Tíminn - 11.03.1995, Blaðsíða 19
Laugardagur 11. mars 1995
$tlS$Í9l$t
19
C unnar Þorsteinsson.
Bergur
Þorsteinsson
Fæddur 22. júlí 1903
Dáinn 15. febrúar 1995
Eöli málsins samkvæmt um-
gekkst ég tengdafööur minn
minna en Gunnar bróöur hans,
en fram er komiö aö Jórunn
konan mín ólst upp frá tveggja
ára aldri á heimili Gunnars. Má
segja, að í rauninni hafi Jórunn
átt tvö heimili.
Auövitaö bar viö að fundum
okkar Bergs bar saman, en ég
haföi þaö á tilfinningunni aö
Bergur vildi helst vera útaf fyrir
sig meö sitt grúsk, sem fáum
var hleypt í. Sem dæmi um ólík
viöhorf Bergs, þá vildi hann
skrúfa fyrir útvarp þegar ég
kaus aö hlusta á fjöruga tónlist,
Bergur Þorsteinsson.
þá helst í stereó og stilla hátt,
en oft hefur verið sagt við
mann: „Er ekki hægt að
lækka?" Þó aö Bergur væri held-
ur fáskiptinn, þá bjó hann fjöl-
skyldu sinni, barnabörnum og
öðrum gott heimili, en fátt er
kaupstaðarbörnum mikilvæg-
ara en aö fá að komast til sum-
ardvalar á góðu sveitaheimili.
Rúnar heitinn, sonur okkar
Jómnnar, fékk aö dveljast mörg
sumur heima á Bæ, eins og sagt
var á Litla-Hofi um heimili
Bergs og Pálu. Bróðir Bergs,
Magnús, bjó meö sinni fjöl-
skyldu á sama hlaðinu og er
óhætt aö segja að oft hefur ver-
ið líflegt á Austurhúsahlaðinu
þegar krakkaskarinn var aö
ærslast.
Þó aö Bergur hafi verið nokk-
uö alvörugefinn, að ég tel, þá
bættu þeir Magnús bróöir hans,
sem bjó meö honum félagsbúi,
hvor annan upp, en Magnús
var spaugsamur, þó aö hann
væri ekki jafn mikill sagnamaö-
ur og Gunnar. Mér er kunnugt
um að Magnús var að pukrast
viö aö kenna Rúnati stökur.
Gullkornin skráði Rúnar í
blokk, sem hann geymdi vel.
Ekki er ég viss um aö allir hafi
talið að þessar vísur hafi haft
mikiö uppeldislegt gildi.
Ég tel að Bergur hafi átt
vanda til að taka nokkuð inn
á sig þegar aðrir fóru ógæti-
lega. Þannig var þegar hann
og Gunnar lentu í margfræg-
um rauðvínskút. Bergur, grand-
var að vanda, gætti þess aö
halda sér mátulegum og fara
ekki yfir strikiö, en litli bróöir
hans af óvitaskap haföi sopiö
drjúgt á. Síðar kvartaði Gunnar
undan því að hann hefði verið
sídettandi á heimleiðinni. Þá
varð Bergi aö orði: „Þér var
nær."
Þegar Gunnar var að gera sig
kláran fyrir ættarmót afkom-
enda Sigrúnar Jónsdóttur og
Þorsteins Gissurarsonar, sem
haldiö var í fyrrasumar viö mik-
inn fögnuö, sagöi Bergur viö
„litla" bróöur; „A nú aö fara aö
drekka vín."
Börnin níu: Örn, Helga,
Þrúða, Guðjón, Steinn, Jórunn,
Guðrún, Sigrún og Palli, barna-
börnin tuttugu og fimm, barna-
barnabörnin níu, svilar, Gerða
og Brynja og aðrir vandamenn.
Ég votta ykkur samúö mína viö
fráfalls aldins höföingja og ást-
vinar.
Bjami Jónasson
DAGBÓK
rJ'JWVAAJ'JUUVAJUU
Lauqardaqur
uqardaqi
1l
mars
70. daqur ársins - 295 daqar eftir.
10. vika
Sólris kl. 08.02
sólarlag kl. 19.15
Dagurinn lengist um
6 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Leikritið Reimleikar í Risinu sýnt
þriðjudag, fimmtudag og laugardag
kl. 16, sunnudag kl. 18.
Sunnudag í Risinu: Bridskeppni
kl. 13 og félagsvist kl. 14.
Dansað í Goðheimum kl. 20.
Brei&firbingafélagi&
Félagsvist á morgun, sunnudag,
kl. 14 í Breiðfirðingabúö, Faxafeni
14.
