Tíminn - 04.05.1995, Side 10
10
Fimmtudagur 4. maí 1995
Framsóknarflokkurinn
Stofnfundur
FUF Vestur-Húnavatnssýslu
Stofnfundur Félags ungra framsóknarmanna ÍVestur-Húnavatnssýslu ver&ur haldinn
sunnudaginn 7. maí nk. kl. 14.00 í Hótel Vertshúsi á Hvammstanga.
Fjölmennum. Undirbúningsnefnd
Hóf til heiöurs Jóni
Helgasyni
Framsóknarmenn á Suburlandi efna til samsætis til heiöurs
Jóni Helgasyni, fyrrverandi alþingismanni og rábherra, og
konu hans, Gubrúnu Þorkelsdóttur, í Hvoli, Hvolsvelli,
sunnudagskvöldib 7. maíkl. 21.00.
Samsætib er opib öllum, sem vilja þakka Jóni farsæl störf á
Alþingi og sem rábherra fyrir Sunnlendinga.
Þátttöku skal tilkynna í síma 98- 63388 og 98-78197 fyrir
6. maí n.k.
KSF5
Kópavogur
Baejarmálafundur verbur ab Digranesvegi 12, mánudaginn 8. maf kl. 20.30.
A dagskrá veröa skipulagsmál. Stjórn Bœjarmóiarábs
UMBOÐSMENN TÍMANS
Kaupstabur Nafn umbobsmanns Heímili Sífni
Keflavík Katrín Sigurbardóttir Hólagata 7, Njarbvík 92-12169
Njarbvfk Katrín Sigurbardóttir Hólagata 7 92-12169
Akranes Abalheibur Malmquist Dalbraut 55 93-14261
Borgarnes Hrafnhildur S. Hrafnsdóttir Hrafnaklettur 8 93-71642
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgata 25 93-81410
Grundarfjörður Gubrún j. Jósepsdóttir Grundargata 15 93-86604
Hellissandur Gubni j. Brynjarsson Hjarbartún 10 93-61607
Búbardalur Inga G. Kristjánsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
Reykhólar Adolf Þ. Gubmundsson Hellisbraut 36 93-47783
ísafjörbur Hafsteinn Eiríksson Pólgata 5 94-3653
Suðureyri Kristín Ósk Egilsdóttir Túngata 14 94-6254
Patreksfjörbur Snorri Gunnlaugsson Abalstræti 83 94-1373
Tálknafjörbur Margrét Gublaugsdóttir Túngata 25 94-2563
Bíldudalur Haukur Már Kristinsson Dalbraut 9 94-2228
Þingeyri Karítas Jónsdóttir Brekkugata 54 94-8131
Hólmavík Júlíana Ágústsdóttir Vitabraut 13 95-13390
Hvammstangi Hólmfribur Gubmundsdóttir Fífusund 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjarnason Urbarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Gubrún Pálsdóttir Bogabraut 27 95-22722
Saubárkrókur Gubrún Kristófersdóttir Barmahlíb 13 95-35311
Siglufjörbur Gubrún Aubunsdóttir Hafnartún 16 96-71841
Akureyri Sigrún Elva Hjaltadóttir Drekagil 19 96-27494
Dalvík Harpa Rut Heimisdóttir Bjarkarbraut 21 96-61816
Ólafsfjörbur Helga Jónsdóttir Hrannarbyggb 8 96-62308
Húsavík Þórunn Kristjánsdóttir Brúnagerbi 11 96-41620
Laugar, S-Þing. Bókabúb Rannveigar H. Ólafsdóttur 96-43181
Reykjahlíb v/Mývatn Dabi Fribriksson Skútahrauni 15 96-44215
Raufarhöfn Sólrún Hvönn Indribadóttir Ásgata 21 96-51179
Þórshöfn Matthildur Jóhannsdóttir Austurvegur 14 96-81183
Vopnafjör&ur Ellen Ellertsdóttir Kolbeinsgata 44 97-31289
Egilsstabir Páll Pétursson Árskógar 13 97-11350
Seybisfjörbur Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegur 7 97-21136
Reybarfjörbur Ragnheibur Elmarsdóttir Hæbargerbi 5 97-41374
Eskifjörbur Björg Sigurbardóttir Strandgata 3B 97-61366
Neskaupstabur Bryndís Helgadóttir Blómsturvellir 46 97-71682
Fáskrúbsfjörbur Ásdís Jóhannesdóttir Skólavegur 8 97-51339
Stöbvarfjöróur Sunna K. Jónsdóttir Einholt 97-58864
Breiódalsvík Davfb Skúlason Sólheimar 1 97-56669
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgarland 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 97-81274
Nesjar Hanni Heiler Hraunhóll 5 97-81903
Selfoss Bárbur Gubmundsson Tryqqvaqata 11 98-23577
Hveragerbi Þórbur Snæbjarnarson Heibmörk 61 98-34191
Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbakki Jóhannes Erlingsson Túngata 28 98-31198
Laugarvatn Ásgeir B. Pétursson Stekkur 98-61218
Hvolsvöllur Ómar Eyþórsson Litlagerbi 10 98-78269
Vík í Mýrdal Hugborg Hjörleifsdóttir Suburvíkurvegur 8A 98-71327
Kirkjubæjarklaustur Bryndís Gubgeirsdóttir Skribuvellir 98-74624
Vestmannaeyjar Auróra Fribriksdóttir Kirkjubæjarbraut 4 98-11404
Aðsendar greinar, afmælis-
og minningargreinar
sem birtast eiga í blabinu þufa ab hafa borist ritstjórn blabsins,
Brautaholti 1, tveimur dögum fyrir birtingardag, á disklingum
vistab í hinum ýmsu ritvinnsluforritum sem rn_
texti, eba vélritabar. fHNMI
SÍMI(91) 631600
A EFTIR BOLTA
KEMUR BARN...
