Tíminn - 20.04.1995, Blaðsíða 8
8
WtWNtU
Fimmtudagur 20. apríl 1995
UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . ..
Rússnesk glæpa-
starfsemi verour
markvissari
Moskvu - Reuter
Samkvæmt upplýsingum frá
rússneska innanríkisráðuneytinu
eru glæpamenn í Rússlandi farn-
ir að beita „skynseminni" í ríkari
mæli en áður gerðist.
Með þessu er einkum átt við að
„efnahagsglæpir" á borð við
ólögleg gjaldeyrisviðskipti og
skjalafalsanir hafa aukist. Slíkir
glæpir eru orðnir skipulagðari og
markvissari en áður og einkenn-
ast meira af fagmennsku, eins og
komist er að orði í skýrslu innan-
ríkisráðuneytisins frá því á
þriðjudaginn. Á fyrsta ársfjórð-
ungi 1995 er vitað um 60.648
slíka glæpi, sem er 31,7 prósent
aukning frá síðasta ári. l>ar af telj-
ast 16.297 vera alvarlegir glæpir.
Ertandi gas veldur
enn usla í Japan
Yokohama - Reuter
í gær voru nærri 300 farþegar
fluttir á sjúkrahús eftir að hafa
komist í snertingu vib ertandi gas
í járnbrautarlest og á brautarpöll-
um í Yokohama. Lögreglan telur
að um verknað af mannavöldum
sé ab ræða. Ekkert bendir þó til.að
at'buröurinn tengist trúarsöfnub-
inum Aum Shinri Kyo.
Lögreglan segir að gasinu hafi
verib dreift nánast á sama tíma
bæði í einum lestarvagni og í lest-
argöngum við aöallestarstöð
Yokohama um kl. eitt eftir há-
degi. Lestin hélt áfram og kom
við á þrem lestarstöðvum áður en
kallab var á aðstoð og neyðar-
merki gefið, enda þótt farþegar
hefðu á öllum stöðvunum keppst
ERT ÞU AÐ TAPA
RÉTTINDUM?
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um
iðgjaldagreiðslur á árinu 1994:
Almennur lífeyrissj. iðnaðarmanna
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyrissjóður framreiðslumanna
Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar
Lífeyrissjóður Norðurlands
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahúsum
Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vesturlands
Lífeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
Lífeyrissjóður matreiðslumanna
Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna
Lífeyrissjóður Sóknar
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lífeyrissjóður verkstjóra
Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga
Fáir þú ekki yfirlit
en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef
launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið
allra fyrsta og eigi síðar en 1. maí nk.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist.
Þar á meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI ÖRORKULÍFEYRI
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa
vegna gjaldþrota skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu
yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyr-
issjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tíma-
marka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er
í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkom-
andi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli ið-
gjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyris-
sjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
við að komast út úr vagninum.
Þeir sem urðu fyrir gasinu
kvörtuðu undan sviða í augum,
særindum í hálsi og flökurleika.
Enginn þeirra missti meövitund.
„Ég fann fyrir sárum verk í hálsi.
Aörir farþegar fóru líka að hósta,"
sagði Yasuyo Saigenji, 21 árs.
Annar farþegi, Tsuneyuki Sakam-
oto, sagðist ekki hafa séð neitt
grunsamlegt í lestarvagninum.
Sértrúarhópurinn Aum Shinri
Kyo, sem talinn er hafa borib
ábyrgö á gasárásinni í Tokyo 20.
mars síðastliðinn, gaf strax út yf-
irlýsingu þar sem því er eindregið
neitaö að hann hafi átt nokkurn
þátt í þessu atviki. Ekkert bendir
heldur til þess að atvikið í gær
tengist á nokkurn hátt árásinni í
Tokyo, þegar 12 manns létu lífið
og meira en 5.000 særðust. No-
bukatsu Takasu, yfirmaður á
slysadeild í Tokyo, segir ólíklegt
að sarín eba önnur hernaðargös
hafi verið notuð.
Lögreglan segir aö enginn hafi
lýst sig ábyrgan á verknaðinum
og að ekkert sé enn vitað um það
hvernig að honum var staðið. Svo
viröist sem gasið í lestinni hafi
borist út um loftræstingarkerfi
sem fór í gang fyrst í gær þegar
hlýna tók í veðri. ■
Klaus Kinkel, utanríkis-
ráöherra Þýskalands:
Fríverslunarsvæði
Evr. og N-Ameríku
Bonn - Reuter
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, sagði í gær að Evrópa
og Norður-Ameríka ættu að taka
höndum saman og setja á stofn frí-
verslunarsvæði sem nær til beggja
heimsálfanna, „Trans-Atlantic Free-
Trade Area" eða TAFTA.
Þá hvatti Klaus Kinkel Bandaríkin
ennfremur til að afsala sér ekki pól-
itísku forystuhlutverki sínu í heim-
inum, þau megi ekki einangra sig
heldur þurfi Evrópa og Bandaríkin
að efla enn frekar samvinnu sína.
TAFTA á að vera næsta skrefiö eft-
ir að GATT-viðræðunum lauk með
góðum árangri í Uruguay í upphafi
ársin, sagði Kinkel, en bætti því við
að það myndi að sjálfsögðu taka
mörg ár aö gera þetta markmib að
veruleika. ■
Bréfberi í Austurríki:
Setti póstinn í
endurvinnslu
Vín - Reuter
Bréfberi nokkur í Austurríki
hefur viðurkennt að hafa hent
hundruðum bréfa í staðinn fyrir
að koma þeim til skila. Hann ber
því við ab vinnuálagið hafi verið
meira en hann réð við. „Ég var
bara sendur út með póstinn án
þess að fá nokkra þjálfun og álag-
ið var hreinlega alltof mikið,"
sagöi bréfberinn.
Hann fór fram á tekið verði til-
lit til þess í dómi að hann hafi
hent bréfunum í endurvinnslu-
gám fyrir pappír. Ef hann hefði
ekki verið svo samviskusamur aö
gera það hefbi sennilega aldrei
komist upp um atvikið.
Hann hlaut þriggja mánaða
skilorðsbundinn dóm í héraðs-
dómi í Graz. ■