Tíminn - 19.04.1995, Síða 3
Miövikudagur 19. apríl 1995
3
Ólafur Ragnar Crímsson gekk af fundi meb stjórnar-
andstöbu og Jóni Baldvin í gœr:
Sakar Halldór
um aö ganga
á gefin loforö
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
mabur Alþýöubandalags,
gekk af fundi meö Jóni Bald-
vini Hannibalssyni, Kristínu
Ástgeirsdóttur og Halldóri Ás-
grímssyni eftir aö Halldór
hafnaöi því aö hafa forgöngu
aö mynda stjórn þessara
flokka. Hann sakar Halldór
um aö svíkja kosningaloforö,
en Halldór segir afur á móti
framkomu Ólafs Ragnars fyrir
og eftir kosningar algert eins-
dæmi.
Atburöarás undanfarinna
daga staöfesta að ákveðinn
trúnaðarbrestur hefur orðiö
milli Framsóknarflokksins og
Alþýðubandalagsins. Ólafur
Ragnar segist furðu lostinn á
framgöngu Halldórs Ásgríms-
sonar, í ljósi þess aö hann hafi
fyrir kosningar gefið út yfirlýs-
ingu um að hann hygðist reyna
myndun ríkisstjórnar með
stjórnarandstöðuflokkunum.
„í gærkvöldi var Halldóri til-
kynnt að þrír flokkar, Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og
Kvennalisti myndu mæla með
því við forsetann að hann fengi
það umboð til stjórnarmynd-
unnar sem hann óskaði eftir í
kosningunum. Hann hafnaði
því," segir Ólafur.
„Á sömu stundu og Halldór
Ásgrímsson gat fengið það um-
boö sem hann sagði við þjóðina
að hann væri að biðja um, að
leiða myndun ríkisstjórnar með
stjórnarandstöðuflokkunum, þá
hafnaði hann því á þeim for-
sendum að hann væri búinn aö
skuldbinda sig Sjálfstæðis-
flokknum."
Ölafur Ragnar segir þá túikun
út í hött að Halldór hafi verið
búinn aö láta reyna á hvort
samstarf stjórnarandstöðu og
krata gæti gengið upp. Lausleg
símtöl við hann og Kristínu Ást-
geirsdóttur og einn fundur með
Jóni Baldvini Hannibalssyni sé
ekki formleg tilraun fjögurra
flokka til myndunar ríkisstjórn-
ar. Hann sakar formann Fram-
sóknarflokksins um að svíkja
kosningaloforð.
„Ég tel að hann hafi sagt rangt
til og gengib á bak þeirra fyrir-
heita sem hann gaf þjóðinni og
ætti núna að ramma upp á vegg
auglýsingar Framsóknarflokks-
ins fyrir kosningar um traust,"
segir Ólafur Ragnar.
Á blaðamannafundi í gær
gagnrýndi Halldór Ólaf Ragnar
Grímsson fyrir framkomu hans
í garö annarra stjórnarand-
stööuflokka fyrir og eftir kosn-
ingar. Halldór minntist sérstak-
lega á svo kallaöan stjórnar-
smáttmála Ólafs Ragnars, sem
hann sendi öðrum talsmönnum
stjórnarandstöðunnar þriðju-
daginn fyrir kosningar merkt
sem algert trúnaðarmál.
„Ég sá síðan þetta trúnaðar-
mál í sjónvarpinu um kvöldiö,"
sagði Halldór. „Síðan vorum við
fullvissaðir um það í Framsókn-
arflokknum að þessu trúnabar-
máli hefði ekki verið lekið út af
hálfu Alþýðubandalagsins. Síð-
an var haldinn blabamanna-
fundur um þetta sama trúnaðar-
mál á miövikudegi og á fimmtu-
daginn voru keyptar 2 síður í
Morgunblaðinu þannig að allir
landsmenn gætu séð það." ■
Frá fundi landsstjórnar og þingfiokks Framsóknarflokksins í gœr. A myndinni má sjá Magnús Stefánsson (t.v.),
Elínu Líndal og Siv Friöleifsdóttur. Tímamynd GS
Jöfn skipting ráöherraembœtta líklegust:
Þrír nýir ráðherrar hjá
Framsóknarflokki?
Líklegast er ab rábherraembætt-
um veröi skipt jafnt á milli
Sjálfstæbisflokks og Framsókn-
arflokks ef af stjórnarsamstarfi
þessara flokka veröur, þannig
ab framsóknarmenn fái fimm
rábherrastóla. Þrír nýir rábherr-
ar hafa verib nefndir til sögunn-
ar, Finnur Ingólfsson, Ingibjörg
Pálmadóttir og Páll Pétursson.
