Tíminn - 20.04.1995, Qupperneq 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Fimmtudagur 20. apríl 1995 ' 73. tölublað 1995
Sala á megrunarplástr-
um tók mikinn kipp þeg-
ar þeir komu á markaö
hér á landi og eftir-
spurnin var mikil:
Megrunar-
plástraæðiö
gengið yfir
Svo virbist sem sala á megrun-
arplástrum sé a& dragast veru-
lega saman, en salan tók gríö-
arlega mikinn kipp þegar þeir
komu á markað hér á landi,
fyrir um tveimur mánuðum.
Arangur af plástrunum er þó
ekki enn kominn í ljós. Þá er
svissneskt Iyfjafyrirtæki að
þróa og prófa megrunarpillu,
sem hefur gefið góöan árangur,
en er ekki enn komin á mark-
að.
Að sögn Árna Ingasonar hjá
Stefán Thorarensen hf, sem er
einn þriggja umbobsaðila fyrir
megrunarplástur, hefur salan á
plástrunum dregist mjög saman,
eftir þetta „æði" sem greip um
sig. Samkvæmt upplýsingum frá
umboðsaðilum hafa selst um
þrjú þúsund skammtar á tímabil-
inu, en hver skammtur dugar í
mánuð. Varðandi þá spurningu,
hvort plástrarnir hafi tilætluð
áhrif, segir Árni of snemmt að
segja til um það, því tiltölulega
stutt sé síðan plástrarnir komu á
markað.
í megrunarplástrunum eru efni
sem unnin eru úr ákvebinni teg-
und þörunga, en þetta efni er
þekkt náttúrulyf gegn offitu, sem
dregur úr matarlyst. Hins vegar er
með þetta lyf eins og mörg önnur
náttúrulyf, að lítið er til af vís-
indalegum tilraunum og könn-
unum á árangri af notkuninni.
Megrunarpillan sem svissneska
lyfjafyrirtækið hefur þróað hefur
sýnt í tilraunum að hún hefur til-
ætluð áhrif, en hún hefur áhrif á
fituefnaskiptin í líkamanum. Lyf-
ið er enn á tilraunastigi, en er þó
komið mjög langt. Þó er ekki
hægt að segja til um það í dag
hvenær lyfið kemur á markað-
inn. ■
Krakkarnir á Álftaborg í Reykjavík voru ekkert ab spá íhvort vorib yrbi kalt. i huga þeirra var sumarib ab koma og teiknubu þau þessa sumarmynd fyrir
lesendur Tímans í tilefni sumardagsins fyrsta. Tímamynd: gs
Ný ríkisstjórn
fyrir helgina?
Formenn og varaformenn Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks sátu á löngum fundi í
gærdag í Ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu og rébu ráðum
sínum varðandi myndun nýrrar
ríkisstjórnar. Farið var yfir mál-
efnin, en ráðherrastólar ekki til
umræöu. Andinn í vibræbunum
var góður sagði heimild Tímans
í gærkvöldi. Viðræbur halda
áfram í dag, sumardaginn fyrsta.
Um eftirmiðdaginn fengu þing-
flokkar beggja aðila mynd af þeim
áætlunum sem flokkarnir hafa á
prjónunum. í báðum þingflokk-
um var full samstaða um myndun
nýju stjórnarinnar.
Þingmenn flokkanna hafa verið
beðnir að vera innan seilingar í
Bœndasamtökin krefjast endurskoöunar á hluta búvörusamningsins
strax og landbúnaöarráöherra hefur veriö skipaöur í nýrri stjórn:
Vilja nýjan samning til
bjargar saubfjárbændum
dag ef á þarf að halda, en á föstu-
dag veröa þingflokksfundir að
nýju. Þaö virðist ljóst að ný ríkis-
stjórn er í burðarliðnum, og hún
gæti allt eins orðið til fyrir helg-
ina.
Davíð Oddsson gekk á fund
Vigdísar Finnbogadóttur kl. 10 í
gærmorgun og fékk umboð til
myndunar ríkisstjórnar. Hafði
hann þegar samband við Halldór
Ásgrímsson og óskabi fundar meb
honum og Guömundi Bjarnasyni,
varaformanni flokksins. Auk þess
tekur Friörik Sophusson varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins þátt í
viðræðunum.
