Tíminn - 03.05.1995, Side 8
ö
Miövikudagur 3. maí 1995
Hútúar á flótta úr landi: líklegt ab forystumenn Tútsa stefni frekar ab þjóbarhreinsun en þjóbarmorbi.
„Annar þáttur harmleiks"
Átök meö hrybjuverk-
um fara vaxandi
milli Hútúa og Tútsa
í Búrúndi, sem eru
gagnteknir af
hrœbslu hverjir viö
aöra eftir fjölda-
moröin í Rúanda í
fyrra
Af lýsingum á Mið-Afríku-
ríkjunum Rúanda og Búr-
úndi (flatarmál: 27.834
ferkílómetrar, íbúafjöldi 5,6
milljónir) mætti ætla að þau
væru hvort öðru lík eins og tví-
burar. Þau eru álíka víðlend,
ekki mikill munur á íbúafjölda,
landslag og gróður svipað í báð-
um (frjósamt land, skógivaxnar
hæðir) og íbúar þar af sömu
stofnum: Hútúar, Tútsar, Batwa
(pýgmear). Frá stjórnartíð Belga
þar er franska opinbert mál í
báðum löndum og kaþólska
ríkjandi trúarbrögö.
Lönd þessi eru og grannar og
helsti vandinn í þjóömálum
beggja er rammt hatur milli
helstu þjóða (eða stétta, eins og
sumir vilja heldur orða það) þar,
Hútúa og Tútsa. Tvennt enn,
sem líkt er með löndunum, er
aö Hútúar eru í miklum meiri-
hluta í þeim báðum (85% í Búr-
úndi), en hinsvegar hafa Tútsar
lengstum verið valdameiri.
Tútsar me& hervald
Ennfremur hefur saga landa
þessara verið að talsverðu leyti á
sömu lund frá því að þau urðu
sjálfstæð ríki (Búrúndi 1962,
Rúanda árið eftir). í þeim báð-
um hefur hvað eftir annað kom-
ið til átaka milli Hútúa og Tútsa
með fjöldamorðum og fólks-
flótta til grannlanda.
Það skilur þó á með Rúanda
og Búrúndi að nokkrum árum
áöur en sjáifstæðið gekk í garð
tóku Hútúar völdin í fyrrnefnda
landinu og héldu þeim þar til
Föðurlandsfylkingin, tútsískur
flokkur, náði þeim í fyrra. í Búr-
undi höfðu Tútsar hinsvegar
nærfellt öll völd þar til árið
1993, er fyrstu frjálsu kosning-
arnar í sögu landsins voru
haldnar, mikiö til líklega vegna
þrýstings frá Vesturlöndum. í
þeim var Hútúi kjörinn forseti
og flokkur, sem hafði fylgi þeirr-
ar þjóðar, fékk mikinn meiri-
hluta á þingi.
Tútsar stjórnuðu þó her
landsins áfram. Skömmu eftir
kosningarnar drápu tútsiskir
hermenn forsetann og reyndu
að ná pólitíska valdinu. Það
mistókst, en úr þessu urðu mik-
il fjöldamorð á báða bóga. Gisk-
aö er á aö um 100.000 manns
hafi verið drepnir þá og í átök-
um milli Hútúa og Tútsa síðan,
álíka margir af hvorri þjóð. Um
700.000 Hútúar flýðu til grann-
landa.
Út um heim þóttu fréttir af
þessu litlar í samanburöi við
morð Hútúa á hálfri ef ekki
heilli milijón (tölur eru á reiki)
Tútsa og Batwa í Rúanda í fyrra.
Ekki fer á milli mála ab á bak við
þau fjöldamorð var bæði ræki-
leg skipulagning af hálfu hút-
úskra stjórnmálamanna og her-
foringja og almenn þátttaka.
Jafnvel hútúsk börn lögðu hönd
aö verki við ab myrða tútsísk
börn, sem í sumum tilvikum
voru skóla- og leikfélagar þeirra.
„Fyrirbyggjandi
fjöldamor&//?
Fréttir fóru fyrst að berast af
yfirstandandi óöld í Búrúndi, er
Robert Krueger, bandaríski
sendiherrann þar, tók sér ferð á
hendur um landið og frétti að
tútsískir hermenn hefbu drepið
um 150 Hútúa í þorpi nokkru í
norðausturhluta þess. En líkur
benda til að skálmöld hafi geis-
að í landinu allt frá haustinu
1993, þótt hún hefði fram að
ferð sendiherrans farið framhjá
fjölmiðlum, uppteknum við Rú-
anda.