"BORGIN OKKAR OG BÖRNIN í UMFERÐINNI" JC VÍK
Jón Þórisson:
Má ekki segja slysa-
varnafólki sannleikann?
í fréttabréfi S.V.F.Í., sem kom
út í febrúarmánuði s.l., er þess
getið að undirritaður hafi
óskað eftir að verba leystur frá
störfum sem fulltrúi Slysa-
varnafélagsins í Umferðarráði.
Þetta var og er að mínu mati
ekki sannleikanum samkvæmt
og óskabi ég því strax eftir því
að þetta yrði leiörétt í næsta
fréttabréfi. Ekki gerði ég neina
kröfu um hvernig það væri
gert, vildi aðeins að hið sanna
kæmi í ljós og þar með hefði
málinu verið lokið af minni
hálfu. Ég beið því næsta frétta-
bréfs með nokkurri eftirvænt-
ingu, en þar var enga leiðrétt-
ingu að finna. Síöan hefi ég
gert ítrekaðar tilraunir til ab fá
þetta leiðrétt, en án árangurs.
„Þá fór nú svarri og suövestanátt
að síga í skapið á Jóni".
Krafðist ég þess m.a. að af-
sagnarbréf mitt væri birt í
fréttabréfinu, en því hefur ekki
verið svarað enn sem komiö er.
Ábyrgðarmanni bréfsins, þ.e.
framkvæmdastjóra félagsins,
hefur sýniiega þótt heppilegra
ab láta ósannindin standa frem-
ur en að segja slysavarnafólki
vítt og breitt um landiö sann-
leikann og þar með neytt mig til
að gera það á öðrum vettvangi.
Hér var vissulega ekki um
neina ósk að ræða af minni
hendi, eins og hver og einn get-
ur dæmt um fyrir sig.
Bréfið sem ekki mátti birta:
„Reykholti 8. nóv. 1994.
Til stjórnar S.V.F.Í.
Grandagarði 14,
101 Reykjavík
Þab tilkynnist hér með að ég
undirritaður hef ákveðið að
starfa ekki lengur sem fulltrúi
Slysavarnafélagsins í Umferðar-
ráði.
Ástæöan fyrir þessari ákvörð-
un minni er hin harkalega og
ómaklega aðferð sem beitt var
þegar einum starfsmanni félags-
ins var vikið úr starfi nú fyrir
stuttu síðan.
• Það skiptir mig engu máli
hvort maðurinn, sem þannig er
vegið að, heitir Hálfdán, Pétur
eða Páll og ekki ætla ég að
dæma um hvort það kunni að
vera helsta lífsvon félagsins að
losa sig við einn reyndasta
starfsmann sinn á þennan hátt.
Þessi ákvörðun mín er ekki
tekin í neinu fljótræði heldur að
vel athuguðu máli. Ég hef lesið
greinargerð félagsstjórnar svo
og svar viðkomandi starfs-
manns við henni.
Jafnvel þó að svari starfs-
mannsins sé algerlega sleppt er
hvergi að finna nokkra ástæðu
sem réttlætir jafn ómanneskju-
legar aðferðir.
Virðingarfyllst,
Jón Þórisson (sign)"
Að túlka þetta sem ósk um að
verða leystur frá störfum þarf þó
nokkurt hugmyndaflug til,
nema eitthvað annað og mun
verra búi hér að baki, sem ég
hefi því miður ástæðu til ab
ætla. ■
íslensk félagsrit komin út
Út er kominn 5.-6. árgangur ís-
lenskra félagsrita, Tímarits Félags-
vísindadeildar Háskóla íslands.
Ritstjóri þessa heftis er dr. Svanur
Kristjánsson, prófessor í stjórn-
málafræði.
Sex höfundar eiga greinar í
tímaritinu ab þessu sinni. Arnór
Guðmundsson félagsfræðing ir
skrifar um atvinnuþátttöku
kvenna og atvinnuleysi á íslandi.
