Tíminn - 11.03.1995, Síða 11
Laugardagur 11. mars 1995
9M*s»
11
Kaupmaöur segir: Bónus er oð stela frá ríkinu. Jóhannes í Bónus:
Þetta voru mannleg mistök
Kaupmaöur, sem hafði sam-
band vib Tímann, segir aö
Bónusbúöirnar séu aö svindla
undan viröisaukaskatti. Jó-
hannes Jónsson kaupmaöur í
Bónus sagöi í gær aö hér heföi
veriö um aö ræöa mistök í
einni Bónusverslun. Ríkiö
missti ekki eina krónu. „Ef ég
ætlaði aö fara aö stela, þá
mundi maöur nú varla láta
stuldinn birtast á strimlun-
um," sagöi Jóhannes.
Kaupmaöurinn sem sendir
tvær sölunótur með bréfi til
blaðsins, aðra frá 23. janúar og
hina frá 6. mars. Á báðum nót-
unum kemur fram að Coca Cola
í 2 lítra flöskum ber 14% virðis-
aukaskatt, en á að vera með
24,5% skatti.
„Ef sölunóta-Vífilfells til Bón-
us ber 24,5% virðisauka, sem er
þá innskattur Bónus hf., en þeir
skila 14% VSK sem útskatti, þá
fá þeir mismuninn endur-
greiddan úr ríkissjóöi," segir
kaupmaðurinn.
Hann segir að Bónus hafi stát-
að af að selja milljón kókflöskur
á ári og þyrfti ekki að leggja á
nema eina krónu til að ná einn-
ar milljón króna hagnaði. Sýnir
kaupmaðurinn fram á að ef
BcSNUS
E:VíiUR BETUR
SKúTUUOGUR
SÍMI 888033
‘lCiONr I\m 5J3RNS0.
UERP
nlLLOGG/5 kOf iK -.300
16 17? 22í.h 8
i-.ok :lt.mppijt!l?.ú5
7 S 6A 2592 ;■
19 SðKTfiLS 5456
1? ShSTALS 5456
PENINGftR Í456
TIL BfiKfi 0
ÍENNITflLfl : 021144428?
V.S .K M VSK VSK fiLLS
:: = 14.02 4786 470
Oöl 03 3 8036 12:17: :10 22JftNi
2
GERTfi UERnsnMANBUR-fiB
VESIB 'ÆUGKIH flFTUR
í SúNUS
Eins og sést á þessarí kassakvittun
frá Bónus var kaupmaburínn ab
kaupa þrjár tveggja lítra kippur af
Coca Cola, trúlega fyrir verslun
sína, enda verbib lœgra en hann
fengi hjá Vífilfelli, framleibanda
kóksins.
Bónus stundi slík viðskipti sem
fyrr er lýst, þá fái verslunin
nærri 8 milljónir króna úr vö-
sum skattgreiðenda fyrir sölu á
kóki á einu ári.
„Við erum ekki sáttir við að
ein verslun sé að halda niðri
vöruverði á þennan hátt, það er
á kostnað hins almenna skatt-
greiðanda," segir kaupmaður-
inn, en hann vill ekki láta nafns
síns getið „vegna ótta við
að komast í ónáö hjá Bónus-
verslunum," eins og hann orðar
það.
„Þetta var bara í Skútuvogs-
búðinni sem þessi mistök urðu,
en tölvan reiknaði eftir sem áö-
ur 24,5% VASK á vöruna. Þetta
voru mannleg mistök. Ef ég ætl-
aði að stunda svona nokkuð,
sem er fjarri mér, þá mundi ég
ekki setja þetta á strimlana,"
sagði Jóhannes Jónsson íiBónus
ígær.
„Þessi kaupmaður virðist hafa
mikla þörf fyrir að versla hér.
Kaupmenn sækja mikið hingað
til okkar og eru stórir kúnnar.
Þar sem kaupmennirnir versla,
þar ætti neytendum að vera
óhætt," sagði Jóhannes Jónsson
að lokum.
„Strandir og
Norðurland
vestra, norb
austan sjö,
snjókoma,
frost fjögur
stig"
Frá Einari Ólafssyni, Drangsnesi.
Það má heita að íbúar hér á
Ströndum þori vart að hlusta á
veðurfréttir lengur og fá jafnvel
„grænar bólur" ef þeir sjá veður-
fræöing í sjónvarpinu.
Þó gerðust þau undur og stór-
merki í morgun að sól skein í
heiði og „bongóblíða" gefur fyr-
irheit um betri tíð.
Annars eru Strandamenn
þekktir fyrir æðruleysi og góða
kímnigáfu.
Þess vegna hafa menn dregið
upp úr pússi sínum lag og texta
eftir Bjartmar Guðlaugsson sem
er eitthvað á þessa leið:
„Hér kemur aldrei engisprettu
faraldur, Haraldur,
hér er ofkalt!
Hér koma aldrei málaðar
manncetur,
hér er ofsvalt!"
En hvort hér er um svikalogn
ab ræða, láta menn sig litlu
skipta, fagna góðum degi og
bíða spenntir eftir því hvort grá-
sleppan gefi sig í ár. 1. apríl má
hefja veiðarnar og þá ætla
menn að vorið sé komiö á
Ströndum.
í lokin má taka það fram að
heilsufar hefur verið með ein-
dæmum gott í vetur, þannig ab
elstu menn muna vart annab
eins. Samt hefur það gerst ab ör-
fáir einstaklingar hafa komist
sjóleiðina til Hólmavíkur og
komið með bakteríur og vírusa
tii baka.
