Tíminn - 01.04.1995, Blaðsíða 16
16
Laugardagur 1. apríl 1995
Davíö Oddsson forsœtisrábherra:
• /
Sjálfstæöisflokkurinn — sátta-
afl í íslenskum stjómmálum
Sjálfstæöisstefnan hvílir á því aö
sérhver einstaklingur hafi tækifæri
til aö ráöa lífi sínu sjál/ur. Þessi
stefna á djúpar rætur í hugum ís-
lendinga. Hún hefur reynst standa
betur en kennisetningar félags-
hyggjunnar eöa sósíalismans.
Sjálfstæöisstefnan byggir á
mannúölegum sjónarmiöum,
frelsi einstaklingsins, lýöræöisleg-
um stjórnarháttum, viröingu fyrir
gæöum jaröar og kristinni trú.
Frelsi og sjálfstæöi íslendinga er
best tryggt meö því aö þessi stefna
sé höfö aö leiöarljósi. Sjálfstæöis-
flokkurinn vill standa vörö um
tungu, bókmenntir og annan ís-
lenskan menningararf og hann
vill sækja fram til afreka á sviöi
mennta, lista, vísinda og alhliöa
verkmenningar. Sjálfstæöisflokk-
urinn telur aö hlutverk ríkisvalds-
ins sé aö skapa almenn skilyröi
fyrir blómstrandi mannlífi í friöi
og öryggi.
Sjálfstæöisflokkurinn vill
tryggja velferöarþjóöfélagiö án
þess aö grafa undan því meö
eyöslu á opinberu fé. Þeir, sem sóa
skattfé almennings, stefna velferö-
arþjóöfélaginu í hættu. í sjálfstæö-
isstefnunni felst, aö fólki sé hjálp-
aö til sjálfshjálpar og hlúö aö þeim
sem standa höllum fæti.
Sjálfstæöisstefnan hefur þróast í
nærri sjötíu ár. Sagan sýnir, að
hún hefur dugað þjóöinni best,
þegar tekist er á um mikilvæg og
viðkvæm úrlausnarefni heima fyr-
ir gagnvart öömm þjóöum. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur veriö og er
sáttaafl í íslenskum stjórnmálum.
Hann er trúr kjörorði sínu: Stétt
meö stétt. Innan vébanda hans
starfa fulltrúar þéttbýlis og dreif-
býlis allra atvinnugreina til lands
og sjávar.
Forsendur treystar
fyrir framfarasókn
Sjálfstæöisflokkurinn leggur
störf sín á kjörtímabilinu hiklaust
undir dóm kjósenda. Tekist hefur
að snúa vörn í sókn. Sjö ára tíma-
bili stöönunar er lokiö. Þaö er
bjartara yfir íslandi en fyrir fjórum
Kristín Ástgeirsdóttir, Kvennalista:
Uppstokkun launakerfisins
Hver er sérstaða þíns framboðs?
Sérstaöa Kvennalistans felst
annars vegar í því að hann er sér-
framboð kvenna, hins vegar í
baráttumálunum sem snúast
einkum um bættan hag kvenna
og barna, svo og fjölskyldunnar í
heild. Kvennalistinn er angi á
meiöi 100 ára kvennabaráttu á
íslandi og hluti af mannréttinda-
baráttu kvenna, sem reyndar
hefur staöiö miklu lengur. Það
hefur frá upphafi verið markmiö
okkar aö auka hlut kvenna í
valdastofnunum samfélagsins,
þar sem ráðum er ráðiö til þess að
þær geti þar beitt sér í þágu betra
þjóðfélags.
Þegar Kvennalistinn tók til
starfa voru konur 5% alþingis-
manna, en eru nú 25%. Þegar viö
buðum fyrst fram til sveitar-
stjórna vorú konur rúm 6% sveit-
arstjórnarmanna, en eru nú rúm
20%.
Þegar horft er yfir málflutning
kvennalistakvenna í 12 ár, má
greina nokkra meginþætti. Sá
fyrsti snýr aö málum sem bæta
stööu kvenna, svo sem endurmat
á launum og störfum, lengra
fæðingarorlof, betri skóla, að-
geröir til aö stemma stigu viö of-
beldi gegn konum og börnum
o.fl. Sumt hefur náö fram aö
ganga, annaö mun taka lengri
tíma, en umræöan er þó til staö-
ar. Annar þátturinn fjallar um
bætt lýðræði og valddreifingu í
samfélaginu, svo sem um þjóðar-
atkvæði, afnám bráöabirgðalaga,
aukin áhrif íbúanna o.fl. Sá þriðji
snýst um umhverfisvernd og
gagnrýni á blinda hagvaxtar-
hyggju, sá fjóröi um friðar- og af-
vopnunarmál, sem viö erum nú
aö skilgreina upp á nýtt sem um-
hverfismál. Síðast en ekki síst er
það svo krafan um hugarfarsbylt-
ingu meöal kvenna og gagnvart
konum, þannig aö þær geti notið
raunverulegs kvenfrelsis og geti
valið sér sinn lífsfarveg óháö
hefðum, venjum og tregðu sam-
félagsins.
