Tíminn - 11.03.1995, Qupperneq 18

Tíminn - 11.03.1995, Qupperneq 18
18 wunmi Láúgardagur 11. mars 1995 KROSSGÁTA r~ -r- n ■r g p ' ■ ■ \. ■ P ■ r _ ■ " 272. Lárétt 1 starfandi 5 hir&uleysi 7 viö- kvæma 9 bogi 10 lausamjöll 12 feiti 14 sál 16 merk 17 megnar 18 þakhæö 19 eyri Lóbrétt 1 blástur 2 lofi 3 orku 4 þykkni 6 dræmt 8 galgopi 11 auöur 13 nem 15 beö Lausn á síöustu krossgátu Lárétt 1 rösk 5 eldur 7 refi 9 gá 10 trafs 12 aumi 14 önn 16 lán 17 dytti 18 bit 19 arg Lóörétt 1 rýrt 2 sefa 3 klifa 4 hug 6 rák- in 8 erindi 11 sulta 13 máir 15 nyt t ANDLAT Pétur Guömundsson lést á Sólvangi 2. mars. Rebekka Friöbjarnardóttir, Aöalgötu 5, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja aö- faranótt föstudags 3. mars. Agnar Kjartan Hreinsson, Hrafnistu í Reykjavík, áður Leifsgötu 14, lést 3. mars. Gísli Ólafsson frá Eyri í Svínadal, áöur til heimilis aö Droplaugarstöö- um, lést 3. mars. Gísli Kristinsson andaöist þann 24. febrúar sl. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey. Vilborg Runólfsdóttir frá Hvammsvík andaöist á Hrafnistu í Reykjavík laugar- daginn 4. mars. Þóra Mýrdal, Hátúni 12, er látin. Jónína Steinunn Siguröardóttir, Óöinsgötu 21, Reykjavík, lést á hjúkrunardeild Landa- kotsspítala föstudaginn 3. mars. Jón Jónsson, Broddanesi, er látinn. Útför- in hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hans. Erlingur Valur Árnason, Sólheimum 40, lést í sjúkra- húsinu á Egilsstöðum 3. mars. Gísli Kristinsson frá Hlemmiskeiði andaöist þann 24. febrúar sl. Jaröar- förin hefur fariö í kyrrþey. Guömundur Guðmundsson, fyrrverandi stýrimaöur, Týs- götu 8, lést í Borgarspítalan- um laugardaginn 4. mars. Dagmar Kr. Hannesdóttir, Aflagranda 40, lést í Land- spítalanum 24. febrúar. Út- förin hefur fariö fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Kristín Eggertsdóttir, Snorrabraut 73, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum sunnudaginn 5. mars. Guörún Elísabet Vormsdóttir, Lyngbrekku 12, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum að- faranótt 7. mars. Hermann Guöjónsson, Langholtsvegi 146, Reykja- vík, lést í Borgarspítalanum 28. febrúar sl. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey. Björn Júlíusson barnalæknir, Stóragerði 11, er látinn. Valgeir Sigurösson kennari, Seyöisfiröi, lést í Landspítalanum 7. mars. Hulda Marvinsdóttir, Uppsölum. Eyjafjarðarsveit, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. mars. Svanborg Sæmundsdóttir vefnaöarkennari, Furugrund 34, lést að kvöldi 8. mars í Borgarspítalanum. Snorri S. Welding lést 26. febrúar. Útförin hef- ur fariö fram í kyrrþey að ósk hins látna. Magnús Brynjólfsson, Vífilsgötu 22, Reykjavík, lést í Landspítalanum 8. mars sl. fff ÚTBOÐ Endurnýjun veitukerfa og gangstétta. Áfangi 1 1995 Árbæjarhverfi F.h. Hitaveitu Reykjavíkur o.fl. er óskaö eftir tilboöum í endurnýj- un dreifikerfis hitaveitu og jarövinnu fyrir rafveitu og síma auk yfir- borðsfrágangs í eftirtöldum götum: Ystibær, Heibarbær, Fagribær, Glæsibær, Þykkvibær, Vorsabær, Hlaðbær og Hábær. Helstu magntölur eru: Lengd hitaveitupípna 9.500 m Skurðlengd 5.100 m Gangstéttarsteypa 2.700 m2 Malbikun 1.200 m2 Útbobsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykja- vík, gegn kr. 15.000 skilatryggingu. Tilbobin verba opnuö á sama stab þriöjudaginn 28. mars 1995, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Elskuleg móbir mín Halldóra Kristín Sturlaugsdóttir Hamarsholti andaöist á Ljósheimum, Selfossi, ab morgni 9. mars. Guöbjörg Kolbeinsdóttir V ^ Brœbrominning: Gunnar og Bergur Þorsteinssynir Gunnar Þorsteinsson Fæddur 20. september 1907 Dáinn 8. febrúar 1995 Nú er kveikur Gunnars Þor- steinssonar uppbrunninn, en oft lá viö aö Gunnar yrði kvaddur héöan, en hans tími var ekki kominn. Þegar Gunnar var barn að aldri, lagöist kíghósti mjög