Menn spyrja sig núna hvort
„pestargemíingar landsins"
muni ekki hafa vetursetu hér á
komandi vetrum og hvaða ráð-
stafanir þurfi að gera til að taka
á móti þeim! ■
Fimm efstu í unglingaflokki.
Vetrarleikar Sörla
Vetrarleikar Sörla voru haldnir á
Sörlavöllum í frábæru veðri og var
mikil þátttaka. Keppt var í tölti og
150m skeiði.
Helstu úrslit voru:
Börn:
1. Daníel Smárason og Aska.
2. Eyjólfur Þorsteinsson og Ógát.
3. Hinrik Sigurðsson og Hrókur.
4. Ómar Theodórsson og Óbinn.
5. Margrét Guðrúnardóttir og
Hrímnir.
Unglingar:
1. Sigríbur Pjetursdóttir og
Skagfjörð.
2. Hrafnhildur Gubrúnar-
dóttir og Robi.
3. Ingólfur Pálmason og Blossi.
4. Kristín Ósk Þórðardóttir og Síak.
Ungmenni:
1. Asmundur Pétursson og Rauður.
2. Sigrún Magnúsdóttir og Sjarmör.
3. Björgvin Sverrisson og Gosi.
4. Alma B. Ástþórsdóttir og Þokki.
5. Ragnar E. Ágústsson og Vorboði.
Konur:
1. Þóra Ólafsdóttir og Stjarna.
2. Halldóra Hinriksdóttir og Trygg.
3. Guðrún Guðmundsdóttir og
Muggur.
4. Anna Ólafsdóttir og Sviðar.
5. Margrét Vilhjálmsdóttir
og Arvakur.
Karlar:
1. Magnús Guðmundsson og Birta.
2. Sveinnjónsson og Hljómur.
3. Sævar Leifsson og Blakkur.
4. Ingólfur Magnússon og Tappi.
5. Sindri Sigurðsson og Geisli.
150m skeib:
1. Þorvaldur H. Kolbeins
og Hreggur 16.87
2. Jón Páll Sveinsson
ogFálki 17.17
3. Sverrir Sigurösson
og Glotti 1 7.33
4. Sveinn Jónsson
og Lúta 17.45
5. Adolf Snæbjörnsson
og Svalur 17.47
Fimm efstu í karlaflokki.
Tímamyndir. Elsa
Framsóknarflokkurinn
Kópavogur
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofan a& Digranesvegi 12, sími 41590, ver&ur opin kl. 16-20 virka
daga og 10-12 laugardaga.
Frasmsóknarfélög Kópavogs
Framsóknarflokkur-
inn í Reykjavík
Sunnudaginn 12. mars kl. 14.00 ver&ur Hei&ar Jónsson
snyrtir me& létta skemmtidagskrá á kosningaskrifstofu Fram-
sóknarflokksins vi& Hverfisgötu 33.
Á sinn létta og hispurslausa hátt mun Heibar ræ&a vi& gesti
og gangandi um ýmislegt sem vi&kemur daglegu líTi okkar
allra.
Gómsaetar veitingar á vegum framsóknarkvenna, allir vel-
komnir me&an húsrúm leyfir.
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík
Mosfellsbær —
Kjalarnes — Kjós
Kosningaskrifstofan Háholti 14 verbur opnub í dag, laugardag, kl. 13.00.
Frambjóbendur koma í heimsókn. Kaffiveitingar.
Opnunartími ver&ur framvegis virka daga 17.00-20.00 og laugardaga 13.00-20.00.
Sími 666866.
Allir velkomnir.
Aðalfundur
A&alfundur Framnes h.f., Kópavogi, ver&ur haldinn mánudaginn 27. mars n.k. kl.
21.00 a& Digranesvegi 12.
Dagskrá:
1. Venjuleg a&alfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál. Stjórnin
Félag framsóknarkvenna í
Reykjavík
Abalfundur félagsins ver&ur haldinn þribjudaginn 13. mars kl. 20.30 á kosninga-
skrifstofunni, Hverfisgötu 33.
Dagskrá:
Venjuleg a&alfundarstörf.
Önnur mál. Stjórnin
ÚTBOÐ
fVesturlandsvegur í Reykjavík,
Höf&abakki-Su&urlandsvegur,
Viöarhöföi meö undirgöng-
um og tengivegum
Borgarverkfræbingurinn í Reykjavík og vega-
málastjóri óska eftir tilbobum í byggingu undir-
ganga Viðarhöfða undir Vesturlandsveg,
gerb Vibarhöfba meb gatnamótum vib Hest-
háls/Grjótháls/Hálsabraut,
rampa upp á Vesturlandsveg og nokkra verk-
þætti á Vesturlandsvegi.
Helstu magntölur:
Gröftur - 18.000 mJ
Fylling 1 7.000 m1
Fjarlægja gamalt slitlag 3.300 m2
Steypumót 2.500 m2
Steypa 1.300 m3
Verkinu skal lokið að hluta 1. ágúst 1995, en ab
öllu leyti eigi síðar en 18. ágúst 1995.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegageröinni í
Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera), frá og
með 13. mars 1995.
Skila skal tilboöum á sama stab fyrir kl. 14:00
þann 27. mars 1995.
Vegamálastjóri
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Rá&uneytiö flytur
Frá 10. mars 1995 ver&ur utanríkisráðuneytib til húsa
ab Raubarárstíg 25, 150 Reykjavík. Símanúmer rábu-
neytisins er óbreytt: 560-99-00.
Dagana 13.-1 7. mars er inngangan frá Þverholti, en frá
og meb 20. mars frá Raubarárstíg.
Utanríkisrábuneytið,
Reykjavík, 10. mars 1995.