Hvert er helsta baráttumálið?
Helsta baráttumál okkar í þeirri
kosningabaráttu, sem er fram-
undan, er launajafnrétti kynj-
anna og það að konur geti séö sér
farboröa meö launum sínum,
eða meö öðrum orðum efnahags-
legt sjálfstæði kvenna. Nýleg
könnun Jafnréttisráðs hafur enn
einu sinni leitt í ljós hve launa-
munur er mikill hér á landi og aö
hann vex með aukinni mennt-
un. Störf, sem konur sinna eink-
um, eru lágt metin til launa, þótt
þeim fylgi mikil ábyrgö og erfiöi.
Uppstokkun launakerfisins er
bráðnauösynleg og á að vera for-
gangsmál. Þar á ríkið aö ganga á
undan með góöu fordæmi og
framkvæma nýtt starfsmat, sem
m.a. hefur þaö aö meginmark-
miöi aö útrýma launamun kynj-
anna, sem byggist á aldagömlum
og úreltum hugmyndum sem
fela í sér misrétti. Slíkt endurmat
hefur víða farið fram og skilað
konum góöum árangri. ■
Jón Halldór Hannesson, Náttúrulagaflokki íslands:
Virkjum lögmál náttúrunnar
Hver er sérstaða þíns framboðs?
Sérstaöa Náttúrulagaflokksins
felst í því aö hann telur aö stjórn
samfélagsins sé ekki í höndum ríkis-
stjórna, heldur ráöist árangur ríkis-
stjórna af því hve virk náttúrulög-
málin eru í vitund samfélagsins. Öll
mistök stafa af því aö við brjótum
lögmál náttúrunnar og koma fyrr
eöa síðar fram sem samfélagsvanda-
mál, sjúkdómar eöa efnahagsvandi.
Þaö er því frumskylda hverrar ríkis-
stjómar að beita aöferöum til að
örva lögmál náttúrunnar í vitund
fólks.
Öll náttúrulögmál eiga sér upp-
tök í samsviði náttúrulögmálanna
(samkvæmt nútíma eölisfræöi) og
viö eigum aðgang aö þessu grunn-
greindarsviöi náttúrunnar í grurin-
greindarsviöi okkar í tærri vitund.
Hversu árangursrík viö erum sem
einstaklingar ræöst af vitundarstigi
okkar, þ.e. hversu meðvituð við er-
um um öll lögmál náttúrunnar. En
á nákvæmlega sama hátt ræöst ár-
angur samfélagsins af vitundarstigi
þess, samvitundinni. Sé samstilling
náttúrulögmálanna ríkjandi í sam-
vitundinni, ná framsækin markmið
auöveldlega fram aö ganga, en
merki óreiðu, t.d. glæpir og slys,
minnka.
Hvert er helsta baráttumálið?
Meginbaráttumál Náttúrulaga-
flokksins er því aö áhrifaríkum aö-
ferðum verði beitt til að eyða streitu
og óreiðu í vitund einstaklinga og
samfélagsins, þannig að lögmál
náttúrunnar veröi virkari. Rann-
sóknir sýna að þær vitundaraðferð-
ir, sem flokkurinn vill aö notaöar
séu, auka skapandi greind, heil-
brigöi, fækka glæpum, slysum og
mistökum. Aörar rannsóknir sýna
að meö aðferöum Náttúrulaga-
flokksins má endurhæfa fanga og
eiturlyfjaneytendur meb ódýrum
hætti. Einnig mælum viö meö nátt-
úrulegri heilsugæslu, mataræöi og
að jurtalyf veröi rannsökuö og not-
uö til að örva lögmál náttúmnnar á
dýpri stigum líkama og huga.
Náttúrulagaflokkurinn berst fyrir
því að auka þjóöartekjur meb því að
auka skapandi greind, eyða fjárlaga-
halla og lækka skatta með því aö
fyrirbyggja vandamál og mistök.
Allar leiöir Náttúmlagaflokksins em
studdar vísindalegum sannprófun-
um. Við teljum að kjósendur eigi
rétt á því aö aðrir flokkar styöji
kosningaloforð sín með sama hætti,
ef þeir geta, og hlutlaus nefnd vís-
indamanna meti líkur á aö flokk-
arnir nái stefnumálum sínum. ■
amm.
- í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins
er veröbólga undir 5% fjögur ár í
röð, þ.e. 1992-1995.
- í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins
greiðir þjóðin niöur erlendar
skuldir sínar þrjú ár í röö, þ.e.
1993-1995.
: Atvinnuleysi hefur minnkaö.
Um 1.300 ný störf veröa sköpuö á
þessu ári.
- Vextir hafa lækkaö. Fjölskyld-
an, sem skuldar milljón í banka,
greiddi aö meðaltali um 12 þús-
und kr. minna í vexti áriö 1994 en
1991.
- Ríkisútgjöld á mann hafa lækk-
að um 8,5% á kjörtímabilinu. Eng-
in ríkisstjórn frá stofnun lýöveld-
isins hefur náö jafnmikium ár-
angri í aö draga úr útgjöldum.