þungt á hann og var hann þá milli heims og helju í sjö vikur í gæslu móður sinnar. Þegar Gunnar var ungur maður kenndi hann sjúkdóms í skjald- kirtli og bar hann merki hans alla tiö. Eins og fram er komiö annars staðar, þá reyndi það mjög á Gunnar ab ienda í snjóflóði meö Sigga á Kvískerjum, en honum lánaöist að losna úr flóöinu og sækja hjálp, svo tak- ast mætti að bjarga Sigurði, sem sat fastur í flóðinu, en söng sálma sér til dægrastyttingar svo björgunarmenn gátu runniö á hljóöið. Þrátt fyrir þá heilsufarserfiö- leika, sem ég hef nú talið, lét Gunnar ekki bugast og tók öll- um erfiðleikum með æðruleysi og geröi jafnvel gys að öllu saman. Nú, þegar ég spóla til baka, ef svo mætti segja, koma margar minningar upp í hugann. Ég minnist þess aö í gamla torf- bænum á Litia-Hofi bjó dæmi- gerð stórfjölskylda. Ef ég byrja á ab telja þá sem eldri voru, vil ég nefna Sigrúnu, móður þeirra systkina Gunnars, Gróu og Jórunnar eldri (stóru). Þá vil ég nefna Jónsa gamla og dóttur hans Sigrúnu, konu Gunnars, og börn þeirra Höllu, Sigurjón og Bryndísi. Loks vil ég nefna Jórunni yngri (litlu), sem var á þessum tíma tilvonandi eigin- kona mín. Ekki man ég lengur nákvæmlega hvenær Schram- börnin komu eða fóru, þó veit ég aö Bjöggi var í átta sumur á Litla-Hofi og Óli í sjö, aö ógleymdri Möllu heitinni, auk annarra barna. Síöar bættust börn okkar Jórunnar í hópinn. Jónas var oftast og lengst, eöa frá því að hann kom kornabam með móður sinni fyrst, Rúnar heitinn var eitt sumar að Litla- Hofi og Bergur okkar dó fyrir austan 1960, þá á ööru ári. Val- geröur og Bergþór hafa ekki lát- iö sig vanta, en hafa haft styttri viðkomur. Nú, þeir eldri voru kallaðir yf- ir móöuna miklu hver af öörum og aörir fluttu burt. Þannig er gangur lífsins. Segja má að ég hafi orðið fyrir menningarsjokki, eins og nú er sagt, þegar ég kom fyrst í Ör- æfasveit 1954. Til að skýra þann heim, sem ég er sprottinn úr, vil ég vitna í bók Asa í Bæ, en þessi tilvitnuö orö hans gæti ég vel gert aö mínum: „Loks þegar haföi tekist aö reka fénaðinn inn í stofuna og setjast í bekki byrjuöu hijóm- leikarnir: nokkrir lömdu í borð- in, aðrir blístruðu, sumir span- góluöu, bauluöu og þeir sem músikalskir vom sungu fullum hálsi, en þau sem ekki höföust aö verklega hlógu eins og idjót- t MINNING ar." (Skáldað í sköröin, bis. 149. Iðunn 1978) Það voru önnur gildi í háveg- um höfð í Öræfum, en Ási í Bæ lýsir í bók sinni. í sveitinni lærðu börnin lexíurnar sínar upp á tíu og fólk leysti störf sín af hendi af alúö og samvisku- semi. Ráðdeildarsemi og nýtni var mikil, sem mér fannst á þessum tíma ganga úr hófi fram, en síöar læröist mér aö skilja gildi sparnaðar og ráð- deildarsemi. Þaö væri sennilega betur komið þjóðarbúskap Is- lendinga, ef sjónarmið Öræf- inga hefðu komist betur að. En þarna mættust ólíkir menning- arheimar. Sláninn úr Vest- mannaeyjum, grindhoraöur eft- ir erfiða vertíö og nýtrúlofaður aö auki, en Gunnar í sínum Ma- ójakka og á sínum gúmmískóm sem þá tíðkuðust í sveitinni (límdir úr bílslöngum og hafa veriö nefndir dreifbýlistúttur eða framsóknarbullur í slangur- orðabókum). Gunnar fór hratt yfir þegar eitthvað stóð til, en hann minnti mig oft á þekktan skopleikara þegar hann fór mik- inn, en ég held að þeir hafi ekki vitaö mikið hvor af öbrum. Ekki þarf að orðlengja það, að með okkur Gunnari tókst ágæt- ur vinskapur sem hélst alla tíð, þó að ferðirnar austur yrðu strjálli meö árunum. Ég fékk stundum að grípa í verk með heimilisfólkinu við heyskap og annaö. Gunnar var mikill verk- maður, en með honum fékk ég að kynnast byggingu útihúsa úr torfi og grjóti að gömlum siö. Ennfremur fengumst við við aö rista og fletta rekaviðardrumb- um með stórviöarsög. Lengi var í gangi dráttarkerra að Litla- Hofi, sem viö Gunnar, Sigurjón o.fl. áttum mörg handtök í. Að fara í sel var sérstakt