Tíminn - 20.04.1995, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 20. apríl 1995
Hvab segja þingmenn um verbandi stjórn og stjórnarandstöbu?
Valgeröur Sverrisdóttir, þingmaöur:
Einar K. Guöfinnsson þingmaöur:
Ánægja og til-
hlökkun
Ekki óskastaðan
„Mér líst bara vel á væntanlega
stjórnarmyndun Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks," segir Val-
gerbur Sverrisdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokksins á
Norburlandi eystra.
Hún segir ab mibab vib úrslit
alþingiskosningana þá væri eng-
in annar betri kostur í stöbunni
en ab þessir tveir flokkar mynd-
ubu ríkisstjórn. Valgerbur segir
ab þab heföi því ekki komib sér á
óvart að þessir flokkar tækju
hóndum saman. Hún segist hafa
sagt við sjálfa sig daginn eftir
kosningarnar að þetta yrbi niður-
staðan.
Valgeröur segir aö menn hafi
miklar væntingar til væntanlegs
stjórnarsamstarfs og framsóknar-
fólk hafi fullan áhuga á því aö
taka þátt í ríkisstjórn. Hún segir
ab úr því ab ekki var kostur á aö
mynda vinstri stjórn, þá sé þetta
ágætis niðurstaða ab mynda
stjórn með sjálfstæbismönnum.
„Ég hef trú á því aö þetta verði
sterk stjórn sem muni geta skilað
ýmsu góbu til þessa þjóðfélags,"
segir Valgeröur. Hún segir að þaö
sé skylda flokksins ab reyna
stjórnarmyndun í ljósi þess sig-
urs, sem hann vann í nýafstöðn-
um' kósningum. Valgerður segist
ekki geta túlkað þennan sigur
öbmvísi en ab þjóbin vilji að
Framsóknarflokkurinn taki þátt í
landsstjórninni. Síban muni það
bara koma í ljós hvort flokkurinn
muni hagnast á því eba ekki. ■
Svavar Gestsson þingmaöur:
Óþægileg tilhugsun
„Eg hef auövitab áhyggjur af
þessu og þaö er í raun og
veru óþægileg tilhugsun ab
íhöldin í landinu séu leggja
saman," segir Svavar Gests-
son þingmabur Alþýbu-
bandalags og óháöra .
Svavar segir að áhyggjur sín-
ar vegna væntanlegs stjórnar-
samstarfs Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks séu ekki af flokks-
legum rótum heldur miklu
fremur vegna alþýbu landsins
og þess fólks sem fráfarandi
ríkisstjórn lagði í einelti með
atvinnuleysi og fátækt.
Hann segir að samstarf þess-'
ara flokka hafi ekki komið sér
svo mjög á óvart. í því sam-
bandi minnir hann á aö í vet-
ur sem leið hefbi hann sagt í
viðtali á Stöð 2 að „Framsókn-
arflokkurinn væri greinilega
að snyrta á sér hægri vang-
ann". Svavar segir að þá hefði
allt oröið vitlaust og þá aðal-
lega í Framsóknarflokknum og
m.a. hefði Páll Pétursson þá
sagt:
„Það eru engin takmörk fyrir
þeirri lýgi sem lekur út úr
kjaftinum á Svavari Gests-
syni." Svavar segir ab því mið-
ur hefbi hann haft það á til-
finningunni að miðjuskil-
greining Halldórs Ásgrímsson-
ar þjónaði þeim tilgangi ab
Framsókn gæti alveg eins fariö
þá leið sem virðist blasa við,
þ.e. í stjórnarsamstarf meö
Sjálfstæðisflokknum. Hann
segist óttast aö sú stjórn sem
verið sé að koma saman muni
sitja út kjörtímabilið. Að-
spurður hvort væntanleg
stjórnarandstaða muni jafnvel
nota tímann til að undirbúa
frekara samstarf í anda R-list-
ans segir Svavar að „aðalatrið-
ið sé ab gera eitthvað, en tala
kannski minna. Það eru verkin
sem skipta máli," segir Svavar
Gestsson. ■
„Ég verb nú ab játa þab
svona fyrirfram ab stjórn
Framsóknar og Sjálfstæbis-
flokks er ekki óskastaðan.
En ég vil skoba þab fordóma-
laust," sagbi Einar K. Guö-
finnsson, þingmabur sjálf-
stæbismanna á Vestfjörbum.
