Tíminn - 11.03.1995, Qupperneq 3
Laugardagur 11. mars 1995
3
Tveggja mánaöa sleitulaus ótíö allt frá noröanveröu Vesturlandi allt austur aö noröanverö
um Austfjöröum:
Hefur áhrif á and-
lega líðan fólks
Langvarandi ótíö undanfarn-
ar vikur og mikil snjóalög eru
farin aö hafa mikil áhrif á
dagiegt líf manna víbast hvar.
Þetta ástand hefur varaö nán-
ast frá miöjum janúar sleitu-
laust og segja má aö hægt sé
aö draga línu eftir miöju land-
inu endilöngu, þar sem norö-
an viö hana hefur veöurfar
veriö meö eindæmum. Hefur
þetta ástand komiö viö flesta
þætti þjóölífsins, andlegt
ástand þegnanna, verslunina
á stööunum og jafnvel pólit-
ískt líf, innan vib mánuöi fyr-
ir kosningar. í vibtölum viö
fólk á þessum svæöum má
greiniiega heyra þreytu í
röddum fólksins yfir þessu
ástandi.
Reyndar var dagurinn í gær
mjög góöur víðast hvar um
landiö og einn viðmælenda
blaðsins sagði að hann væri til-
búinn að borga með mörgum
óveðursdögum fyrir svona blíð-
viðrisdag.
Ingþór Bjarnason, sálfræðing-
ur á Isafirði, segir að ekki hafi
sérstaklega verið athugað
hvernig veðurfar sem þetta hef-
ur áhrif á andlegt ástand manna
og hvort það hefur djúpstæð
áhrif. „Það eru margir orðnir af-
skaplega þreyttir á þessu og það
getur haft áhrif á andlega líðan
manna. Það er þó hægt að segja,
þar sem þessi slys hafa orðið
vegna mikilla snjóa og leiðinda-
veðurs, þá er ákveðinn beygur
og því bíða menn mjög mikið
eftir því að sólin fari að skína. Þá
íþyngir það mörgum að þurfa
meira og minna að búa við
snjóflóðahættu," sagði Ingþór.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
alþingismabur fyrir Noröurland
eystra, segir veöráttuna hafa
haft mikil áhrif á ýmsa starfsemi
í kjördæminu, bæbi félagsstarf
Starfsmenn á Vellinum:
Launa-
hækkun-
in skilaði
sér ekki
íslenskt launafólk í vinnu hjá
bandaríska hernum á Miönes-
heiöi fékk ekki umsamdar
launahækkanir á almennum
markaöi viö síbustu útborg-
un. Hinsvegar er viöbúiö aö
launafólkiö fái umræddar
launahækkanir viö næstu út-
borgun.
Jóhann Geirdal, formaður
Verslunarmannafélags Suður-
nesja, segir ab ástæban fyrir
þessu sé m.a. vegna þess aö ný-
geröir samningar þurfa að fara í
gegnum svokallaða Kaupskrár-
nefnd og þaö hafi einfaldlega
ekki unnist tími til ab afgreiða
málið tæknilega í tíma áður en
síbustu laun voru greidd út. Þá
sé ekki við því að búast að
launafólkið fái einhverjar
vaxtagreiðslur vegna þessa
dráttar. ■
og atvinnulíf. Sem dæmi hafi
þurft að aflýsa öllum deildar-
fundum hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga, þar sem þrátt fyrir að allar
aðalleiðir væru færar, þá væru
útleiðir og heimleiðir ófærar. Þá
hafi þetta haft áhrif á pólitíkina
í kjördæminu og meöal annars
hafi Alþýðubandalagið þurft að
fella niður fundi.
Verslunarmenn á Akureyri
hafa einnig fundiö fyrir þessu
þar sem verslun í bænum virbist
hafa dregist saman á þessu tíma-
bili, vegna þess að fólk í sveitum
hefur ekki komist í kaupstað.
„Auðvitab eru menn orðnir
leiðir á þessu, en hins vegar eru
þetta hlutir sem við þurfum ab
búa við," segir Jóhannes Geir.
Hjörleifur Ólafsson, yfirmað-
ur snjómokstursmála hjá vega-
eftirliti Vegagerðar ríkisins, seg-
ir að veturinn sé búinn að vera
mjög erfiður fyrir hans menn á
stórum hluta landsins. Á vega-
áætlun er gert ráð fyrir ab um
610 milljónum króna verði var-
ið til snjómoksturs á þessu ári,
en að sögn Hjörleifs hefur þegar
verið ráðstafað um helmingi
þeirrar upphæðar. Mebaltal síð-
ustu tíu ára sýnir að 492 millj-
ónum hafi að jafnaði verið varið
til verksins á ári hverju og mest
árið 1989, um 716 millj. Hjör-
leifur segir þó að enn sé ekki
hægt að segja til um hvort fariö
verði fram úr áætlunum, því
enn séu um níu mánuðir eftir
að árinu.
