Tíminn - 04.05.1995, Page 11
Fimmtudagur 4. maí 1995
11
Valgerður Tryggvadottir
Fædd 21. janúar 1916
Dáin 14. apríl 1995
I.
„Ég er fædd og uppalin í kon-
ungsríkinu íslandi og ber þess
merki. Þá lifði þjóðin í þessu landi
í samræmi við þá möguleika sem
landið hefur upp á að bjóða. En
nú finnst mér stundum eins og ég
þekki ekki þessa svokölluöu lýð-
veldiskynslóð þessa lands og mér
finnst það raunalegt." Þannig
lauk Valgerður Tryggvadóttir frá-
sögn sinni af Alþingishátíðinni
1930 í útvarpsþætti árið 1985, en
faðir hennar, Tryggvi Þórhalls-
son, var þá forsætisráðherra ís-
lands. Orð hennar lýsa söknuði
eftir því liðna og vonbrigðum
með þróun þjóðmála.
Valgerður var fjórtán ára á Al-
þingishátíðinni. í útvarpsþættin-
um kemur fram hrifning hennar
á þúsund ára hátíðinni, sem efldi
sjálfstæði þjóðarinnar og trú á
landið: „Þjóðin var sátt við sjálfa
sig, hreykin af menningararfin-
um og hún sýndi samstöðu sem
aldrei fyrr né síðar og bar þess
vegna gæfu til þess að hafa for-
ystumenn sem siglt gátu heilu
skipi í höfn."
Fátt hefur mótað sjálfsmynd
okkar meira en íslendingasögur.
Ungir menn fóru utan til að afla
sér frægðar og frama, heimsóttu
konunga og jarla og þágu af þeim
mikinn sóma. Konur voru ekki
með í för. En árið 1930 sóttu
Danakonungur og Svíaprins ís-
lendinga heim. Og Valgerður lýs-
ir því í útvarpsþættinum þegar
Kristján X bauð henni í konungs-
veislu og henni var skipað til sæt-
is á milli konungsins og Alex-
andrinu drottningar. Og konung-
t MINNING
ur bauð henni upp í fyrsta dans-
inn og þau dönsuðu ein á gólfinu
og allir horfðu á.
Það er engum blöðum um það
að fletta að Valgerður dáði og
dýrkaöi föður sinn, en hún var
nítján ára er hann féll frá. „Hann
var rólegur og bjartur eins og allt-
af," sagði hún þegar hún lýsir
honum þar sem hann kom gang-
andi eftir Tjarnargötunni þing-
rofsdaginn 1931 með mannfjöld-
ann á eftir sér. Hún hljóp á móti
honum og þau gengu saman
heim í ráðherrabústaðinn. Ljóst
er að sú reynsla, sem Valgerður
varð fyrir sem dóttir stjórnmála-
manns, hefur haft djúptæk áhrif á
hana. Valgerði var fjarska annt
um minningu föður síns. Mér er
kunnugt um að hún fylgdist ná-
kvæmlega með öllu sem skrifað
var um föður hennar og hafði
samband við þann sem í hlut átti
til að láta í ljós álit sitt, velþóknun
eða vanþóknun. Ég geri ráð fyrir
að við höfum báðar verið ósáttar
með þá mynd, sem Guðjón Frið-
riksson dregur upp af sambandi
Tryggva og Jónasar afa míns í
sögu hans.
II.
Það var þrjátíu árum eftir Al-
þingishátíðina að ég unglingur-
inn kom inn á heimili Valgerðar í
Garðastræti. Athygli mína vöktu
ljósmyndir sem héngu á veggn-
um. Þær voru flestar af föbur
hennar við opinberar athafnir,
margar frá Alþingishátíðinni.
