Tíminn - 11.03.1995, Side 5

Tíminn - 11.03.1995, Side 5
5 Laugardagur 11. mars 1995 Jón Kristjánsson: Að vefja Nú er kominn tími fyrir frambjóöendur til ab meta árangur síðasta kjörtímabils og kynna stefnu sína fyrir næstu kosningar. Ekki síst á þetta viö um þá sem leita eftir endurnýjuöu umboði kjósenda. „Hvab hefur oröib okkar starf, höfum vib gengið til góös, götuna fram eftir veg," eins og skáldið sagöi foröum. Atvinnuleysi og peninga- vandræbi Þab stendur upp úr eftir síðasta kjör- tímabil að sex til sjö þúsund manns eru at- vinnulausir og í einstökum byggöarlögum fer árstíöabundið atvinnuleysi í tveggja stafa tölu í prósentum. Þessi staöreynd er uggvænleg. Ástandið í þessu efni hefur breyst til hins verra á undraskömmum tíma. Ég var nýlega að glugga í fjögurra ára gamalt efni, sem tilheyröi kosningum í mínu kjördæmi, og líta yfir þær áherslur sem viö notuðum þá. Þar var getið um at- vinnumál, en hins vegar var hvergi getið sérstaklega um baráttu gegn atvinnuleysi. Takmarkið var að halda fullri atvinnu. Nú er öldin önnur, enda kemur þab fram í viðhorfskönnun, sem Gallupstofnunin gerði í mínu kjördæmi á Austurlandi, að nær 56% kjósenda nefna atvinnumál í fyrsta sæti yfir mál sem brýnast sé aö stjómmálamenn takist á við á næsta kjör- tímabili. 27% nefna samgöngumál, sem þó brenna mjög á Austfirðingum. Kjara- mál koma í þriðja sæti, sjávarútvegsmál í því fjórða og menntamál í því fimmta. Fylgifiskur atvinnumálavandans eru peningavandræði almennings, sem valda vanskilum í bankakerfinu og ekki síst í húsnæðiskerfinu. Ab hætti strútsins Strúturinn er frægur og föngulegur fugl fyrir margra hluta sakir. Eitt af einkennum hans er að stinga höföinu í sandinn, ef eitthvað óþægilegt hendir. Þessi árátta er Tímamynd GS handklæbi um höfuðib svipub eins og henti manninn, sem var í baði og gleymdi að loka aö sér og allt í einu birtist ókunnug kona. í fátinu, sem á hann kom, vafði hann handklæðinu um höfub- ið á sér. Talsmenn stjórnarflokkanna virbast vera í svipubum stellingum um þessar mundir. Það heyrist gjarnan í umræðum um at- vinnumál að atvinnuleysi hérlendis ætti eiginlega ab vera meira og ASÍ hafi ein- hverntíma spáb 25% atvinnuleysi hér- lendis. Þar aö auki sé atvinnuleysi lífsstíll, og peningavandræði og vanskil séu vegna þess ab fólk lifi um efni fram. Reyndar heyrði ég alla leið austur á land lesnar upp úr Alþýðublaðinu í Rík- _____________ isútvarpinu staðhæfing- ar um að þetta með van- skilin væri tóm vitleysa. Þetta væru allt saman gamlar skuldir. Staðreyndirnar stang- ast hins vegar á við þessa óskhyggju. Þess vegna er áríbandi að breyta um stjórnarstefnu og koma mönnum til valda, sem hafa einhverja hugmynd um þab sem er ab gerast í þjóð- félaginu. Vöxtur þjóöartekna Ein af þeim staðreyndum, sem fyrir liggja eftir kjörtímabilið, er sú að ríkis- sjóbshallinn nálgast 40 milljarba á tíma- bilinu. Ljóst er ab sú leið, ab eyða þessum halla með skattahækkunum, er ekki fær. Eina leibin til þess að ráða við hann er að auka þjóðartekjurnar og ná árangri í bar- áttunni við atvinnuleysið, sem er óhemju dýrt fyrir ríkissjóð bæði í beinum útgjöld- um og í tekjumissi. Aukning þjóðartekna er hér minni en í nágrannalöndunum. 