Vegna þessa erfiöa ástands að
undanförnu hefur Vegagerbin
ekki getað staðið við þær áætl-
anir um mokstursdaga sem
kynntir hafa verið og auglýstir
og því hafa ökumenn ekki getað
treyst á þab. Hjörleifur segir að
vegagerðarmenn hafi orðið að
gera þetta, því vebráttan hafi
komib í veg fyrir að hægt væri
að halda áætlun, enda séu þær
miðaðar við þokkalega abstæð-
ur. En er þetta ekki vonlaus bar-
átta? „Já, hún er vonlaus hvaö
það varðar að við tjöldum að-
eins til einnar nætur. Víða hefur
slagurinn staðið um það að
koma flutningabifreiðum á
áfangastaði, þar sem þeir fylgja
snjómoksturstæki og síðan lok-
ast vegurinn strax á eftir lest-
inni."
Hvað varðar gagnrýni íbúa í
einstökum byggðarlögum, þess
efnis að ekki sé nægilega mikið
mokað í kringum þau og dæmi
séu til að ekki hafi verið mokað
í mánuð, segir Hjörleifur ab á
sumum stöbum þjóni það ekki
neinum tilgangi að moka. Þaö
væri hægt að senda stóra snjó-
blásara á staðina, en aðstæbur
eru þannig ab vegurinn lokast
strax fyrir aftan hann, þar sem
stöbugur skafrenningur sé.
Eins og fyrr var sagt var dagur-
inn í gær einstaklega góbur á
þeim stöðum þar sem ótíðin
hefur verib hvað mest og þá
voru öll tæki Vegagerðarinnar
sett í gírinn.
Reyndar búa starfsmenn vega-
gerðarinnar og þeir staöir sem
þeir þjóna að því að tækjakost-
urinn hefur stórbreyst með
fjölgun öflugra snjóblásturs-
tækja í landinu og því hafi nú
tekist að halda vegum opnum,
sem áður fyrr var útilokað að
gera.En það eru reyndar einka-
aðilar sem eiga stóran hluta þess
tækjakosts og þaö hefur svo
sannarlega verið vertíðarbragur
Snjórubningstækin í Húna-
vatnssýslu komust hvergi í gær-
morgun vegna óvæntrar fyrir-
stöðu, en fjölmargir flutninga-
bílar sátu fastir á löngum kafla í
sýslunni.
„Þeir hafa verið á milli tuttugu
og þrjátíu á fimm kílómetra
Stór flutningabíll frá Eimskip
lenti útaf veginum á Holta-
vörbuheiði í gærmorgun um
níuleytib. Bíllinn, sem er
dráttarbíll meb langan tengi-
vagn, var á leibinni frá
Reykjavík til Akureyrar meb
fóburgám, tæp tuttugu tonn.
„Hann reif af mér stýrið þeg-
ar ég kom hérna í beygjuna og
fór útfyrir," sagði Jóhannes
Guðmundsson, ökumabur
dráttarbílsins, þegar fréttaritari
Tímans hitti hann uppi á
Holtavörðuheiði í gær. Jó-
hannes blindaðist af snjókóf-
inu þegar bíllinn fór útfyrir
kantinn, ab sögn, og gat fátt j
annað gert en haldið sér og
vonað þaö besta.
Stór og öflugur bíll með
krana var fenginn úr Reykjavík
til ab ná bílnum upp og hafbist
það meb aðstob veghefils frá
á rekstri þeirra undanfarið.
Vegageröin hefur leigt þessi
tæki og hafa eigendur þeirra
verið ab taka inn milljónir á
mánuði í leigu. Eins dauði er
annars braub. ■
svæði," sagði Þorvaldur Böðvars-
son hjá Vegagerðinni á Hvamms-
tanga í samtali við Tímann í gær
aðspurbur um fjölda bílanna og
var greinilegt að hann var hreint
ekki kátur með þessa uppákomu.
Það var skafrenningur um nótt-
ina sem varö þess valdandi aö bíl-
Vegagerbinni í Borgarnesi en
vegagerðarmenn töluðu um að
það væri að minnsta kosti á
annan metra niður á fast þar
Nafnlausa
sveitarfélagiö:
Suöurnesbær
eba Reykja-
nesbær?
Samhliba kosningum til AI-
þingis munu íbúar í Keflavík,
Njarbvík og Höfnum greiba
atkvæbi um þab hvort sam-
einaba bæjarfélagib eigi ab
heita Suburnesbær eba
Reykjanesbær.
Álgjör samstaða var um af-
greiðslu málsins á fundi bæjar-
stjórnar og var það samþykkt
með 11 samhljóba atkvæðum
að láta kjósa um þessi bæjar-
nöfn þann 8. apríl nk. ■
amir sátu fastir í snjó. „Það var
varað við þessu í gærkvöldi, en
þeir taka ekkert tillit til þess og
keyra bara þangaö til þeir stoppa
og svo loka þeir algjörlega vegin-
um," sagði Böbvar.
- TÞ, Borgamesi
sem flutningabíllinn sat í
snjónum utan vegar. Bíllinn
mun vera óskemmdur eftir
ferðina. - TÞ, Borgamesi
Bílalest á leib subur yfir Holtavörbuheibi, laus úr prísundinni í Húnavatnssýslu. Mynd: tþ, Borgamesi
Snjómokstur taföist vegna óvœntrar fyrirstööu:
30 flutningabílar fast-
ir í Húnavatnssýslu
Flutningabíll útaf á Holtavöröuheiöi:
Reif af mér stýrið og fór útfyrir
Utaf, kolfastur og meira en metri nibur á fast. Mynd: tþ, Borgamesi