Tíminn - 11.03.1995, Síða 4

Tíminn - 11.03.1995, Síða 4
4 Laugardagur 11. mars 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugeró/prentun: ísafoldarprentsmi&ja hf. Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö ílausasölu 150 kr. m/vsk. Krafa um ööruvísi stjórn Skoðanakannanir vegna komandi alþingiskosninga birtast nú ótt og títt og er misjafnlega til þeirra vandað. Hins veg- ar eru meginlínurnar nokkuð svipaðar og að sumu leyti skýrar. Svo er til að mynda í afstöðu til ríkisstjórnarinnar. Spurningum um það efni er undantekningalaust svarað á þann veg að drjúgur meirihluti er á móti henni og af sjálfu leiðir að fáir vilja styðja hana til áframhaldandi setu. Þetta er þeim mun einkennilegra fyrir þá sök að saman- lagöir fylgjendur stjórnarflokkanna eru mun fleiri en þeir sem styðja samstarfið. Ríflega helmingur þeirra, sem segj- ast styðja Sjálfstæöisflokkinn, eru á móti áframhaldandi samstarfi vib Alþýðuflokkinn eftir kosningar. Þetta kom skilmerkilega fram í könnun sem birt var fyrir nokkru. Hins vegar voru mun fleiri kratar fylgjandi samvinnu við íhaldið, og er þá átt við hlutfall þeirra sem svöruðu og kváöust ætla að kjósa Alþýðuflokkinn. Sé litið yfir.þær kannanir í heild, sem birtar hafa verið, er mjótt á munum hvort stjórnarflokkarnir fá meirihluta í kosningunum til áframhaldandi samstarfs. Samkvæmt sumum könnunum ná þeir nægu fylgi til að framlengja Viðeyjargjörninginn, en í öðrum ekki. En meirihlutinn er ávallt mjög naumur. En út úr öllu þessu má lesa að kjósendur kæra sig ekki um áframhaldandi stjórnarsamvinnu Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, án þess þó að í ljós komi hvaða aðra kosti þeir muni kjósa. Svo virðist sem vinstri stjórn eigi erfitt uppdráttar nema með þátttöku Alþýðuflokks, og þaö er kostur sem kjósendur sýnast ekki ýkja hrifnir af, sé mið. tekið af svörum í skoðanakönnunum. Eins og andúbin á ríkisstjórninni, gengur eins og rauður þráður gegnum allar skoðanakannanir að Kvennalistinn er á leið út úr íslenskri pólitík. Hvort fylgið dugir til að koma einni til þremur konum á þing, skiptir ekki öllu máli. Tími Kvennalistans er liðinn. Tími Jóhönnu Sigurðardóttur er aftur á móti kominn og mun hún deila jafnaðarstefnunni með öðrum krötum næsta kjörtímabil, hvað sem það ann- ars kann að bera í skauti sér. Samkvæmt margendurtekinni reynslu fær Sjálfstæbis- flokkurinn ávallt mun meira fylgi í skoðanakönnunum en í kosningum. Því er lítt marktækt þótt hann hangi í kosn- ingafylginu í könnunum. Það þýðir að fylgið reytist af flokknum á kjörtímabilinu. Hins vegar er reynslan sú, að Framsóknarflokkurinn fær ávallt meira fylgi í kosningum en könnunum. Því geta fylgjendur hans veriö fullvissir um að flokkurinn mun bæta við sig í kosningum, því yfirleitt er hann mjög nærri eða yfir kosningafylgi sínu frá 1991. Að því er að gætaf, aö á milli 30-40 af hundraði þeirra, sem lenda í úrtaki kannananna, svara ekki eða láta ekki hug sinn uppi. Sá hundraðshluti kann ab ákvarða hvernig landinu veröur stjórnað næstu fjögur árin. En sé haft í huga að mikill meirihluti er á móti því að samstjórn íhalds og krata haldi velli aö kosningum loknum, er eölilegt að álykta að kjósendur varist að greiða núverandi stjórnar- flokkum atkvæði. Skylt er að taka fram að skoöanakannanir eru ekki kosn- ingar, en enginn neitar því ab þær eru marktækar til að sjá hug kjósenda fyrir. í þeim fjölmörgu skoðanakönnunum, sem birtar hafa verið, ber allt að sama brunni: kjósendum finnst áframhaldandi stjórnarsamvinna