Flest bendir til aö Halldór Ás-
grímsson veröi utanríkisráðherra
og jafnframt er gert ráð fyrir að
Guðmundur Bjarnason, varafor-
maður flokksins, veröi ráðherra í
ríkisstjórn.
Stjórn Framsóknarflokksins
kom saman á fundi á annan í
páskum, þar sem formaðurinn
Halldór Ásgrímsson, gerði grein
fyrir þeirri stöbu sem upp var
komin í stjórnarmyndunarviö-
ræðum. Eftir ab formlegum þing-
flokksfundi lauk héldu nokkrir
þingmenn ásamt foTmanninum
áfram fundi, en líklegast er talið
að þar hafi verið rædd skipting
Jón Baldvin er fjúkandi illur og telur ab samstarfsmaburinn hafi komib aftan ab
honum. Jón Baldvin talabi um heilindi og leikreglur í samtali vib Tímann í gœr:
Rannsóknarefni fyrir
siövæbingarpostulana
„Um þennan þátt stjórnarslita
og stjórnarmyndunarvibræbna
hefur þrennt komib fram sem
varbar leikreglur og heilindi í
samskiptum stjórnmála-
manna," sagbi Jón Baldvin
Hannibalsson, formabur Al-
þýbuflokksins, í samtali vib
Tímann í gær. Þab var fjarri því
ab formanni Alþýbuflokksins
væri skemmt yfir síbustu at-
burbum.
„í fyrsta lagi hafa þau Ólafur
Ragnar Grímsson og Kristín Ást-
geirsdóttir sagt ab Halldór Ás-
grímsson hafi ekki sagt alla sög-
una um viðræbur okkar tveggja á
mánudegi eftir hádegi eftir kosn-
ingar. Á það var látiö reyna í Al-
þingishúsinu í gærkvöldi, þar
sem að ég mætti umbeðinn, til að
hreinsa andrúmsloftið, eins -og
þaö var orðab, svo að menn
horfðu augliti til auglitis hver á
annan, og það væri staðfest hvort
rétt hefði veriö frá sagt. Það sem
okkur Halldóri fór á milli var
þetta: Hann ræddi viö mig í um-
boöi þriggja flokka, Alþýðu-
bandalags, Kvennalista og Fram-
sóknar. Hann sagði frá þeim
áformum sínum að vilja mynda
ríkisstjórn með stjómarand-
stöðuflokkunum á þingi og Al-
þýbuflokknum. Svörin voru
þessi: Við höfum sagt fyrir kosn-
ingar að ef stjórnarflokkarnir
héldu velli mundum vib láta á
þab reyna hvort stjórnarsamstarf-
iö gæti endurnýjast á grundvelli
nýs málefnasamnings. Meöan
þær stjórnarmyndunarviðræöur
væru í gangi mundi ég ekki taka
þátt í slíkum vibræðum vib aöra
flokka. Hitt væri svo annaö mál
að menn bæru almennt séð gób-
an hug til Halldórs í mínum
þingflokki, þar væru engin per-
sónuleg vandkvæbi uppi og okk-
ur væri ekkert ab vanbúnaði að
nefna nafnið hans til forystu um
stjórnarmyndun ef Sjálfstæöis-
flokkurinn sliti stjómarmyndun-
arvibræðum viö okkur. Halldór
hefur staöfest og gerði það á þess-
um fundi ab allt væri satt og rétt
sem ég sagði þar," sagöi Jón Bald-
vin.
„Staðreynd er það að Davíð
skýrði formanni Alþýðuflokksins
aldrei frá því ab hann hefbi hafið
stjórnarmyndunarviðræbur við
Halldór Ásgrímsson meban
stjórnarmyndunarvibræöur við
Alþýðuflokkinn fóru fram undir
hans stjórn. Þab er staöreynd.
Staðfest af okkur og staðfest af
Halldóri Ásgrímssyni. Halldór
hefur staðfest ab á þessum fundi
á sunnudagskvöldið hafi hann
bundib fastmælum ab nefna Dav-
íð til stjómarmyndunarumboðs
þegar búið væri að slíta stjóm.
Þab var ekki fyrr en daginn eftir
sem ég heyrði þetta og þá á fundi
sem ég krafðist meö forsætisráö-
herra, enda þótti mér þá nóg um
leikaraskapinn. Allt eru þetta
staöreyndir. Fyrir þá sem tekiö
hafa ab sér að vera siðvæbingar-
postular í íslenskum stjórnmál-
um — þá er ab finna í stjórnar-
andstöðuflokkunum svo sem.
kunnugt er sem og í Sjálfstæöis-
flokknum — þá er þetta ærib
rannsóknarefni," sagbi Jón Bald-
vin. ■
ráðherraembætta verði af ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks. Auk Halldórs voru á
fundinum Guðmundur Bjarna-
son varaformaöur, Finnur Ing-
ólfsson, efsti maður á lista flokks-
ins í Reykjavík, Ingibjörg Pálma-
dóttir, þingmaður á Vesturlandi
og Páll Pétursson, þingmaður á
Norðurlandi vestra.
