Tíminn - 29.04.1995, Síða 12
12
ðttmntt
Laugardagur 29. aprfl 1995
Reynsluakstur þriöju
kynslóöar af Volks-
wagen Polo:
Volkswagen hefur um langan
tíma framleitt smábíl undir
heitinu Polo. Sá, sem hér er til
umfjöllunar, er þriöja kynslóö
af Polo og leysir af hólmi Polo
II, sem þóttu á sínum tíma
skemmtilegir smábílar, en stóö-
ust ekki oröiö samkeppni í
flokki smábíla hin síöari ár. Sér í
lagi var innanrými og aksturs-
eiginleikum ábótavant í saman-
burði við smábíla frá öörum
japönskum og evrópskum fram-
leiðendum. Þriöja kynslóð af
Polo á fátt sameiginlegt með
forvera sínum annaö en nafniö.
Bíllinn er nýr frá grunni, en vél-
ar og gírskipting eru byggðar á
eldri tegundum úr smiöju VW.
Minnsta vélin of lítil
Nýr Volkswagen Polo
var kynntur hjá Heklu
hf. á þessum vetri. Viö-
tökurnar eru góöar þaö sem
af er og sölutölur benda til ab
Polo sé mest seldi smábíllinn
um þessar mundir.
Bíllinn er nýr, en samt talsvert slípaöur vegna þess ab í honum er ab finna margt sem ábur hefur verib reynt hjá VW. Mest af því kemur úr Colf.
Gæðingurinn með
„ Gullna stýrið "
Tímamynd CS
Fyrstu bílarnir, sem hingað
komu skömmu fyrir áramót,
voru með 1,0 1 45 hestafla vél-
um. í stuttum reynsluakstri á
þeim bíl kom í ljós aö hestöflin
máttu vart færri vera. Sér í lagi
háir kraftleysið bílnum full-
hlöönum í þjóövegaakstri. Létt-
hlaðinn innanbæjar er bíllinn í
lagi meö minnstu vélinni, en þó
ekki meira en svo. Höfuðkostur
Polo meö minnstu vélinni er
veröiö, en 3ja dyra kostar bíll-
inn um 950 þúsund krónur þeg-
ar búið er aö bæta viö íslenskri
ryövörn.
Aðrar vélar, sem hægt er aö fá
í þennan bíl, eru 1,3 1 55 ha. og
1,6 1 75 ha. 4 strokka bensínvél-
ar, sem eru vel þekktar úr Golf II
— og 1,9 1 64 ha. díselvél, sem
vart tekur aö minnast á vegna
þess aö vegna þungaskatts og
vörugjaldsflokkana er ekki hag-
kvæmt aö eiga Iitla díselbíla
hérlendis.
Sá bíll, sem hér er til umsagn-
ar, er með 1,3 1 vél, 5 dyra og
meö hjálparátaki á stýri. Þessi
bíll kostar meö skráningu og
verksmiöjuryövörn 1.085 þús-
und krónur. Stóri bróðir Golf
meö fimm dyrum og 1,41 60 ha.
vél kostar 200 þúsund krónum
meira, og 3ja dyra Golfinn ein-
ungis tæplega 100 þúsund
krónum meira.
Þessi bíll er þó verðugur kost-
ur að skoða, ef kaupa á smábíl.
Þýskir bílablaðamenn kusu Polo
besta bílinn í sínum flokki og
krýndu hann „Gullna stýrinu"
á síöasta ári.
Góður aö innan
Útlitslega séð er Polo mjög vel
heppnaður. Skyldleikinn við
Golf leynir sér ekki. Ávalar línur
og fleygmynduð yfirbygging
hafa leyst af hólmi kassalagið á
Polo I og Polo II. Þessi breyting
gleöur ekki einungis augaö,
heldur skilar ný hönnun meira
plássi fyrir farþega og farangur,
þrátt fyrir að bíllinn sé 55 milli-
metrum styttri en Polo II. Inn-
réttingin er sérlega smekkleg,
traustvekjandi og þægileg í alla
staöi. Stýrishjólið er lítið og
sportlegt og mikið „dobblað",
þannig að auövelt er að stýra án
mikilla tilfæringa. Vökvastýrið
er mátulega þungt.
í skjáboröinu eru tveir stórir
mælar fyrir snúningshraöa vélar
og ökuhraöa og minni mælar
fyrir eldsneyti og vatnshita á
vél. Annaö er gefið til kynna
meö gaumljósum. Frágangur á
miöstöövarstillingum og blást-
ursstokkum er til fyrirmyndar.
Þess má geta aö stillingar fyrir
miðstöðina eru á snúningsskíf-
um, líkt og í t.d. Opel Corsa, og
það er til talsverðra bóta frá því
sem var.
Sæti frammí og afturí eru góö
og styöja vel við, en sjálfir sætis-
stólarnir aö framan mega þó
ekki minni vera, eigi þeir að
duga fyrir breiövöxnustu menn.
Hurðimar eru stórar og opnast
vel, sem er ótvíræöur kostur fyr-
ir eldra fólk og aöra sem farnir
eru aö stiröna í hreyfingum. Út-
sýniö til hliðar og afturfyrir bíl-
inn er gott og útsýni framfyrir
hann er viöunandi. Þó að rýmið
sé almennt mjög gott, mætti aö
skaðlausu vera meira fótarými
frammí. Sér í lagi finnur öku-
maður fyrir þrengslum þegar
skipt er um gíra eða fætur
hreyföir að ööru leyti. Á móti
kemur aö rými aftursætisfar-
þega er óvenju gott.
