Tíminn - 01.04.1995, Page 8
npiMlMM
Laugardagur 1. apríl 1995
Útgjöld lífeyris- og sjúkratrygginga fóru 1.060 milljónir framúr áœtlun fjárlaga:
Úm 420 milljóna hækkun í
staö 640 milljóna lækkunar
Mikiö vantar á aö sparnaöar-
áætlanir heilbrigðis- og trygg-
ingarábuneytisins gengju upp
á síbasta ári. Útgjöld ríkissjóbs
vegna lífeyris- og sjúkratrygg-
inga reyndust um 1.060 millj-
ónum kr. hærri ab raungildi
(um 4 þús.kr.á hvern íslend-
ing) heldur en fjárlög ársins
gerbu ráb fyrir.
í skýrslu um framkvæmd fjár-
laga segir Ríkisendurskobun, að
fjárlög 1994 hafi gert ráð fyrir
að framlög til lífeyristrygginga
yröu óbreytt að raungildi frá
Meb því
styrkjum vib
íslenskt
atvinnulíf
ffl Hitaveita \|/ Reykjavík <0) Ibnlánasjóbur
Verkamannafélagib (^ggp) DAGSBRÚN ÍTÖ-
Bifreibar og land- bunabavélar EIMSKIP VIÐGREIÐUMÞÉRLEIÐ
sitnH^ HELLUSTEVRAc HYRJARHÖFÐI 8 -112 REYIÚAVÍK. CZD 91 -68621 1 GJÖCUR HF.
1993. í raun hafi þessar greiðsl-
ur hækkað um 319 milljónir.
Fjárlög hafi sömuleiðis gert ráð
fyrir 640 milljóna kr. raunlækk-
un á greiðslum sjúkratrygginga,
en þær hafi þvert á móti hækk-
að um 103 milljónir.
„Niðurstöður sýna að áform í
fjárlögum hafa ekki náðst," seg-
ir Ríkisendurskoðun.
Hækkun á greiðslum sjúkra-
trygginga milli ára hafi einkum
orðið vegna 300 milljóna (11%)
hækkunar lyfjaútgjalda, 190
milljóna (13%) aukins lækna-
kostnaðar, 50 milljóna (26%)
hækkunar erlends sjúkrakostn-
aðar og 63ja milljóna (13%)
aukinna útgjalda vegna hjálpar-
tækja. Tannlæknakostnaður
lækkaði á hinn bóginn um 93
milljónir (13%) og innlendur
sjúkrakostnaður um tæpar 300
milljónir (34%).
Hjá lífeyristryggingum mun-
aði mest um 221 milljón kr.
(6%) hækkun örorkugreiöslna,
154 milljóna hækkun lífeyris-
greiðslna og 79 milljóna kr.
(14%) hækkun barnalífeyris.
Aftur á móti varö 72ja milljóna
(6%) lækkun á framlögum til
fæðingarorlofs og 37 milljóna
(24%) lækkun á ekknabótum.
Útgjöld slysatrygginga lækkuðu
um heil 18% að raungildi milli
ára. Langmest munar þar um 85
milljóna (38%) lækkun á
greiðslum til bílstjóra. Greiðslur
til sjómanna lækkuðu um 19
milljónir (10%) og til annarra
launþega um 16 milljónir
(15%). ■
Erlendur
frumsýnir
Kertalog
Leikhópurinn Erlendur, upp-
haflega stofnabur af leikur-
um sem komu erlendis frá,
býbur til forsýningar á verki
Jökuls Jakobssonar, Kerta-
logi, á sunnudaginn kl. 20.30
í Möguleikhúsinu vib
Hlemmtorg. Næstu forsýn-
ingar verba 6. apríl og 12.
apríl.
Jökull heitinn Jakobsson
samdi Kertalog og var þab verð-
launaverk í samkeppni Leikfé-
lags Reykjavíkur árið 1971.
Leikgerðina gerði Ásdís Þór-
hallsdóttir og er hún jafnframt
leikstjóri. Leikendur em Halla
Margrét Jóhannesdóttir, Gísli
Ó. Kærnested, Marteinn Arnar
Marteinsson, Ragnhildur Rú-
riksdóttir, Rannveig Björk Þor-
kelsdóttir, Sigrún Gylfadóttir,
Skúli Ragnar Skúlason og Vil-
hjálmur Hjálmarsson.
Frumsýning Kertaloga verba
í apríllok á litla svibi Borgar-
leikhússins. ■
Litlu börnin þurfa abgœslu vib, þegarþau kljást vib páskaeggib.
Páskaeggin geta reynst þeim litlu hœttuleg:
Sakleysisleg en varasöm
„Því mibur er mjög algengt ab
hart sælgæti og smáhlutir
standi í börnunum. Besta ráb-
ib er ab vera vel á verbi og
mikilvægt ab kunna réttu
handtökin ef slíkt slys verb-
ur," segja talsmenn samstarfs-
átaksins Öryggi bama - Okkar
ábyrgb. Varab er vib ab páska-
eggin, svo sakleysisleg sem
þau eru, geta reynst hættuleg
bömum, einkum þeim yngstu.
Foreldmm lítilla barna er ráð-
lagt ab vera innan handar við
opnun páskaeggs og að skoða
vel innihaldib og fjarlægja þá
stóra brjóstsykursmola, harðar
karamellur og kúlur og smá-
skraut. Aldrei á ab láta yngri
börn kljást ein við páskaeggin.
Hrökkvi aðskotahlutur ofan í
öndunarveg barnsins er ráðlagt
að kalla á hjálp, geti barnið ekki
andað, hóstab eða talað, og láta
hringja á sjúkrabíl. Ráblegt er að
nota þrýsting á kvið, leggja
hendur utan um kvib barnsins,
leggja hnefann rétt ofan við
naflann, þrýsta hnefanum
snöggt inn og upp á við. Endur-
taka skal þrýsting á kviö þar til
abskotahlutnum er hóstað upp,
eba barnib byrjar að anda eba
hósta. ■