Tíminn - 20.04.1995, Page 4
4
Fimmtudagur 20. apríl 1995
ffiwiwt
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: ]ón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 5631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf.
Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Það er búiö
ab kjósa
Umræðurnar um stjórnarmyndun að kosningum
loknum taka á sig ýmsar myndir. Það er eðlilegt
þegar slitnar upp úr stjórnarsamstarfi tveggja
flokka að það losni um ýmis bönd, og öldur rísi
hátt. Hins vegar er engu líkara nú en dómgreind
ýmissa stjórnmálamanna sé eitthvað úr lagi geng-
in í pólitískum hræringum stundarinnar.
Einkennilegasta umræðan er um að Framsókn-
arflokkurinn og formaður hans hafi gengið á bak
loforði um myndun félagshyggjustjórnar. Með
þessum staðhæfingum er vitnað til þeirra ummæla
sem Halldór Ásgrímsson og fleiri frambjóðendur
flokksins höfðu fyrir kosningarnar, að flokkurinn
væri tilbúinn til þess að veita forustu fyrir nýrri
ríkisstjórn stjórnarandstöðunnar ef ríkisstjórnin
missti meirihluta sinn. Til þessa var beðið um öfl-
ugan stuðning, því að ríkisstjórn Alþýðuflokksins
og Sjálfstæðisflokksins hafði öruggan meirihluta.
Kosningaúrslitin urðu þannig að þessi meiri-
hluti hékk á bláþræði, en hann hélst, og þess
vegna komst Davíð Oddsson hjá því að biðjast
lausnar og hafði auk þess ýmsa möguleika á hend-
inni. Þrátt fyrir þetta er haldið áfram eins og ekk-
ert hafi í skorist að tala um vinstri stjórn eða fé-
lagshyggjustjórn.
Það virðist alveg gleymast í þessum umræðum
að Alþýðuflokkurinn einsetti sér að starfa áfram
með Sjálfstæðisflokknum. Staðhæfingar um ann-
að nú breyta ekki þeim staðreyndum. Flokkurinn
setti fram kosningastefnuskrá sem var í ýmsum
greinum hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn.
Þátttaka Alþýðuflokksins í stjórn á vinstri væng
stjórnmálanna hefði ekki orðið meir en nafnið
eitt, til þess að halda ráðherrastólum undir for-
manninn og einn til tvo fylginauta úr hans flokki.
Kristín Ástgeirsdóttir lét svo um mælt í sjón-
varpsviðtali að Halldór Ásgrímsson hefði tjáð
kvennalistakonum eftir samtal við Jón Baldvin
Hannibalsson að sitt mat væri að stjórn með Al-
þýðuflokkinn innanborðs væri útilokuð og hver
yrði að spá í sín spil upp á eigin spýtur. Formaður
Alþýðubandalagsins þykist nú ekki hafa skilið
þessi skilaboð, þrátt fyrir að ekki hafi verið á móti
mælt að hans flokkur var að spá í spilin á eigin
spýtur með orðsendingum til sjálfstæðismanna
um að alþýðubandalagsmenn væru ekki frábitnir
viðræðum um stjórnarmyndun með þeim.
Hins vegar mun þessi hrina ganga yfir, og mestu
máli skiptir nú að fá ríkisstjórn sem hefur burði til
þess að takast á við þau erfiðu vandamál sem fram-
undan eru. Verkefnin blasa við alls staðar, eins og
meðal annars sést í hinum hrikalegu tölum sem
nú eru að birtast um atvinnuleysi í landinu.
Kosningarnar eru afstaðnar og niðurstöðum
þeirra verður ekki breytt. Það vantaði herslumun-
inn til þess að fella ríkisstjórn Davíðs Oddssonar.
Það er sú staðreynd sem stýrt hefur atburðarásinni
eftir kosningar, en ekki sögð og ósögð orð stjórn-
málaforingja í hita leiksins yfir páskahelgina.
Mogginn og Jón Baldvin
Þá er Mogginn kominn í stjórn-
arandstöbu og fylgir þar meb
Jóni Baldvini Hannibalssyni
inn og út úr stjórn. í leibara í
gær lýsir Mogginn því yfir ab
fyrst óskastjórn íhalds og krata
muni ekki verba myndub, megi
búast vib miklum erfibleikum
framundan.
Annars er hún í raun merkileg
sú stabfasta trú Morgunblabsrit-
stjór^ ab Sjálfstæbisflokkurinn
og Alþýbuflokkurinn eigi svo
mikla samleib. Mogginn segir
um Alþýbuflokkinn og Sjálf-
stæbisflokkinn: „Reynslan af
samstarfi þessara tveggja flokka
er þyí sú, ab þeir hafa náb meiri
árangri vib stjórn landsins en
ríkisstjórnir, sem skipabar hafa
verib á annan veg. Astæban er
augljós: flokkarnir tveir eiga
meiri samleib en abrir tveir
stjórnmálaflokkar á íslandi."
