Tíminn - 04.05.1995, Qupperneq 1

Tíminn - 04.05.1995, Qupperneq 1
STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Fimmtudagur 4. maí 1995 81. tölublað 1995 Mikiö af fugli í túnum bœnda víöa um land: Gæs og álft fer fjölgandi Fuglaáhugamenn og bændur hafa séð óvenju mikið af gæsum og álft- um á þessu vori. Niðurstöður nýj- ustu talninga liggja ekki fyrir, en flest bendir til að t.d. álftastofninn og helsingjastofninn séu báðir í vexti. Bent hefur verið á að vegna óvenju mikilla snjóalaga miðað við árstíma geti litið svo út að fuglarnir séu fleiri en þeir raunveruiega eru, þar sem þeir hafi færri snjólausar sléttur til þess að hafast viö á. Bóndi í Álftaverum í Skaftafellssýslu sá í síðustu viku helsingja í þúsundatali á túnum hjá sér, sem er nokkuð einsdæmi en þessi gæsategund hef- ur yfirleitt viðkomu í Húnavatns- sýlu og Skagafirði á leið sinni til Grænlands á vorin. Ólafur Einars- son, fuglafræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun, telur líklegast að þarna hafi verið um að ræða fugla er hafi lent í hrakningum og lent til að hvíla sig. Ólafur var í síðustu viku á Norð- urlandi að fylgjast með álftum og gæsategundum, en mjög mikið af fugli hefur sést fyrir norðan. Taln- ingar á álft á vetrarstöðvum á ís- landi og Skotlandi sýna að stofninn hefur stækkað úr 15-16 þúsund fuglum 1985 í um 19 þúsund 1991. Beðið er eftir niðurstöðum talninga frá þessum vetri. ■ Bílainnkaup í mars 52% meiri en í fyrra „Jólainnkaup" í marsmánuöi Vöruinnflutningur landsmanna nam hátt í 9,1 milljarði króna í mars, sem er 34% meira heldur en í sama mánuði í fyrra, og t.d. töluvert meira heldur en jólainn- kaupin í nóvember og desember. Þetta á einnig við um innflutning matvæla og innkaup á neysluvör- um voru nú meiri en í jólamán- uðinum. Innflutningur fólksbíla er líka rúmlega 50% meiri en í mars í fyrra í krónum talið, en bílafjöldinn hefur hins vegar auk- ist um þriöjung (úr 535 í 712) sem bendir til að menn kaupi nú dýr- ari bíla. Útflutningurinn í mars- mánuði er aftur á móti 3% minni en í fyrra. Þetta þýðir að afgangur. á vöruskiptajöfnuði í mars er nú 2,6 milljörðum minni en fyrir ári, samkvæmt skýrslum Hag- stofunnar. ■ Þingflokkur Sjálfstœö- isflokksins: Geir for- maður Þingflokk- ur Sjálf- s t æ ð i s - flokksins frestaði í gær að taka af- stööu til skipanar f járlaga- ^e,r Haarde. nefndar og utanríkismála- nefndar, eins og til stóð að gert yrði. Mun þingflokkur- inn taka sér tíma til að af- greiða þau mál. Hins vegar var kosið í stjórn þingflokksins. Geir Haarde var endurkjörinn formaður þingflokksins, Sigríður Anna Þórðardóttir, varaformaður og Sólveig Pétursdóttir ritari þing- flokksins. ■ Sérfræðingar búast við fremur lélegri laxveiði í sumar. Sér í lagi búast menn vib lélegri veibi í ám á Norburlandi og Norbaust- urlandi. Óvenju fá seibi virtust ganga í sjó fyrir ári síban og jafnframt bendir allt til ab minna verbi af tveggja ára laxi en í mebalári. Veiði í vötnum hófst um mán- aðarmót og vorveiöi á sjóbirtingi eða göngusilungi er að byrja. Lax- veiði í ám er heimil eftir 20. maí þó yfirleitt hefjist veiðin ekki fyrr en nokkru síöar. Að sögn Guðna Guðbergssonar, fiskifræðings hjá Veiðimálastofn- un, eru ekki horfur á góðri lax- veiöi í sumar og allar líkur til þess að aflinn verði undir meðallagi. Sérstaklega á þetta við um árnar á Norðurlandi og Norðausturlandi. Verulega marktæk fylgni hefur mælst á milli veiða á smálaxi og stórlaxi árið eftir, þ.e.a.s. laxi sem hefur veriö eitt ár í sjó og laxi sem hefur verið tvö ár í sjó. Upp undir helmingur af aflanum í ám á Norður- og Austurlandi er