Bláa nótan, Grensás-
veqi
Hljómsveitin Stykk frá Stykkis-
hólmi mun sýna snilli sína á Bláu
nótunni, Grensásvegi 7, í kvöld.
Hinn frábæri píanisti, Ragtime Bob,
mun leika fyrir matargesti frá kl. 20.
Einnig munu Maggi og Þórunn frá
Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar
sýna suöur- ameríska dansa og
tískusýning verður frá versluninni
Ég og þú. Ath. frítt inn á dansleik
fyrir matargesti, kr. 500 fyrir aðra.
Á sunnudagskvöld verður alvöru
danskvöld haldið á Bláu nótunni frá
kl. 22. Spilaöir verða samkvæmis-
og gömludansarnir. Fjölbreyttur
matseðifl er á boðstólum fyrir þá
sem vilja til kl. 23. Ath. enginn að-
gangseyrir.
Samkoma í Fíladelfíu-
kirkjunni í kvöld
í kvöld, laugardag, verður sam-
koma í Fíladelfíukirkjunni og hefst
hún kl. 20.30. Samkoman er liður í
samkirkjulegu bænavikunni, sem
nú stendur yfir. Ræðumaður kvölds-
ins verður Eric Guömundsson, for-
stöðumaöur Aðventsafnaðarins.
Fulltrúar hinna ýmsu safnaða lesa
ritningarorð og flytja bænir. Heima-
menn leiöa almennan söng og lof-
gjörö.
Tilgangur bænavikunnar er m.a.
að efla einingu og vináttu kristinna
manna og eru allir hjartanlega vel-
komnir.
Einar Már Gu&munds-
son í Deiglunni á Akur-
eyri
í dag, laugardag, stendur Gilfélag-
ið ásamt Máli og menningu fyrir
bókmenntakynningu í Deiglunni á
Akureyri. Handhafi Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs, Einar
Már Guðmundsson, les úr verkum
sínum bæöi gömlum og nýjum.
Kristján Kristjánsson flytur inn-
gangsorð, Kristján Pétur Sigurðsson,
Haraldur Davíðsson og Þórarinn
Hjartarson syngja og spila. Dagskrá-
in hefst kl. 16 og aðgangur er
ókeypis.
Gu&sþjónusta í Dóm-
kirkjunni á morqun
Undanfarið hefur staoiö yfir sam-
kirkjuleg bænavika um einingu
kristinna manna og lýkur henni á
morgun, sunnudag, með guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni kl. 11. Prédik-
un flytur Hafliði Kristinsson, for-
stöðumaður Hvítasunnusafnaðar-
ins, og sr. Hjalti Guðmundsson
þjónar fyrir altari. Fulltrúar hinna
kristnu safnaða lesa ritningarorð.
Organleikari verður Marteinn H.
Friðriksson, dómorganisti, sem
stjórnar söng Dómkórsins, sem leið-
ir sönginn og syngur m.a. lag
Hjálmars H. Ragnarssonar, Jesús,
sonur Maríu við ljóð Jóhannesar úr
Kötlum,
Tónsmi&ja í Ger&ubergi
Tónsmiöurinn Hermes hefur nú
sett saman nýja tónlistardagskrá
fyrir börn á aldrinum 3-10 ára. Tón-
skáldiö Atli Heimir Sveinsson verö-
ur að þessu sinni heiðursgestur Tón-
smiöjunnar og verða tónleikar
töframannanna í Menningarmið-
stööinni Gerðubergi sunnudaginn
12. mars, kl. 15. Á efnisskrá tónleik-
anna eru m.a. barnalög eftir Atla
Heimi úr leikritinu Dimmalimm
kóngsdóttir og Kvæðiö um fuglana
viö ljóð Davíðs Stefánssonar. Einnig
spila þeir saman og syngja ný lög
eftir tónskáldið. Aörir gestir Tón-
smiðjunnar eru nemendur úr Nýja
Tónlistarskólanum og spila þeir lítið
tríó eftir Joseph Haydn.
Dagur harmonikunnar
verður haldinn í Danshúsinu við
Glæsibæ v/Álfheima á morgun,
sunnudag, kl. 15. Leikin verður létt
tónlist úr ýmsum áttum og eru flytj-
endur á öllum aldri. Fram koma
Léttsveit Harmonikufélags Reykja-
víkur, auk ýmissa minni hópa og
einleikara. Kaffiveitingar.