Ef mibab er vib samstarf þess-
ara tveggja flokka á síbasta kjör-
tímabili, þar sem hvert stór-
ágreiningsmálib á fætur öbru
hefur komib upp, þá mætti ætla
ab ritstjóri Morgunblabsins
væri ab gera grín ab fráfarandi
ríkisstjórn. Svo er hins vegar
ekki, því þó Morgunblabib al-
mennt sé málgagn Sjálfstæbis-
flokksins, hefur þab þá sérstöbu
ab vera jafnframt sérstakt mál-
gagn Jóns Baldvins. Hafa menn
rakib þau tengsl til áhrifamikill-
ar sameiginlegrar pólitískrar
skólunar, sem formabur Al-
þýbuflokksins og ritstjóri Mogg-
ans fengu vib fótskör Finnboga
Rúts, heimsborgara og meistara
þeirra beggja, þar sem þeir sátu
framan vib dívaninn á Mar-
bakka í Kópavoginum.
Breyttir tímar
Ab vísu hafa tímarnir breyst
nokkub og menn tala ekki lengur
um hinar „sögulegu sættir"
vinstri og hægri þar sem fundinn
er mibstýröur ríkisstjórnar-sapi-
nefnari verkalýbshreyfingarinnar
og vinnuveitenda. Nú hafa menn
ekki lengur áhyggjur af launþega-
hreyfingunni og hugsa helst um
GARRI
ab halda sátt um frjálshyggju og
hægristefnu. Ljóst er aö í fóst-
bræöralagi Marbakka-lærisvein-
anna liggur veigamikil skýring á
stjórnarandstööu Morgunblabs-
ins aö þessu sinni.
í leibaranum er ab vísu sérstak-
lega fjallaö um sjávarútvegsmál
og gefiö í skyn aö þessi málaflokk-
ur rábi úrslitum um afstööu
blabsins. Þaö hlýtur þó ab teljast
einkennilegt í ljósi þess, aö Viö-
eyjarstjórn íhalds og krata hefur
fest í sessi núverandi sjávarút-
vegsstefnu án þess aö Morgun-
blabiö hafi látib þab trufla stuön-
ing sinn vib stjórnina. Sannleik-
urinn er aubvitaö sá ab Morgun-
blaöiö er ein þeirra stofnana í
Sjálfstæöisflokknum sem hafa
lent í minnihluta hvaö varöar
sjávarútvegsmálin. Þess vegna
hefbi þab engu máli skipt þó þessi
minnihluti heföi fengiö stubning
frá Jóni Baldvini í ríkisstjórn, tii
ab umturna þeirri festu og hag-
ræöingu sem unniö hefur verib
aö í sjávarútvegi. Slík umbylting
hefbi ekki veriö merkilegri eöa
meiri næstu árin en hún var á síö-
ustu fjórum árum.
Gleðiefni
Engin ástæöa er þó til aö búast
vib stöönun í málefnum sjávarút-
vegsins, því greinilegt er aö upp-
byggjandi sprengikraftur býr í
þingliöi þeirrar stjórnar sem veriö
er aö mynda, og tortryggnin og
trúnabarbresturinn, sem ein-
kenndi óskastjórn Morgunblaös-
ins, spillir þar ekki málum.
Garri veröur þó ab lýsa yfir al-
veg sérstakri ánægju meö þaö aö
Morgunblabiö sé á móti þessari
ríkisstjórn. Því þaö bendir til aö
hvaö svo sem um hana annars
má segja, þá muni Framsóknar-
flokkurinn vera þar svo fyrirferö-
armikill aö öfgaleysi og mildi
miöjustefnunnar ráöi úrslitum.
Ríkisstjórn hægri frjálshyggju,
sem hér hefur setib í fjögur ár og
Morgunblaöiö mælir meb, hefur
skilaö fólki vonbrigöum og vand-
ræbum. Líkur eru á, aö ef ein-
hverjum finnst slík stjórn góö, þá
finnst þeim hinum sama þaö
vont sem Garra finnst gott.
Garri
Klofið til að sameina
Sameining vinstrimanna er
einhver erfibasti höfuöverkur
íslenskra stjórnmála allt frá
því ab Sameiningarflokkur al-
þýðu — Sósíalistaflokkurinn
var stofnabur úr kommaflokki
og klofningi úr Alþýbuflokki.
Síban hafa vinstrimenn verib
ab kljúfa sig úr hinum og þess-
um vinstri flokkum til ab sam-
einast öbrum vinstri flokkúm
eba stofna nýja smáflokka til
ab vinna ab sameiningu
vinstri aflanna í landinu.