- Á þessu kjörtímabili hafa skatt-
ar lækkað um 2 milljaröa. Ríkis-
stjórnin þar á undan hækkaöi
skatta um 11 milljaröa.
Sjálfstæöisflokkurinn heitir
kjósendum sínum því aö halda
áfram á sömu braut. Höfuömark-
miö flokksins er að treysta enn for-
sendur fyrir alhliöa framfarasókn
þjóðarinnar á heilbrigðum efna-
hagsgrunni og með virkri þátttöku
í alþjóöastarfi.
Veröi tryggt í kosningunum 8.
apríl n.k. að Sjálfstæöisflokkurinn
fái endurnýjaö umboð til forystu
viö stjórn landsmála, er unnt aö
standa viö loforðið: Betra ísland!
Árni Björn Guöjónsson, Kristilegri stjórnmálahreyfingu:
Réttlæti Guðs
á Islandi
Hver er sérstaða þíns framboðs?
í fyrsta sinn á íslandi býöur
fram í alþingiskosningum kristi-
legur stjórnmálaflokkur, kristi-
leg stjórnmálahreyfing, sem
hefur það að höfuðmarkmiöi að
boðskapur Biblíunnar og kær-
leikur sá, sem Jesús Kristur bob-
aði mannkyninu, komist inn í
þjóðmál íslendinga. Þetta er
fyrst og fremst sérstaða K- list-
ans, sem býöur fram í Reykjavík
og á Reykjanesi. Réttlæti Guðs
fyrir íslendinga era einkunnar-
orðin. Við viljum koma fram
sem stríðsmenn fyrir Guð, berj-
ast fyrir því góöa, fagra og full-
komna. Réttlæti, viska og kær-
leikur er boðskapur sem er í fyr-
irrúmi. Allar girndir okkar skulu
burt úr huga okkkar, en þaö get-
um við meö því að viðhalda
þekkingunni á Guði (Róm.
1:28).
Fjölskyldu- og siöferöismál
eru sett fremst á baráttulistann.
Við veröum aö virða hjóna-
bandið, því það er sú stofnun
sem Guö kom á til að mynda
fjölskyldur, sem alla tíö hefur
veriö undirstaða þjóöfélaga,
einnig hins íslenska.
í heiminum í dag eru til 60
kristilegir stjórnmálaflokkar og
hafa verið á öllum Noröurlönd-
unum í áratugi. Grannhug-
myndafræöi þeirra er aö mestu
leyti sú sama: Biblían og boö-
skapur hennar í fyrsta sæti, síö-
an fjölskyldan, og þörfum
hennar fullnægt í gegnum full-
trúalýbræði lítilla eininga. Með
því geta þrár mannsins og þarfir
orðið aö veruleika og hann mót-
aö umhverfi sitt til hamingju-
ríks lífs. Hinir kristilegu flokkar
hafa komiö fram meö markmið,
sem er kallaö lögmál minni-
hlutans, þaö er að kjörinn
meirihluti skal aldrei koma í veg
fyrir ab minnihlutinn geti mót-
aö umhverfi sitt. Til aö réttlæti
Guðs komist á á íslandi þurfum
við ab breyta miklu, og það get-
um við ef Andi Guðs fær aö rába
gjörðum okkar.
Hvert er helsta baráttumálið?
Til aö þörfum fjölskyldunnar
sé fullnægt, sem er mesta bar-
áttumál kristilegrar stjórnmála-
hreyfingar, gerum viö kröfu um
að atvinnuvegir landsins séu
nýttir réttlátlega, að allir þegnar
þessa lands hafi jafnan rétt til
nýtingar landsins gæöa. Aö
viska og hugvit það, sem Guö
hefur gefiö okkur, verði notuð
til aö koma af staö þjóðarátaki í
atvinnumálum, með þaö að
leiðarljósi aö allir þegnarnir geti
notið afrakstursins jafnréttháir.
Því Guö elskar alla menn og fer
ekki í manngreinarálit.
Kristileg stjórnmálahreyfing
vill gjörbreyta stefnu á nýtingu
hafsins. Viö viljum afnema
kvótakerfiö úr þeirri mynd sem
það er í, og færa þaö til byggðar-
laganna, þannig að þaö deilist í
hlutfalli viö veiði síöustu 15 ára.
Að veiði krókaleyfis- og línubáta
verbi gefin frjáís innan marka
byggöarkvóta. Öll veiöi verk-
smiðjuskipa veröi fyrir utan 100
mílur. Allur fiskur fari um fisk-
markaöi. Allir, sem veiði
stunda, greiöi 10% aflagjald, 4%
til viðkomandi sveitarfélags og
6% til ríkissjóðs; sveitarfélögum
veröi falið aö innheimta gjaldið.
Stefnt skal aö því aö fullvinna
allan afla sjávarins í neytenda-
pakkningar, sem seldar verði
víöa um heim undir íslenskum
vöramerkjum. Bannað veröi aö
setja hágæöafisk í bræðslu, svo
sem síld. ■