Þetta sumar fórum við Valgerður'
á hestum Fjallabaksleið. Á þeim
tíma voru slíkar skemmtiferðir
inn á hálendið sjaldgæfar, enda
var meirihluti ferðafélaganna
Þjóbverjar. Bíll fylgdi okkur með
vistir og tjöld, en séð var um alla
matseld fyrir hópinn. Ég á mynd
af Valgerði sem tekin var í ferð-
inni. Hún er hávaxin, brosandi,
hárið dökkt og vindsveipur í hár-
inu. Hún stendur eilítið gleið með
hendur á mjöbmum, klædd reið-
fötum. Það sér í hvít tjöld, bogr-
andi fólk, fjall og himin. Valgerb-
ur tók mig að sér í þessari ferð
eins og ég væri dóttir hennar, af
ástúð og stjórnsemi.
Valgerður var höfðingi í sjón og
raun og kvenskörungur hinn
mesti. Hún hafði ákveðnar pólit-
ískar skobanir, var mikill þjóöern-
issinni og hafði ríka réttlætis-
kennd. Við Valgerður vorum báð-
ar ákafir stuðningsmenn Vigdísar
Finnbogadóttur í forsetakosning-
unum 1980. Ég tók eftir því að
hún umgekkst frambjóðandann
af sömu móðurlegu stjórnsem-
inni og mig forðum.
í tilefni af 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar voru nokkrir
Reykvíkingar fengnir til að rifja
upp endurminningar sínar á sam-
komu á Kjarvalsstöðum. Meðal
þeirra var Valgerður Tryggvadótt-
ir. Hún greindi frá æskuheimili
sínu í Laufási, leikjum þeirra
barnanna og fólkinu í nágrenn-
inu.
III.
Hús þeirra Valgerðar og dr.
Hallgríms Helgasona- í Olfusi
teiknabi Þórir heitinn Baldvins-
son arkitekt. Húsið var byggt sem
eins konar umgjörð eða rammi
um þá hluti sem Valgerði þótti
vænst um. í eldhúsinu var stór
skápur með glerhurðum. Ýmsum
smáhlutum hafði verið raðað í
hillurnar og öllum gefið pláss til
að njóta sín. Valgerður opnaði
skápinn og tók fram greiðu í silf-
urhulstri. Greiöan lá í lófa hennar
og hún sagði mér að þetta væri
fermingargjöfin frá afa mínum og
ömmu. Þannig átti hver hlutur
sinn stað og sína sögu. Og fyrir
utan húsið var landið ug fjallið,
sem kennt er við fyrsta land-
námsmanninn, og Ölfusáin féll
vatnsmikil og straumþung til
sjávar. Valgerður sagði við mig
eftir að þau hjónin fluttu aftur í
bæinn aö ég skyldi heimsækja
þau í Laufási, en þaö varð aldrei.
Fundum okkar Valgerbar bar
síðast saman á Gauki á Stöng. Þá
bjó ég erlendis, en var á íslandi í
sumarfríi. Nú er ég komin heim,
en hún er horfin yfir móðuna
miklu. Blessuð sé minning henn-
ar.
Gerður Steinþórsdóttir
DAGBÓK
Fimmtudaqur
4
maí
124. dagur ársins - 241 dagur eftir.
18. vlka
Sólris kl. 4.51
sólarlag kl. 22.00
Dagurinn lengist
um 7 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrennl
Bridskeppni, tvímenningur, í
Risinu kl. 13 í dag.
Almennur félagsfundur FEB
verður í Risinu mánudaginn 8.
maí kl. 17. Kosning 14 fulltrúa á
aðalfund Landssambands aldr-
aðra, sem haldinn verður dagana
7. og 8. júní n.k.
Félag kennara á
eftirlaunum
Skemmtifundur og abalfundur
verður í Kennarahúsinu við Lauf-
ásveg laugardaginn 6. apríl kl. 14.
Árnesingafélagib í
Reykjavík
ætlar ab mæta til messu í Selja-
kirkju sunnudaginn 7. maí kl. 14.
Öllum boðið upp á messukaffi í
safnaðarheimilinu að athöfn lok-
inni. Árnesingakórinn syngur.
Allir velkomnir.