Þessu nennir hver kynslóbin
af annarri ab stússast í og kalla
pólitík.
Fáir eru eins illa haldnir af
sameiningaráráttunni og Ólaf-
ur Ragnar, sem klauf Möbru-
vellinga út úr Framsókn til ab
samsamast félagshyggju
vinstri aflanna og lenti í Sam-
tökum frjálslyndra og vinstri
manna og síðan í kosninga-
bandalaginu sem kallab var
Alþýbubandalag og var mynd-
ab úr alls kyns sameiningar-
flokkum og baub núna síbast
fram meb óhábum, sem sam-
einubust móti Þjóbvaka og
öbrum krötum.
En Þjóðvaki var stofnabur til
ab sameina vinstrisinnaba
jafnabarmenn úr öllum flokk-
um á móti Jóni Baldvini og
öðrum íhaldsöflum.
Á breiðum
brautum
Uppistaöan í kvennaflokkn-
um var lengst af klofningur úr
Alþýðubandalaginu og er
flokkurinn nú farinn ab
klofna inn í abra flokka, sem
telja hann vinstrisinnaöan og
því vel klofningshæfan.
Tveir fyrrum varaformenn
sósíalistaflokka eru kjarninn í
Þjóðvaka, sem ætlaöi ab sam-
eina sanna jafnaðarmenn á
breiðum brautum félagshyggj-
unnar, sem enginn getur út-
skýrt af viti hvaðan koma og
hvert liggja. Átti sameiningar-
flokkurinn sá miklu fylgi ab
fagna fram að kosningum, en
þá var skoöanakannanafylgiö
klofiö í fleiri áttir og lenti
mestanpart meðal þeirra sem
aldrei kenna sig vib jafnaðar-
stefnu.
í ljós kom eftir kosningar að
Á víbavangi
samanlagðir klofnings- og
sameiningarflokkar nábu ekki
fjörutíu af hundraöi atkvæða
— og er þá Alþýðuflokkurinn
talinn meb, en margútúr-
klofnir sameiningarsinnar
töldu hann ekki til framsækins
félagshyggjuflokks fyrir kosn-
ingar. En eftir ab kjósendur og
Davíð höfnubu honum er
hann boðinn velkominn í
sameiningarskjóbuna.
Meb klærnar úti
Kratar, sem um páskahelg-
ina töldu sig eiga samleið meb
Sjálfstæðisflokknum einum af
hugsjónalegum og sögulegum
ástæbum, umhverfðust á einni
nóttu í sameiningarflokk
vinstri aflanna, eftir að flokk-
arnir meb fjöldafylgiö fóru ab
ræöa landsins gagn og naub-
synjar upp á eigin spýtur.
Fallinn krataþingmaöur seg-
ir við Tímann ab nú eigi að
vinna ab stofnun stórs jafnað-
armannaflokks. í Alþýðublað-
inu vitna fulltrúar allra sam-
einingarflokkanna, að
kvennaflokki meðtöldum, að
nú sé orðið tímabært að fara
ab sameina vinstri hugsjónir.
Hugumstór Þjóðvakamaður
komst ab því ab sameiningar-
sinnar nái aldrei árangri fyrr
en þeir krækja klónum saman.
Þarna er haglega aö orði kom-
ist, því löngum hefur þaö ver-
ib höfuðeinkenni félags-
hyggjuflokkanna aö læsa
klónum hver í annan og rífa
til sín eins og afl dugir til.
Nú situr klofningsfólkið,
sem ávallt þykist vera að sam-
eina, á rústum gjöröa sinna —
eba hugsjóna, ef einhver vill
kalla það svo — og uppsker
eins og sáð var. Fjórir máttlitl-
ir og valdasjúkir smáflokkar,
hver meb sínar sérþarfir og
ósættanlegar sérviskur og hver
um sig æpir ab nú sé rétti tím-
inn til aö sameinast um hug-
sjónir félagshyggjunnar. Sum-
ir vilja samsamast Evrópusam-
bandi á stundinni og aðrir
telja þab landráð, sumir bibja
um meira Nató, aðrir um að
þjóbin segi sig úr samtökun-
um eins og skot. En þetta eru
aðeins utanríkismálin.
Partur félagshyggjunnar
heimtar einkavæðingu og að-
hyllist óheftan markaðsbú-
skap. Abrir innan hugmynda-
fræðinnar telja opinbera forsjá
og stofnanaveldi undirstöbu
heilbrigbs þjóölífs.
Þetta á nú allt ab sameina
undir einum hatti, og lifi þeir
þar í náðum Jón Baldvin og
Steingrímur J. meb samanlæst-
ar klærnar.
OÓ