Tíminn - 01.04.1995, Qupperneq 5

Tíminn - 01.04.1995, Qupperneq 5
5 Laugardagur 1. apríl 1995 Wmmu Sjálfstæðisflokkurinn rekur kosningabar- áttu sína á þeim forsendum að nú ríki stöð- ugleiki, sem haldist með því einu móti aö kjósendur ljái flokknum atkvæði sitt í kom- andi kosningum. Einnig er vitnað í for- ustuhæfileika Davíös Oddssonar, sem bor- ið hefur smjör á tunguna á sér til þess að vera mjúkmáll og ísmeygilegur. Sjálfstæðis- menn halda fram hæfileikum hins mikla og elskaða leiðtoga. Raubhetta og úlfurinn Sjálfstæðisflokkurinn tók Alþýðuflokk- inn upp á arma sína eftir síöustu kosningar. Lykillinn að því var sá að bjóða vel, og eft- ir aö fimm ráöherrastólar voru í bobi var björninn unninn. Ekkert gat komiö í veg fyrir stjórnarsamstarfib. Jóhanna Sigurbar- dóttir var engin undantekning og allt tal um félagshyggjustjórn var víðs fjarri þá, þó að félagshyggjuflokkarnir héldu meirihluta sínum. Hins vegar varö með Alþýöuflokkinn eins og Rauðhettu forðum ab hann gekk í gin úlfsins. Davíð Oddssyni hefur tekist meistaralega að koma öllum vondum mál- um á kratana og þykjast sjálfur hvergi nærri koma. Honum hefur tekist mjög vel að gera lítib úr samstarfsflokknum, þegar þab hentar honum. Hann segir Jón Baldvin róa á þurru landi, en hvaða bátsformabur mundi ekki segja upp slíkum háseta? Auð- vitab ber Sjálfstæðisflokkurinn fulla ábyrgð á krötunum og þeirra geröum. Tilvísanakerfib Gott dæmi um þetta er tilvísanakerfib fræga. Stjórnarflokkarnir samþykktu ab koma því á og öttu Sighvati á foraðið, enda er hann vanur maður og búinn aö koma 2800 milljónum króna í heilbrigðiskostn- aði yfir á notendur, með fullum stubningi Sjálfstæbisflokksins. Læknastéttin trylltist og áreiðanlega hefur síminn gengið glatt hjá frambjóbendum Sjálfstæðisflokksins, og því fleiri hringingar eftir því sem kosn- ingar nálgast. Á endanum lýsti hinn trausti leiðtogi stöbugleikans, Davíb Oddsson, yfir því að meirihluti þingflokksins væri á móti tilvísunarkerfinu. Þar með skildi hann Sig- hvat eftir í miðri ánni. Landbúnaburinn í landbúnaðarmálunum fann Halldór Blöndal fljótlega inn á það, að þaö væri lík- legt til vinsælda aö rífast við Jón Baldvin, sem virkar eins og rauð dula á landsbyggö- arfólk. Þessa kappræðu þreyttu þeir löng- um um svínakjöt og kalkúnalappir, og bændur voru ánægöir með strákinn Halldór. Hitt kemur svo aubvitað í ljós, þegar farib er ab gera upp stjórnarvertíð- ina, að búvörusamning- urinn hefur verib þver- brotinn og engin vitn- eskja um það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn vill að nýr búvörusamningur líti út. Ástandið í landbúnaðinum er væg- ast sagt slæmt, og ekki gengur lengur að skrifa það á reikning þess að Framsóknar- flokkurinn hafi farið með forustu í þessum málum, því sjö ár em liðin síðan þeir stýrðu landbúnaðarráðuneytinu. Sjávarútvegurinn Þar hefur komib í hlut Þorsteins Pálsson- ar ab berjast vib krata, og hefur sá leikur tekið til hafsvæðisins frá Barentshafi í austri til Nýfundnalandsmiða í vestri. Þor- steinn og Jón Baldvin hafa ekki verið sam- mála um nokkurn skapaöan hlut, og hinn mikli og staðfasti leiðtogi stöðugleikans Davíð Oddsson hefur séð þann kost vænst- an aö segjast vera sammála báöum. Það var reyndar eftir að boriö var smjör á tunguna á honum fyrir kosningarnar. Hins vegar hefur þetta rifrildi stórskaðaö sjávarútveg- inn heima og heiman. Stöðugar bollalegg- ingar um grundvallarbreytingar í sjávarút- vegsmálunum hafa tafib fyrir því að naub- synlegar lagfæringar væm gerðar