Fundur flokksleiðtoganna hófst
á hádegi í gær og stóð enn þegar
Tíminn fór í prentun. ■
Sigurlaug Jónasdóttir á Kára-
stöbum í Skagafiröi spáir í
kindagarnir um vebriö:
Kalt fram
á vorið"
„Ég er hrædd um að það verði
kuldi fram á vorið," segir Sigur-
laug Jónasdóttir, en hún hefur
spáð til um veðrið undanfarna
vetur og notað til þess kindagarn-
ir, en segist á hinn bóginn ekki
geta sagt til um hversu lengi þeir
kuldar muni vara. Hún segist
hins vegar ekki spá í sumarið.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni mun hins vegar eitt-
hvað hlýna næstu daga.
Eins og ábur sagði notar Sig-
urlaug kindagarnir til að sjá fyr-
ir um veðrið á veturna „Þeir
segja að ég sé garnaspákona."
Sigurlaug hefur reynst nokkuð
sannspá og til dæmis í fyrra
spábi hún því að þessi vetur
sem nú rennur sitt skeið á enda
myndi veröa snjóþungur og sú
varð heldur betur raunin.
Sjá einnig baksíðu.
Bændasamtök íslands ætla að
fara fram á það við næsta
landbúnaöarráöherra, að
teknar verbi upp viðræbur um
breytingar á þeim hluta bú-
vörusamnigsins er snýr ab
saubfjárbændum. Þetta er
ákveöið í ljósi slæmrar stöbu
sauðfjárræktarinnar.
Framkvæmdastjórn bænda-
samtakanna kom saman til
fundar í gær til þess ab undirbúa
stjórnarfund í næstu viku, þar
sem m.a. verður fjallað um þetta
mál. Samkvæmt heimildum
Tímans er helst horft til þess að
greitt verði fyrir útflutningin á
ákveðnu magni af kindakjöti á
þá markaði erlendis sem gefa
hæst verð. Fyrir liggur að tak-
mark búvörusamningsins hefur
ekki náðst hvað sauðfjárbændur
varðar. Innanlandssala hefur
dregist meira saman en gert var
ráð fyrir, sem hefur í för með sér
aukin flatan niðurskurð fram-
leiðsluheimilda, sem aftur hefur
leitt til þess að mjög mörg sauð-
fjárbú eru orðin of smá til þess
að standa undir launakostnaöi.
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtaka íslands, segir að við-
ræður um búvörusamninginn
ráðist af því hvenær ný stjórn
verði mynduð og hvænær land-
búnaðarráðherra hennar hafi
tíma til þess að ræða vib Bænda-
samtökin. Þó er ljóst að sauðfjár-
bændur meta stöðuna þannig að
ekki sé mikill tími til stefnu eigi
að koma í veg fyrir að fjöldi
bænda þurfi ab hætta búrekstri.
Á síbasta vori bárust fréttir um
það að talsvert væri um að sauð-
fjárbændur ættu ekki fyrir
áburði á tún. Að sögn Ara hafa
forsendur ekki breyst til batnað-
ar ab þessu leyti og þó svo ab
áburðarverö hafi lækkað nokk-
ub hafa laun bænda lækkað enn
meira. ■
Ólíklegt ab Hákon Sigurgrímsson haldi áfram hjá bœnda-
samtökunum:
Haukur formaður
Haukur Halldórsson, fráfarandi
formaður Stéttarsambands
bænda, hefur verib kjörin for-
mabur Framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Þetta er metið sem
ígiidi hálfs starfs, en samkvæmt
heimildum Tímans hefur
Haukur ab auki tilbob um ýmis
sérverkefni.
Hákon Sigurgrímsson, fráfar-
andi framkvæmdastjóri Stéttar-
sambands bænda, mun hins veg-
ar að öllum líkindum ekki halda
áfram í starfi fyrir bændasamtök-
in. I auglýsingu um starf fram-
kvæmdastjóra Bændasamtaka ís-
lands er tekið fram að umsækj-
andi þurfi að hafa búfræðimennt-
un, sem Hákon hefur ekki.
Áð sögn Ara Teitssonar, for-
manns Bændasamtakanna, hafa
nokkrir sótt um starf fram-
kvæmdastjóra. Líklegast þykir ab
Sigurgeir Þorgeirsson, aðstobar-
maður landbúnaðarráðherra,
verði rábinn sæki hann um, en
umsóknarfrestur rennur út í dag.