Tíminn - 29.04.1995, Blaðsíða 9
Laugardagur 29. apríl 1995
9
Tískan sköpuö. Lagerfeld og aöstoöarfólk.
Tískan kemur og fer,
eins og kynorkan
Það vefst fyrir mörgum. hvað há-
tíska er og hvað er bara tíska sem
fötin í næstu búð bera keim af. Af
hverju hátíska og hvernig hefur
hún áhrif á hvab ég og þú klæð-
umst hvunndags eða spari? Hér á
eftir leiðir Heiðar okkur í allan
sannleika um hvers vegna okkur
kemur hátíska við, þótt við mun-
um aldrei hafa efni og kannski
ekki heldur áhuga á að kaupa
hana.
Heibar: Hátíska er í rauninni
hlutur sem ekki nema 0,02%
kvenna í heiminum geta nálgast.
Þab er aðeins þröngur hópur
hönnuða sem nær því að búa til
hátísku, sem vekur athygli og hef-
ur áhrif á fatagerð og fatasmekk
víða um heim. Eins og áður hefur
verið tekið fram, kaupa stórtækir
fataframleiðendur rétt af hátísku-
hönnuðum til að fjöldaframleiöa
snið þeirra eða hafa þau til fyrir-
myndar þeim fatnaði sem þeir
framleiða. Þannig kemst almenn-
ingur — eða sá hluti hans sem er
annt um útlit sitt og ímynd — í
snertingu við hátískustrauma.
í hátískuklæðnaði er hver ein-
asti hluti handgerbur og til er
ákveðinn kvarði um hve mikil
vinna þarf að fara í hverja flík.
í hátískudragt er efnið sérofið.
Þab er aldrei klippt út úr snið-
stranga, heldur er sérofið í flíkina
eins og annan hátískufatnað. Ef
skreyting er á hátískukvöldkjöl,
þá er hún sérstaklega búin til í
höndum fyrir þennan eina kjól
og það er engin önnur svona
skreyting gerð. Og það er eftirlit
með að rétt sé fariö að í allri gerð
hátískufata.
Allir í hátísku, eba
svo gott sem
En af hverju er verið að kynna
Stínu og Gunnu á íslandi hátísku
utan úr heimi?
Heibar: Það sem Stína og
Gunna þurfa ab læra — og ís-
lenskar Stínur og Gunnur eru allt-
af að læra betur og betur — er að
tileinka sér tísku sem hæfir þeirra
persónulega stíl og vaxtarlagi. Það
er að kunna á sig og tískuna. Það
þýðir að trúverðugheit Stínu og
Gunnu aukist og að þær sýni
meira af sér af því, sem þær vilja
ab aðrir sjái af sinni persónu, með
abstob tískunnar.
En um leið og tíska eða stíll fer
að yfirgnæfa persónuleikann, þá
er of langt gengið, nema því að-
eins að viðkomandi sé ab vinna í
tískubransanum. Taka verður til-
Hjá Dior tekur 110 klukkustundir aö sauma jakka og 46 stundir aö sníöa
og sauma pils.
Heiöar
Jónsson,
snyrtir,
svarar
spurningum
lesenda
Hvernig
áégað
vera?
lit til aldurs, vaxtarlags og mann-
gerbar, þegar valinn er fatnaður
sem fólk ætlar að ganga í.
Ab finna eigin stíl
Þab er ráðlegt fyrir Stínu og
Gunnu að kaupa sér nokkur há-
tískublöð annað slagið. Þab er
voba sniðugt fyrir allar konur, og
karla líka, að finna þá hönnuði
sem búa til fatnað sem mann
mundi langa í. Þetta getur maður
notab að vissu leyti sem lykil ab
sínum stíl.
Tökum dæmi. Karlmannafatn-
abur Ameríkanans Ralphs Lauren
byggist mikið upp á flannelskyrt-
um, gallabuxum og flauelsjökk-
um, en herrafatnaður frá Yves St.
Laurent er fullkomlega klæð-
skerasniðinn og fínir frakkar. Þar
er aldrei sportfatnaður.
Svona verður fólk að finna sinn
hönnub og sinn stíl. Allir fata-
framleiðendur líta til hönnuð-
anna og þegar maður fer í búðir
að kaupa föt, er mjög gott að hafa
í huga þessa mynd af uppáhalds-
hönnubinum. Vib þurfum ekki
að kaupa rándýrar Diorbuxur,
enda ekki til hér á landi, en við
getum valið okkur buxur með Di-
orsniði, ef okkur fellur það betur
en önnur buxnasnið.
Svona geta bæði karlar og kon-
ur haft góð not af því að kynna
sér hátísku, fylgjast vel meb og
geta klætt sig í stíl viö hugmyndir
færustu hönnuða, án þess aö
kaupa hátískufötin beint.
Hönnuðir em misjafnlega upp-
lagðir, stundum í lægb og stund-
um í ofsastuði. Tíska breytist og
fötin slitna, svo alltaf er þörf á að
fylgjast með. En um tískuna má
segja eins og kynorkuna, hún
kemur og fer og hver vill vera án
hennar? ■
Hagvrbingaþáttur
Stjómarfæöing
Framsókn núna fundið hefur
félaga afhœgri vœng.
Davíð auga Dóra gefur,
dragast þeir að sömu sœng.
Upp í rúm og undir sœng
ólmur Dóri flýgur,
bindi hans með hliðarvœng
harla mikið sýgur.
Krógi þessu kemur frá,
kolli lyftir hýr á brá,
ein ergrœn, en önnur blá,
ánœgð hjónin standa hjá.
Naumast fyigið glœðist grís,
glaður vart mun spjalla.
Laumast að mér vitund vís,
vorið þitt mun falla.
Eða:
Falla mun þitt vorið vís,
vitund mér að laumast.
Spjalla mun vart glaður grís,
glœðist fýlgið naumast.
Helgi
Dinglumdangl
Stokkað er nú upp stjómarlið,
studdur er Bjöm í öllu.
Ólafi sparkað upp á við
á að dingla bjöllu.
Valgeir Þormar
Það kom í fréttum útvarps að loftþrýstingur væri óvenju
hár í Þingeyjarsýslum. Svo hár hafi hann aldrei orðið á
nýliðnu kjörtímabili.
Það má skilja svo:
Kuldaboli kannski stingur
kratana með döpm sinni.
Heldur virðist háþrýstingur
hcekka nú hjá landsstjóminni.
En krötunum má leggja orð í munn:
Þetta skeður œði oft.
Á því vart skal byggja,
að þetta sé jú þingeyskt loft.
Það er krata hyggja.
Guðmundur Einarsson
Ekki til fyrirmyndar:
Vildi sýnast voða stór;
viss að haga seglum,
elskaði vín og aldrei fót
eftir laga reglum.
Neikvæð umsögn og feimni háir mörgum:
Níðið ristir ncemi þungt,
nýja kvisti heggur,
flesta lista framlag ungt
feimnin kistuleggur.
Bragi Björnsson
Að loknum kosningum:
Nú kyrrir, því kosningahríðin
hjá krötum og Davíð er liðin.
En eitt skortir á,
þeir fóm ekki frá,
svo Jóhanna er kjarklaus og kvíðin.
Strandaglópur
Limran ber þess merki að vera ort milli kosninga og
stjórnarmyndunar.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4