Hann sagðist lítiö geta tjáð
sig að svo stöddu um stjórnar-
myndunarviðræður flokkanna
vegna lítillar vitneskju um
málið. Hinsvegar hefði fréttin
um samstarf þessara flokka
komib sér frekar á óvart. Einar
K. segir að afstaða sín til vænt-
anlegrar ríkisstjórnar muni
mótast fyrst og fremst af iani-
haldi málefnasamnings flokk-
ana. En eins og kunnugt er þá
iýstu frambjóðendur flokksins
fyrir vestan því yfir í kosninga-
baráttunni að þeir myndu ekki
styðja þá stjórn sem héldi
fram óbreyttri fiskveiðistjórn-
un, og hefur sú afstaða ekkert
breyst að sögn Einars K.
Hann segir þab ofmælt sem
fram hefur komið að þing-
menn flokksins í Vestfjarða-
kjördæmi og Sturla Böðvars-
son þingmabur flokksins á
Vesturlandi séu ab leggja loka-
hönd á sérstakan sjávarútveg-
spakka sem ætlunin sé að
leggja fyrir þingflokk sjálf-
stæðismanna á morgun, föstu-
dag.
„Við erum bara margir þing-
menn sem erum að ræða sam-
an," segir Einar.
Össur Skarphéöinsson umhverfisráöherra sér kosti viö aö fara í stjórnarandstööu:
Munum safna þrótti
„Vib höfbum pata af þessu strax á
fimmtudaginn, ég er hissa á hvab
fjölmiblarnir tóku seint vib sér,"
sagbi Össur Skarphébinsson um
stjórnarmyndunarvibræbur Sjálf-
stæbisflokks og Framsóknar-
flokks.
Össur segir ab veikleikar stjórnar-
samstarfs Alþýbuflokks og Sjálf-
stæbisflokks hafi ekki síst verib inn-
J/FJ/1, £6G£#T AiW/V.
\OMHDI FR JÓT
ÖJlDVlN 3Ú/NA/ AÐ þ/)KM
ÞÉX TVRIN
an Sjálfstæbisflokksins. Davíb hafi
ýjab ab því ab erfibleikarnir væru
innan Alþýbuflokksins. Vib þab
könnubust kratar hins vegar ekki.
„Þab er ljóst ab veikleikarnir voru
margir hjá Davíb. Hann hafbi átt í
erfibleikum meb ýmsa þingmenn á
kjörtímabilinu. Þeir koma jafnvel
efldir til þings meö dömu upp á
arminn," sagbi Össur og vísaöi þar
til Egils bónda á Seljavöllum sem
mætir nú meb Arnbjörgu Sveins-
dóttur sér vib hliö til þinghaldsins
sem þingmabur Austfirbinga. Þá
væri ljóst ab Davíö vildi geta hreyft
til rábherra, en þab hafi veriö
ómögulegt þar sem þab valt á at-
kvæbi þeirra hvort stjórnin héldi
velli eöa ekki. Því hafi Davíö verib
óhægt um vik aö koma fram þeim
breytingum sem hann vildi gera á
ráöherraliöinu.
„Aö vísu held ég ab þessar
óvæntu vendingar gefi nú þessum
mönnum sem hann vildi sjá hreyf-
ast á taflboröinu, færi á aö ná vopn-
um sínum, og óljóst hvort honum
tekst þab í fyrstu atrennu. En þetta
tel ég aö hafi valdiö miklu um af-
stööu Davíbs. Ab ööru leyti segi ég
ab svona er einfaldlega gangvirki
stjórnmálanna, þab er vib öllu ab
búast," sagöi Össur.
Össur sér fram á rólegri tíö eftir
rúmlega tveggja ára starf sem um-
hverfisrábherra.
„Fyrir Alþýöuflokkinn er þab
ekki slæmur kostur miöaö viö út-
komu kosninganna ab fara í stjórn-
arandstööu og safna þrótti og end-
urnýja sig. Þaö gefur kost á ab fara
yfir málin, skoba þau frá öörum
sjónarhóli, safna nýjum liösmönn-
um, og byggja upp innviöi hreyf-
inga sem ekki hefur gefist rábrúm
til þegar flokkurinn sinnir land-
stjórninni. Ég tel ab hræringum
hins íslenska flokkakerfis sé fráleitt
lokiö. Þessi niburstaba meb stjórn-
armyndun mun frekar ýta undir
gerjunina."
Össur segir aö sagan segi ab þaö
hafi reynst pólitískri heilsu Alþýöu-
flokksins erfitt aö starfa langtímum
saman meö Sjálfstæöisflokknum í
ríkisstjórn.
„Ég tel því miöur ab þessi stjórn
muni ekki reynast landi og þjób
farsæl. Hins vegar óska ég þeim
sem ab henni standa alls hins besta
og vona ab þeir vinni landi okkar
vel," sagöi Össur Skarphéöinsson
aö lokum. ■