stórlax. í fyrra var smálaxaveiði léleg sem gefur ekki tilefni til bjartsýni varð- andi veiðina í sumar. Guðni segir að menn óttist jafnframt að smá- laxagengdin verði ekki sérlega sterk heldur. „Við metum þaö út frá því, að göngurnar út fyrir ári síðan virtust vera seinar og frekar lítið af seiö- um sem gengu, þannig að það er ekki sérlega bjart yfir því heldur," segir Guðni. Á síðasta ári voraði seint á Norð- urlandi og það er m.a. talin hugs- anleg skýring á því að hluti þeirra seiða sem áttu að ganga í sjó fyrir ári síðan sátu eftir í ánum. Hins vegar verður að geta þess að dánartala laxa í sjó er mjög breytileg. Ef dánartala laxa í sjó hefur verið lág udanfarin misseri gæti það t.d. orðið þess valdandi að fleiri fiskar koma til baka, en aö sögn Guðna er ekki hægt aö ráöa í þann þátt á þessu stigi. Erfitt er að spá fyrir um vatna- veiðina í ár, en á síðasta ári veidd- ist nokkuö vel í helstu veiöivötn- um landsins og þess vegna eru menn ekki svartsýnir á veiðina í sumar. ■ Fremur drœmt útlit meö veiöi í laxám fyrir noröan og austan í sumar: Búist við lélegri laxveiði í sumar Óskar Cuömundssor, var ab veiba á flugu í Ellibavatni ígœr. Hann var ekki búinn ab fá fisk þann daginn þegar Tímann bar ab garbi en hafbi fengib fjórar bleikjur og urriba ífyrradag. Tímamynd: cs Vinnustöbvun boðuð a fiskiskipaflotanum Farmanna- og fiskimannasam- band íslands, Sjómannasam- band íslands og Vélstjórafélag íslands hafa boðað verkfall á fiskiskipaflotanum með þriggja vikna samningsbundnum fyrir- vara. Hafi samningar ekki tek- ist fyrir þann tíma, eba fyrir 25. maí nk. skellur á verkfall á öll- um fiskiskipaflotanum ab Vest- firbingum undanskildum. Búist er vib ab ríkissáttasemjari kalli deiluaðila fljótlega til sátta- fundar. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands íslands, segir aö samtök sjómanna hafi ákveðiö aö boða til vinnustöðvunar þar sem ekki hefur enn tekist aö ganga frá gerð nýrra kjarasamninga fyrir áhafnir fiskiskipa. Helstu kröfur sjómanna em að samið verði um skýr ákvæði í kjarasamningum varðandi samskipti sjómanna og útvegsmanna um ráðstöfun aflans og það fiskverö sem er greitt til sjó- manna. Samtök sjómanna krefjast þess einnig aö lokið verði viö gerð samninga fyrir veiðigreinar sem ekki em til samningar fyrir, ásamt öðrum kröfum. Jónas Haraldsson skrifstofustjóri LÍÚ segir að þessi boðun vinnu- stöðvunar hefði komið sér á óvart. Hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti í gær og sagði aö þaö ætti eftir að kynna þaö fyrir stjórn LÍÚ. Formaður SSÍ segir að ítrasta krafa sjómanna sé að allur fiskur fari á markað. Hann segir að sjó- menn muni ekld standa upp frá komandi samningagerð öðruvísi en að komib verði í veg fyrir að „Jón Jónsson geti samið við Jón Jónsson um aö selja Jóni Jónssyni fiskinn á 20 krónur ldlóið." Hann segir sjómenn vilja forð- ast lagasetningu í lengstu lög og að gengib verði frá þessum málum við samningaborðið. En eins og kunnugt er þá batt þáverandi ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar endi á tveggja vikna verkfall sjómanna á fiskiskipaflotanum með bráða- birgðalögum um miðjan janúar í fyrra þegar tekist var á um kvóta- braskið. Innan vébanda samtaka sjó- manna eru um fimm þúsund sjó- menn. Ef til verkfalls kemur missir annar eins fjöldi fiskvinnslufólks vinnuna og því mun verkfallið hafa gríðarleg áhrif um land allt nema Vestfirði. En vestfirskir sjó- menn standa utan við boðaöa vinnustöðvun enda eru samningar þeirra taldir betri en almennt gerist meðal sjómanna í öðrum lands- fjórðungum. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.