Tíminn - 04.05.1995, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 4. maí 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
„Klerkar í klípu"
hljóta góba dóma
Leikfélag Sauðárkróks hefur
hlotið góða dóma fyrir gam-
anleikinn „Klerkar í klípu" eft-
ir Philip King. Leikritið var
sýnt út Sæluvikuna og var aö-
sókn með því besta sem
þekkst hefur á Sæluviku hing-
að til.
Sveinn Guðmundsson um
viðskilnað sinn vib félaga
sína í Hrossaræktarsam-
bandi Skagafjaröar:
„Geng út meb
rýting í baki"
„Ég hafði ekki hugsaö mér
að hætta með þessum hætti
og taldi mig eiga annað skilið
frá þessum hrossaræktar-
mönnum en að ganga út með
rýtinginn í bakinu," sagði
hinn kunni hrossaræktarmaö-
ur, Sveinn Guðmundsson, er
hann gekk út af aðalfundi
Hrossaræktarsambands Skaga-
fjarðar, sem haldinn var fyrir
skömmu. Þetta gerðist í kjöl-
far deilna, sem áttu sér stað
vegna sölu HS á stóðhestinum
Vafa frá Kýrholti til Danmerk-
ur.
Sveinn hafði spurnir af því
að frammi í héraði væri á ferð
undirskriftalisti þar sem sam-
þykktar væru vítur á hann og
annan stjórnarmann, Skafta
Steinbjörnsson á Hafsteins-
stöðum, út af því hvernig
staðið var að sölunni á Vafa.
Sveinn lýsti eftir þessum lista
á fundinum, en þrátt fyrir ít-
rekanir kom þessi listi ekki
fram.
Sveinn sagðist ekki gefa kost
á sér til endurkjörs og jafn-
framt myndi hann segja af sér
formennsku í stjórn Vind-
heimamela hf. Sárindi hans
eru því greinilega mikil, en
mál manna er að enginn eigi
jafn mikinn þátt í uppbygg-
ingunni á Vindheimamelum
og Sveinn, og allir þekkja
hans þátt í hrossarækt í Skaga-
firði.
rnÉTTnninnrn
SELFOSSI
Stórframkvæmdir á teikni-
boröinu viö Geysi:
4000 fermetra
lúxushótel
Aö Geysi í Haukadal er
þessa dagana verið að byggja
210 fermetra veitingasal, sem
er samtengdur Hótel Geysi.
Jafnframt þessu er ráðgert að á
næstu árum veröi gistirými
hótelsins fjórfaldaö og reistir
ráðstefnusalir með útsýni yfir
hverasvæðið, þar sem um 500
manns geta setið á fundum.
Teikningar að þessu stóra hót-
eli, sem mun rúma um 100
manns í gistingu í lúxus,
liggja fyrir og hafa verið sam-
þykktar af byggingarfulltrúa
Biskupstungnahrepps.
Að sögn Más Sigurðssonar
hótelstjóra er reiknað með að
framkvæmdir við þetta verk
hefjist á þessu eða næsta ári,
en fyrri hluta framkvæmda
verði lokið innan þriggja ára,
Elva Björk Cuömundsdóttir, Guöbrandur Cuöbrandsson og CuönýAx-
elsdóttir í hlutverkum sínum.
það er áður en ferðamanna-
vertíðin hefst árið 1998. í
þeim hluta felst bygging hót-
els sem verður eins í lögun og
núverandi hótelbygging, en
milli húsanna verður tengi-
bygging úr gleri með tveimur
250 manna ráðstefnusölum.
Úr öllum þessum húsum verb-
ur útsýn yfir hverasvæbið.
í seinni hluta framkvæmd-
anna er síðan hóteláima, sem
liggur í suður frá hinum bygg-
ingunum tveimur og miðja
vegu á milli þeirra. Alls nemur
þessi viöbót rúmlega 300 fer-
metrum að gólffleti og fer
stærsti hluti þess undir gisti-
herbergi í lúxusflokki. Fyrir er
Hótel Geysir í rúmlega 100
fermetra húsi, auk sundlaug-
arbyggingarinnar o.fl. húsa.