Mjög skemmtilegur
í akstri
Einn stærsti kostur Volkswag-
en Polo em aksturseiginleikarn-
ir. Ökumaöurinn fær strax góöa
tilfinningu fyrir bílnum og jafn-
vel óvanir, sem fengu að taka í,
voru fljótir aö átta sig á gripn-
um. Bíllinn var bæöi prófaður á
malbiki og möl og kom þægi-
lega á óvart hversu stööugur og
rásfastur hann er á jafnvel hol-
óttum malarvegi. Hjólin fjaöra
sjálfstætt á gormum allan
hringinn, en þeim til stuönings
eru jafnvægisarmar. Fjöörunin
er talsvert slaglöng og mýkri en
búast mætti viö af ekki stærri
bíl.
Hurðarföls og afturhleri virö-
ast vel þétt og ekki varö vart viö
að ryk kæmist inn í bílinn þann
stutta tíma sem hann var til
reynslu. Hljóðeinangrun frá vél
og dekkjum er þokkaleg, en
gæti þó verið betri. Aö minnsta
kosti það eintak, sem viö höfð-
um til reynslu, reyndist gallað
aö því leyti aö talsvert vind-
hljóö heyröist inn í bílinn. Þetta
vindgnauö á ekki að vera til
staðar, en einhverra hluta
vegna heyrðist þaö og vonandi
er þar um einsdæmi að ræða. Að
minnsta kosti varð þessa ekki
vart í bílnum meö minni vél-
inni, sem var reynsluekið fyrr í
vetur.
Góður með
þessari vél
Þaö er reginmunur á bílnum
eftir því hvort hann er með 45
eða 55 ha. vél. Meö stærri vél-
inni er bíllinn orðinn þokkalega
sprækur og meö 75 ha. 1,6 1 vél
er hann án efa mjög skemmti-
legur í akstri. Millistæröarvélin
er þrautreynd úr Golf, þó aö
reyndar hafi verið gerðar ein-
hverjar endurbætur á henni.
Þessi 1,3 1 vél getur snúist gletti-
lega lengi, enda eru nokkur
dæmi um þær í Golf, sem búið
er aö aka um 200 þúsund km.
Hér er ekki hægt aö fullyrða
um hvaöa endurbætur hafa ver-
iö gerðar, en gamla vélin haföi
tvo megingalla. Annar er sá að
blöndungurinn var viðkvæmur
fyrir óhreinindum, og hinn
gallinn er aö gúmmí, sem er
meðfram ventlastöngum, hefur
viljað gefa sig. Þetta hefur í för
meö sér, aö ventlalok fyllist af
olíú, hún fer að leka út með því
og niður eftir vélinni. Til þess
að laga þetta þarf aö taka ofan af
vélinni og í leiðinni eru ventla-
sætin slípuð og skipt um pakkn-
ingar. Þessi viðgerö kostar tugi
þúsunda.
Kassinn er 5 gíra beinskiptur
og fremur lágt gíraður. Skipting-
in er þokkalega lipur, en þó
gekk á stundum ekki snuröu-
laust aö koma bílnum í 3ja gír.
Það má þó eflaust fremur kenna
eintakinu en tegundinni.
Mikib úrval smábíla
Þeir, sem ætla aö kaupa bíl í
þessum stærðarflokki, hafa úr
talsverðu úrvali aö velja. Nefna
má bíla eins og Renault Twingo,
Nissan Micra, Fiat Punto, Opel
Corsa, Suzuki Swift og fleiri.
Verömunur er ekki ýkja mikill
milli tegunda, en með í reikn-
inginn verður aö taka staðal-
búnaö, endingu og endursölu-
verð. Aö mínu mati eru Corsa
og Polo verðugustu keppinaut-
arnir, enda um margt líkir bílar.
Volkswagen Polo er þokka-
lega búinn og gera má ráö fyrir
að þessi bíll haldi sér nokkuð
vel í verði, sé tekið mið af
reynslunni af stórabróður Golf.
Hann er ekki framúrstefnulegur
í útliti, enda ekki.til þess ætlast.
VW leggur fyrst og fremst
áherslu á aö smíða sterka og
fremur hefðbundna bíla, sem
eldast vel. Þetta er ekki gallalaus
bíll fremur en aðrir, en aö öllu
samanlögðu má þó spá honum
nokkurri velgengni, sem reynd-
ar þegar er farin aö koma fram.
. ■
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkur til háskóla-
nams í Japan
japönsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa íslendingi til
rannsóknanáms í háskóla í japan háskólaáriö 1996. Ætl-
ast er til aö styrkþegi hafi lokiö háskólaprófi og sé yngri
en 35 ára, miðaö við 1. apríl 1996. Þar sem kennsla viö
japanska háskóla fer fram á japönsku, er til þess ætlast
að styrkþegi leggi stund á japanska tungu a.m.k. um
sex mánaða skeiö.
Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum próf-
skírteina, meðmælum og heilbrigðisvottoröi, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 1. júní nk. Sérstök umsóknareyðublöð
fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
28. apríl 1995