Aukasýning á Karnivali
dýranna í Njar&vík
I síðustu viku fluttu Tónlistarskól-
inn í Keflavík og Jassdansskóli Emil-
íu hið sívinsæla og þekkta verk:
Karnival dýranna, eftir franska tón-
skáldið Saint-Saens í félagsheimil-
inu Stapa í Njarðvík. Viðtökur voru
frábærar og var uppselt á allar 3
sýningarnar. í framhaldi af því var
ákveöiö að hafa aukasýningu annað
kvöld, sunnudag, í Stapa kl. 20.
Miðasala opnar í Stapa ki. 19 sama
dag.
Málþing um gæ&a-
stiórnun í skólum
Mánudaginn 13. mars verður
haldið málþing á vegum NKHÍ um
gæðastjórnun í skólum. Veröur það
haldið í Skála Kennaraháskólans og
hefst klukkan 20. Fyrirlesarar verða:
Börkur Hansen dósent, Guðrún
Alda Harðardóttir, form. Félags ísl.
leikskólakennara, Smári Sigurðsson
frá Gæðastjórnunarfélagi íslands, og
Hannes Þorsteinsson grunnskóla-
kennari (svo fremi hann forfallast
ekki vegna samningafundal). í lokin
gefst kostur á fyrirspurnum og um-
ræðum. Kaffi og kökur í hléi. Allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Fyrirlestur í Norræna
húsinu
Mánudagskvöldið 13. mars kl. 20
verður í Norræna húsinu haldinn 7.
fyrirlesturinn af 8 í röb fyrirlestra og
fræöslufunda um byggingarlist og
hönnun. Þaö eru Arkitektafélag ís-
lands, byggingarlistardeild Lista-
safns Reykjavíkur og Norræna húsið
sem að þessum fyrirlestrum standa.
Fyrirlesari marsmánaðar verður
breski arkitektinn Peter Wilson, sem
ásamt konu sinni Julia Bolles starfar
í Miinster í Þýskalandi. Hann mun
sýna og tala um verk þeirra, en þau
er að finna í Englandi, Þýskalamji
og Japan. Fyrirlesturinn er ókeypis
og öllum opinn.
Fréttir í vikulok
Hagnabur hjá Eimskip og
aukin umsvif
Hagnabur Eimskipafélags íslands nam 557 milljónum kr. á
síðasta ári og er aukning um 189 milljónir frá síóasta ári. Þetta
svarar til um 5,5% af rekstrartekjum. Þá keypti dótturfyrirtæki
Eimskips 80% hlutafjár í erlendu flutningsmiölunarfyrirtæki,
en þaö er vel þekkt á hollenskum flutningsmarkaði.
Siglfirbingar meb sérlista
Unnið er að sérframboði á Siglufirði fyrir alþingiskosning-
arnar, þar sem Siglfiröingar eru gramir yfir að hafa engan
þingmann. Ef af verður, verður framboðið þverpólitískt og
hafa ýmis nöfn verib nefnd í fyrsta sætið. Alls eru 11 kjósend-
ur á Siglufirði og litlu munar að þeir kæmu manni á þing ef
samstaða næst.
Stígamót minna á sig
Stígamót efndu til göngu gegn kynferðisofbeldi á baráttu-
degi kvenna, .8. mars. Forstöðukonur samtakanna eru
óánægðar meb kerfið og segja að neyðarþjónusta þeirra hafi
veriö afþökkuð af neyðarmóttöku Borgarspítalans.
Ingi Björn úr leik
Ingi Björn Albertsson hyggst ekki í sérframboð, eins og
hann hafði stefnt að fyrir alþingiskosningarnar í apríl. Hann
ætlar að draga sig tímabundið í hlé frá stjórnmálum og helga
sig fyrirtækjarekstri sínum.
Fé lagt til höfubs
bruggurum
Samtökin Stöðvum unglingadrykkju heita verblaunum fyrir
upplýsingar sem leiða til handtöku bruggara. Ábendingin er
metin á 10.000 kr. og er nafnleynd heitið. Þetta er liður í bar-
áttu samtakanna gegn vímugjöfum.
íþróttamabur Reykjavíkur aöeins
12 ára gamall
Guðmundur Stephensen er yngsti íþróttamaður sem kosinn
hefur verið íþróttamaður Reykjavíkur. Hann er aðeins 12 ára
gamall og hefur náð framúrskarandi árangri í borðtennis.
Súbvíkingar flytja inn
Fyrstu íbúarnir fluttu inn í sumarhúsin sem komib hefur
verið fyrir á Súðavík í vikunni. Sumarbústaðimir verða heim-
kynni 68 Súðvíkinga næstu mánuði, en alls eru bústaðirnir 18
talsins.