Alþýðuflokks og Sjálfstæbisflokks ógebfelld. Krafan er sú að mynduð verði öðru vísi ríkisstjórn ab kosningum loknum, en það er undir kjósendum sjálfum komið hvernig hún verður saman sett. Birgir Guömundsson: Stjórnmála- skemmtikrafturinn vitandi uppspuni. Þegar títt- nefnd frétt um framboö Þjóðvaka i Reykjavík var unnin, var Mörður Árnason einn þeirra sem blaðamaðurinn ræddi viö, og Meröi var og er fullkunn- ugt um það af öðr- um vettvangi að þessi tiltekni blaöa- maður er flokksbund- inn sjálfstæöismaður. Möröur er að því leyti óheppinn meö blaða- mann! Tíminn er vissu- lega, samkvæmt skilgreind- um samningi um útgáfuna, tengdur Framsóknarflokknum, enda þingmaöur flokksins rit- stjóri. Það er síöur en svo feimnis- mál. Tíminn býr hins vegar ekki til fréttir sem henta Framsóknar- flokknum, og því síöur hag- ræðir blaöiö stað- reyndum í fréttum sínum. Raunar hefur blaðið lagt rækt við að segja áreiðanleg- ar fréttir og umfram allt rétt- ar frétt- Skipan framboðslista stjórnmála- flokkanna fyrir kosningarnar í vor hefur verið fréttaefni í fjölmiðlum að undanförnu. Eöli málsins sam- kvæmt er þaö síöur fréttnæmt, ef skipan þessara lista gengur snurðulaust fyrir sig en ef ágrein- ingur og deilur rísa vegna skipan- arinnar. Þannig fór talsvert rúm í . aö greina frá prófkjöri sjálfstæðis- manna í Reykjavík fyrir áramót, deilurnar sem risu vegna annars sætis á lista Framsóknar í höfuö- borginni vöktu athygli, sem og það hvemig Alþýöubandalagið skipaði á sinn lista í höfuðborg- inni og þær tilfæringar sem uröu í kringum það mál allt saman. Miklu, miklu fleiri dæmi mætti nefna um fréttir af listauppstill- ingum og m.a. hefur Þjóbvaki Jó- hönnu Sigurðardóttur komiö þar við sögu, enda fréttnæmt að fylgj- ast meb framgangi framboðsmála þessa nýja framboðs. Þar hafa deil- ur sett mark sitt á umræbuna og á ýmsu hefur gengið. í raun má segja aö þar hafi ágreiningur síst veriö minni og jafnvel meiri við aö stilla upp á lista en hjá gömlu flokkunum. í Reykjavík var nokkur titringur við uppstillinguna á Þjóðvakalist- ann, en þar kom Ásta R. Jóhannes- dóttir inn í annað sætið nokkub óvænt, því almennt hafbi verið búist vib aö Sólveig Ólafsdóttir myndi verða þar. Tíminn greindi frá þessu í frétt, ásamt því aö skipt- ar skoöanir væru um þessi málalok innan Þjóövaka í Reykjavík, nokk- uð sem er ekki ósvipab því sem blaöið hefur gert, ef sambærileg tilvik hafa komiö upp varðandi framboðsmál annarra flokka. Nú, hins vegar, bregöur svo við að írambjóðandinn í þriðja sæti á lista Þjóðvaka í Reykjavík, Möröur Árnason, bregst ókvæöa við þegar hann er spurður um þessa óánægju af öðrum fjölmiblum. Hann gefur út yfirlýsingar um aö menn geti ekki tekið alvarlega fréttir úr Tímanum, vegna þess að það blaö sé skrifað á einhverri „flokksskrifstofu úti í bæ". í DV talaði Mörður um græn flokksgler- augu og í „Þriöja manninum" á Rás 2 um síöustu helgi hélt hann áfram þessum ónotum um áreið- anleika frétta Tímans. Meðal þess, sem Möröur gaf í skyn, var aö hvatirnar að baki fréttaskrifum blaösins væru að þar væru menn að hefna sín á Ástu Ragnheiði fyr- ir að hafa hætt í Framsókn. Þessi geðvonska Marðar bendir eindregiö til þess aö ágreiningur- inn vegna framboðsmálanna hafi veriö sárari en Tímafréttin gaf til- efni til að ætla, ef eitthvaö er. Og í sjálfu sér er ekki ástæöa til að gera geövonskufjasi af þessu tagi of hátt undir höfbi meö því að tala sérstaklega um það, allra síst ef viðkomandi frambjóöandi er fyrst og fremst frægur sem