3% aukning þjóðar- tekna á ári, eins og þar gerist, mundi skipta sköpum, bæði fyrir atvinnustig og afkomu ríkissjóðs. Slík aukning ætti að vera höfub- markmið stjórnmálamanna, sem ætla sér að ráöa málum eftir kosningar. Það er ekkert aubvelt að ná þessum markmiðum, og það er ekki von að það gerist meðan menn sitja við stjórnvölinn sem neita að taka mið af staðreyndum og ríghalda í kenningar um að atvinnulífið geti gengib, hvaö sem yfir dynji, og þeir hæfustu lifi og hinir fari á hausinn. Biess- un gjaldþrotaleiðarinnar var lengi vel aðal- leiðarljós stjórnvalda. Nýsköpun Ég er manna fyrstur til þess að viður- kenna það, að veiðitak- markanir í sjávarútvegi og framleibslutakmark- anir í landbúnaði gera erfitt fyrir að skapa fleiri störf í þessum greinum. Þó held ég því hiklaust fram að, hvorug þessara atvinnugreina sé komin að endimörkum vaxtar- ins. Þab liggja miklir möguleikar í aukinni fullvinnslu í sjávar- útvegi og þrátt fyrir mikla erfibleika í land- búnaði er leitað þar að nýjum leiðum. Hins vegar þarf ríkisvaidið að veita öflugan bakstuðning við þessa viðleitni. Þrátt fyrir þetta er ljóst ab þetta stendur ekki eitt undir því að skapa þau 12000 störf, sem þarf til aldamóta til þess að vinna á atvinnuleysinu og taka við nýju fólki á vinnumarkaðinn. Veruleg nýsköp- un í annarri starfsemi þarf að koma til. Undanfarin ár hafa þjónustugreinar tekið vib stórum hópi fólks, ekki síst opinber þjónusta. Það verður tæplega framhald á þeirri aukningu. A& gera hugmynd aö veruleika Það er kostnaðarsamt að gera góöa hug- mynd ab veruleika og fjármagn til þess Menn °9 málefni liggur ekki á lausu. Þaö er einnig flókib verkefni að stofna og reka fyrirtæki. Það er undantekning að ungt og hugmyndaríkt fólk sé með fullar hendur fjár. Það er held- ur ekki víst ab það liggi opið fyrir slíku fólki aö reka fyrirtæki. Hér þarf að koma til ráðgjöf og stofnanir sem hafa heimildir til þess að veita fé til þess ab styrkja góöar hugmyndir og til hlutafjárkaupa. Við framsóknarmenn höfum sett fram ákveðn- ar tillögur um að breyta Byggðastofnun í þróunarstofnun sem hafi þessi verkefni, og hafi einnig það verkefni að tengja saman störf atvinnuþróunarfélaga víða um land. Aðalhlutverk stofnunarinnar á að vera að berjast við vanda í atvinnumálum með því að þróa nýjar atvinnugreinar og veita ráð- gjöf og leiðbeiningar við stofnun og rekst- ur nýrra fyrirtækja. Það á ekki að skipta máli hvar þessi vandi er, gegn honum verður ab ráðast. Sjálfumgleöi ér hættuleg Stjórnarflokkarnir hafa nú ákveðiö að ganga til kosninga sjálfumglaðir og hæla sér af stöðugleika, sem aö hluta til byggir á samdrætti og atvinnuleysi, og jákvæðum efnahagsstærðum sem byggja á því aö þrátt fyrir allt er sjávarútvegurinn svo öfl- ugur að framleibsla í greininni og útflutn- ingsverömæti hefur vaxið þrátt fyrir afla- samdrátt í verbmætustu tegundinni. Þetta er firring og andvaraleysi og það er ekki hægt að afgreiöa hin alvarlegu skulda- vandamál einstaklinganna í landinu með því að þab sé lífsstíll. Stjórnmálamenn eiga aö hafa þann metnað að reyna að rífa þjóðfélagið upp úr þessu fari. Það er erfitt, en það skal takast. Hins vegar virðast ráðherrar ríkisstjórn- arinnar kjósa ab vefja handklæbinu um höfuð sér, þegar kosningar nálgast, og standa strípaðir frammi fyrir kjósendum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.