ævintýri, en ekki verður fjallað um verk- manninn Gunnar Þorsteinsson nema að geta þess hve gott lag hann hafði á að beita orfi og ljá. Ljáförin voru breiö, en fremur stutt, og þegar Gunnar var í góðu formi þá óð hann áfram. Það beit hjá honum. Það hefur komið fram að Gunnar gekk aldrei heill til skógar og hefur þaö plagaö hann þó aö hann væri ekki aö kvarta, en konurnar og krakk- arnir á Litla-Hofi stóðu þétt að baki bónda sínum og gengu í öll störf jafnt eftir því sem ástæöa var til, án þess að múöra. Hann var óárennilegur Litla-Hofsherinn, þegar hann fór fram vollinn grár fyrir járn- um, vopnaður sínum handverk- færum. Gunnar og hans fólk reynd- ust minni fjölskyldu vel alla tíð. Þó er tvennt sem stendur upp úr, en það var þegar drengurinn okkar Jórunnar, Bergur, dó rúmlega ársgamall, en ég víðs- fjarri á síldveiöum. Þá var þab Gunnar og annaö tengdafólk sem tók aö sér aö sjá um þab, sem mér annars hefði borið. Ef til vill hef ég ekki gengiö fast fram í því að fá mig leystan undan skyldum mínum á sjón- um, eða mig hefur brostið kjark til að sjá á eftir barninu mínu ofan í gröfina. Þá vil ég nefna þegar Gunnar tók sér langa ferð á hendur til að styrkja okkur í sorg okkar og vera viðstaddur og fella tár yfir moldum sonar okkar Jórunnar, Rúnari, en hann fórst í slysi 1980, í blóma lífsins. Sagt er að tíminn græði öll sár, en það er ekki rétt, sum sár eru svo djúp aö þau gróa aldrei til fulls. Gunnar haföi góban smekk fyrir gamansögum og var ævin- lega með eina góða þegar mað- ur leit inn, en hann hafði nokk- uð fyrir því að segja sögu vegna sjúkdóms sem bagaöi hann við frásögnina. En þegar Gunnar sagbi sögur, hló hann svo hjart- anlega smitandi hlátri, að hann var ekki kominn nema í miðja sögu þegar allir viðstaddir grétu af hlátri. Stundum svelgdist honum á og varð að taka sér hlé meðan hann jafnaði sig. Það er ekki laust við aö þá hafi manni fundist gamanið vera farið að grána. En svo kom botninn í söguna og allir skemmtu sér konunglega. Fyrir mörgum árum leitaði Gunnar sér lækningar hér í Vestmannaeyjum og hitti þá fyrir kunnan hrekkjalóm héðan úr Eyjum. Þeir drengirnir létu sér ekki leiðast, þó að á sjúkra- húsi væru, og fundu sér ýmis- legt til dundurs. Þeir gerðu tölu- vert af því að spila, en þriðji spilafélaginn var eldri dama úr Eyjum, sem tapaði næstum allt- af. Hún var heldur tapsár, en þeir höfðu gaman af. Þetta hafði þann dapurlega enda, að þeir félagarnir hlógu svo mikið aö magasáriö rifnaði á hrekkja- lómnum og þeir félagar voru settir í straff og sviptir fótavist- arleyfi. Ég hef talað um valkyrjurnar á Litla-Hofi, en þær sem yngri eru ætla ekki ab vera neinir eft- irbátar. Þær Sigrún Logadóttir og Sólrún Sigurjónsdóttir, barnabörn Gunnars, hafa lagt fyrir sig sjómennsku og líkar vel, ab ég held. Þaö var fyrir nokkru, aö starfsmenn og vistmenn Skjól- garðs lyftu rauðvínsglösum við hátíðlegt tækifæri. Þá hafbi Gunnar orö á því að hann hefði sneitt hjá rauövíninu í sjötíu ár vegna slæmrar reynslu sinnar þegar hann komst í rauðvín- skútinn af fjörunni forðum. Ég tel að Gunnar hafi gert sér vel grein fyrir aö endalokin voru í nánd. Þegar hann frétti lát vinar síns, Þórðar rakara, varð honum ab orði: „Nú, hann var nú miklu yngri en ég." Kæra Sigrún. Þú hefur lifað tímana tvenna. Margir vinir og venslamenn hafa nú fariö yfir móöuna miklu, eða flutt brott og nú horfir þú á eftir þínum lífsförunaut, sem þú hefur gengiö með gegnum þykkt og þunnt. Þaö er mikil reynsla og hlýtur ab snerta hvern mann djúpt sem fyrir veröur, en þetta er gangur lífsins, sem viö fáum ekki ráðið við. Ég er viss um aö það er fjöldi fólks, sem hugsar hlýtt til þín og annarra aö- standenda Gunnars á þessum erfiöu tímum. Ég votta þér og öðrum abstandendum Gunnars samúð mína. Bjami Jónasson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.