Á fréttum frá Búrúndi nú er
helst svo að heyra, að margir
Hútúar séu því ekki fráhverfir
að stofna til hliðstæðs fjölda-
morðs á Tútsum og þjóbbræður
þeirra framkvæmdu í Rúanda í
fyrra. En þeir eiga erfiðara um
vik í Búrúndi, því þar er herinn
tútsískur. „Róttækir" Búrúndi-
Tútsar eru fyrir sitt leyti sagðir
krefjast „fyrirbyggjandi fjölda-
morðs" á Hútúum. Yfirleitt er
þó ekki talið að Tútsar þarlendis
hugsi sér að „hreinsa" landið
gersamlega af Hútúum, þó ekki
sé nema vegna þess að hve
margir Hútúarnir eru. Vib þab
hugga sumir Hútúar sig. „Vib
erum sex sinnum fleiri en Túts-
ar," hefur þýskur fréttamabur
eftir Hútúa einum. „Þeir geta
ekki drepið okkur alla."
Búrúndi-Hútúum bættist liðs-
auki við sigur Föðurlandsfylk-
ingarinnar í Rúanda, því aö þá
flýðu um 200.000 Hútúar þaðan
til Búrúndi. Þar á meðal eru
margir herþjálfaðir menn.
Ástæðulítið er að gera ráð fyrir
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
öbru en að margt af því flótta-
fólki hafi tekið þátt í morðun-
um á Tútsum í Rúanda.
„Þeir sem aldrei
sofa''
Ætla má að forystumenn
Tútsa, helstir þeirra herforingj-
arnir, reyni bæði með hryðju-
verkum og sögusögnum um
hryðjuverk, sem þeir komi á
kreik, að stuðla að fjöldaflótta
Hútúa úr landi, til að dragi úr
yfirburðum þeim sem Hútúar
njóta í krafti fjölda síns. Þannig
kváðu Tútsar reyna að gera Buj-
umbura, höfuðborg landsins
sem stendur við norðurenda
Tanganyika- vatns, að altúts-
ískri borg. En í dreifbýli hafa
Hútúar víða yfirhöndina og
Tútsar, sem Iáta sjá sig þar,
komast í bráða lífshættu. Stofn-
aöar hafa verið „róttækar"
hútúskar skærusveitir, sem
nefnast á landsins tungu Int-
agoheka („þeir sem aldrei sofa",
„velvakendur"). Intagoheka
hafa sagt Tútsum stríð á hend-
ur, skipulagt sig víða um land
og kaupa vopn frá Saír og
Tansaníu með aðstoö Hútúa í
þessum löndum.
Báðar þjóðir eru gagnteknar
af hræðslu, Tútsar við ab Hútúar
í krafti fjölda síns komi í kring
fjöldamorði hliðstæðu því sem
framið var í Rúanda í fyrra og
Hútúar við að Tútsar hrindi í
framkvæmd „fyrirbyggjandi
fjöldamorði". Útlendingar í
landinu mega vara sig. Fyrir
nokkru myrtu Hútúar nokkrir í
höfuðborginni þrjár belgískar
manneskjur og var ein þeirra
ungabarn. Hútúar bæbi í Búr-
úndi og Rúanda hafa illan bifur
á Belgum, sem þeir gruna um
vináttu við Tútsa. Tútsar hafa
að sama skapi illan bifur á öðr-
um Vesturlandamönnum, eink-
um Bandaríkjamönnum, sem
þeir saka um ab gera meira úr
hryðjuverkum Tútsa en Hútúa.
Vestrænir fréttamenn telja að
öllu samanlögbu fremur litlar
líkur á að í Búrúndi komi til
jafnmikilla afkasta í fjölda-
morðum á skömmum tíma og
gerðist í Rúanda. Tútsar hafi
ekki nógu mikinn mannafla til
slíks og Hútúar ekki möguleika
á því, vegna þess að Tútsar hafa
hervaldið. Líklegra sé að „annar
þáttur harmleiksins" verði borg-
arastríð, sem færist smátt og
smátt í aukana. ■
Gröf tekin fyrir drepinn Hútúa: „þeir geta ekki drepib okkur alla."