Friðrik H. Jónsson sálfræðingur
um ímynd stjórnmálamanna.
Helgi Gunnlaugsson félagsfræð-
ingur um félagsfræði á framhalds-
skólastigi. Aubur Styrkársdóttir
stjórnmálafræðingur skrifar um
kvennaframboð á íslandi og er-
lendis. Stefanía Júlíusdóttir bóka-
safnsfræðingur skrifar um mann-
afla í bókasöfnum á íslandi.
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-
málafræðingur skrifar um lýðræði
og sveitarstjórnir. Loks skrifar Jón
Hnefill Aðalsteinsson þjóðhátta-
fræðingur athugasemd, er ber
heitið „Þjóðfræðileg rannsókn á
íslendingasögum".
íslensk félagsrit er 163 bls. að
lengd. Tímaritið fæst í helstu
bókaverslunum og kostar kr.
1.490. Háskólaútgáfan sér um
dreifingu ritsins.
Sérstimplar sýningarinnar.
„FRÍMSÝN-95" og Landsþing LÍF
í tengslum við Landsþing Lands-
sambands íslenskra frímerkjasafn-
ara heldur Félag frímerkjasafnara
frímerkjasýningu í nýju og glæsi-
legu Safnaðarheimili Háteigskirkju
dagana 5.-8. maí 1995.
Af áhugaverðum frímerkjasöfn-
um má nefna:
Flugpóstsaga 1945-1960, Póst-
saga Farsund, Dönsku Vestur-Ind-
íur, Fuglar kannaðir á frímerkjum,
Pósthús um borð í skipum, í heimi
apanna, Kettir, Kvennasafn, Furður
undirdjúpanna, Tveir kóngar, Dan-
mörk 1870-1904 og AV2 og OAT
stimplar.
í unglingadeild: Tónskáld, Risar
fortíðar, Pluto og vinir hans, Af-
mælisdagar, Flutningatæki, Rán-
fuglar í útrýmingarhættu, Gæludýr
frá Afríku, Kanadísk frímerki, Stríð-
ið í Evrópu, England 2 drottningar
og Kristófer Kólumbus og fundur
Ameríku.
Auk þess eru mörg önnur mjög
áhugaverð frímerkjasöfn.
I tengslum við frímerkjasýning-
una er líka fjölbreytt annað sýning-
arefni: Má þar nefna stafrófskver
séra Ragnars Fjalars Lárussonar,
spil, póstkort, bókmerki (ex libris),
fingurbjargir, uglusafn, eldspýtu-
stokka og fjölmargt fleira.
Ekki reyndist unnt að fá skósafn
Imeldu Marcos, sem sennilega
myndi fylla Laugardalshöllina, en í
staö þess sýnir Anna Ólafsdóttir
Björnsson safn sitt af smáskóm.
Á sýningunni verða í notkun sér-
stakir póststimplar helgaðir sér-
stöku þema.
FRIMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
Opnunartími sýningarinnar:
Dagur Evrópu, föstudag 5. maí
kl. 17-20.
Dagur kvenna, laugardag 6. maí
kl. 11-20.
Dagur handbolta, sunnudag 7.
maí kl. 11-20.
Dagur friðar, mánudag 8. maí kl.
11-13.
Sérstakt pósthús verður starfrækt
á sýningunni. Konum er sérstak-
lega bent á aö 6. maí er dagur
kvenna. Þá verður í notkun sérstak-
ur póststimpill og þaðan er tilvalið
að senda póstinn sinn þann dag.
Handboltaáhugamenn geta feng-
ið póstinn sinn stimplaðan með
merki HM þann 7. maí á upphafs-
degi Heimsmeistarakeppninnar.
Einnig vekjum við athygli á tom-
bólu. Engin núll, en vinningar eru
frímerki; tilvalin fyrir byrjendur
jafnt sem lengra komna.
Gestir geta tekið þátt í léttri verð-
launagetraun, „Finnið merkið".
Laugardag og sunnudag veröur
skiptimarkaður. Þar gefst fólki tæki-
færi til að koma með söfnunarefni
sitt og skipta við aðra eða skoða
hverju fólk er að safna.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir. Þetta er kjörið tækifæri til
að koma og skoöa sýninguna og fá
sér kaffisopa í nýju og skemmtilegu
safnaðarheimili.
Af þessu má sjá að margt
skemmtilegt er að skoða á frí-
merkjasýningu ársins hérlendis.
Þá má geta þess, að við munum
reyna að birta sem fyrst fregnir af
því hverjir hafa fengið hvaða verð-
laun á sýningunni. Það er alltaf
svolítið spennandi.
Auk þess veröur svo Landsþing
Landssambands íslenskra frí-
merkjasafnara haldið í sambandi
við þessa frímerkjasýningu, eins
og sagöi í upphafi. Framkvæmda-
aðili þessarar frímerkjasýningar er
svo Félag frímerkjasafnara í •
Reykjavík.
■