Við Hótel Geysi starfa frá 7
til 20 manns, en hótelið er
opið allan ársins hring og árs-
verk eru 10-15. Við stækkun-
ina er búist við að fjöldi árs-
verka þrefaldist. Eigendur hót-
elsins eru hjónin Sigríður Vil-
hjálmsdóttir og Már Sigurös-
son frá Haukadal.
Slmritm trium n mm$lyiimtmyim»IA é Smimrmtljmm
XÍÍKUR
KEFLAVIK
Bláa lóniö:
200 manna tjald
og miklar endur-
bætur á bab-
ströndinni
Framkvæmdum við pall
undir 200 manna tjald á
ströndinni við Bláa lónið er
ab ljúka. Pallurinn er 200 fer-
metrar ab stærð og á næstu
dögum verður risastóru heils-
árstjaldi tjaldað við lónið.
Meb tjaldinu verður rigningin
lokuð úti og fjörið verður í
tjaldinu, þegar veislur eða aðr-
ar uppákomur verða við lón-
ib.
Kristinn Benediktsson hjá
Bláa lóninu sagði að það færð-
ist í vöxt að stórir starfs-
Frá framkvæmdum viö nýja 220
fermetra pallinn þar sem tjaldaö
veröur 200 manna heilsárstjaldi.
Meö tilkomu tjaldsins opnast
miklir möguleikar fyrir ýmsar
uppákomur viö Bláa lóniö.
mannahópar færu fjölskyldu-
ferðir þar sem hápunktur ferð-
arinnar væri útigrillveisla í
skemmtilegu umhverfi. Rign-
ingarsuddi hefði oft sett grill-
veisluna úr skorðum, en með
tilkomu tjaldsins yrði það úr
sögunni.
Sparisjóöur Þórshafnar og
nágrennis:
Eingöngu konur
kosnar í stjórn af
ábyrgbarmönnum
Á aðalfundi Sparisjóðs Þórs-
hafnar fyrir skömmu voru
kjörnar af ábyrgðarmönnum
Kristín Kristjánsdóttir stjórn-
arformaður, Jóna Þorsteins-
dóttir ritari og Þorbjörg Þor-
finnsdóttir meðstjórnandi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sambandi ísl. sparisjóba mun
þetta vera fyrsti og eini spari-
sjóður landsins þar sem allir
stjórnarmenn, kosnir af
ábyrgöarmönnum, eru konur.
Hagnabur af rekstri síðasta árs
varð 6,8 milljónir.
Vígreifir verktakar meö hótelstjóranum á Geysi. Frá vinstri Þorsteinn
Þórarinsson, Már Sigurösson, Björn Guömundsson og Árni Leósson.
Hlíf mótmœlir hœkkun vaxta:
Klipib af launa-
hækkun verkafólks
Verkamannafélagiö Hlíf í
Hafnarfiröi mótmælir harö-
lega vaxtahækkun bankanna
og vítir um leiö þaö óheil-
brigba samráö, sem bankarnir
hafa sín í milli um vaxtamál.
í ályktun stjórnarfundar, sem
haldinn var að morgni 1. maí
sl., er tekið undir með við-
skiptaráðherra að hækkun
vaxta muni leiða til verri af-
komu fyrirtækja og gerir skuld-
ugum heimilum erfibara að
standa við skuldt indingar sín-
ar. Þá mótmælir félagið alveg
sérstaklega vaxtahækkunum
með hliðsjón af síðustu kjara-
samningum.
Félagið telur ab bankar og
aðrar peningastofnanir verði að
kunna sér hóf í vaxtamálum,
því nóg sé komið af gjaldþrot-
um hjá heimilum í landinu.