Vorsveifla Kvennakórs
Reykjavíkur
Kvennakór Reykjavíkur heldur
vortónleika í Langholtskirkju
dagana 4. maí kl. 20.30 og 6. maí
kl. 17.
Auk kórfélaga (sem eru eitt
hundrað) koma fram smærri hóp-
ar, þ.m.t. Vox Feminae og
Gospelsystur ásamt Signýju Sæ-
mundsdóttur sópran. Svana Vík-
ingsdóttir leikur undir á píanó.
Einnig leikur tríó Aðalheiðar Þor-
steinsdóttur, skipað Aðalheiöi
Þorsteinsdóttur sem leikur á pí-
anó, Gunnari Hrafnssyni sem
Eiginmaður minn
Sigurjón Björnsson
Vík í Mýrdal
verður jarösunginn frá Víkurkirkju laugardaginn 6.
maíkl. 14.00.
Fyrir hönd ástvina
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
ldkur á kontrabassa og Ásgeiri
Óskarssyni sem leikur á slagverk.
Stjórnandi kórsins er Margrét J.
Pálmadóttir. Raddþjálfari kórsins
er Björk Jónsdóttir. Á efnisskránni
verða lög úr íslenskum leikritum,
negrasálmar og auk þess lög úr
óperum og söngleikjum.
Flugleibahlaup í kring-
um Reykjavíkurflugvöll
í kvöld, fimmtudag, kl. 19 hefst
Flugleiðahlaupið 1995 við Hótel
Loftleiðir og verður hlaupin 7
kílómetra vegalengd í kringum
Reykjavíkurflugvöll. Hlaupið,
sem er á vegum Trimmklúbbs
Flugleiða, er öllum opib og verður
hlaupið í fjórum aldursflokkum.
Allir þátttakendur, sem ljúka
hlaupinu, fá verðlaunapening og
aöalverðlaun hlaupsins verða
dregin út í lokin, þannig ab allir
sem taka þátt hafa jafna mögu-
leika til ab hljóta þau án tillits til
þess í hvaða sæti þeir lenda. Verð-
launin em flugfarmibi á Evrópu-
leiðum Flugleiða, gisting og
morgunverður á Scandic Hótel
Loftleiðum og kvöldverður fýrir
tvo í Blómasal Hótel Loftleiða. Að
auki verða veitt sérverðlaun fyrir
3 fyrstu sætin í öllum aldursflokk-
um. Skráning fyrir hlaupið hefst
kl. 17 í dag ab Scandic Hótel Loft-
leiðum. Þátttökugjald er 500
krónur.
Skyndihjálparnámskeiö
Rauba krossins
Reykjavíkurdeild RKÍ gengst
fyrir tveimur námskeiðum í
skyndihjálp. Fyrra námskeiðiö
hefst sunnud. 7. maí kl. 11. Kennt
verbur til kl. 17. Einnig verður
kennt sunnud. 14. maí. Nám-
skeiðiö verður í Fákafeni 11.
Síðara námskeiðið hefst mánu-
daginn 8. maí kl. 19. Kennt verð-
ur til kl. 23. Kennsludagar verða
8., 9. og 11. maí. Námskeiðið
verður haldiö í Ármúla 34.
Þeir, sem hafa áhuga á ab kom-
ast á námskeiðin, geta skráð sig í
síma 688188 frá kl. 8-16.
Söngnámskelb á
Hvolsvelli
Dagana 25.-28. maí n.k. mun
Ágústa Ágústsdóttir söngkona
halda söngnámskeið í húsakynn-
um Tónlistarskóla Rangæinga á
Hvolsvelli.
Margvíslegir - gistimöguleikar
eru á Hvolsvelli, öll almenn þjón-
usta og fyrirgreiösla til fyrirmynd-
ar í fögru umhverfi, og daglegar
áætlunarferðir eru frá Reykjavík.