skemmti- kraftur, pólitískur „trúöur" Al- þýöubandalagsins á svipaðan hátt og Hannes Hólmsteinn er pólitísk- ur „trúður" Sjálfstæðisflokksins. Og þó. Gegn betri vitund Sannleikurinn í þessu máli er nefnilega sá, aö öll ræbuhöld Marðar um aö fólk skuli ekki taka alvarlega fréttir í Tímanum, vegna þess að blaðiö sé skrifað á flokks- kontórum úti í bæ og af einhverj- um annarlegum hvötum, eru vís- ir. Eina pólitíkin, sem kemst inn í fréttir blabsins, felst í ákvörðuninni um þab af hvaða málefnum viö segj- um fréttir. Launafólk og málefni félagshyggjumanna eru meðal þess sem Tíminn telur fréttnæmt, auk aö sjálfsögöu allar almennar fréttir. Mörður var um skeib ritstjóri Þjóöviljans sáluga og hugmyndir hans um blaðamennsku eru e.t.v. litaðar af þeirri reynslu. Yfirlýsing- ar hans og viöbrögð hins vegar geta ékki stafað af því að hann hafi í raun og veru haldib að fréttin um Þjóðvaka hafi „oröið til úti í bæ" og af annarlegum hvötum. Þvert á móti kýs hann að gera lítiö úr heiðarlega unnum fréttum Tím- ans, til að eiga auöveldara með að svara einhverjum spurningum um framboðsmál flokks síns. Hann beitir mjög ódýru og í raun auð- virðilegu bragði, sem meðal- mennsku-stjórnmálamenn hafa oft gert á undan honum, ef fréttir birtast um eitthvaö sem þeim finnst óþægilegt: hann skammar fjölmiðilinn fyrir óvönduö vinnu- brögð. í þessu tilfelli er þab meira að segja gert gegn betri vitund! Frambjóðandi sibbótar?! Möröur Árnason er í framboöi í alþingiskosningum fyrir Þjóðvaka, flokk sem kennir sig jöfnum höndum vib siðbót og félags- hyggju. í rauninni er það spaugi- legt, í ljósi þess hvernig maðurinn lætur. Felst kannski siðbót Þjóð- vaka í því að hagræða hlutum þannig að þeir líti sem best út fyrir flokkinn? Er þaö félagshyggja að þagga niður með öllum tiltækum ráðum umræðu og ágreining um framboðsmál? Gebvonska Marðar í garð Tím- ans ber ekki vott um að málflutn- ingurinn almennt sé vandaöur eða heiðarlegur. Siðbótarframbjóðandi Þjóðvaka getur svo sem hellt sér út í kosningabaráttuna meö því aö hreyta ónotum í blaðamenn og gera sjálfan sig breiöan með þyí aö gera lítiö úr þeirra störfum. Enda dæmir hann sig einfaldlega sjálfur úr leik meö því. Hitt er þó kannski alvarlegra, ab Möröur Árnason, sem gengur milli fjölmiöla lítils- virbandi blaðamenn í því skyni að verða flokki sínum og framboði til framdráttar, er varaformaöur siða- nefndar Blabamannafélags ís- lands. Sem slíkur situr hann í dómarasæti yfir siöferði og vinnu- brögöum blaðamannanna, sem hann er þess á milii að gefa skít í og varar fólk við aö taka mark á. Þetta er eiginlega of ömurlegt til að vera spaugilegt. í nýju hlutverki í rauninni er ekkert sem mælir gegn því, í sjálfu sér, að stjórn- málamaður sitji jafnframt í siða- nefnd Blaöamannafélagsins sem varaformabur. Hins vegar veldur Mörður miklum vonbrigöum og bregst gjörsamlega því trausti sem blaöamenn, m.a. á Tímanum, hafa þrátt fyrir allt haft á honum. En vonandi er þessi geðvonska Marðar einangrað fyrirbæri og öllum getur orðið fótaskortur, sér- staklega þegar þeir eru að byrja í nýju hlutverki og stökkva beint frá því ab vera pólitískir skemmti- kraftar með Hannesi Hólmsteini yfir í að vera alvöru stjórnmála- menn og frambjóbendur. Hvort kjósendur kunna að meta Mörð í hlutverki stjórnmálamannsins hjá Þjóðvaka á einfaldlega eftir ab koma í ljós. Hins vegar er ólíklegt aö blaðamenn taki hátíblega dómgreind hans, þegar kemur að störfum hans í siöanefnd blaöa- manna. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.