á fisk- veiöistjórnuninni, svo sem ab lagfæra hlut báta á aflamarki, sem er nauðsyn, og afnám hagræðingarsjóðsins, sem átti að mæta áföllum m.a. í einstökum byggðariögum, var stórslys. Evrópumálin Kratarnir reka sína kosningabarátm á Evrópumálunum og vilja sækja um abild að Evrópusambandinu hið fyrsta. Til þess að lempa kjósendur til stuðnings við þetta, er sagt að þetta eigi aðeins að vera til reynslu, tií þess aö vita hvað langt megi komast með þá í Brussel. Jón Baldvin, Össur og Þröstur ráfa um meb matarkörfur í stórmörk- uðum til þess ab sýna fram á stórgróba neyt- enda við inngöngu í bandalagiö, en glöggir blaðamenn m.a. hér á Tímanum sýndu fram á að þetta var auðvitaö tómt mgl. Ríkisstjómin hefur komið fram klofin í þessu máli um langt skeið, og á meðan hefur hún ekki verið tekin alvarlega á erlendum vettvangi. Á láglendinu eba upp í fjall Sambúbin á stjómarheimilinu minnir um margt á samskipti bræbranna á Fæti undir Fótarfæti, Nasa og Júst, þegar þeir skipuðu Ólafi Kárasyni fyrir. Annar skipaði honum upp í fjall, en hinn sagði „á lág- lendinu ræfill". Þab er ekki heiglum hent að lúta leiðsögu slíkra manna, en allt bend- ir til þess að þjóðinni sé bobib upp á þessa stjórnarhætti fjögur ár í viðbót. Það er ör- uggt að ef Sjálfstæðisflokkurinn fær góða útkomu eftir vertíðina með krötunum, kaupa þeir þá aftur upp á fimm ráðherra- stóla og nokkra góða bitlinga. Málið er hvort flokkarnir halda meirihlutanum á þingi. Stöbugleiki — stööug aukning Stöðugleikinn birtist í fleiru en stöðugu verðlagi, sem stafar að mesmm hluta af samdrætti í þjóðfélaginu. Stöðugleikinn er einnig í aukningunni. Hann birtist í stöð- ugri aukningu opinberra skulda, stöbugum halla á ríkissjóði, stööugu atvinnuleysi, stöðugri skuldaaukningu sveitarfélaga, stööugri skuldaaukningu heimilanna, stöð- ugri aukningu vanskila á öllum vígstööv- um; fjárfesting hefur stöðugt minnkað og nauðungaruppboðum hefur stöbugt fjölg- ab. Svona er stöðugleikinn trausmr í sessi. Samningamaöurinn mikli Ólafur Ragnar er nú búinn að semja stjórnarsáttmála á eldhúsborðinu hjá sér. Ólafur er mikill samningamabur, ekki síst ef viðsemjandinn er hann sjálfur. Hann er líka vanur maður, því hann samdi vib Evr- ópusambandið um vibskipti íslands og þess í náinni framtíð, tók sjálfur að sér samningsumboð fyrir EES og gaf út tví- hliða samning hjá útgáfufyrirtæki sínu, Al- þýðubandalaginu. Þetta er svo sem allt í góðu lagi. Hins veg- ar er þab hlutverk stjómmálaflokka ab kynna fólki stefnu sína fyrir kosningar án málamiðlana. Viö framsóknarmenn höf- um ekki fengið umboð til þess að leggja flokkinn niður. Eftir kosningar verðum við síðan að fara í stjórnarmyndunarviðræður, semja stjórnarsáttmála og leggja hann fyrir miðstjórn flokksins. Það viljum vib gera. Við viljum að sjálfsögöu ab lykilatribi í stefnu okkar verði í þeim stjórnarsáttmála og höfum lýst þeim vilja ab ræba við stjómarandstöðuna, fái hún meirihluta. Hvorki Jóhanna Sigurðardóttir né Ólafur Ragnar þurfa okkar vegna að eyba í þaö dýrmætum tíma núna að semja stjórnar- sáttmála fyrir okkur. Sjálfstæöisflokkurinn vill hins vegar vera í þeirri stööu að geta kippt hverjum sem hann vill með sér upp á persneska teppib. Það þarf einfaldlega að gera flokkinn svo lítinn að hann geti það ekki. Það er engum til góðs að hann fái slíka lykilaðstöðu. Smjörið rennur um síðir af tungunni á Davíð og hann er til alls líklegur, ef hann blæs út í kosningum. ■ EMenn málefni

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.