Námskeiðið er einnig hægt að
sækja sem áheyrandi og þá dag í
senn, fyrir alla lærða og leika, sem
áhuga hafa á að sjá og heyra
hvernig söngkennsla fer fram.
Námskeiðiö stendur sem fyrr
segir í 4 daga og lýkur meb tón-
leikum þar sem allir þátttakendur
syngja nokkur lög eftir getu hvers
og eins.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir 15.
maí til Agnesar Löve í síma 98-
78260 eða 98-78282. Hún veitir
einnig allar nánari upplýsingar.
HM-ís í íslensku fánalit-
unum
í tilefni af heimsmeistara-
keppninni hér á landi býður ís-
búðin í Kringlunni nú sérstakan
HM-ís í íslensku fánalitunum.
Mókollur, lukkudýr keppninnar,
og stjörnuljós fylgja hverjum ís til
að minna landann á íslenska jarð-
kraftinn, frostib og funann, sem
vonandi skila sér í kraftinum hjá
strákunum okkar í íslenska lands-
liðinu.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavík frá 28. aprfl tll 4. mal er f Borgar apótekl
og Grafarvogs apótekl. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll
kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnu-
dögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu
eru gefnar f sfma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags íslands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum Slmsvari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjaröar apótek og Norðurbæjar apó-
tek eru opfn á vlrkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar i símsvara nr. 51600.
Akureyrt: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort að sinna kvökf-, nælur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opið I því apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-12.00 og 20.0u
21.00. Á öðrum tímum er ‘yfjafræðingur á bakvakt. Upplýs-
ingar eru gefnar I síma 22445.
Apótek Keflavlkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgkfaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
•18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 8.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
1. maí 1995
Mánabargrei&slur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.921
1 /2 hjónalífeyrir 11.629
Full tekjutrygging eililifeyrisþega 23.773
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 24.439
Heimilisuppbót 8.081
Sérstök heimilisuppbót 5.559
Barnalífeyrir v/1 barns 10.794
Meölag v/1 barn 10.794
Mæöralaun/feöralaun v/1 barns 1.048
Mæbralaun/febralaun v/ 2ja barna 5.240
Mæbralaun/febralaun v/ 3ja barna eba fleiri 11.318
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaba 16.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaba 12.139
Fullur ekkjulífeyrir 12.921
Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190
Fæbingarstyrkur 26.294
Vasapeningar vistmanna 10.658
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658
Daggreibslur
Fullir fæbingardagpeningar 1.102,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00
Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150,00
Slysadagpeningar einstaklings 698,00
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri 150,00
Vinsamlega athugib ab bætur eru lægri í maí en í
apríl, því í apríl var greidd hækkun aftur í tímann.
GENGISSKRÁNING
3. maf 1995 kl. 10,54 Opinb. viðm.gengi Genjl
Kaup Sala skr.fundar
Bandarfkjadollar ....62,84 63,02 62,93
Sterlingspund ..101,39 101,67 101,53
Kanadadollar ....46,20 46,38 46,29
Dönsk króna ..11,625 11,663 11,644
Norsk króna ..10,140 10,174 10,157
Sænsk króna ....8,582 8,612 8,597
Flnnskt mark ..14,799 14,849 14,824
Franskur franki ..12,816 12,860 12,838
Belgfskur franki ..2,2162 2,2238 2,2200
Svissneskur franki.. ....55,49 55,67 55,58
Hollenskt gyllini ....40,85 40,99 40,92
Þýsktmark ....45,77 45,89 45,83
ítölsk Ifra 0,03767 0,03783 6,525 0,03775 6,513
Austurrfskur sch ....6,501
Portúg. escudo ..0,4318 0,4336 0,4327
Spánskur peseti ..0,5105 0,5127 0,5116
Japanskt yen ..0,7557 0,7579 0,7568
..103,03 103,45 99,54 103,24 99,34
Sérst. dráttarr ....9934
ECU-Evrópumynt ....83,66 83,94 83,80
Grfsk drakma ..0,2803 0,2813 0,2808
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar