Tíminn - 11.03.1995, Side 10
10
VíNtitm
Laugardagur 11. mars 1995
Ný orbabók frá
Orbabók Háskólans
Út er komib hjá Or&abók Há-
skólans þribja bindib í ritröb-
inni Orðfrcedirit fyrri alda. Er
þar um ab ræba latnesk-íslenska
orbabók, Nucleus latinitatis,
sem Jón biskup Árnason vann
ab og lét prenta í Kaupmanna-
höfn árib 1738.
Flettiorbin eru rúmlega 19 þús-
und og var bókin upphaflega ætl-
uð til nota viö latínukennslu í
Skálholtsskóla. Hún átti ab nýtast
jafnt vib klassíska texta og ís-
lenska miöaldatexta sem skrifaðir
voru á latínu. Þrátt fyrir háan ald-
ur kemur oröabókin að góöu
gagni við latínukennslu jafnt í
framhaldsskólum sem í háskóla.
Fyrirmynd bókarinnar er sam-
nefnd latnesk-dönsk orðabók eftir
Hans Gram, prófessor í Kaup-
mannahöfn, sem gefin var út
snemma á 18. öld.
íslenska frumútgáfan er 2090
dálkar í fremur litlu broti. Megin-
flettiorð voru sett upp með há-
stöfum, en innan hverrar flettu
var afleiddum orðum rabaö í staf-
rófsröð. Til að auðvelda notend-
um aðgang aö latínunni er aftar í
nýju bókinni skrá yfir flettiorðin í
stafrófsröð (alls 19.632).
Nucleus latinitatis er afar merk
heimild um íslenska tungu á fyrri
hluta 18. aldar og sýnir góðan
þverskurb af málinu á þeim tíma.
Hún hefur því mikið gildi fyrir
sögu íslensks orðaforöa og er
ómissandi þeim sem vilja fræöast
um hana. Aftan við orðabókar-
textann er nú prentuð skrá um
flest íslensk orð sem koma fyrir í
textanum (alls 17.777).
í formála þessarar nýju útgáfu
er sagt frá ævi höfundar og störf-
Fréttir af bókum
um hans að fræðslu- og útgáfu-
málum. Þá er fjallað um oröabók-
artextann og einkenni hans og að
lokum um tilhögun útgáfunnar.
Niicleus latinitatis er 701 blað-
síba. Guðrún Kvaran, forstöðu-
maður Orðabókar Háskólans, og
Friðrik Magnússon sérfræðingur
önnuðust útgáfuna.
í sömu röö hafa áöur komiö út:
Orðabók sem inniheldur flest fágœt,
framandi og vandskilin orð er verða
fyrir í dönskum bókutn eftir Gunn-
laug Oddsson (1991) og Orðabók
íslensk- latnesk-dönsk eftir Björn
Halldórsson (1992).
Hið íslenska bókmenntafélag,
Síöumúla 21, sér um sölu og dreif-
ingu bókanna. ■
Titilsíba frumútgáfu.
i
m
NUCLEUS
tATINlTATIS,
Qyö
ileræq; Romani fermonis
/occs, cx claíTicis Auckoribus aureæ
rgenteæq; attatis, ordine Bcywoiogico
adduébe, & Interpretatione vernacuU
expofitæ comprehen-
duntur,
In ufum Scholæ Schalholtinæ,
HAFNIÆ.
Ex Reg. Majeft. & Univerfit. Typographéo,
Anno MDCCXXXVHJ.
Nibursetningar nútímans
Tveir borgarfulltrúar Sjálfstæöis-
flokksins skrifa greinar í Morgun-
blaðið 28. febrúar s.l. Tilefnið er
aö þeir vilja fjandskapast við
styrkþega Félagsmálastofnunar
og koma höggi á Svía fyrir vel-
ferðarkerfiö. Þetta eru þau Guö-
rún Zoéga og Gunnar Jóhann
Birgisson. Ég vil hvetja alla til ab
lesa þessar greinar. Ef þeir eiga
ekki fyrir blabinu, er hægt að fá
þaö lánaö á Borgarbókasafninu.
Þau telja að nú borgi sig ekki
fyrir „stóran hluta Reykvíkinga"
LESENDUR
að vinna. Ekki eru þá kjörin beis-
in sem atvinnurekendur bjóða
upp á. Sannleikurinn er, aö mikill
fjöldi íslendinga, sem eru styrk-
þegar, hafa á undanförnum ára-
tuguni flúiö land og þá aðallega
til Danmerkur, en einnig nokkuð
til Svíþjóðar þar sem þeir hafa get-
að framfleytt sér betur en á ís-
landi. Þeir hafa flúið stjórnarfar
sjálfstæöismanna.
Einn af forystumönnum sjálf-
stæðismanna var kallaður „vinur
litla mannsins". Hann sagði sjálf-
ur að þeir hefðu hrakið sig í út-
legö til Frakklands.
Meðferð íslendinga á niður-
setningum var löngum víðfræg
og stundum var ekki gott við að
gera, en nú eru komnir aðrir tím-
ar. En auðvitað verða alltaf ein-
hverjir sem vilja láta skrúfa löpp-
ina af Beinteini í Króknum.
J.M.G.
GEISLADISKAR
Ný plata frá Skífunni:
Party
Zone
'94
Skífan hf. hefur gefið út nýja
geislaplötu, sem inniheldur 13 af
betri lögum útvarpsþáttarins
Party Zone á síðasta ári. Útvarps-
þátturinn Party Zone hefur átt
miklum vinsældum að fagna hjá
skemmtanafíklum og unnendum
danstónlistar. Hann er á dagskrá
X-ins á laugardagskvöldum og í
umsjón Helga Más Bjarnasonar
og Kristjáns Helga Stefánssonar.
Tveir af bestu plötusnúöum
landsins settu „diskinn" saman í
75 mínútna stanslausa tónlistar-
veislu. Það voru þeir DJ Margeir
og DJ Grétar úr SCOPE sem hljób-
blönduðu „diskinn" með tveimur
SL-1200 Technics Vinyl- spilur-
um, sem skapa það andrúmsloft
sem plötusnúðar vinna við á
skemmtistöðum borgarinnar.
Á Party Zone '94 er þverskurbur
af heitustu lögum PZ á árinu
1994: Klúbb-tónlist eins og hún
gerist best. Meðal laganna er
topplag árslista Party Zone, Throw
meö Paperclip People, sem geröi
allt vitlaust í heitustu klúbbum
Evrópu og Bandaríkjanna. Einnig
er nýtt „mix" af laginu In the
Arms ofLove með Scope.
Flytjendur: Sagat, Jamiroquai,
South Street Players, D-Mob, Hea-
drush, S.U.A.D. (Jay-Dee), Trans-
global Underground, River Oce-
an, Paperclip People, Scope, Fire
Island, Aphrohead, Phuturescope
(DJ Pierre). ■
Bridqe
UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON -
Undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni um
nœstu helgi:
Búib að draga í riöla
Undankeppni Islandsmóts-
ins í sveitakeppni fer fram um
næstu helgi og taka 40 sveitir
þátt. Búið er aö draga í riðlana
en tvær sveitir fara upp úr
hverjum riðli í lokakeppnina
sem fram fer í Dymbilvikunni
skv. hefð. Þannig drógust sveit-
irnar saman:
A-ribill:
Tryggingamibstöðin
Roche
Metró
Björn Friðriksson
Jón Stefánsson
Hermann Tómasson
Sparisjóður Mýrarsýslu
Júlíus Sigurjónsson
B-ribill:
Slökkvit.þj. Austurlands
Kristinn Kristjánsson
Vinir og vandamenn
Samvinnuferðir-Landsýn
Jón St. Ingólfsson
S. Ármann Magnússon
Eðvarð Hallgrímsson
Óskar Elíasson
C-ribill:
Landsbankinn, Reyöarfirði
Borgey
Magnús E. Magnússon
Málning hf.
íslandsbanki, Selfossi
Rúnar Einarsson
Landsbréf
Herðir
D-ribill:
Kaupfélag Skagfirðinga
Samskipti
Dröfn Guðmundsdóttir
Stefán Stefánsson
VÍB
Ormarr Snæbjörnsson
Ólafur Lárusson
Hallgrímur Rögnvaldsson
E-ribill:
Kristján Már Gunnarsson
Kjötvinnsla Sigurðar
Borgfirskir bændur
Auðunn Hermannsson
Flugleiðir innanlands
Ólína Kjartansdóttir
Hjólbarðahöllin
Ragnar Jónsson
Hverjir komast áfram?
Það er alltaf gaman að spá
fyrir um árangur í íþróttum en
það er oft vandasamara í
bridge en öðrum íþróttum.
í A-riðli er staöan galopin og
eiga fjórar til fimm sveitir
möguleika á að komast áfram.
Sveitir Roche, TR. og Júlíusar
eru þó líklegastar.
í B-riöli má heita öruggt að
sveit Samvinnuferða og S. Ár-
manns Magnússonar komist
áfram.
Landsbréfasveitin er sterk-
asta sveit landsins og þykir
sjálfskipuð áfram úr C-riðli.
Erfiöara er að spá um annað
sætib. Umsjónarmaður tippar
á Magnús og félaga frá Akur-
eyri.
Sveit VÍB er nánast trygg í D-
riðli en litlu er hægt aö spá um
Þessir kappar verba allir í eldlínunni um ncestu helgi í undankeppni
Islandsmótsins í sveitakeppni. Þeir eru frá vinstri Abalsteinn Jörgensen,
Jón Baldursson, Gubmundur Páll Arnarson, Örn Arnþórsson,
Gublaugur R. Jóhannsson, Þorlákur Jónsson og Björn Eysteinsson.
annab sætið.
Hjólbarðahöllin og Flugleiðir
innanlands koma sterklega ,til
greina í E-riðli.
Kvennalandsliöiö valiö
Búið er að velja landslið
kvenna í bridge sem fer utan til
Algarve, Portúgal til að spila á
Evrópumótinu í sveitakeppni
17. júní til 1. júlí í sumar.
Kvennalandsliðið er skipað
Esther Jakobsdóttur, Valgerði
Kristjónsdóttur, Ljósbrá Bald-
ursdóttur, Hjördísi Eyþórsdótt-
ur, Önnu ívarsdóttur og Gunn-
laugu Einarsdóttur. Þetta er
sama liö og spilaði fyrir íslands
hönd á síöasta Evrópumóti og
náði 12. sæti þar. Fyrirliði er
Guðmundur Sv. Hermannsson.
Landslið opna flokksins er
skipab Jóni, Sævari, Jakob,
Matthíasi, Guðmundi P. og
Þorláki. Karl Sig.hj. er fyrirliði.
Hermann og Þröstur
unnu afmælismótiö
Afmælismót Lárusar Her-
mannssonar var haldið í
Þönglabakka 1 um síðustu
helgi. Hermann Lárusson (son-
ur Lárusar) og Þröstur Ingi-
marsson sigruðu eftir góðan
lokasprett meb 752 stig en aðr-
ir urðu Aðalsteinn Jörgensen
og Sverrir Áramannsson meö
733 stig. Sigfús Þórðarson og
Gunnar Þórbarson höfnubu í
þriðja sæti meö 729 stig.
Alls tóku 46 pör þátt í mót-
inu sem fór hið besta fram og
var prúðmannlegt í alla staði.
Keppnisstjóri var Ólafur Her-
mannsson (einnig sonur Láms-
ar),-
I seinni lotu afmælismótsins
kom þetta spil fyrir:
V/AV
♦ ÁD97
V 4
♦ DGT4
+ KD87
A 6543
V ÁKDG8
♦ 63
* 93
N
V A
S
4» G
V T532
♦ K98753
* T4
* KT82
V 976
* Á
* ÁG652
Sagnir gengu:
Vestur Norbur Austu r Subur
1* IV dobl ?
Hvab myndi lesandinn segja
meb spil suöurs?
Það koma nokkrar sagnir til
greina en við borðið hitti subur
á óskastundina þegar hann
lagði nibur handfylli af miöum
á borðið, 5 hjörtu. Nú var búiö
að stilla vestri upp viö vegg,
dobl makkers hafði lofað 4-lit í
spaða og 8+ punktum en það
var samt engan veginn sjálfgef-
ib ab 5 spaöar á 4-4 samleguna
myndi vinnast og 6 laufa sögn-
ina er nánast vonlaust að
finna. Þannig að eftir mikla og
kvalafulla umhugsun doblabi
vestur til sektar og útilokabi
þannig makker sinn frá frekari
sögnum.
Vestur Norbur Austur Subur
1* IV dobl 5 V
dobl pass pass pass
Útspilið var tígulás og austur
skipti í spaða. Vestur drap með
ás og gaf félaga sínum stungu í
tígli. Þá kom laufás og meira
lauf á kóng vesturs. Hann spil-
aði aftur tígli sem sagnhafi
trompaöi hátt, tók hjörtun og
átti rest. Spilið fór því þrjá nið-
ur en 500-kallinn var nánast
hreinn botn fyrir AV, þar sem
bæði 6 lauf og 6 spabar vinnast
á þeirra hendur. Það var þó
fremur sjaldgæft ab AV pörin
næðu slemmunni en 4 eða 5
spaðar (680) var algengasta
skorið.
Sögn suðurs er ekki hættu-
laus en þar sem hún fannst
veröur ekki séð að AV nái að
segja slemmuna.
Lokastaðan:
1. Hermann Láruss.-Þröstur Ingimarss.752
2. Aöalsteinn Jörgensen-Sverrir Árm.733
3. Sigfús Þóröarson-Gunnar Þóröarson.729
4. Páll Valdimarsson-Ragnar Magnússon ...711
5. -6. Sveinn R. Þorvaldss.-Vignir Haukss. ...710
S.-6. Þórir Leifsson-Óskar Karlsson.710
7. Halldór Svanbergss.-Kristinn Kristinss. ..698
8. Bjöm Þorláksson-Jón Björnsson .672.