki. Kjörfylgi flokksins er því sýnd
en ekki gefin gæs fyrir pólitíska
lukkuriddara. Háða jafnt sem óháða
og vinstrimenn jafnt og hægrimenn.
í Reykjavík eba Brussel. Á Bergþórs-
hvoli eba Hlíðarenda við Öskjuhlíð.
Jafnvel Björn Bjarnason sjálfur þarf ab
bíða um hríð eftirformannssætinu
sínu í Sjálfstæbisflokknum.