Stjórnin lýsir fullri ábyrgð á
hendur þeim aðilum, sem klípa
af þeirri litlu launahækkun sem
verkafólk fékk í síðustu kjara-
samningum. Ennfremur er lýst
yfir andstyggð á ummælum
Sverris Hermannssonar banka-
stjóra að þeir, sem setja sig upp
á móti óþarfa vaxtahækkunum
og gróða bankanna, tali eins og
flón. Stjórn Hlífar telur að
bankarnir eigi aö vera fyrir fólk-
ið, en ekki öfugt. ■
SUJ lýsir áhyggjum
Rýr hlutur kvenna, þoku-
kenndar óskir um árangur
eigin verka og velferbarmál
sem skiptimynt, er þaö sem
einkennir stjórnarmyndun
Framsóknarflokks og Sjálf-
stæbisflokks, ef marka má
ályktun Sambands ungra jafn-
aöarmanna í tilefni stjórnar-
skijitanna á dögunum.
Alyktunin ber með sér að
ungir jafnabarmenn eru svart-
sýnir á að nýju stjórninni takist
að vinna þarft verk, en hafa þó
sérstakar áhyggjur af því að
hana bresti kjark til að sækja
um aðild að Evrópusamband-
inu.
Þá lýsir SUJ áhyggjum af því
að vald hagsmunahópa í sjávar-
útvegi og landbúnaði muni
aukast verulega, auk þess sem
lýst er áhyggjum af stjórn
vaxta- og peningamála.
Bent er á aö lenging húsnæð:
islána muni leiða til hækkunar
á ávöxtunarkröfu og kunni af-
föll húsbréfa að aukast um
helming. Þá er þeirri ráðstöfun
harðlega mótmælt að sami ráð-
herra fari með umhverfis- og
landbúnaöarmál. ■
Kvikmynd um Raufarhöfn
Frá Þórtii Ingimarssyni, fréttaritara
Tímans á Akureyri:
Þessa dagana er unnið að töku
kvikmyndar um Raufarhöfn. Höf-
undur myndarinnar er Örn Ingi
Gíslason, fjöllistamaður á Akur-
eyri, en hann hefur auk þess að
vinna að myndlist fengist við
blaðaútgáfu, leikstjórn og gerð
sjónvarpsefnis. Myndinni er ætl-
að að gefa innsýn í líf fólksins í
þessu sjávarplássi á ströndinni
mót nyrsta hafi og er helmingur
hennar tekinn nú í lok vetrar og
byrjun sumars. Síðari hluti mynd-
arinnar verður tekinn í sumar, en
þá halda íbúar Raufarhafnar upp á
50 ára afmæli Raufarhafnar-
hrepps. Áriö 1945 var Raufarhöfn
klofin frá Presthólahreppi, að ósk
annarra íbúa þessa víölenda sveit-
arfélags en Raufarhafnarbúa
sjálfra, er ekki vildu deila sveitar-
félagi með þessu útvegsplassi, og
því var stofnað til sérstaks sveitar-
félags um byggbina í þorpinu. ■
Konur ráöa ríkjum
íbúar í Helgafellssveit og Stykkis-
hólmi hafa loks fengib sig full-
sadda af því að velta málefnum
sveitarfélaganna upp á kjörboröið,
en er frambobsfrestur vegna
fimmtu kosninganna á hálfu öðru
ári rann út í fyrradag kom aðeins
fram einn iisti í báðum sveitarfé-
lögum.
Báðir listarnir eru sjálfkjörnir, en
í Helgafellssveit þykir það sæta tíb-
indum að þar hafa konur nú öll
völd. Karlar eru þó varamenn í
stjórn Helgafellssveitar.
Fylgi stjórnmálaflokka í síðustu
kosningum var látið ráða hlutföll-
um á eina listanum sem fram kom
í Stykkishólmi. ■
Villikötturinn
Sælgætisgerðin Freyja hefur sett
nýja tegund sælgætis á markaö-
inn, sem hefur hlotiö nafniö
Villiköttur og bætist því í viða-
mikla flóru íslensks sælgætis á
markaðnum. Um er ab ræba 50
gr súkkulaðistöng með kexi,
kornkúlum og karamellufyllingu.
Nafnið hæfir sælgætinu vel, því
bæði útlit og sú tilfinning, sem er
þegar súkkulabistöngin er borð-
uö, er dálítiö villt. ■