Á fundi landsstjórnar og þing-
flokks Framsóknarflokksins sem
fram fór á Hótel Loftleiðum í gær
kom fram vilji Reyknesinga til
þess að Siv Friöleifsdóttir, fyrsti
þingmaður flokksins í kjördæm-
inu, fengi ráðherraembætti í ljósi
kosningasigurs framsóknar-
manna á Reykjanesi. Það sem
vinnur gegn Siv er hins vegar að
bæði hún og Hjálmar Árnason,
annar þingmaður fokksins í sama
kjördæmi, eru ný á þingi og hafa
ekki reynslu af þingstörfum.
Næstmest fylgisaukning í pró-
sentum talið var hjá Framsóknar-
flokknum á Noröurlandi vestra,
en þar hefur Framsóknarflokkur-
inn tæplega 40% fylgi. Meðal
annars í ljósi þessa hefur Páll Pét-
ursson, lýst því yfir að hann telji
eðlilegt að kjördæmið fái ráð-
herra. Páll mun vera undir tals-
verðum þrýstingi frá sínum kjós-
endum, en framsóknarmenn á
Noröurlandi vestra hafa ekki átt
ráðherra síðan Ólafur Jóhannes- ■
son var forsætisráðherra 1979.
Fari framsóknarmenn í stjórn
er taliö líklegt að Ingibjörg Pálma-
dóttir verði meðal ráðherraefna,
en á Vesturlandi vann flokkurinn
einnig sigur og bætti við sig
manni. Þá hafa jafnframt verið
nefnd nöfn Valgerðar Sverrisdótt-
ur, sem skipar annaö sætið á eftir
Guðmundi Bjarnasyni á Norður-
landi eystra og Jóns Kristjánsson-
ar, sem er annar þingmaður Aust-
urlands á eftir Halldóri Ásgríms-
syni. ■
Líkleg ríkis-
stjórn
Davíð Oddsson
Friðrik Sophusson
Þorsteinn Pálsson
Halldór Blöndal
Björn Bjarnason
Halldór Ásgrímsson
Guðmundur Bjarnason
Finnur Ingólfsson
Ingibjörg Pálmadóttir
Páll Pétursson
Björn Bjarnason nýtt rábherraefni hjá Sjálfstœbisflokki:
Verður Ólafur Garb-
ar forseti Alþingis?
Sjálfstæöismenn telja eölilegt
aö einhverjar breytingar veröi
á skipun í ráöherraembætti
takist stjórnarmyndun meö
Framsóknarflokki. Ekki er þó
taliö líklegt aö mannabreyt-
ingar veröi aö ööru leyti en
því aö Ólafur G. Einarsson
hætti sem rábherra og Björn
Bjarnason komi í hans staö.
Ekki er gengiö út frá því sem
gefnu að Björn Bjarnason taki
við menntamálaráðuneytinu og
jafnvel talið eins líklegt að
Framsóknarflokkurinn fái það
ráðuneyti. Heimildarmenn inn-
an Sjálfstæðisflokksins gera ráð
fyrir að Ólafur G. verði forseti
Alþingis ef af stjórnarmyndun
verður. Þá liggur fyrir að semja
þarf um nefndarformennsku í
tveimur valdamestu fastanefnd-
um Alþingis, sem eru utanríkis-
málanefnd og fjárlaganefnd. í
síðustu ríkisstjórn fóru sjálf-
stæðismenn með formennsku í
utanríkismálanefnd en kratar
með formennsku í fjárlaga-
nefnd.
Veröi formaður Framsóknar-
flokksins utanríkisráðherra er
líklegt að sjálfstæðismenn geri
kröfu um fomennsku í utanrík-
ismálanefnd og hefur nafn
Geirs H. Haarde verið nefnt í því
sambandi fari Björn Bjarnason í
ráðherrastól.
Allmennt ríkir nokkur tregða
til breytinga á ráðherraliöi
flokksins. Davíð Oddsson er
óumdeildur í embætti forsætis-
ráðhera og gert er ráb fyrir að
Fribrik Shopusson veröi áfram
fjármálaráðherra, þrátt fyrir aö
margir telji að hann hafi ekki
náð nægilegum árangri á síöasta
kjörtímabili.